Morgunblaðið - 11.02.2006, Side 36
36 LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF Í FEBRÚAR
„ÞAÐ sem kemur mest á óvart er
hversu mikil áhrif hæðin hefur á
mann,“ sagði Ívar Örn, 20 ára, sem
eyddi dögunum milli jóla og nýárs í
að ganga á Kilimanjaro ásamt föður
sínum, Viðari Viðarssyni, og yngri
bróður, Sævari Loga, 17 ára.
„Við flugum til London, frá Lond-
on til Naíróbí í Kenýa, þaðan tókum
við rútu til Tanzaníu, til borgarinnar
Arusha. Fyrst fór fjölskyldan í viku-
langa safarí-ferð um þjóðgarðinn í
Serengetí, en að henni lokinni skipt-
um við liði. Mamma fór með yngsta
bróður minn til Zanzibar en við hinir
keyrðum að fjallsrótum Kilimanj-
aro,“ sagði Ívar um upphaf ferða-
lagsins.
„Allan tímann vorum við á vegum
lítillar ferðaskrifstofu, Scan-Tan,
sem er í eigu Dana sem búsettur er
úti. Scan-Tan sá um alla skipulagn-
ingu ferðarinnar.“ Við rætur Kilim-
anjaro voru þeir komnir í 2.000 m
hæð. „Þar mætti okkur einstök sjón.
Í röðum stóðu burðarmenn og biðu
eftir vinnu. Við þrír vorum með tólf
manna föruneyti, þ.e. þrír burð-
armenn á mann, leiðsögumaður,
kokkur og aðstoðarleiðsögumaður.“
Háfjallaveiki í þriðju búðum
Þessi hópur gekk svo saman upp í
efstu búðir. „Leiðin sem gengin var
upp á fjallið er svokölluð Rongai-
leið, hún er sú leið sem sjaldnast er
gengin upp fjallið.“ Ívar er mjög feg-
inn því að þessi leið skyldi verða fyr-
ir valinu. „Á leiðinni niður fórum við
nefnilega aðalleiðina sem er kölluð
Kóka kóla-leið og það er einfaldlega
vegna þess að hægt er að kaupa
kóka kóla í öllum búðunum á þeirri
leið!“ Hann segir að sú leið sé sam-
bærileg við að ganga Laugaveginn
hér heima, bara í mikilli hæð.
„Í þriðju búðum fékk ég há-
fjallaveiki. Ég var sá eini sem fékk
þessa veiki í hópnum og það var bara
fyrir mín eigin mistök. Við ákváðum
um kvöldið að setjast niður og ræða
saman og höfðum bara tvo stóla. Ég
sá myndarlegan stein í svona 20 m
fjarlægð, gekk rösklega að honum
og greip hann í fangið, gekk með
hann til baka og settist á hann.
Augnabliki síðar helltist yfir mig
hausverkur og ógleði, mér varð ís-
kalt og ég gat ekkert borðað.“ Ívar
brá sér í allan hlýjan fatnað sem
hann var með og stakk sér svo ofan í
svefnpoka. „Svo svaf ég bara til
morguns.“ Ef menn hreyfa sig hratt
í þunnu lofti getur háfjallaveiki orðið
afleiðingin. Sama dag urðu þeir fyrir
því óláni að kokkurinn fékk malaríu
af einhverjum orsökum. Hann var
borinn niður og fluttur á sjúkrahús.
„Maturinn snarversnaði eftir þetta,“
sagði Ívar.
Hlaupandi Suður-Afríkubúar
„Að kvöldi 30. lögðum við af stað
til að taka lokahnykkinn. Þá gengum
við úr 4.700 m hæð og upp á topp
sem er í um 6.000 metrum. Þarna
eru bara snarbrattar skriður og það
er gengið mjög hægt. Ég taldi upp
að þremur á milli skrefa. Þetta er al-
veg rosalega hægt gengið.“ Ekki
fóru þó allir sem voru á sömu leið
jafnhægt og Ívar og félagar. „Á
þessari göngu komu hálfhlaupandi
fram úr okkur tveir Suður-
Afríkubúar, ég hef aldrei séð annað
eins.“
Þeir gengu í niðamyrkri síðasta
spölinn. „Eftir fimm og hálfs tíma
göngu eftir eintómum skriðum kom-
um við að Gilman’s-point, sem er á
brún eldfjallsins. Það var svarta-
myrkur og allan tímann á göngunni
hugsuðum við um hvort við værum
komnir eða ekki.
Þegar ég hélt við værum hálfnaðir
komum við að skilti þar sem stóð að
við værum komnir í 5.000 m hæð,
þriðjungur leiðarinnar var sem sé að
baki.“ Þegar að Gilman’s point var
komið voru þeir nánast örmagna.
Allt vatn frosið
„Við fengum að hvíla okkur smá-
stund en leiðsögumaðurinn rak okk-
ur af stað og sagði okkur að drekka
vatn, sem var reyndar ekki hægt af
því að allt var frosið, og við héldum
áfram í einn og hálfan tíma og náð-
um toppnum, Uhuru-peak.“ Ívar
sagði að mikil gleði hefði gripið þá
feðga við að komast á toppinn.
