Morgunblaðið - 03.02.2006, Síða 56
MOKFISKIRÍ hefur verið
við Grímsey síðustu daga
og dæmi um að bátar hafi
tvífyllt sig suma daga. Það
eru sérstaklega línubátar
sem hafa verið að gera
það gott, en afli netabáta
hefur einnig verið mjög
góður. Afli hefur einnig
verið ágætur víðar á
Norðurlandi, þótt það sé
ekki með líku lagi og við
Grímsey.
„Það er mokfiskirí,“
sagði Garðar Ólason, út-
gerðarmaður í Grímsey,
þegar Morgunblaðið náði
tali af honum niðri á
bryggju við löndun um
miðjan dag í gær.
„Veiðin er búin að vera
mjög góð og náttúrlega veðráttan
svoleiðis æðisleg. Maður veit
varla lengur hvar maður er
staddur í veröldinni, logn á hverj-
um degi og blíða. Það er búið að
róa hvern einasta dag frá því um
miðjan janúar og það er mokfisk-
irí á línuna og það er fínt í netin
líka. Það má eiginlega segja að
það sé mokfiskirí í bæði veið-
arfærin,“ sagði Garðar.
Hann bætti því við að þetta
væri vænn fiskur sem fengist.
Netafiskurinn væri 5–6 kíló, sem
þætti gott í Grímsey en línufisk-
urinn sem fengist norðan við
eyna væri einnig vænn, þótt hann
væri minni en netafiskurinn.
Garðar sagði það rétt að fisk-
iríið væri svo mikið að bátar
hefðu þurft að fara út tvisvar til
að koma aflanum að landi. Einn
bátur væri að koma að landi núna
og hefði átt fjóra og hálfan bala
eftir þegar hann hefði verið bú-
inn að fylla sig.
„Þetta er alveg sérstaklega
feitur og fallegur fiskur og hefur
haft nóg að éta,“ sagði Garðar.
Hann sagði spurður að í netin
kæmi nánast eingöngu
þorskur, en línuna einnig
dálítið af ýsu innan um.
Frá því um áramót væru
sjálfsagt komin á land hátt
í 200 tonn. Fjórir línubát-
ar eru gerðir út frá
Grímsey og þrír netabátar.
Mest rúm 9 tonn
„Það hefur verið mjög
góður afli,“ sagði Óli
Hjálmar Ólason, sjómaður
í Grímsey og bróðir Garð-
ars, en komið hefur fyrir
að undanförnu að hann
hafi tvífyllt bátinn vegna
mikilla aflabragða á lín-
una. Hann rær á litlum
Sómabáti og hefur fengið
mest rúm níu tonn í róðri
og nokkrum sinnum rúm
sjö tonn. Með Óla rær son-
ur hans Sæmundur.
„Þeir eru skrýtnir þessir fiski-
fræðingar okkar. Hann er svo
feitur, þessi fiskur, að ég hef
aldrei séð feitari fisk. Lifrin í
honum er meyr, hún er svo feit,
og það er hellingur af loðnu í
honum. Hann er búinn að melta
það núna því loðnan er farin hjá.
Maður hefur ekki séð svona feit-
an fisk í mörg ár. Þetta er bara
Suðurlandsfiskur sem er kominn
hér norður fyrir. Hann er bara
að flýja heita sjóinn fyrir sunn-
an,“ sagði Óli Hjálmar enn frem-
ur.
Grímseyingar telja að Suðurlandsfiskurinn flýi heita sjóinn
fyrir sunnan og segjast aldrei hafa séð feitari fisk
Línubátarnir tvífylla
sig suma daga
ÓLI Hjálmar Ólason, útvegsbóndi í Grímsey, hefur
róið alla daga sem gefið hefur frá áramótum og fisk-
að grimmt. Óli er nú 74 ára gamall og hefur stundað
sjóinn í rúm 60 ár. Hann hefur verið í hópi aflahæstu
smábátasjómanna landsins ár eftir ár.
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
Hefur sótt sjóinn í sextíu ár
Morgunblaðið/Friðþjófur
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alladaga
í Lágmúla og Smáratorgi
Sumarsól 2006
fylgir blaðinu í dag.
Tenerife 39.900*
á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2ja-11 ára, í íbúð
m/1 svefnherbergi á Parque Santiago 15. júní í viku
*Innifalið: Flug, gisting, flugvallarskattar og íslensk fararstjórn.
