Morgunblaðið - 03.02.2006, Page 17

Morgunblaðið - 03.02.2006, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2006 17 ERLENT Þ egar Atlantshafsbanda- lagið (NATO) sam- þykkti á fundi utanríkis- ráðherra aðildarríkj- anna í desember að útvíkka starfsemi friðargæslunnar í Afganistan – létta byrði Bandaríkja- hers og taka að sér hættulegri verk- efni – virtist starfsemi bandalagsins vera komin á nýtt og metnaðarfullt stig. Embættismenn í Washington sjá nú aftur á móti blikur á lofti og hafa áhyggjur af því að Bandaríkja- stjórn geti ekki reitt sig á þátttöku evrópskra aðildarríkja NATO í „stríðinu gegn hryðjuverkastarf- semi“. Þeir óttast einnig að Banda- ríkjamenn geti ekki treyst á stuðn- ing gamalla bandamanna í Evrópu við hugsanlegan hernað á öðrum stöðum í heiminum þegar fram líða stundir. Deilur í Hollandi um þátttöku landsins í friðargæslunni í Afganist- an hafa kynt undir þessum áhyggj- um Bandaríkjastjórnar, að sögn Los Angeles Times. Hótaði að fella stjórnina Stjórn hægri- og miðflokkanna í Hollandi hefur verið á meðal „stað- fastra“ bandamanna Bush-stjórnar- innar og Jan Peter Balkenende for- sætisráðherra sagði í desember að hann styddi tillögu um að allt að 1.400 hollenskir hermenn yrðu send- ir til Uruzgan-héraðs í suðurhluta Afganistans þar sem uppreisnar- menn hafa hert árásir sínar á friðar- gæsluliða síðustu mánuði. And- staðan við tillöguna fór hins vegar vaxandi meðal almennings og einn stjórnarflokkanna, miðflokkurinn D66, hótaði að fella stjórnina sam- þykkti hún að senda fleiri hermenn til Afganistans. Stjórnin ákvað að bera málið undir þingið til að af- stýra stjórnarkreppu. Búist er við að þingið samþykki tillöguna þar sem forystumenn stærsta stjórnarandstöðuflokksins, verkamannaflokksins PVDA, féllust á að styðja hana. Ný skoðanakönn- un bendir til þess að 47% Hollend- inga séu andvíg tillögunni en 45% hlynnt. Margir Hollendingar tóku að efast um tillöguna þegar Hamid Karzai, forseti Afganistans, sagði á fundi með hollenskum embættis- mönnum að þeir mættu búast við því að miklu fleiri hermenn féllu í Uruzgan-héraði. Andstæðingar tillögunnar segja að verkefnið í Uruzgan sé of hættu- legt. „Við teljum að það væri mjög óskynsamlegt að fara úr verkefni, sem snýst einkum um friðargæslu, og hefja í reynd þátttöku í stríði,“ sagði Bert Bakker, talsmaður D66. The Christian Science Monitor hafði eftir Lousewies van der Laan, varaformanni D66, að Hollendingar hefðu verið beðnir um að mynda „svæðisbundnar endurreisnarsveit- ir“ (e. Provincial Reconstruction Teams) í Uruzgan. Hún bætti við að hollensku friðargæsluliðarnir gætu ekki leyst verkefni slíkra sveita af hendi á átakasvæði. Hollendingar hafa áður farið illa út úr vanhugsaðri friðargæslu og vilja ekki brenna sig á sama soðinu. Serbneskir hermenn umkringdu Srebrenica í Bosníu árið 1995, þegar bærinn var „griðasvæði“ undir vernd Sameinuðu þjóðanna, og hót- uðu að ráðast á léttvopnaða hol- lenska friðargæsluliða. Þegar her- liðinu var leyft að fara frá Srebrenica myrtu serbnesku her- sveitirnar um 8.000 bosníska músl- íma. Óttast meira mannfall Uppreisnin í Afganistan hefur kostað um 1.600 óbreytta borgara lífið, að því er fram kemur í nýlegri skýrslu Human Rights Watch um ástandið í landinu. Mannréttinda- samtökin segja að liðið ár hafi verið það mannskæðasta í Afganistan frá því að stjórn talibana var felld árið 2001. Blikur eru á lofti um að blóðsút- hellingarnar aukist. Fréttastofan AP hafði í gær eftir afgönskum hér- aðsstjóra að fjölmennur hópur upp- reisnarmanna sé á leiðinni til lands- ins frá Írak. „Þeir tengjast al-Qaeda og börðust við bandaríska hermenn í Írak. Þeim hefur verið skipað að koma hingað og margir þeirra hafa búið sig undir sjálfsvígsárás.