Morgunblaðið - 11.02.2006, Qupperneq 28
28 LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Þorlákshöfn | „Mig hefur dreymt
um að leika síðan ég var í leiklist í
skóla,“ sagði Ásta Margrét Grétars-
dóttir, ein þeirra sem var hvatamað-
ur að annarri endurvakningu Leik-
félags Þorlákshafnar. Félagið heitir
raunar Leikfélag Ölfuss að þessu
sinni.
Ásta sagði að það hefði verið
draumur sinn eins og margra ann-
arra barna að verða stjarna á sviðinu
og standa frammi fyrir hópi aðdá-
anda. „Ég sá tækifærið opnast þegar
Ráðhús Ölfuss var tekið í notkun með
stóru og glæsilegu sviði. Ég get
örugglega ekkert leikið en það skipt-
ir ekki öllu máli heldur hitt að hafa
gaman af þessu og vera innan um
skemmtilegt fólk. Svo er þetta
örugglega þroskandi.“
Ásta sagði að hún, Árný Leifs-
dóttir og Róbert Dan Bergmundsson
hefðu komið saman í haust og rætt
við menningarfulltrúa Ölfuss sem tók
þeim mjög vel, hvatti þau og studdi
við að koma félaginu á koppinn.
Meira að segja hefðu þau fengið 300
þúsund kr. styrk úr menningarsjóði.
„Boltinn var fljótur að bæta utan á
sig og áður en við vissum af voru
komnir upp undir þrjátíu félagar, frá
átta ára til sextugs, og starfsemin á
fullu. Það eru ekki allir að leika, það
þarf svo margt annað að gera, sauma
búninga og leiktjöld, sjá um ljósin og
svo erum við komin með hljómsveit
því nú stendur til að frumsýna 9.
mars. Við erum að æfa söngleik um
hippatímabilið sem er heimasmíð-
aður af leikstjóranum okkar, Svani
Gísla Þorkelssyni, og leikurunum
sjálfum,“ sagði Ásta Margrét“.
Formaður leikfélags Ölfuss er Jó-
hanna Sigríður Emilsdóttir.
Leikfélag Þorlákshafnar endurvakið með uppsetningu á heimasmíðuðum söngleik um hippatímabilið
Hefur dreymt
um að leika
Eftir Jón Hafstein Sigurmundsson
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Hippar Búningarnir og leiksviðið í Ráðhúsinu í Þorlákshöfn eru óðum að taka á sig mynd hippatímabilsins. Hér er
hópur leikara og annarra starfsmanna Leikfélags Ölfuss á æfingu enda er æft stíft um þessar mundir.
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Njarðvík | Sala getraunamiða nærri
þrefaldaðist hjá Ungmennafélagi
Njarðvíkur á tilteknu tímabili. Fé-
lagið varð í efsta sæti í getraunaleik
sem Ungmennafélag Íslands stóð
fyrir í samvinnu við Íslenskar get-
raunir meðal ungmennafélaga lands-
ins. Efstu félögin fengu peninga-
verðlaun og sölumönnum sex efstu
félaganna var boðið á leik í ensku
knattspyrnunni.
Leikurinn fólst í því að félögin
kepptust við að auka getraunasölu
sína á ákveðnu tímabili. Söluaukn-
ingin hjá Njarðvík varð 283%. Næst
í röðinni var HSV með 74% aukn-
ingu, þá Ungmennafélag Grundar-
fjarðar með 40%, Hvöt á Blönduósi
með 25% og Völsungur á Húsavík
með 12% aukningu. Loks voru Golf-
klúbbur Kópavogs og Garðabæjar
og Ungmennafélag Selfoss með 7%
söluaukningu.
Þetta er í annað skiptið sem get-
raunaleikurinn er haldinn. Einar
Haraldsson, stjórnarmaður í UMFÍ,
segir að tilgangurinn sé að efla get-
raunastarfsemina og um leið að auka
tekjur ungmennafélaganna. „Sala
getraunamiða er vannýttur tekju-
möguleiki hjá mörgum félaganna.
Það hefur sýnt sig að þau geta aukið
tekjur sínar verulega með því að
vinna vel í þessu,“ segir Einar.
Sala getraunamiða
nærri þrefaldaðist
Sigurvegarar Fulltrúar UMFÍ ásamt sigurvegurum úr leiknum fyrir framan Old Trafford, f.v. Guðmundur Gísla-
son, Kristinn Kristjánsson, Einar Haraldsson, Ólafur Sigurðsson, Stefán Ólafsson, Þorsteinn Þráinsson, Jóhann K.
