Morgunblaðið - 03.02.2006, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 03.02.2006, Qupperneq 49
MYRKIR músíkdagar hefjast á morgun, en hátíðin hefur skapað sér sess sem ein virtasta hátíð samtíma- tónlistar á Norðurlöndunum. Það er Tónskáldafélag Íslands sem stendur að hátíðinni í samvinnu við ýmsa að- ila tónlistarlífsins. Í ár eru þau nýmæli á dagskrá há- tíðarinnar að með samvinnu við tón- listarhúsið Laugarborg í Eyjafirði verður hluti tónleikanna þar, þar á meðal opnunartónleikarnir kl. 13 á morgun. Myrkir músíkdagar eru því jafnframt hluti af skipulögðu tón- leikahaldi í Laugarborg. Að vanda verða fjölmörg ný verk frumflutt á hátíðinni, og er hún því besti vettvangur sem völ er á til að fylgjast með því sem nýjast er í tón- sköpun íslenskra tónskálda. Ný er- lend verk verða einnig á dagskrá há- tíðarinnar, en eldri verk munu að sjálfsögðu hljóma í bland við nýmet- ið. Á opnunartónleikunum kl. 13 á morgun í Laugarborg leikur Caput þætti úr Dönsum dýrðarinnar eftir Atla Heimi Sveinsson, Portrait 7 eft- ir Snorra Sigfús Birgisson, Af gleri eftir Tryggva M. Baldvinsson, þætti úr Tristiu eftir Hafliða Hall- grímsson, Kalaïs eftir Þorkel Sig- urbjörnsson og Equilibrium IV: Windbells, eftir Huga Guðmunds- son, sem heyrist nú í fyrsta sinn á Ís- landi. Verkið var pantað af Caput fyrir ferð þeirra á heimssýninguna í Japan 2005, þar sem það var frum- flutt. Eins og nafnið gefur til kynna er efniviður verksins sóttur í hljóð- heim vindsins og bjöllunnar. „Vind- bjöllur sem margir hafa hangandi á veröndum er fyrirbæri sem sam- einar vindinn og bjöllurnar, og þær hafa alltaf heillað mig mikið,“ segir Hugi. „Flókinn hrynurinn, sem vind- urinn stjórnar, er afar ófyrirsjáan- legur, en verður þéttari eftir því sem meira blæs.“ Verk Huga er samið fyrir bassaflautu, bassaklarinettu, gítar, selló, píanó og tölvuhljóð. Tón- leikarnir verða endurteknir í Saln- um í Kópavogi á mánudagskvöld kl. 20. Línan og Þankar hjá Atón Tónlistarhópurinn Atón hefur starfað í átta ár og frumflutt um 40 íslensk verk. Á tónleikum hans í Ými kl. 20 annað kvöld verða verk samin fyrir ýmsa miðla, jafnt hefðbundin hljóðfæri sem rafhljóðgjafa. Verkin eru 355° eftir Áka Ásgeirsson, Fluff or Drama eftir Atla Heimi Sveins- son, Syrpa eftir Charles Ross, Streptococcaceae eftir Inga Garðar Erlendsson, Dogons revisited eftir Kolbein Einarsson, Línan eftir Pál Ívan Pálsson, Þankar eftir Ríkharð H. Friðriksson og Progress Across the Gravel eftir Úlfar Inga Haralds- son. Verk Úlfars Inga var samið fyr- ir Atón. Úlfar Ingi segir um verk sitt að grunnefniviðurinn sé sá sami í öll- um fimm þáttum þess, sérstaklega hvað hljóma varðar, og líkir því við sjónræna liti sem með blöndun mynda ný blæbrigði eða alveg nýjan lit. „Að öðru leyti fjallar verkið um túlkun eða umskrift á efni sem skap- að var upphaflega með tiltölulega til- viljunarkenndum aðferðum t.d. þar sem tölva skráir niður það sem hún heyrir við hlustun á ákveðna tónlist sem síðan er túlkað og umskrifað af mér ef til vill til þess eins að vera túlkað aftur af vélinni og svo koll af kolli. Á endanum er túlkunin al- gjörlega mín og er þannig staðreynd sem byggist á samskiptaferli þar sem hugmyndir og tákn taka sífelld- um breytingum. Einhvers konar se- míólógísk stúdía um takmörk mannsins til að höndla kjarna merk- ingar, en slíkt er í raun forsenda skapandi frelsis og framþróunar.