Morgunblaðið - 03.02.2006, Síða 50

Morgunblaðið - 03.02.2006, Síða 50
50 FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ Sími - 564 0000Sími - 462 3500 N ý t t í b í ó VELJIÐ HÉR AÐ NEÐAN KVIKMYNDAHÚS OG SÝNINGARTÍMA SEM**** WALK THE LINE kl. 5.30. 8 og 10.30 B.i. 12 ára FUN WITH DICK AND JANE kl. 8 og 10 MEMOIRS OF A GEISHA kl. 5.20 WALK THE LINE kl. 5, 8 og 11 B.I. 12 ÁRA WALK THE LINE LÚXUS kl. 5, 8 og 11 B.I. 12 ÁRA FUN WITH DICK AND JANE kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 THE FOG kl. 8 B.I. 16 ÁRA BROKEBACK MOUNTAIN kl. 5, 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA CHEAPER BY THE DOZEN 2 kl. 4 og 6 HOSTEL kl. 10.10 B.I. 16 ÁRA FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM! THE FOG F U N VINSÆLASTA MYNDIN á Íslandi í dag! 6TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA BESTA TÓNLISTIN,JOHN WILLIAMS GOLDEN GLOBE VERÐLAUN walk the line „Enginn ætti að láta Walk the Line framhjá sér fara því myndin er auðgandi fyrir augun, eyrun og hjartað.“ V.J.V Topp5.is STÓRKOSTLEG VERÐLAUNAMYND UM ÆVI JOHNNY CASH. NEW YORK FILM CRITICS´ CIRCLE BOSTON SOCIETY OF FILM CRITICS SCREEN ACTORS GUILD (SAG) NATIONAL BOARD OF REVIEW BESTA MYND ÁRSINS, BESTI LEIKARI OG LEIKKONA ÁRSINS Ein besta mynd ársins. Magnaður leikur hjá Joaquin Phoenix og Reese Witherspoon eeee Dóri DNA / DV eeee HJ / MBLeee Kvikmyndir.is eee Kvikmyndir.com eee Topp5.is eee Rolling Stone SÖNGVARINN og lagahöfundurinn Siggi Ármann mun halda útgáfu- tónleika sína í Tjarnarbíói í kvöld og hefjast tónleikarnir stundvíslega klukkan 20. Á tónleikunum mun Siggi leika og syngja lög af diskinum Music for the Addicted sem kom út í haust og fékk víðast hvar mjög lof- samlega dóma, meðal annars hér í Morgunblaðinu. Með Sigga leika á tónleikunum, í völdum lögum, Strengjakvartettinn Amina, Örnólfur Kristjánsson á selló, Davíð Þór Jónsson á píanó, Kjartan Sveinsson á hljómborð, Sig- tryggur Baldursson á slagverk og Steingrímur Guðmundsson á tabla. Tónlistarmaðurinn Siggi Ármann hefur markað sér sérstöðu í ís- lenksu tónlistarlífi. Tónlist | Siggi Ármann með útgáfutónleika í Tjarnarbíói Ánetjandi tónlistar- maður Siggi Ármann í Tjarnarbíói í kvöld kl. 20. Aðgangseyrir 1.000 kr. EINS og alþjóð veit eru stúlkurnar í Nylon á leið til Bretlandseyja þar sem þær hyggja á mikla sigra á hæð- óttum völlum tónlistarinnar þar í landi. Sérlegur umboðsmaður þeirra þar, Martin O’Shea, hefur áður stýrt hljómsveitum á borð við Atomic Kittens og því ekki nýr í hettunni eins og nú sannast þegar hver grein- in á fætur annarri fer að birtast um Nylon-flokkinn í þarlendum blöðum. „Iceland’s music scene is as cool as a glacier“ (Íslenska tónlistar- senan er jafnsvöl og jökull) er fyr- irsögn greinar sem birtist á dög- unum í fagtímaritinu Music Week en blaðið er á svipuðum nótum og Billboard í Bandaríkjunum. Þar fer greinarhöfundurinn Paul Sullivan yfir feril Nylon-flokksins hér á landi, tæpir á góðum árangri sveitarinnar frá því að hún kom fyrst fram og tekur því til sönnunar að Nylon