Morgunblaðið - 11.02.2006, Page 6

Morgunblaðið - 11.02.2006, Page 6
6 LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR GRÍÐARGÓÐ aðsókn var að mál- þingi Sjónarhóls sem fram fór í Gull- hömrum í gær. „Þetta tókst vonum framar. Það hafa líklega hátt í sjö hundruð manns fylgst með mál- þinginu, þar af 550 í salnum og 160 á netinu,“ segir Þorgerður Ragn- arsdóttir, framkvæmdastjóri Sjón- arhóls. Á málþinginu, sem er fyrir að- standendur barna með sérþarfir, alla sem veita þeim þjónustu og aðra sem láta sig velferð þeirra varða, var varpað ljósi á þjónustu ríkis, sveitar- félaga og félagasamtaka við fjöl- skyldur barna með sérþarfir frá sjónarhóli þeirra sem nýta sér þjón- ustuna. Segir Þorgerður mikla almenna ánægju hafa ríkt á málþinginu, ekki síst með að þar hefði gefist tækifæri til að heyra raddir sem ekki heyrist svo oft, þ.e. sýn foreldra barna með sérþarfir sem og reynslu fullorðins fólks sem sjálft glímir við fötlun. Í stað blóma fengu allir fyrirles- arar tuskudýrið Engilráði, sem er lukkudýr Sjónarhóls, til eignar, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Að sögn Þorgerðar kemur nafngift tuskudýrsins til af því að öndin Eng- ilráð er bæði ráðrík og ráðagóð, en hún er jafnframt boðberi umburð- arlyndis og náungakærleika. „Engil- ráð er sjónvarpsstarna og birtist reglulega í Stundinni okkar,“ segir Þorgerður, en þættirnir um hana eru framleiddir í samstarfi Sjón- arhóls og Stundarinnar okkar með styrk frá velferðarsjóði barna. Málþingið tókst vonum framar Morgunblaðið/Brynjar Gauti Meðal þeirra sem fluttu erindi voru Freyja Haraldsdóttir og Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri. Fór að- sókn fram úr björtustu vonum, en alls má gera ráð fyrir að á sjöunda hundrað manns hafi fylgst með málþinginu. FÉLAG íslenskra stórkaupmanna, FÍS, hyggst senda inn erindi til samkeppnisyfirvalda til að kanna hvort skipafélögin Eimskip og Sam- skip hafi staðið löglega að nýju gámagjaldi á alla innflutningsvöru. Að sögn Andrésar Magnússonar, framkvæmdastjóra FÍS, hafa fjöl- mörg aðildarfyrirtæki kvartað yfir gjaldtökunni og lýst hneykslun sinni á vinnubrögðum skipafélag- anna. FÍS hvetur aðildarfyrirtæki sín til að hunsa tilkynningar um nýju gjöldin. Innflytjendur benda á að gjaldið heiti hið sama hjá báðum félögum; staðsetningargjald, það hafi verið sett á á svipuðum tíma og sé ná- kvæmlega jafnhátt. Um sé að ræða 150 evrur (um 11.000 kr) á hvern 40 feta gám, 75 evrur á 20 feta gám, 12 evrur á hvert tonn og 4 evrur á hvern rúmmetra. Segja stórkaup- menn staðsetningargjaldið hafa í för með sér verulegan kostnaðar- auka fyrir innflytjendur, sem á end- anum geti bitnað á neytendum. Andrés segir tímasetningu og alla umgjörð málsins gefa fullt til- efni fyrir FÍS til að senda erindi til samkeppnisyfirvalda. Fyrirtækin telji þetta heldur ekki geta staðist þar sem þau séu flest með fasta samninga um farmflutninga við skipafélögin. Ekki verðsamráð Baldur Guðnason, forstjóri Eim- skips, vísar því alfarið á bug að skipafélögin eigi með sér eitthvert verðsamráð, eins og innflytjendur séu að ýja að. Hann segir Eimskip hafa sett þetta gjald á vörur til Am- eríku um mitt síðasta ár, án þess að fleiri hafi gert það, og gjaldið hafi síðan verið innleitt á vörur hingað til lands í janúar sl. Hann viti ekk- ert