Torfason, Örn Sævar Júlíusson, Ólafur S. Benediktsson, Ásgeir Ásgeirsson og Pétur Hrafn Sigurðsson.
Selfoss | Nýtt, þverpólitískt félag
áhugafólks um skipulagsmál var
stofnað í Tryggvaskála 8. febrúar.
Félagið stendur fyrir opnum fundi
um skipulagsmál þriðjudaginn 14.
febrúar í Hótel Selfossi klukkan 20.
Á fundinum flytja erindi sérfræðing-
ar um skipulags- og umhverfismál.
Ástæða fyrir stofnum Miðbæjar-
félagsins er óánægja með framgang
skipulagsmála í miðbæ Selfoss. Telja
stofnendur félagsins að ekki hafi ver-
ið vandað nægilega til verka við
skipulag svæðisins og fá þurfi fram
fleiri hugmyndir áður en ákvörðun er
tekin um endanlegt deiliskipulag.
Svæðið sem um ræðir sé einstakt og í
hjarta bæjarins á Selfossi og leita
þurfi allra ráða til þess að vel takist
til með skipulagið.
Í fréttatilkynningu frá Miðbæjar-
félaginu segir meðal annars: „Til
þess að svo megi verða væri eðlilegt
að efna til samkeppni að frumkvæði
sveitarfélagsins og í samstarfi við
alla lóðareigendur á svæðinu.“
Að loknum stofnfundi félagsins var
hópurinn myndaður í Konungssaln-
um á annarri hæð Tryggsvaskála en
þar drakk Danakonungur kaffi 1921
og var ávarpaður af litlu leiksviði sem
þar er. Tryggvaskáli sem er í end-
urbyggingu geymir mikla sögu frá
upphafi byggðar við Ölfusárbrú og
segja má að þar sé menningarlegt
hjarta Selfoss frá fyrri tíð.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Stofnfundur Stofnendur Miðbæjarfélagsins í Tryggvaskála.
Félag vegna óánægju
með skipulag í miðbæ
Hveragerði | Framkvæmdir eru
hafnar við nýtt þvottahús við Ás í
Hveragerði. Kristjana Þorgilsdóttir
tók í vikunni fyrstu skóflustunguna
en hún hefur starfað í þvottahúsi
Grundar frá því í nóvember 1949.
Þvottahúsið sem verður byggt í vet-
ur og tekið í notkun næsta haust
mun anna bæði dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu Grund í Reykjavík
og dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Ási í Hveragerði.
Jarðgufa verður notuð til að þvo,
þurrka og strauja og orkukostn-
aður vegna þessa er einungis brot
af því sem það myndi kosta ef nota
ætti rafmagn. Að sögn Gísla Páls
Pálssonar, framkvæmdastjóra
dvalar- og hjúkrunarheimilisins
Áss, hefur hönnun vegna tæknibún-
aðar tekið nokkurn tíma því það er
flóknara að eiga við jarðgufu en þá
gufu sem búin er til t.d. með raf-
magni.
Byltingarkennt
taumerkingarkerfi
Samhliða þessu þvottahúsi verð-
ur að sögn Gísla Páls tekið í notkun
nýtt og byltingarkennt taumerk-
ingarkerfi. Í hverja flík tæplega
400 heimilismanna dvalar- og
hjúkrunarheimilanna Grundar og
Áss, verður saumuð lítil örflaga.
Flagan inniheldur upplýsingar um
viðkomandi heimilismann, á hvaða
deild hann er, í hvaða herbergi
o.s.frv. Auk þess verða upplýsingar
um á hvaða þvottakerfi beri að þvo
flíkina.
Þessi nýjung mun minnka líkurn-
ar verulega á því að flíkin týnist
eða fari á rangan stað og spara
mikla vinnu við flokkun og frágang
á fatnaði heimilismanna. Eftir því
sem best er vitað hefur þetta ekki
verið gert með þessum hætti hér á
landi og jafnvel þótt víðar væri leit-
að.
Tækjabúnaður verður allur af
nýjustu og bestu gerð og kemur til
með að spara vinnuafl frá því sem
nú er.
Jarðgufa notuð til að þvo,
þurrka og strauja
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Framkvæmdir hafnar Júlíus Rafnsson, framkvæmdastjóri dvalar- og
hjúkrunarheimilisins Grundar, Kristjana Þorgilsdóttir, Guðrún B. Gísla-
dóttir, forstjóri Grundar, og Gísli Páll Gíslason, framkvæmdastjóri í Ási.
SUÐURNES