Morgunblaðið - 03.02.2006, Qupperneq 26
26 FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
LAUGARDAGINN 4. febrúar,
fer fram prófkjör Samfylking-
arinnar í Kópavogi vegna bæj-
arstjórnarkosninganna
í vor. Ég gef kost á
mér í 1.–4. sæti listans.
Ég hef setið sem vara-
bæjarfulltrúi á yf-
irstandandi kjör-
tímabili og sem fulltrúi
Samfylkingarinnar í
Jafnréttisnefnd. Hvers
vegna á að kjósa mig í
hina nýju fram-
varðasveit Samfylking-
arinnar í Kópavogi
fyrir næsta kjör-
tímabil? Jú, ég hef öðl-
ast ómetanlega
reynslu í bæjarmálunum síðustu ár-
in og svo hef ég einnig verið mjög
virk í Samfylkingarfélaginu í Kópa-
vogi og í Suðvesturkjördæmi frá
upphafi. Áður tók ég virkan þátt í
starfi Kópavogslistans og Kvenna-
listans. Ég tel að reynsla mín sem
kennari síðustu 5 árin hjá Kópa-
vogsbæ nýtist mér mjög vel. Svo
ekki sé minnst á að ég hef verið
Kópavogsbúi frá fæðingu og hef
fylgst með bænum breytast úr því
að vera manneskjulegur félags- og
fjölskyldubær í það að steinsteypa
og malbik eru það sem skiptir
mestu máli fyrir bæjaryfirvöld á
kostnað þjónustunnar við fólkið. Því
vil ég breyta.
Mörg málefni eru mér hugleikin,
en ofarlega í huga mér í dag eru
menntamál í víðum skilningi. Leik-
skólinn er fyrsta skólastigið og á
líkt og önnur skólastig að vera
gjaldfrjáls. Bæjaryfirvöld eiga sem
atvinnurekandi að stuðla að því að
við grunn- og leikskólana vilji starfa
vel menntað og hæft starfsfólk og
að ekki skapist neyðarástand eins
og gerst hefur á undanförnum vik-
um. En það hefur mjög skaðleg
áhrif á börnin, foreldra þeirra og
starfsfólk leikskólanna.
Varðandi grunnskóla Kópavogs
hefur aðalmarkmið stjórnvalda und-
anfarin ár verið að byggja við gömlu
skólana þannig að þeir
gætu orðið einsetnir.
Hefur það verið gert
með alls konar aðferð-
um og plástrum með
mjög misjöfnum ár-
angri. Nýjar skóla-
byggingar hafa ekki
verið reistar í takt við
hraða uppbyggingu
nýju hverfanna.
Meirihlutinn í stjórn
Kópavogsbæjar virðist
enga sýn hafa á það
hvert skólarnir í Kópa-
vogi eigi að stefna.
Fyrir stuttu var bæklingi með
skólastefnu Kópavogs dreift til
Kópavogsbúa. Sú skólastefna er
mjög loðin og metnaðarlaus og unn-
in án nokkurrar umræðu eða skoð-
anaskipta. Ekkert samráð né sam-
vinna var haft við þá sem vinna í
skólunum eða foreldra. Kennarar í
Kópavogi fengu nokkurn veginn
tilbúið plagg í hendur sem þeir
máttu gera athugasemdir við. Svo
var plaggið samþykkt og síðan ekki
söguna meir. Ekkert rætt um það
til hvers er ætlast af skólunum til að
ná settum markmiðum eða umræð-
ur við skólafólk hvernig það sér fyr-
ir sér að ná markmiðum og ekkert
um hlutverk bæjaryfirvalda hvað
það varðar.
Samfélag í stöðugri þróun kallar
á það að skólar breytist og þróist í
samræmi við samfélagið. Ein-
staklingsmiðað nám, fjölbreyttir
kennsluhættir og samvinna eru þau
hugtök sem notuð eru víða um heim
um þá kennsluhætti og skóla-
samfélag sem nú er talið nemendum
heillavænlegast. Þetta vitum við
sem fylgjumst með skólaþróun
mæta vel. Þetta vita bæjaryfirvöld í
Kópavogi ekki.
Í grunnskólum Reykjavíkur er
unnið að skólastefnu í takt við þær
þjóðfélagsbreytingar sem átt hafa
sér stað síðustu ár. Sú skólastefna
er lifandi þannig að margir aðilar
koma að gerð hennar, bæði starfs-
fólk og foreldrar, ásamt yfirvöldum.