hvað önnur skipafélög aðhafist eða hvenær þau eigi að hafa sett samskonar gjöld á hjá sér. Það sé ekki mál Eimskips, félagið hafi gert þetta algjörlega á eigin forsendum. Baldur segir kostnað við flutn- ingana hafa aukist og verið sé að tengja gjaldtökuna við aukinn kostnað. Ákveðið hafi verið að fara þessa leið í stað þess að hækka flutningsgjöld almennt. Ásbjörn Gíslason, forstjóri Sam- skipa, vísar því ennfremur á bug að skipafélögin hafi með sér samráð um gjaldtöku. Milli félaganna fari fram gríðarlega hörð samkeppni. Samskip hafi verið að bregðast við auknum kostnaði af flutningnum. Undanfarin tvö ár hafi það gerst að innflutningur hafi stóraukist á með- an magn útflutnings hafi staðið í stað. Á þeim tíma hafi flutnings- getan tvöfaldast til að mæta auk- inni eftirspurn flutninga til Íslands. Skipin komi hlaðin vörum til lands- ins en sigli nær hálftóm úr landi. Þetta hafi skapað óhagkvæmni og misræmi í rekstri sem Samskip séu nú að bregðast við. Ásbjörn segir það ekki rétt hjá kaupmönnum að gjöldin hafi verið sett á á sama tíma. Keppinauturinn, Eimskip, hafi sett gjaldið á fyrst og nokkrum vikum síðar hafi Samskip ákveðið að bregðast við með löngu tímabærum aðgerðum gegn aukn- um kostnaði. Kvartað undan nýju gáma- gjaldi skipafélaganna Skipafélögin vísa gagnrýni stórkaupmanna alfarið á bug Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is ATLI Már Árnason, teiknari og listmálari, lést á Landspítalanum Landakoti fimmtudag- inn 9. febrúar síðastlið- inn, 88 ára að aldri. Hann fæddist í Reykjavík 17. janúar 1918. Foreldrar hans voru Árni Óla, rithöf- undur og blaðamaður á Morgunblaðinu, og kona hans María Jór- unn Pálsdóttir. Atli Már vann um skeið við bókavörslu á Alþýðubókasafninu í Reykjavík. Ár- ið 1937 fór hann til náms við Kunst- håndværkerskolen í Kaupmanna- höfn og lauk þaðan prófi í auglýsingateiknun 1940. Að námi loknu vann hann á Auglýsingastofu KRON en stofnaði 1948 eigin auglýs- ingastofu, sem hann rak upp frá því. Atli Már var einn af stofnendum Félags ís- lenskra teiknara, FÍT, og var gerður að heið- ursfélaga þess 1993. Eftir hann liggur mikið starf á sviði grafískrar hönnunar. Atli Már fékkst frá upphafi starfsferils síns sem teiknara jafnframt við að mála. Hann sneri sér nær alfarið að list- málun tæplega fimm- tugur að aldri og vann að list sinni allt þar til hann lagðist inn á sjúkra- hús í desembermánuði síðastliðnum. Eftirlifandi eiginkona Atla Más er Ólafía Kristín Gísladóttir. Börn þeirra eru Björg, María Lára, Gísli Árni, Arngunnur og Ásgerður. Andlát ATLI MÁR ÁRNASON ERLING Ásgeirsson, formaður bæjarráðs Garðabæjar, segir góðan grundvöll fyrir viðræðum við bæjar- yfirvöld í Kópavogi um hesthúsa- byggð á Kjóavöllum sem eru á bæj- armörkum Kópavogs og Garðabæjar. Hann segir málið hins vegar enn á frumstigi og margt þurfa að koma til enn áður en slíkar hug- myndir komi til framkvæmda. Í fyrrakvöld kynnti Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, hugmyndir um hesthúsabyggð fyrir um fjögur til fimm þúsund hesta á Kjóavöllum. Um yrði að ræða sam- eiginlegt svæði hestamannafélagsins Gusts í Kópavogi og Andvara í Garðabæ. Sá fyrirvari var hins vegar gerður að svæðið væri á vatnsvernd- arsvæði Garðabæjar. „Uppbygging á hestasvæðinu í Garðabæ hefur verið afar takmörkuð í mörg ár vegna