„Pabba hefur lengi dreymt um að
ganga á Kilimanjaro og hann var
nánast klökkur þegar við vorum
komnir alla leið, það var rosalega
gaman að sjá svipinn á honum.“
Dagurinn sem gengið var upp á
toppinn var sá erfiðasti í allri göng-
unni. „Við lögðum í uppgönguna
klukkan ellefu um kvöld 30. og vor-
um komnir upp á topp í birtingu 31.,
þar stoppuðum við í tvo tíma, kom-
um svo niður í efstu búðir í 4.700 m
hæð á hádegi 31. Þar fengum við há-
degismat og hvíldum okkur í nokkra
tíma, svo var gengið niður og það var
gengið alveg til sex um kvöldið.
Þetta var rosalega erfitt.“ Þá voru
þeir komnir aftur í 4.000 m hæð. Þar
gistu þeir og ætluðu aldeilis ekki að
láta það fréttast að þeir hefðu sofið
af sér áramótin. „Þegar klukkan var
orðin um átta um kvöldið og allt var
komið í ró og enginn vakandi nema
við bræður, sitjandi fyrir utan tjald-
ið í 4.000 m hæð, ákváðum við að lok-
um að láta undan og fórum að sofa til
að geta vaknað hressir á nýju ári.“ Í
þessum búðum hittu þeir aftur
mennina sem hlupu fram úr þeim í
uppgöngunni. „Ég náði tali af þeim
og spurði þá hvort þeir væru íþrótta-
menn. Þeir sögðu að svo væri ekki,
þeir hlypu bara smávegis, fjalla-
maraþon og svoleiðis, og hjóluðu
svolítið!“ Þessir menn höfðu gengið
á Mt Kenya tveimur vikum áður.
„Það var mjög gaman að sjá þessa
menn,“ sagði Ívar.
Undirbúningur ferðarinnar hófst í
febrúar fyrir ári og var bæði lík-
amlegur og andlegur. „Við gerðum
sitt lítið af hverju, stunduðum lík-
amsrækt, pabbi skokkar reglulega
og yngri bróðir minn æfir box sex
daga vikunnar. Við höfum líka verið
mikið úti.“ Öll fjölskyldan fór saman
til Afríku en mamma Ívars, Anna
Elísabet Ólafsdóttir, og yngsti bróð-
ir, Bjarki, nutu lífsins á Zanzibar
meðan karlmennirnir gengu á fjallið.
„Mamma og Bjarki slöppuðu af á
strönd á meðan við erfiðuðum, enda
komu þau heim sólbrún og sæt en
við frostbitnir og fleiðraðir.“
FERÐALÖG | Feðgar gengu saman á Kilimanjaro og létu þar með draum pabbans rætast
Frostbitnir og fleiðraðir
Þrír á toppnum: Frá vinstri: Viðar
Viðarsson, Ívar Örn Lárusson, og
Sævar Logi Viðarsson.
Í 3.400 m hæð var ákveðið að hvílast og nærast. Sævar Logi og Ívar Örn.
Í þokunni á Gilman’s point áður en
lagt er í síðasta áfangann. Sævar
Logi og Ívar Örn.
Eftir Sigrúnu Ásmundar
sia@mbl.is
Vildarklúbbur Iceland-
air fyrir kylfinga
ICELANDAIR setur í dag á stofn
nýjan klúbb sem ætlaður er golf-
áhugamönnum. Klúbburinn hefur
aðsetur á vefnum icelandairgolf-
ers.is og verður formlega opnaður
á golfsýningunni á Nordica-
hótelinu um helgina. Formaður
klúbbsins og ritstjóri vefsins er
Heimir Karlsson, fjölmiðlamaður
og kylfingur.
Í fréttatilkynningu kemur fram,
að félagar í Icelandairgolfers.is
greiða enga yfirvigt af golfsetti
sínu í flugi með Icelandair, þeir fá
2.500 vildarpunkta, ýmiss konar af-
sláttarkjör og glaðninga, auk þess
sem þeir fá með aðgangi að vefnum
upplýsingar um golfferðir og golf-
velli sem henta þörfum íslenskra
kylfinga.
GOLF
www.gisting.dk
sími: 0045 3694 6700
Ódýr og góð gisting
í hjarta Kaupmannahafnar1. Meiri virkni.
2. Mun meiri andoxunarefni.
3. Minni líkur á aukaverkunum.
4. Meiri stöðugleiki og mun lengra geymsluþol eða 10 ár samanborið við
3ja ára geymsluþol hvíts ginsengs.
RAUTT EÐAL GINSENG
Skerpir athygli - eykur þol
Virkar m.a. gegn:
Einbeitingarskorti, streitu,
þreytu og afkastarýrnun
Einnig gott fyrir aldraða!
www.ginseng.is