hafi skákað sjálfum Robbie Williams þegar plata hans kom út á Íslandi í sömu viku og plata stúlknanna. Í greininni, sem þó er ekki ýkja löng, er vitnað í Einar Bárðarson, guðföður sveitarinnar, en í leiðinni eignar greinarhöfundur Einari vafa- samt hlutverk í Idol-Stjörnuleit: „„Í ljósi frábærs árangurs sveit- arinnar á Íslandi lá það beint við að það yrði reynt á velgengni hennar á alþjóðlegum tónlistarmarkaði,“ seg- ir Bárðarson sem vermir sæti Sim- ons Cowells í íslensku útgáfunni af Pop Idol.“ Í lok greinarinnar kemur svo fram að að baki Nylon séu fjársterkir ís- lenskir aðilar sem sé mikið í mun að sveitin njóti velgengni í London sem og annars staðar í heiminum. Hver ert þú? Heldur meira pláss er lagt undir Nylon-flokkinn í mánaðarritinu TV Hits magazine en það mun vera eitt heitasta tónlistartímarit Bretlands- eyja um þessar mundir þegar kemur að því að kynna frambærilega popp- listamenn. Tímaritið kemur út í um 110.000 eintökum og markhópurinn er krakkar á aldrinum átta til tólf ára. Blaðinu svipar að miklum hluta til Bravo-blaðanna sem voru svo vin- sæl hér í eina tíð en með mörgum lit- ríkum myndum af stúlkunum eru þær spurðar um allt milli himins og jarðar. Sveitin er kynnt sem það heitasta sem komið hefur frá Íslandi síðan snúðarnir í hári Bjarkar voru og hétu og svo er lesendum gefinn kost- ur á að stilla sér upp við persónu- einkenni þeirra Klöru, Ölmu, Emilíu og Camillu eins og Steinunn Camilla er nefnd í blaðinu. Samkvæmt blaðinu er maður Klara ef maður hefur gaman af tísku og reynir iðu- lega að breyta útliti sínu. Maður er klárlega Camilla ef maður er skyn- samur og sér til þess að vinir manns hagi sér skikkanlega. Þeir sem líkj- ast Emilíu eru skipulagðir, stundvís- ir og forsjálir og svo eru allir þeir sem segja hug sinn tæpitungulaust en hafa um leið gaman af því að semja texta líkastir Ölmu. Boðið á Brit Awards Tónlistariðnaðurinn hefur alltaf snúist að stórum hluta um að vera sýnilegur, láta á sér bera, og það er oftast ekki fyrr en á síðari stigum málsins sem tónlistin sjálf fer að skipta höfuðmáli. Það ætti því að hjálpa stúlkunum að komast í sviðs- ljósið ytra að þeim hefur verið boðið að sækja Bresku tónlistarverðlaunin (Brit Awards), en hátíðin fer fram seinna í þessum mánuði. Stuttu síðar halda þær svo í sex vikna tónleika- ferðalag um Bretlandseyjar og fer allur tíminn þessa dagana í að æfa og undirbúa sig fyrir þá ferð, auk þess sem myndband við fyrsta smá- skífulagið verður tekið upp eftir rúma viku. Ekki hefur enn verið ákveðið hvaða lag verður fyrir valinu en á heimasíðu Nylon er hægt að heyra tvö ný lög sem samin voru sér- staklega fyrir útlendan markað. Tónlist | Nylon-flokkurinn vekur athygli bresku tónlistarpressunnar Styttist óðum í tónleikaferðalagið Stúlkurnar flytjast til London á sunnudaginn en síðar í mánuðinum hefst tónleikaferð um Bretland. Tveggja síðna grein um Nylon er að finna í nýjasta hefti TV Hits magazine. Eftir Höskuld Ólafsson hoskuldur@mbl.is www.nylon.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.