“ Stjórnandi á tónleikum Atóns er Stefán Jón Bernharðsson. Syngjandi skógur rósaviðar og íbenholts Ingólfur Vilhjálmsson bassaklar- inettuleikari og Tobias Guttman slagverksleikari bjóða upp á hvorki fleiri eða færri en fimm verk sem ekki hafa heyrst áður á tónleikum sínum í Ými á sunnudag kl. 16 og í Laugarborg á mánudag kl. 20.30. Að auki leika þeir tvö eldri verk, þar á meðal Midare eftir hollenska tón- skáldið Ton de Leeuw, sem hefur haft mikil áhrif á íslenska tónlist gegnum íslenska tónsmíðanem- endur sína í Hollandi. Nýju verkin sem Ingólfur og Guttman leika eru Bois chantant eftir Áskel Másson, The Indigenous Spirit eftir Kolbein Einarsson, Brainstorm in a Glass of Water eftir Gunnar Andreas Krist- insson, 356° eftir Áka Ásgeirsson og Opna eftir Atla Ingólfsson. Blásarasveit Reykjavíkur leikur fjögur verk á tónleikum í Langholts- kirkju á sunnudagskvöld kl. 20. Þau eru Preludio sinfonico eftir Pál P. Pálsson, 2 hugtök eftir Tryggva M. Baldvinsson, Stef og tilbrigði ópus 43a eftir Arnold Schönberg og Dream Sequence eftir Ernst Kren- ek. Verkin fjögur spanna ríflega hálfa öld, verk Schönbergs var sam- ið lýðveldisárið 1944, Draumaröð Kreneks 1976, en íslensku verkin 1999–2000. Blásarasveit Reykjavíkur var stofnuð í ársbyrjun 1999 af Kjartani Óskarssyni, Tryggva M. Baldvins- syni og fleiri áhugamönnum um blásarasveitatónlist. Sveitina skipa nú u.þ.b. 50 hljóðfæraleikarar. Eitt af höfuðmarkmiðum sveitarinnar er að hvetja til nýsköpunar á sviði blás- aratónlistar og fá íslensk tónskáld og síðar jafnvel erlend til að semja verk fyrir sveitina. Maríumúsík Leifs og Sjö sérhljóðar Fyrri kórtónleikar Myrkra mús- íkdaga verða í Langholtskirkju á þriðjudagskvöld kl. 20, en þar syngja kórarnir Vox Academica og Jón Leifs Camerata undir stjórn Hákonar Leifssonar. Úlfar Ingi Haraldsson á tvö verk á efnisskrá tónleikanna, annað þeirra við ljóð Thomasar Moore, og Maríumúsík Leifs Þórarinssonar við þrjá Mar- íutexta verður jafnframt flutt. Nýju verkin á efnisskránni eru Ísland, eftir Egil Gunnarsson við ljóð Hann- esar Péturssonar, Sjö sérhljóðar handa vini mínum, eftir Hilmar Örn Hilmarsson, Landslag með tíma, eftir Hauk Tómasson við ljóð Sig- fúsar Bjartmarssonar, og Kvenna heiti, eftir Atla Ingólfsson við texta Snorra Sturlusonar. Hilmar Örn er betur þekktur sem kvikmyndatónskáld en höfundur kórtónlistar. Hann segir verk sitt, sem samið er fyrir Vox Academica, litla tónafórn, sem tileinkuð sé minningu vinar; hugleiðingu sem byggist á hugmyndum um helgi hljóða og þess sem nefnt er. Nánar verður fjallað um dagskrá Myrkra músíkdaga í næstu viku. Myrkir músíkdagar lýsa upp skammdegið MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2006 49 MENNING NOKKUÐ óvenjuleg og forvitnileg samsýning stendur yfir í Listasafni ASÍ, þar hafa listamenn og hönnuðir leikið sér að faglegum mörkum, farið yfir þau og jafnvel brotið viljandi all- ar reglur um höfundarrétt. Nið- urstaðan er lifandi og skemmtileg heild, rík að leik sem áhorfandinn tekur auðveldlega þátt í með því að skoða hvernig listamennirnir og hönnuðirnir hafa brugðist við þeirri áskorun að skipta um hlutverk ef svo má segja og gengið auk þess frjáls- lega í hvert annars smiðju. Þar sem list og hönnun hafa nú lengi vel dans- að lipran línudans og mörkin þarna á milli stundum óljós eins og mörkin á milli hinna ýmsa listgreina eru einnig oft í dag, er hugmyndin vel þess virði að hrinda í framkvæmd. Mér sýnist líka eins og allir sem þátt tóku hafi auðgast á samstarfinu og það hafi skilað tilætluðum árangri. Stórtæk- astur á sýningunni er málarinn Sig- tryggur Bjarni sem hér fer yfir í hlutgervingu verka sinna í formi inn- setningar og gólf- eða vegg- púsluspils. Innsetning hans í arins- tofu kemur skemmtilega á óvart en vegna þess hversu