Morgunblaðið - 11.02.2006, Side 38
38 LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF Í FEBRÚAR
ÞAÐ ER ekki heiglum hent að
ganga 90 kílómetra á skíðum en
svo virðist sem allir Svíar sem
maður rekst á annaðhvort þekki
einhvern eða hafi sjálfir keppt í
þekktustu gönguskíðakeppni
heims, Vasagöngunni (Vasaloppet).
Gangan dregur nafn sitt af Gustav
Vasa og er farin í hans fótspor.
Hann flúði þessa leið undan
danska kónginum á sextándu öld
og varð síðar konungur Svíþjóðar.
Vasagangan er árlegur við-
burður sem fyrst var haldinn árið
1922. Um er að ræða 90 km leið frá
Sälen til Mora, í gegnum þrjú
sveitarfélög. Þegar er fullbókað í
næstu keppni sem haldin verður 5.
mars nk. en áhugasömum er bent
á að skrá sig hið fyrsta í göngu
næsta árs, sem hefðinni sam-
kvæmt verður haldin fyrsta sunnu-
daginn í mars.
Sextán þúsund þátttakendur
Til þessa hafa fjölmargir Íslend-
ingar tekið þátt í Vasagöngunni,
fyrst árið 1952. Upphafsstaður
Vasagöngunnar í Sälen er vel
merktur og þegar staldrað er þar
við í janúar og horft yfir engið fer
ímyndunaraflið af stað. Tveimur
mánuðum síðar munu tæplega sex-
tán þúsund manns hefja Vasagöng-
una í iðandi kös. Áhorfendur eru
ófáir og margir þeirra safnast
saman við fyrstu beygjuna nokkru
lengra í átt að skíðasvæðunum í
Sälen til að sjá kappana. Vasa-
gangan hefur aukið vinsældir sínar
á þeim rúmu átta áratugum sem
liðnir eru frá því fyrst var keppt.
Aðeins 136 skráðu sig þá til þátt-
töku, eins og fram kemur í ferða-
mannamiðstöðinni við upphafsstað-
inn í Sälen. Þar er hægt að skoða
myndir úr fyrri göngum og heim-
ildamynd um þennan stærsta
íþróttaviðburð Svíþjóðar rúllar.
Síðasta áratuginn eða svo hafa
nær undantekningalaust yfir 15
þúsund manns skráð sig til leiks
þó alltaf heltist einhverjir úr lest-
inni.
Engar konur fyrr en 1981
Konum var ekki leyft að keppa í
Vasagöngunni fyrr en árið 1981 og
það var ekki fyrr en árið 1997 að
sérstakur sigurvegari í kvenna-
flokki var fyrst krýndur. Það tók
sigurvegara karla á síðasta ári,
Oskar Svärd, 3 klst. og 52 mínútur
að komast í mark og sigurvegara
kvenna, Sofiu Lind, 4 klst. og 24
mínútur. Hinn almenni þátttakandi
getur huggað sig við að meðaltím-
inn er um átta klukkustundir. Til
hliðar við alvöru Vasagönguna eru
ýmsar styttri útgáfur sem geta
hentað þeim sem treysta sér ekki í
90 km. KortVasan eða stutta gang-
an byrjar viku fyrir aðalgönguna
en hún er 30 km. TjejVasan eða
stelpugangan er 30 km ganga ein-
göngu ætluð konum og þarf að
skrá sig í með löngum fyrirvara.
Þar að auki er Öppet spår eða
opna gangan þar sem vegalengdin
er sú sama og í aðalgöngunni en
ekki er keppt. Boðganga fyrir
fimm manna lið er einnig í boði,
hálfganga sem lýst er sem góðri
upphitun fyrir aðalgönguna (!) og
45 km ganga í frjálsum stíl.
Margir ferðamenn
Vasagangan er stórviðburður í
ferða-, menningar- og íþróttalífi
þeirra sveitarfélaga sem að koma,
Malung, Mora og Älvdalen, og lað-
ar marga ferðamenn á staðinn.