Tyrkl
and
Portú
gal
Benid
orm
Mallo
rca
Krít
Suma
rsólBetri ferðir – betra frí
2006
Suma
rfríið
er dýr
mætt
– Bóka
ðu str
ax!
BESTU
UTANL
ANDSF
ERÐIRN
AR
að dó
mi þá
tttake
nda í
skoða
nakön
nun G
allup
í októ
ber 20
05
Nýjung!
VEÐRIÐ í höfuðborginni var hlýtt og blautt í ný-
liðnum janúarmánuði og mældist meðalhiti í
Reykjavík 2 gráður, sem er 2,5 gráðum yfir með-
allagi. Hefur hiti ekki mælst meiri síðan árið 1996.
Meðalúrkoma í borginni hefur ekki mælst meiri
frá árinu 1947 en hún var 153 millimetrar, sem er
tvöföld meðalúrkoma. Á Akureyri mældist hins
vegar aðeins helmingur meðalúrkomu eða 27
millimetrar. Meðalhitinn var þá 4 gráðum yfir
meðallagi, mældist 1,8 stig, og hefur ekki verið
hlýrra í janúar síðan árið 1992.
Hlýtt var í veðri lengst af mánuðinum og úr-
komusamt um landið sunnan- og vestanvert, en
fremur þurrt á norðaustanverðu landinu.
Mesti hiti mánaðarins mældist 15,4 gráður á
Seyðisfirði þann 4. janúar en mesta frost mældist
í snörpu kuldakasti um miðjan mánuðinn, 23,2 stig
í Veiðivatnahrauni. | 8
Morgunblaðið/Ómar
Úrkoma ekki meiri í Reykjavík í 59 ár
FULLTRÚAR Samtaka atvinnulífs-
ins (SA) höfnuðu í gær alfarið að
ræða breytingar á kjarasamningum
SA og landssambanda ASÍ, en SA
átti í gær fund með forystumönnum
ASÍ til að ræða ákvörðun launa-
nefndar sveitarfélaganna, að hækka
laun þeirra sem lægst laun hafa.
Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri ASÍ, segist óttast að
misræmi verði í launaþróun á næstu
misserum.
Gylfi segir ljóst að talsverð ólga sé
á vinnumarkaði og hún beinist að
vinnuveitendum. Líklegt sé að ein-
stökum hópum muni takast að ná
fram hækkun, en öðrum ekki. Það
muni því verða misræmi á vinnu-
markaði sem aftur skapi gremju hjá
þeim sem eftir sitja. Hætt sé við að
þetta ástand verði til þess að erfiðara
verði að ná saman kjarasamningum
næst þegar þeir losna. Hann segist
telja að við þessar aðstæður sé skyn-
samlegra að bregðast við frekar en
að binda sig við samninga sem í
reynd sé ekki lengur forsenda fyrir.
Gylfi segir að fulltrúar SA á fund-
inum hafi hafnað þessum sjónarmið-
um ASÍ og sagt að starfsemi sveitar-
félaganna ætti ekki að stýra
launaþróun í landinu. Ekki séu for-
sendur fyrir frekari launahækkun-
um. Ekki sé gert ráð fyrir frekari
fundum um þetta mál þar sem SA
hafni algerlega að ræða um breyt-
ingar á lágmarkslaunum.
Samningar geta losnað í nóvem-
ber á þessu ári ef verðbólga hefur
verið meiri en forsendur samninga
gera ráð fyrir eða ef launaþróun ann-
arra er í ósamræmi við launaþróun
félagsmanna ASÍ.
SA hafnaði alger-
lega breytingum á
kjarasamningum
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
HLUTDEILD Landsbankans í
arðgreiðslum sænska fjárfest-
ingarfélagsins Carnegie verður
um 1,1 milljarður króna en
Landsbankinn er stærsti hlut-
hafi í Carnegie með 20,41% af
heildarhlutafé.
Carnegie birti uppgjör sitt
fyrir lokafjórðung síðasta árs í
gær og hefur ársafkoma félags-
ins aldrei verið betri en alls skil-
aði það um 667 milljóna sænskra
króna hagnaði og jafngildir það
um 5,5 milljörðum króna. Stefna
félagsins hefur verið að allur
hagnaður verði greiddur út í arð
en nú var breytt örlítið frá því og
í arð eru greiddar út 634 millj-
ónir sænskra króna, 95% af
hagnaðinum.
Gengi bréfa Carnegie hækk-
aði um 2,3% í kauphöllinni í
Stokkhólmi í gær.
Hlutur
Landsbank-
ans 1,1
milljarður