Yfirvöld í Reykjavík sjá fyrir sér að
skólarnir stefni að ákveðinni sýn, en
svo stýra skólarnir sjálfir hvaða
skref eru tekin til að nálgast þessa
sýn og hve hratt er unnið. Þar er
skipulagt, framkvæmt og endur-
skoðað árlega. Að mínu mati er
hægt að bæta úr þessu í Kópavogi
ef viljinn er fyrir hendi. Starfsfólk
skólanna kallar eftir samvinnu við
bæjaryfirvöld og er orðið langþreytt
á áhugaleysi bæjaryfirvalda á mál-
efnum grunnskólans.
Ég vil búa í bæ þar sem virðing,
jafnrétti og samvinna eru höfð í
heiðri. Ég hvet Kópavogsbúa til að
taka þátt í prófkjöri Samfylking-
arinnar á laugardaginn og eiga þátt
í að velja fólk á sterkan lista Sam-
fylkingarinnar í Kópavogi fyrir
komandi kosningar. Ég sækist eftir
stuðningi í 1.–4. sæti listans og mig
langar til þess að fá að taka þátt í
því á komandi kjörtímabili að gera
Kópavog aftur að manneskjulegri
bæ.
Stefnuleysi í skóla-
málum Kópavogs
Eftir Kristínu Pétursdóttur ’Meirihlutinn í stjórnKópavogsbæjar virðist
enga sýn hafa á það hvert
skólarnir í Kópavogi eigi
að stefna.‘
Kristín Pétursdóttir
Höfundur er kennari og varabæjar-
fulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi
og sækist eftir stuðningi í 1.–4. sæti í
prófkjöri Samfylkingarinnar í
Kópavogi.
Prófkjör Kópavogur TILVIST Reykjavíkurflugvallar,
sem er flugvöllur allra landsmanna,
hefur allmikið verið til umræðu að
undanförnu. Umræð-
an hefur iðulega mót-
ast af tilfinningum,
þekkingarleysi og for-
dómum sem ruglað
hafa marga í ríminu.
Það er sérstakt að í
jafn stóru landi og
okkar, þar sem ferða-
lög og flutningar hafa
verið flókin og erfið í
framkvæmd gegnun
aldirnar skuli komin
upp umræða um það
hvernig ráðstafa eigi
landi þar sem nú
stendur okkar lands-
flugvöllur.
Sjálfsagt vildum við
flest vera laus við að
þurfa að leggja dýr-
mætt land undir vegi
og flugvelli. Hugsið
ykkur hve rómantískt
það væri að í stað
gatna og flugvalla
væru bara engi og
blóm í haga. En meðan
við notum bíla og flug-
vélar til að ferðast
verðum við öll að
sætta okkur við þann
raunveruleika að hafa
bæði vegi og flugvelli í
okkar nágrenni. Flug-
samgöngur eru flókn-
ar en þægilegar samgöngur. Ávallt
þarf að ferðast með bíl til og frá flug-
velli. Þess vegna skiptir það höf-
uðmáli að flugvellir séu í nálægð við
fólkið. Þá verða flugvellir eðlilega að
vera veðurfarslega og landfræðilega
á hentugum stöðum.
Oft vill mikilvægi varaflugvallar
gleymast en slíkur völlur hefur
miklu hlutverki að gegna í farþega-
og þjónustuflugi jafnvel þó að hann
sé sjaldan notaður sem slíkur. Hve
margir sleppa því að hafa varadekk í
bílnum sínum? Varaflugvöllur þarf
að vera í nágrenni aðalflugvallar upp
á öryggi, eldsneytisburð, þægindi og
kostnað.
Margir hafa komið með hug-
myndir um að leggja niður Reykja-
víkurflugvöll svo nýta megi landið til
annarra verkefna. Jafnvel virtir
ráðamenn hafa tekið afstöðu í þessu
stóra máli án þess að skoða hversu
miklu er til fórnað eða vita hvað
kemur í staðinn.
Að margra áliti eru aðeins þrír
meginmöguleikar í stóra flugvall-
armálinu okkar Íslendinga:
A. Að byggja nýjan fullkominn
flugvöll innan höfuðborg-
arsvæðisins sem væri fyllilega
sambærilegur Reykjavík-
urflugvelli varðandi stærð, veð-
urfar og landfræðilega legu.
Enginn staður liggur fyrir
þrátt fyrir að mörgum hug-
myndum hafi skot-
ið upp. Því er þessi
kostur kannski
ekki raunhæfur.
B. Að flytja innan-
landsflug-
starfsemina til
Keflavíkur. Sam-
tímis þyrfti þá að
byggja nýjan full-
kominn flugvöll
sem varaflugvöll,
væntanlega við
Selfoss og einnig
annan lítinn flug-
völl fyrir sjúkra-
flug, leiguflug,
kennsluflug og
einkaflug sem yrði
að vera á höf-
uðborgarsvæðinu.