“ Um sjö manna hópur íslenskra friðargæsluliða er í vesturhluta Afganistans en ákveðið var í nóvem- ber að kalla íslenska friðargæsluliða frá norðurhlutanum vegna aukinnar spennu á svæðinu. Samstaða NATO rofin? Þótt flest benti til þess í gær að hollenska þingið samþykkti að senda 1.400 hermenn til Uruzgan- héraðs stóð bandarískum embættis- mönnum uggur af deilunni, að sögn Los Angeles Times. Blaðið segir að Bandaríkjastjórn hafi mestar áhyggjur af því að einstök NATO- ríki geti hafnað þátttöku í verk- efnum sem bandalagið hefur sam- þykkt. „Þeir hafa áhyggjur af útþynn- ingu meginreglunnar um samstöðu bandalagsins,“ hafði blaðið eftir Charles A. Kupchan, bandarískum sérfræðingi í málefnum Evrópu. Að sögn Kupchans endurspegla deilurnar í Hollandi miklu víðtækari umræðu í aðildarlöndum NATO um sameiginleg verkefni bandalagsins í framtíðinni. Komið hafa fram vísbendingar um að nokkur NATO-ríkjanna séu treg til að taka þátt í verkefnum bandalagsins. Það samþykkti til að mynda árið 2004 að senda hermenn til Íraks í því skyni að þjálfa íraskar öryggissveitir. Nokkur NATO- ríkjanna lögðu til fáa hermenn í þetta verkefni og Þjóðverjar þjálf- uðu aðeins íraskar öryggissveitir utan landamæra Íraks. Þótt NATO hafi samþykkt friðar- gæsluna í Afganistan hafa mörg að- ildarlandanna verið treg til að leggja meira fé af mörkum eða senda þang- að fleiri hermenn og tæki. Í Afgan- istan eru til að mynda aðeins tvær flugvélar á vegum NATO. Kupchan telur að tregða margra NATO-ríkja til að taka þátt í að- gerðum Bandaríkjahers í baráttunni gegn hryðjuverkastarfsemi megi ef til vill rekja til vaxandi mótspyrnu gegn stefnu George W. Bush for- seta. Þetta sé nokkurs konar hefnd fyrir þá ákvörðun Bush-stjórnar- innar að veðja á „bandalög hinna viljugu“ í stað hefðbundinna banda- laga fyrir innrásina í Írak. NATO-ríki treg í taumi Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is Reuters Afganskur piltur í byggingarvinnu í Kabúl, höfuðborg Afganistans. Þar eru flest hús hlaðin úr stórum múrsteini. ’Þótt NATO hafi sam-þykkt friðargæsluna í Afganistan hafa mörg aðildarlandanna verið treg til að leggja meira fé af mörkum eða senda þangað fleiri hermenn og tæki.‘ San Francisco. AP. | Maður í Louis- iana hefur höfðað mál á hendur Apple-fyrirtækinu sem framleiðir iPod-spilarana á grundvelli þess að varan geti valdið því fólki heyrnarskaða sem noti hana. iPod-spilar- arnir hafa notið gífurlegra vin- sælda síðustu misserin og hef- ur Apple selt meira en 42 millj- ónir spilara frá því að þeir voru settir á markað 2001. Raunar seld- ust 14 milljónir spilara á síðasta ársfjórðungi síðasta árs einum og sér. Kemur fram í stefnu Johns Kiel Pattersons, sem höfðað hefur málið á hendur Apple í Kaliforníuríki, að iPod-spilarar geri mönnum kleift að hlýða á tónlist á allt að 115 desí- belum, en það sé nægur hávaði til að skaða heyrn manns hlusti hann lengur en 28 sekúndur á dag. Patterson hefur farið fram á að málið verði tekið fyrir sem hóplög- sókn (e. class-action), þ.e. verði rek- ið fyrir hönd fjölda fólks sem kann að eiga hagsmuna að gæta. Hann krefst skaðabóta og þess að Apple breyti iPod-spilurunum. Ekkert bendir til að Patterson hafi orðið fyrir heyrnarskaða en lögmenn hans segja það aukaatriði. „Hann keypti vöru sem ekki er örugg eins og hún er nú seld á markaði,“ sagði lögmaður hans. Segir iPod geta skaðað heyrnina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.