lítið rýmið er verður minna úr sjónrænum áhrifum þess en verið gæti. Hin rómantíska náttúrusýn sem skapast í verkinu minnir á málverk eftir Caspar David Friedrich af hafís, slík rómantík gæti líka notið sín á stórum skala t.a.m. í útirými Hafnarhússins. Tinna Gunn- arsdóttir heldur áfram með skor- dýraþema sitt og útfærir það á hug- vitssamlegan máta, verk hennar Fluga á vegg eru skemmtilegur orða- leikur og taka sig vel út. Sigríður Ólafsdóttir er hógvær í framsetningu myndraðar sinnar af Guðrúnu Lísu en tekst með ágætum að samræma útgangspunkt sýningarinnar í verk- inu og leika sér með frjálsan höfund- arrétt. Endurtekningin er hér henn- ar helsti styrkur. Ragnheiður Ingunn Ágústsdóttir leitar skemmti- lega í smiðju félaga sinna og vinnur úr verkum þeirra sjálfstæð verk. Frelsið sem gefið var á höfundarrétt- inn er mikilvægur þáttur þessarar sýningar því þannig skapast ekki að- eins spenna milli faglegra marka og eiginleika heldur einnig persónuein- kenna höfunda. Öll þekkjum við líka markaðssetningu listaverka í formi tannburstaglasa eða hvers sem er og hér verður slík markaðssetning að áhugaverðum leik. Þegar kemur að markaðssetningu listarinnar og listneyslu í formi lista- verkakaupa er áhugavert að velta fyrir sér eiginleikum listaverksins og hönnunargripsins. Í minimalískri innbústísku samtímans á listin í harðri samkeppni við fullkomnar lín- ur leðursófans, létta sveigju lamp- ans, skýrt afmarkaðan prófíl hæg- indastólsins. Sýning sem þessi vekur þannig m.a. verðskuldaða athygli á mörkum lista og hönnunar og hugs- anlegra markmiða hvoru tveggja. Verðlagning íslenskra listaverka er mér þó stundum spurn. Púsl á millj- ón? Mitt er þitt MYNDLIST Listasafn ASÍ Til 5. febrúar. Opið alla daga nema mánu- daga frá kl. 13–17. Hlutur, verk, hlutverk. Ragnheiður Ingunn Ágústsdóttir, Sigríður Ólafsdóttir, Sigtryggur Bjarni Baldvinsson, Tinna Gunnarsdóttir. Morgunblaðið/Kristinn „Sýning sem þessi vekur þannig m.a. verðskuldaða athygli á mörkum lista og hönnunar og hugsanlegra markmiða hvors tveggja.“ Ragna Sigurðardóttir KJARTAN Ólafsson, for- maður Tónskáldafélags Íslands, segir að Myrkir músíkdagar hafi þroskast vel frá því hátíðin var fyrst haldin, árið 1980. „Hátíðin var fyrst smærri í sniðum og haldin annað hvert ár. Hún var líka einsleitari, í samræmi við tíðarandann þá. Í dag er hún haldin hvert ár, með mun fjölbreyttari dagskrá, sem er í samræmi við tíðarandann í dag. Tónleikum hefur fjölgað, flytj- endum hefur fjölgað, en síðast en ekki síst hefur gestum fjölgað. Undanfarin tvö ár hafa nærri þrjú þúsund manns sótt tónleika hátíð- arinnar, en það er mikil aukning frá því sem var í upphafi.“ Kjart- an segir viðhorf almennings hafa breyst, og að það sem í árdaga há- tíðarinnar hafi verið kallað „arg- asta framúrstefna“ þyki vera eins og „huggulegt vöggulag“ í dag svo ýtrustu viðhorfum sé flaggað. „Yngra fólkið er opnara og ekki eins bundið við eldri við- mið, eins og áður var. Tónlistarmenntun hefur líka breikkað með ólík- um sérskólum, og það hefur aukið víðsýni og þekkingu á tónlist.“ Kjartan segir að mikið hafi verið rætt um það undanfarin ár að tengja hátíðina betur lands- byggðinni og segir það mjög mikilvægt. Myrkir mús- íkdagar geti tengst tónleikahaldi og tónlistarhátíðum út um allt land. „Ég vona að þetta þýði að hljóðfæraleikarar og íslensk tón- list geti farið víðar um landið, en einnig að tónlistarfólk utan af landi geti komið og leikið með okkur í Reykjavík. Við vonum að samstarfið við Laugarborg nú sé vaxtarbroddur og vísir að enn frekara samstarfi við landsbyggð- ina. Þegar fram líða stundir verða Myrkir músíkdagar vonandi í neti tónleika sem haldnir verða um allt land.