C. Að halda Reykja-
víkurflugvelli
þannig að hann
þjóni því sem hann
gerir í dag en
mögulega laga
hann þannig til að
hann taki minna
pláss en nú er.
Sem stendur eru
nokkrir vinnuhópar að
störfum við að safna
upplýsingum, skoða og
kostnaðarreikna þá
möguleika sem rauhæf-
ir eru. Þá fyrst er hægt að taka upp-
lýsta og ábyrga afstöðu til þess
hvort og þá með hvaða hætti á að
breyta flugsamgöngum þjóðarinnar
er niðurstöður þessara hópa liggja
fyrir.
Það er ekki tilviljun að helmingur
höfuðborga Evrópu er með flugvelli
í aðeins 10 km fjarlægð frá borg-
armiðju. Hinar borgirnar hafa allar
aðgang að flugvelli sem staðsettur
er innan 20 km frá miðju. Það er mat
margra að höfuðborgarsvæðið á Ís-
landi geti ekki verið án mikillar
nándar við flugvöll.
Flugvöllur í höfuðborginni þjónar
margvíslegum tilgangi. Farþega-
flug, sjúkraflug, leiguflug, kennslu-
flug, einkaflug ásamt allri atvinn-
unni og ánægjunni sem
flugstarfsemin skapar.
Hvar værum við ef við hefðum
ekki haft flugáhuga-uppsprettuna,
Reykjavíkurflugvöll, til að hrífa í
loftið unga frumkvöðla sem hafa svo
byggt upp flugið fyrir okkur alla Ís-
lendinga?
Landsflugvöllur-
inn í Reykjavík
Kristján Sveinbjörnsson fjallar
um staðsetningu flugvalla
Kristján Sveinbjörnsson
’Oft vill mik-ilvægi vara-
flugvallar gleym-
ast en slíkur
völlur hefur
miklu hlutverki
að gegna í far-
þega- og þjón-
ustuflugi jafnvel
þó að hann sé
sjaldan notaður
sem slíkur.‘
Höfundur er varaforseti Flugmála-
félags Íslands.
NÆSTKOMANDI laugardag
veljum við sjálfstæðismenn á Sel-
tjarnarnesi okkur fulltrúa í próf-
kjöri til starfa á vettvangi bæj-
arstjórnar fyrir hönd
Sjálfstæðisflokksins
fyrir næsta kjör-
tímabil.
Prófkjör er einungis
fyrsti áfangi und-
irbúnings okkar fyrir
bæjarstjórnarkosning-
arnar næsta vor. Í
prófkjörinu er mik-
ilvægt að sjálfstæð-
ismenn og konur kjósi
öflugan hóp ein-
staklinga sem hafa
bæði getu og vilja til
að starfa saman af
heilindum og festu. Að
prófkjöri loknu verður þessi hópur
að ýta aftur fyrir sig baráttumálum
prófkjörs og vinna saman sem ein
samhent heild með traust og heið-
arleika að leiðarljósi.
Það er gríðarlega mikilvægt að
Seltirningar fjölmenni í prófkjörið
á laugardaginn og taki þannig þátt
í að mynda áræðið lið, sem hungrar
í árangur með heill íbúa Seltjarn-
arness að leiðarljósi.
Seltjarnarnes er ekki einungis
fjárhagslega vel stætt bæjarfélag,
heldur er það ríkt af þeim mann-
auði sem þar býr og starfar – að
því ber að hlúa til framtíðar.
Ég lít svo á að það séu mörg
spennandi verkefni framundan á
komandi kjörtímabili. Eitt af helstu
lykilmálunum er skipulag byggðar
á Hrólfsskálamel og Bygg-
garðasvæðinu. Þar er mikilvægt að
vandað verði til verka og tillögur
kynntar bæjarbúum gaumgæfilega
og af yfirvegun. Ég hef áður sagt
að Seltirningar eigi að vera öðrum
til eftirbreytni í umhverfismálum.
Tel að vinna megi í ásýnd og útiliti
bæjarins, að leiksvæði og önnur op-
in svæði bæjarins verði til eft-
irbreytni.
Ný, metnaðarfull
skólastefna er í smíð-
um sem tekur tillit til
alls skólasamfélagsins.
Ég fagna þeirri vinnu
sem er gangi, því mér
hefur fundist töluvert
vanta upp á samstarf
á milli skólastiganna á
Nesinu og samfellu í
vinnudegi barnanna.
Það er mikilvægt að
innleiðing skólastefn-
unnar takist vel og
verði framkvæmd í
sátt við alla hlutaðeigandi aðila
skólasamfélagsins.