Minjagripabúðir og söfn hafa
sprottið upp og þá sérstaklega í
Mora, sem er endastöðin. Það er
kannski ágætistakmark að taka
einhvern tíma þátt í einhverri af
þeim göngum sem eru undir hatti
Vasagöngunnar, en kannski er líka
jafngaman að vera einhvern tíma
áhorfandi að þessum viðburði, ef
maður er hvort sem er á skíðum í
Sälen til dæmis.
HREYF ING | Vasagangan haldin í mars í Svíþjóð
Fólk víðsvegar að
gengur saman á skíðum
www.vasaloppet.se www.tran-
strand.se (gistiheimili í næsta ná-
grenni við upphaf Vasagöngunnar
þar sem einnig er boðið upp á æf-
ingabúðir fyrir gönguna.)
Áhugasamir þurfa að skrá sig með góðum fyrirvara í gönguna en um sex-
tán þúsund þátttakendur spreyta sig í henni þetta árið.
Golf í Manchester
GB-ferðir bjóða upp á golf og gist-
ingu á hóteli í Bretlandi, Marriott
Worsley Park í Manchester, en það
er í um 20 mínútna fjarlægð frá
Manchester-flugvelli. Á hótelinu eru
þrír veitingastaðir, tveir barir,
heilsulind, þráðlaust internet, 18
holu golfvöllur og gott æfingasvæði.
Golfpakkarnir sem GB-ferðir bjóða
innihalda flug til Manchester, 3 næt-
ur með morgunverði og kvöldverði
og 54 holur. Icelandair flýgur beint
til Manchester frá og með 7. apríl.
Hjólað í New York
Dagana 9.–18. apríl stendur Ís-
lendingum til boða að fara í hjólaferð
um New York. Leiðsögumaður verð-
ur Steve Silver sem fæddur er í
Brooklyn en starfar nú sem mynd-
listarmaður, skáld og er svo hjól-
areiðamaður af ástríðu. Konan hans
Louise er bókahönnuður frá Kata-
lóníu. Gist er í tveggja manna her-
bergjum á loftinu í íbúðarvinnustofu
Steves í Williamsburg og hjá ná-
grönnum þeirra hjóna. Morg-
unmatur er innifalinn en aðrar mál-
tíðir eru snæddar á hinum ýmsu
veitingastöðum. Hjólað er á 21 gírs
hjólum og farnar verða alls sex
hjólaferðir um borgina. Þátttak-
endur frá hjólreiðakort af borginni
og akstur til og frá flugvelli er inni-
falinn í verði ferðarinnar.
Vikuferð í knattspyrnuskóla
Bobby Charlton
Ít-ferðir bjóða upp á vikuferð í
sumar í knattspyrnuskóla Bobby
Charlton eða dagana 4.–11. ágúst.
Ferðin kostar 102.900 krónur og er
þá innifalið flug til Manchester,
akstur, gisting í 7 nætur, fullt fæði,
æfingar, kennsla, leikir o.m.fl.
Það verður einnig 11 daga ferð á
boðstólum dagana 28. júlí til 7.
ágúst.
Knattspyrnuskóli Bobby Charlton
hefur sl. 12 ár tekið á móti um 1.200
íslenskum ungmennum.
Fararstjórar ÍT ferða eru tvær
„fótboltamömmur", sem farið hafa
með íslenska hópa í skólann sl. ár.
Allar nánari upplýsingar um
hjólaferð fást hjá Arinbirni
Jóhannssyni á Brekkulæk.
Síminn er 451 2938 og póstfang
er brekka@nett.is
Nánari upplýsingar um golfpakka í
Manchester er hægt að fá á
www.gbferdir.is
Morgunblaðið/Einar Falur
Nánari upplýsingar á www.itferdir.is
og www.bcssa.co.uk (en reyndar er
verið að uppfæra síðuna um þess-
ar mundir).
Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
Afgreiðslugjöld á flugvöllum.
Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna og
minibus, 9 manna, og rútur með/án
bílstjóra.