“ Argasta framúrstefna eða hugguleg vögguvísa umtali fólks á götum úti og annars staðar. Ég finn það alls staðar í samfélaginu hér að starfsemin í Laug- arborg hefur meðbyr. Fólk kann að meta og ber virð- ingu fyrir því sem hér er gert.“ Norðlendingar eru einn- ig í röðum flytjenda á Myrkum músíkdögum, því Hymnodia, kammerkór Akureyrarkirkju, syngur á tón- leikum bæði í Laugarborg, á mið- vikudagskvöld, og í Langholtskirkju í Reykjavík laugardaginn 11. febr- úar. Á tónleikunum verða frumflutt tvö verk eftir Norðlendinga, þá Jón Hlöðver Áskelsson og Davíð Brynjar Franzson. „Annars skilgreini ég orðið heimamenn öðruvísi en heima- menn. Heimamaður í tónlistinni á heima í tónlistarhúsi, hvar sem það er. Þar er hann heimamaður, hvað sem öðru líður. Caput er hópur sem leikur út um allan heim. Ég gleðst yfir því að Caput skuli nú loksins spila hér fyrir norðan.“ ÞÓRARINN Stefánsson, listrænn stjórnandi tón- leikahalds í Laugarborg, segir Myrka músíkdaga lýsa upp skammdegið á Norðurlandi. „Þetta er í raun óhjákvæmileg þróun. Ég skil ekki hvernig tekist hefur að halda hátíðinni svona fjarri okkur jafn- lengi.“ Þórarinn segir ástæðu þess að samvinna um tónleikahaldið verði núna, en ekki fyrr, þá, að í Laugarborg hafi verið byggð upp mjög góð aðstaða til tónleikahalds. „Húsið er gamalt félagsheimili, en var breytt árið 2000 í tónlistarhús. Í kjölfarið hefur regluleg og markviss starfsemi ver- ið í húsinu, og þetta er grundvöll- urinn sem við byggjum á. Við höfum verið að byggja upp tónlistarlífið hér á svæðinu eftir mikinn dvala, sem að hluta til helgaðist af aðstöðu- leysinu, og erum nú í stakk búin til að takast á við þetta. Áhugi almenn- ings er að aukast. Það finnum við bæði á aðsókninni í Laugarborg og Heimamaður í tónlistinni á heima í tónlistarhúsi Ingólfur Vilhjálmsson og Tobias Guttman í Ými sunnudag kl. 16 og Laugarborg mánudag kl. 20.30. „Rósaviðarnótur mar- imbunnar og íbenholt bassa-klarinettsins voru kveikjan að titli verksins. Verkið er eins konar fantasía, eða hug- leiðing, í a-b-c-b-c-a- formi. Leikið er með vissa fjölbreytni í tón- myndun og tónalit í verkinu. Áberandi eru einnig andstæður í hraðavali.“ Áskell Másson um verk sitt, Bois chantant. Atón í Ými annað kvöld kl. 20. „Verkið var samið fyrir Aton-hópinn í mesta skammdeginu veturinn 2005–06. Þótt það sé skrifað fyrir kammersveit er það jafnvel meira rafverk en hljóðfæraverk því hljóð hljóðfæranna eru oftast notuð sem upphafs- punktur fyrir rafmögnuð hljóðferli sem enda stundum á því að bera hljóðfærin ofurliði. Þótt stundum gangi talsvert á enda sam- skiptin að lokum í hinu mesta bróðerni.“ Ríkarður H. Friðriksson um verk sitt, Þanka. Atón í Ými annað kvöld kl. 20. „Titillinn segir allt sem segja þarf – stundum þarf ekki meira.“ Kolbeinn Einarsson um verk sitt, Dogons revisited. Vox Academica og Jón Leifs Camerata í Langholtskirkju þriðjudag kl. 20. „Ég samdi Kvenna heiti við texta Snorra Sturlusonar úr Skáldskaparmálum. Það var fannst mér nokkuð mátulegt að svara þessari nafnagleði með dá- litlum hálfkæringi, til dæmis er hluti verksins rappskotinn. Ekki kom það mér á óvart að nafnaþulan reyndist vel fallin til röppunar, enda er rappið sprottið úr tímalausri hneigð manna til að tala eða kveða undir taktslætti. Verkið er fyrir blandaðan kór, hróp-, tal- og sönghóp og einn eða fleiri röppuði. Það er tileinkað Ingibjörgu Ólafsdóttur.“ Atli Ingólfsson um verk sitt, Kvenna heiti. Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.