þess að það er inni á vatnsverndarsvæði vatnsveitunnar. Við höfum verið viðkvæm fyrir því að fjölga hestunum um of á þessu svæði og það sjónarmið er enn í fullu gildi,“ segir Erling en bætir við að þeirri hugmynd hafi verið fleygt fram að varanlegri lausn yrði fundin í vatns- málum Garðbæinga og tengist fyr- irhuguðum vatnsveituframkvæmd- um Kópavogsbæjar. „Það eru um það bil að hefjast viðræður um að Garðabær fái vatn frá Kópavogi, en við verðum eðli málsins samkvæmt mjög vör um okkur fyrr en við sjáum hvað er í spilunum.“ Erling segist sjálfur vera tilbúinn í viðræður um hesthúsahverfi á Kjóa- völlum og vísar m.a. til fjórhliða við- ræðna milli Golfklúbba Kópavogs og Garðabæjar annars vegar og bæjar- yfirvalda Garðabæjar og Kópavogs hins vegar um aðstöðu fyrir iðkendur golfíþróttarinnar fyrir um það bil tíu árum síðan. „Í gegnum þær viðræð- ur náðum við mjög fínni lendingu og gerðum sameiginlegan golfvöll, sem er á góðri leið með að verða allra besti golfvöllur á landinu og ég efast ekki um að einstakir bæjarfulltrúar, örugglega hjá báðum bæjarfélögum, beri þá von í brjósti að nú væri hægt að gera eitthvað svipað.“ Erling sér hins vegar eitt til hindr- unar, því einnig þarf að tryggja góð- ar reiðleiðir á svæðinu. Annað væri eins og að byggja stóra íþróttahöll án hlaupabrauta og knattspyrnuvallar. „Að mínu mati verða að koma þar að fagnefndir beggja sveitarfélaga, skipulagsnefndir og ekki síður um- hverfisnefndir því að þessar reiðleið- ir þurfa að öllum líkindum að liggja um svæði eins og Heiðmörk og aðrar náttúruperlur. Fullkomin sátt verð- ur að ríkja um það hvernig slíkar framkvæmdir fara af stað.“ Formaður bæjarráðs segir grundvöll fyrir viðræðum um hesthús á Kjóavöllum Varanlega lausn þarf í vatnsmál- um Garðbæinga Eftir Andra Karl andri@mbl.is               !"## $% $ #    &$    !"## $' (#!() SPARISJÓÐUR Hafnarfjarðar greiddi Birni Inga Sveinssyni, fyrr- um sparisjóðsstjóra, 84 milljónir vegna starfsloka hans. Fram kemur í ársreikningi SPH fyrir árið 2005 að greiðslan hafi verið í samræmi við ákvæði í ráðningar- samningi Björns Inga, sem lét af störfum í fyrra. Björn Ingi var ráðinn í starf spari- sjóðsstjóra SPH í október 2004 en lét af störfum í apríl 2005. 84 milljónir í starfslok BÆJARSTJÓRN Hveragerð- isbæjar boðar til borgarafundar á morgun, sunnudaginn 12. febrúar, kl. 17 á Hótel Örk. Efni fundarins er fyrirhugaður samstarfssamn- ingur við byggingafélagið Eykt ehf. um uppbyggingu austan Varmár. Á fundinum mun Orri Hlöðvers- son bæjarstjóri kynna samnings- drögin sem til umræðu eru. Því næst er gert ráð fyrir að fulltrúar flokkanna í bæjarstjórn muni taka til máls, en síðan verður opnað fyrir umræður. Eru allir velkomnir á fundinn. Borgarafundur um uppbyggingu JARÐSKJÁLFTI af stærðinni 3,7 stig á Richter-kvarða varð um 40 km norðnorðvestur af Grímsey um sexleytið í gærkvöldi. Þrír smærri skjálftar mældust á sömu slóðum fyrr um daginn, en jarðskjálfta- hrinur eru ekki óalgengar á þessu svæði. Samkvæmt upplýsingum frá Halldóri Geirssyni, jarðeðlisfræð- ingi á Veðurstofu Íslands, hefur lítil hrina verið í gangi um 18 km austur af Grímsey síðan á fimmtudag. Hann býst við áframhaldandi smá- skjálftavirkni á þessum slóðum. Skjálftahrina austur af Grímsey

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.