Höfum bíla með dráttarkrók og smárútur,
allt að 14 manna. Smárútur fyrir
hjólastóla.
Sumarhús
Útvegum sumarhús í Danmörku af öllum
stærðum - frá 2ja manna og upp í 30
manna hallir. Valið beint af heimasíðu
minni. - Þið takið húsið frá í 3 daga án
greiðslu og við staðfestum síðan og
sendum samning og greiðsluseðla. Einnig
má greiða með greiðslukorti.
LALANDIA
Útvegum sumarhús í Lalandia, einhverju
skemmtilegasta orlofshverfi Danmerkur.
Lágmarksleiga 2 dagar.
Húsbílar, hjólhýsi fyrir VM 2006
Höfum nokkra húsbíla fyrir VM 2006 í
Þýskalandi til afgreiðslu frá Kaupmanna-
höfn og Flensborg. Getum útvegað
hjólhýsi og bíla með dráttarkrók.
Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu;
www.fylkir.is
Fylkir.is ferðaskrifstofa
sími 456 3745
Eina ferðaskrifstofan á Vestfjörðum sem
ekki nýtur styrkja frá opinberum aðilum
Bílaleigubílar
Sumarhús í
Danmörku
Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga
Bílar frá dkr. 1.975 vikan
The International Business Academy
Skamlingvejen 32 . DK-6000 Kolding . Tlf. +45 72 24 18 00 . Fax +45 72 24 18 08
iba@ibc.dk . www.iba.dk
Alþjóða Markaðs- og Viðskiptanám.
Kynningarfundur Mánudaginn 20. febrúar 2006
kl. 17 – 19 á Nordica Hotel, Reykjavík.
IBA býður upp á 2 ára markaðs-og viðskiptanám með áherslu á markaðsfræði, viðskipti og hagfræði.
Boðið er upp á fimm brautir:
Alþjóðabraut
–áhersla er lögð á markaðsfræði, samskipti og alþjóðaviðskipti.
Hægt er að velja um verklega þjálfun í 3 - 6 mánuði hjá erlendu eða dönsku fyrirtæki.
Stjórnunarbraut
–áhersla er lögð á stjórnun, (HRM), og stjórnunarfræði.
Samskiptabraut
–áhersla er lögð á markaðssamskipti og alþjóða markaðssetningu.
Auglýsingabraut
–áhersla er lögð á hönnun/auglýsingar.
Nýsköpunarbraut
Áhersla lögð á nýbreytni og sköpun.
Verkleg þjálfun
Á öllum brautum getur námið tengst verklegri þjálfun hjá
þekktum fyrirtækjum í Danmörku
og erlendis eins og t.d.: Microsoft, Maersk, IBM,
Alfa Laval, Danfoss, LEGO, B-Young o.fl..
Framhaldsnám
Bachelor, MBA, HA, HD - í Danmörku eða erlendis.
Upplýsingar gefur Íris í síma 860 8888.
Hringdu eða
sendu okkur
tölvupóst og
finndu út hver-
nig þú getur
orðið hluti af
þessu spen-
nandi námsu-
mhverfi sem
IBA býður
uppá. Einnig
getið þið fengið
ýtarlegar
upplýsingar hjá
skólanum.
RANNSÓKNIR sýna að það er
verra að búa sig undir hið versta til
að koma í veg fyrir vonbrigði heldur
en að vera bjartsýnn. Vísindamenn í
Seattle í Bandaríkjunum komust að
þessu og birtast niðurstöður þeirra í
tímaritinu Nature. Í ljós kom að þeir
sem bjuggust við hinu versta leið
verr en þeim sem höfðu jákvæðar
væntingar þótt útkoman í lokin væri
neikvæð. Vísindamennirnir drógu þá
ályktun að neikvæðar væntingar
geta í raun gert gert illt verra. En
það er heldur ekki það eina rétta að
hafa ætíð jákvæðar væntingar til
allra verkefna. Hófleg bjartsýni og
hæfilegar væntingar er e.t.v. það
besta.
RANNSÓKN
Bjartsýnin borgar sig