Morgunblaðið - 11.02.2006, Page 46
46 LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
HVERNIG borg er Reykjavík?
Reykjavík er einstaklega kraft-
mikil og skapandi borg. Það vekur
jafnan furðu útlend-
inga að hér skuli
vera jafn mikil starf-
semi og raun ber
vitni, jafn mikil ný-
sköpun í atvinnulífi
og jafn mikil gróska í
lista- og menningar-
lífi. Þetta kraftmikla,
skapandi andrúmsloft
er nokkuð sem við
Reykvíkingar erum
víða öfundaðir af en
af því engin einföld
uppskrift til.
Í hverju felast tækifæri
Reykjavíkur?
„Allar barbiedúkkurnar mínar
eru búnar til í Kína!“ sagði sex
ára dóttir mín við mig í gær. Það
er alveg rétt hjá henni og þangað
er mestöll framleiðsla að færast.
Þar er fólk tilbúið að vinna mun
lengri vinnudag fyrir aðeins brot
af því kaupi sem við sættum okkur
við.
Eina raunhæfa leið Vest-
urlandabúa til að viðhalda góðum
lífskjörum er að auka forystu sína
í nýsköpun, í þróun nýrra vöruteg-
unda og tækninýjunga. Þekkingar-
og hátækniiðnaður er helsti vaxt-
arbroddur hagkerfisins í ná-
grannalöndum okkar – enda hafa
þau mörg hver sett sér háleit
markmið í þeim efnum. Það eigum
við að gera líka.
Hver er leiðin?
Gróska í listalífi
auðgar viðskipta- og
atvinnulífið og hefur
hvetjandi áhrif á ný-
sköpun. Við verðum
því að gera list-
greinum hærra undir
höfði í menntun
barnanna okkar en
verið hefur ef við vilj-
um ná forystu í ný-
sköpun, þekkingar- og
hátækniiðnaði. Það
þarf að færa listnám í
auknum mæli inn í skólana, bæði í
námið sjálft og eins með því að
bjóða upp á listnám í frístunda-
tíma barnanna í skólanum eftir að
hefðbundum skóladegi lýkur. Það
þarf líka að leggja stóraukna
áherslu á iðnmenntun. Við verðum
að halda áfram að bjóða upp á
fyrsta flokks háskólamenntun og
efla rannsóknasamstarf háskóla og
atvinnulífs.
Virkjum stærstu auðlindina
Náttúra Íslands hefur í gegnum
aldirnar þótt óblíð og hörð en nú
þegar nánast allir búa í góðum vel
upphituðum húsum og aka í vel
búnum bílum um uppbyggða vegi
er náttúran ekki lengur sú harða
fóstra sem hún áður var. Við höf-
um vaxið henni upp fyrir höfuð.
Þeir eru því miður of miklu ráð-
andi sem finnst það erfið til-
hugsun að ótal lítrar vatns renni
daglega til sjávar án þess að þeir
framleiði ódýrt rafmagn fyrir ál-
verksmiðjur. Þeir hinir sömu dauf-
heyrast við kalli nýrrar kynslóðar
sem telur tækifærin felast í öðru.
Staðreyndin er sú að við eigum
eina ótakmarkaða auðlind – höf-
uðið. Hún er þeirri náttúru gædd
að því meira sem við virkjum hana
því öflugri verður hún.
Hún er hin sanna uppspretta
tækifæra og velmegunar og hana
eigum við Reykvíkingar að nýta.
Tökum saman höndum og gerum
Reykjavík að fremstu borg Evr-
ópu í nýsköpun, þekkingar- og há-
tækniiðnaði.
Reykjavík – borg nýsköpunar,
mennta og menningar
Eftir Dofra Hermannsson
Dofri Hermannsson
’Gróska í listalífi auðgarviðskipta- og atvinnulífið
og hefur hvetjandi áhrif á
nýsköpun.‘
Höfundur býður sig fram í 4. til 6.
sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í
Reykjavík.