Æskulýðs- og íþróttamál eru
klárlega mál sem þarf að vaka sér-
staklega vel yfir og þarf að tryggja
hagsmuni iðkenda sem og fjöl-
skyldunnar. Ég vil skoða nið-
urgreiðslur vegna íþrótta og tóm-
stunda líkt og gert hefur verið í
sumum nágrannasveitarfélögum
okkar en það er mikið hagsmuna-
mál fyrir barnafjölskyldur.
Málefni aldraðra eru að mínu
mati viðkvæm mál. Ég tel að bæj-
arfulltrúar eigi að vera í nánu sam-
bandi við eldri borgaranna okkar.
Það þarf að hlusta og taka tillit til
þarfa þessa mæta fólks sem hefur
skilað sínu til samfélagsins á liðn-
um árum.
Regnhlífin yfir öllum málaflokk-
um bæjarfélagsins og forsenda fyr-
ir framþróun er traust og ábyrg
fjármálastjórn sjálfstæðismanna á
Seltjarnarnesi eins og verið hefur
um áratugaskeið, að því vil ég
stuðla.
Ég hef áhuga á að komast í
framvarðarsveit sjálfstæðismanna á
Seltjarnarnesi, því ég trúi að
reynsla mín af sölu-, markaðs- og
þjónustustörfum nýtist bæjarbúum
vel auk þekkingar minnar á inn-
viðum bæjarins, enda fæddur og
uppalinn á Nesinu.
Ég tel að ég geti komið inn með
mikilvægan þátt sem ég held að
hafi tilfinnanlega vantað á yf-
irstandandi kjörtímabili, en það er
léttleiki og hæfileikinn til að hafa
gaman af viðfangsefnunum. Mik-
ilvægast er þó að vera í góðu liði
þar sem allir geta unnið saman því
liðsheildin skapar árangur. Ég er
svo sannarlega maður liðsins, á því
leikur enginn vafi.
Ég, Þór Sigurgeirsson, sækist
eftir umboði sjálfstæðismanna á
Seltjarnarnesi til að starfa í þágu
okkar Seltirninga allra.
Léttleiki og liðsheild
Eftir Þór Sigurgeirsson ’Mikilvægast er þó aðvera í góðu liði þar sem
allir geta unnið saman því
liðsheildin skapar árang-
ur.‘
Þór Sigurgeirsson
Höfundur er frambjóðandi í prófkjöri
sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi og
sækist eftir 2. sæti listans.
Prófkjör Seltjarnarnesi
TENGLAR
..............................................
www.thors.is
Marteinn Karlsson: „Vegna óbil-
gjarnrar gjaldtöku bæjarstjórnar
Snæfellsbæjar af okkur smábáta-
eigendum, þar sem ekkert tillit er
tekið til þess hvort við megum
veiða 10 eða 500 tonn, ákvað ég að
selja bátinn og flytja í burtu.“
Sigríður Halldórsdóttir skrifar
um bækur Lizu Marklund sem lýsa
heimilisofbeldi.
Hulda Guðmundsdóttir: „Ég tel
að það liggi ekki nægilega ljóst fyr-
ir hvernig eða hvort hinn evangel-
ísk-lútherski vígsluskilningur fari í
bága við það að gefa saman fólk af
sama kyni …“
Birgir Ásgeirsson: Opið bréf til
vígslubiskups Skálholtsstiftis, bisk-
ups Íslands, kirkjuráðs og kirkju-
þings.
Prófkjörsgreinar á mbl.is
www.mbl.is/profkjor
Guðrún Edda Haraldsdóttir styð-
ur Lárus B. Lárusson í prófkjör
Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnar-
nesi.
Ingólfur Margeirsson styður Dag
B. Eggertsson í prófkjöri Samfylk-
ingarinnar í Reykjavík.
Gísli Gunnarsson styður Sigrúnu
Elsu Smáradóttur í prófkjöri Sam-
fylkingarinnar í Reykjavík.
Guðrún Ögmundsdóttir styður
Sigrúnu Elsu Smáradóttur í próf-
kjöri Samfylkingarinnar í Reykja-
vík.
Gunnar Gíslason styður Ásgerði
Halldórsdóttur í 2. sætið í prófkjöri
sjálfstæðismann í Seltjarnarnesi.
Þór Whitehead styður Ólaf Egils-
son, sem býður sig fram í prófkjöri
sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi.
Ólafur býður sig fram í 3. sæti
listans.
Birgir Dýrfjörð rafvirki styður Sig-
rúnu Elsu Smáradóttur sem býður
sig fram í 2. til 4. sæti í prófkjöri
Samfylkingarinnar í Reykjavík
Magnús Helgi Björgvinsson
mælir með Guðríði Arnardóttur í 1.
sætið í prófkjöri Samfylkingarinn-
ar í Kópavogi.
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar