Morgunblaðið - 11.02.2006, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 11
FRÉTTIR
„ÞAÐ eru mjög miklar skemmdir.
Það eru mörg hús illa farin eftir fok
og einnig bílar. Rúður eru brotnar
og þakplötur hafa losnað. Það eru
líka skemmdir á húsunum sjálfum,
klæðningar og annað ónýtt,“ segir
Ívar Kristjánsson formaður björg-
unarsveitarinnar Sæbjargar á Flat-
eyri en skemmdirnar urðu aðallega
af völdum húss sem fauk í veðrinu.
„Það er enn fokhætta af húsinu
eins og það er í augnablikinu,“ seg-
ir Ívar sem var ásamt fjölda björg-
unarsveitarmanna að kanna
skemmdir og taka til eftir óveðrið í
gærkvöldi. Ívar segir að ekki sé vit-
að til þess að neinn hafi slasast.
Hann segir fólki mjög brugðið og
að aðstæður séu líkar því að felli-
bylur hafi farið yfir svæðið. „Manni
brá bara sjálfum,“ viðurkennir Ívar
og segir engan hafa átt von á því-
líku veðri.
Björgunarsveitin Sæbjörg naut
aðstoðar fjölda íbúa í bænum í gær
við hreinsunarstarf og fyrirbyggj-
andi aðgerðir. Þá fékk hún einnig
liðsinni frá björgunarsveitinni á
Suðureyri og samtals voru um 20-
30 manns að störfum. „Allir þeir
sem vettlingi gátu valdið komu að
hjálpa,“ segir Ívar. Hann segir mik-
ið verk óunnið. „Það stendur yfir
eiginlega allsherjarhreinsun á öll-
um bænum. Það er spýtnabrak og
þakplötur út um allan bæ. Það er
mikil slóð eftir [brak úr skemm-
unni] um allan bæ.“
Spáð var þokkalegu veðri í nótt á
Flateyri en von er á stormi aftur á
morgun, sunnudag.
Slóð eftir
brakið um
allan bæ
„ÉG var úti þegar veðrið var og
þetta var rosalegt. Rosalegar hvið-
ur. Það fuku meira að segja bílar og
ljósastaur svignaði þannig að hann
smurðist ofan í jörðina,“ segir Ön-
undur Hafsteinn Pálsson, íbúi á
Flateyri og meðlimur í björg-
unarsveitinni Sæbjörg á Flateyri,
um ástandið þegar mesta veðrið
gekk yfir bæinn í gærkvöldi. „Það
var varla stætt úti. Ég rétt komst út
í bíl til að fara í útkallið,“ segir Ön-
undur sem var á vettvangi að fergja
það sem eftir var af skemmunni
sem fauk til að fyrirbyggja frekari
skemmdir á nærliggjandi húsum og
bifreiðum þegar Morgunblaðið náði
tali af honum. „Þetta gerðist á skot-
stundu því húsið fer í heilu lagi.
Fýkur yfir götuna, lendir á húsum
og klippti í sundur ljósastaura.“
Öndundur segir að veðurofsinn
einn og sér hafi þó nægt til að færa
bíla hátt í tvo metra úr stað.
„Einn ljósastaur fór alveg og
smurðist hreinlega ofan í jörðina.“
Þá hafi um 60–70 fiskikör fokið
og dreifst um bæinn.
Önundur segir að bæjarbúar hafi
ekki átt von á veðri sem þessu í
gær. Enginn virðist sem betur fer
hafa verið utandyra þegar mestu
hviðurnar gengu yfir. „Við byrj-
uðum á því að fara um allan bæinn
og könnuðum hvort það væri ekki í
lagi með alla,“ segir Önundur um
störf björgunarsveitarinnar í gær-
kvöldi. „Það voru tveir gluggar
farnir en það var í lagi með alla.
Þannig að við erum að negla niður
lausar [þak]plötur og fyrirbyggja
frekara fok. Það kemur nú fyrir hjá
okkur svona einu sinni á ári að það
fjúki þakplötur en ekki svona mik-
ið.“
„Þetta var
rosalegt“
AFTAKAVEÐUR gerði á Flateyri í
gærkvöldi með þeim afleiðingum að
gamalt trésmíðaverkstæði, áfast við
slökkvistöð bæjarins, við Túngötu,
neðarlega á eyrinni, hreinlega
splundraðist, en vindur fór upp í 43,9
m/s í kröftugustu hviðunum.
Að sögn Páls Önundarsonar bíl-
stjóra stóð veðrið stutt og var
snarpt, en það gekk yfir á tæpum
hálfum öðrum klukkutíma í kringum
kvöldmatarleytið í gær. Segir hann
guðsmildi að ekki hafi verið neinn
nálægur þegar verkstæðið splundr-
aðist, því brakinu rigndi yfir nær-
liggjandi bíla og hús með þeim af-
leiðingum m.a. að rúður brotnuðu og
húsklæðningar skemmdust.
„Mér skildist á þeim sem búa í ná-
grenni verkstæðisins að skyndilega
hefði heyrst mikill hvellur, síðan fór
rafmagnið og svo dundu ósköpin yf-
ir,“ segir Páll og tekur fram að í
svona aðstæðum sé maður minntur á
hversu mannskepnan er lítils megn-
ug gagnvart náttúrunni. „Ég get
sagt þér að aðkoman að verkstæðinu
minnti mann óþyrmilega á aðkom-
una eftir snjóflóðið. Það er hreinlega
ekkert eftir af húsinu sem sprakk í
loft upp, en brakið úr því dreifðist yf-
ir stórt svæði og allt handónýtt,“
segir Páll og nefnir sem dæmi að
splunkunýr Explorer-jeppi sem stóð
rétt hjá verkstæðinu sé „eins og
hann hafi lent í hakkavél út af
spýtnabrakinu sem rigndi yfir bíl-
inn“. Áætlar Páll að tjónið af völdum
veðursins skipti milljónum króna.
„Væntanlega kemur endanlegt tjón
þó ekki í ljós fyrr en í fyrramálið
þegar birtir.“ Að sögn Páls var verk-
stæðið yfirgefið þar sem síðustu
mánuði hafi staðið yfir endurbætur á
húsinu, en verkstæðið er í eigu bróð-
ur Páls.
Að sögn Eiríks Finns Greipsson-
ar, aðstoðarsparisjóðsstjóra á Flat-
eyri, nefnist veður á borð við það
sem gerði á Flateyri í gærkvöldi
Grundarendaveður. „Þá kemur vind-
urinn frá Hjarðardalsnaustum í átt-
ina að eyrinni og koma hnútar sem
skella á byggðinni,“ segir Eiríkur og
segir umrædda hnúta í raun geta
skollið hvar sem er á húsum. Spurð-
ur hvort slík veður séu algeng á
Flateyri svarar Eiríkur því neitandi
og segist síðast muna eftir svona
veðri og sterkum hviðum 3. febrúar
árið 1991. „En þá fór þakið af beina-
verksmiðjunni neðst á eyrinni og
fauk yfir byggðina, auk þess sem
hnútar skullu á kirkjuna og hús ofar
á eyrinni þar sem fjöldi þaka
splundraðist. Mér sýnist samskonar
veðurhnútar hafa myndast nú og
þá.“
Brakið dreifðist í yfir
100 metra radíus
Eiríkur býr í þarnæsta húsi við
trésmíðaverkstæðið, en sagðist ekki
vita hvort hús sitt hefði orðið fyrir
miklu tjóni, en Eiríkur var staddur í
höfuðborginni þegar blaðamaður
náði tali af honum. Segir hann jarð-
vinnuverktaka hafa verið að endur-
byggja húsið í allan vetur. „Síðast
þegar ég heyrði í honum voru end-
urbætur vel á veg komnar. Þegar ég
heyrði í eigandanum fyrir viku átti
hann aðeins eftir að endurbyggja
gaflinn á húsinu, sem virðist hafa
gefið sig í veðrinu og splundrað hús-
inu.“
Að sögn Péturs Björnssonar,
varðstjóra lögreglunnar á Ísafirði,
höfðu fjölmargar tilkynningar um
tjón af völdum veðursins borist í
gær. Sagði hann vitað um a.m.k.
fjóra bíla sem orðið hefðu fyrir tölu-
verðum skemmdum, auk þess sem
brak frá trésmíðaverkstæðinu hefði
brotið rúður í húsum, skemmt
klæðningar húsa og eyðilagt þök, en
Pétur sagði sennilegt að brakið hefði
dreifst yfir nærliggjandi svæði í alla-
vega 100 metra radíus. Var veður að
mestu leyti gengið niður þegar
blaðamaður náði tali af honum á tí-
unda tímanum í gær. Björgunar-
sveitin á staðnum var þegar kölluð
út er veðrið skall á og einnig var kall-
að eftir aðstoð frá Ísafirði og Suður-
eyri til þess að ganga frá svæðinu og
að fyrirbyggja meiri skemmdir.
„Verkstæðið hreinlega
sprakk í loft upp“
Eftir Silju Björk Huldudóttur
og Sunnu Ósk Logadóttur
Ljósmynd/Eiríkur Finnur Greipsson
Svona leit verkstæðið út fyrir skemmstu en búið er að eiga töluvert við það
að undanförnu, styrkja þak og burðarvirki og til stóð að endurnýja það allt.
Ljósmynd/Páll Önundarson
Svo virðist sem byggingin hafi hreinlega sprungið í loft upp og fokið nánast í heilu lagi. Björgunarsveitarmenn unnu við hreinsunarstarf í gærkvöldi.
Ljósmynd/Páll Önundarson
Gríðarlegar skemmdir urðu vegna braks sem fauk á nærliggjandi hús.
NÝLEGUR jeppi hjónanna Guðjóns Guðmunds-
sonar og Bjarnheiðar Ívarsdóttur eyðilagðist í
ofsaveðrinu á Flateyri í gær þegar brak úr ná-
lægri skemmu fauk á hann þar sem hann stóð í
innkeyrslunni á Grundarstíg 5.
„Húsið fór eiginlega allt, það er bara hug-
mynd af því eftir,“ lýsir Guðjón aðstæðum en
aðeins er eitt hús á milli skemmunnar og íbúð-
arhúss Guðjóns. „Húsið fer allt í einu lagi, bæði
þak og veggir og fer yfir hornið á húsinu hjá
mér, á bílinn og yfir á hús neðar í götunni.
Bílinn er handónýtur. Það voru mikil læti og
drundi hér í öllu húsinu á meðan þetta var að
gerast.“
Guðjón segir að sem betur fer hafi allir fjöl-
skyldumeðlimir verið innandyra og beðið þess
að veðrið gengi yfir. „Ég var búinn að vera að
hlaupa á eftir ruslatunnum og svona drasli, var
svo til nýkominn inn þegar þetta gerðist.“
Guðjón segir að veðrið hafi óvænt rokið upp.
Brak hafi farið á rafmagnskassa í götunni og
því var rafmagnslaust hjá Guðjóni á Grund-
arstígnum þegar Morgunblaðið ræddi við hann
í gærkvöldi. Þá reif brakið ofan af tveimur
ljósastaurum í götunni að sögn Guðjóns og
skemmdir urðu á kvisti á íbúðarhúsinu.
„Ég keypti bílinn núna í desember,“ segir
Guðjón um jeppann. Hann þarf því að fara aft-
ur á stúfana og kaupa nýjan bíl fljótlega. Í
millitíðinni ætlar hann að nota annan bíl sem
hann á en sá skemmdist aðeins lítillega í veð-
urofsanum í gær.
Guðjón segir að eftir eigi að meta skemmdir
af völdum veðursins að fullu en augljóst sé að
skemmdir hafi orðið á húsum í næsta nágrenni,
rúður brotnað og þakplötur losnað. „Við eitt
húsið eru stór grenitré. Eitt hefur brotnað og
leggst inn um gluggann á húsinu. Ætli bolurinn
á því sé ekki um 20 sentimetrar, svo þetta er
alvörutré.“
Nýi jeppinn gjörónýtur
Ljósmynd/Páll Önundarson
Jeppinn gjöreyðilagðist í veðurofsanum þegar
brak úr nálægri skemmu lenti á honum.