Prófkjör Reykjavík
ÞRÁTT fyrir að Framsóknarflokk-
urinn hafi undanfarið verið að mælast
með allt niður í 4–5% fylgi í Reykja-
vík í skoðanakönnunum þá er nú þeg-
ar byrjað að nefna nýkjörinn leiðtoga
þeirra, Björn Inga Hrafnsson, sem
mögulegan borgarstjórakandídat eft-
ir næstu kosningar. Sjálfur hefur
Björn Ingi látið í það skína að hann
hafi áhuga á að komast í oddaaðstöðu
og muni þá jafnvel krefjast borg-
arstjórastólsins fyrir sjálfan sig. Ef
þetta gengi eftir væri staðan orðin sú
að einn minnsti flokkur landsins færi
með tvö valdamestu embætti þjóð-
arinnar. Slíkt væri að mínu mati í
mikilli andstöðu við öll almenn lýð-
ræðissjónarmið. Fái ég brautargengi
í prófkjöri Samfylkingarinnar nú um
helgina mun ég beita
mér fyrir róttækri upp-
stokkun á stjórnkerfi
borgarinnar. Meðal
annars mun ég leggja
til að borgarstjórinn í
Reykjavík verði fram-
vegis kosinn í beinni
kosningu. Slík breyting
myndi koma í veg fyrir
að nokkur gæti gegnt
þessu mikilvægasta
embætti höfuðborg-
arinnar án þess að sá
hinn sami nyti viðtæks
stuðnings borgarbúa. Mín skoðun er
sú að borgarbúar eigi að velja borg-
arstjórann. Þetta embætti er of mik-
ilvægt til að vera skiptimynt í hrossa-
kaupum milli flokka. Borgarbúar
vilja skýra valkosti við stjórn borg-
arinnar og borgarstjóri sem kosinn
er beint ber skýrari ábyrgð gagnvart
kjósendum. Leiða má
líkur að því að beint
kjör borgarstjóra
myndi laða fleiri að því
að taka þátt í kosning-
unum. Að fá að hafa
bein áhrif á hver gegnir
þessu mikilvæga emb-
ætti myndi þannig ýta
undir kosningaþátttöku
sem er mikilvægt lýð-
ræðismál. Vilmundur
heitinn Gylfason var
fyrstur til að leggja til
að forsætisráðherra
yrði kosinn beinni kosningu. Í gegn-
um árin hafa menn við og við dustað
rykið af þessum hugmyndum Vil-
mundar en af einhverjum ástæðum
hafa þær aldrei fengið byr undir báða
vængi. Hverjar skyldu vera ástæður
þess að stjórnkerfið er hér eins og
meitlað í stein á meðan fjöldi Evr-
ópuþjóða hefur haldið áfram að þróa
sitt lýðræði og gert ýmsar breytingar
á stjórnkerfinu? Það er sömuleiðis
nokkuð sérstakt að á Íslandi skuli
eini embættismaðurinn sem kjörinn
er í beinni kosningu vera sá sem hef-
ur hvað minnst raunveruleg völd, en
það er forseti lýðveldisins. Það má
spyrja sig hvers vegna sé verið að
hafa fyrir því að vera með þjóðkjör-
inn forseta? Ef það eru aðeins emb-
ætti með táknræn völd sem þjóðin
fær að taka þátt í að ráðstafa þá er
kannski eins gott að forsetinn sé bara
kjörinn af alþingi. Í London, París og
New York eru borgarstjórarnir allir
kosnir beint af íbúum þessara borga.
Ef borgarstjórinn væri kosinn beint
þá er líklegt að fram á sjónarsviðið
gætu komið frambjóðendur með fjöl-
breyttari bakgrunn. Borgarstjórar
framtíðarinnar gætu þannig komið úr
atvinnu- eða menningarlífinu eða
jafnvel úr íþróttaheiminum. Þeir
gætu tengst ákveðnum stjórn-
málaflokki, eða ekki. Þessum og fleiri
aðgerðum til að auka lýðræði í borg-
inni mun ég beita mér fyrir fái ég
stuðning í prófkjörinu nú um helgina.
Því lofa ég.
Tryggjum að borgarstjóri þurfi stuðning meirihluta borgarbúa
Eftir Andrés Jónsson ’Þessum og fleiri aðgerð-um til að auka lýðræði í
borginni mun ég beita
mér fyrir fái ég stuðning í
prófkjörinu nú um
helgina.‘
Andrés Jónsson
Höfundur er formaður Ungra
jafnaðarmanna og frambjóðandi í 4.
sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í
Reykjavík.
Prófkjör Reykjavík
MEÐ samkomulagi mennta-
málaráðherra og kennarasambands-
ins frá sl. fimmtudegi
er stigið eitt stærsta
framfaraskref í ís-
lenskum mennta-
málum í langan tíma.
Samkomulagið tryggir
samstöðu skólafólks
um löngu tímabæra
styttingu á námstíma
til stúdentsprófs, auk
þess að stuðla að nauð-
synlegri samfellu milli
skólastiga og eðlileg-
um sveigjanleika í
námi hvers og eins.
Hagvöxtur okkar og
velferð til lengri tíma mun ekki ráð-
ast af frekari nýtingu nátt-
úruauðlinda eða vaxandi stóriðju.
Framtíð okkar sem þjóðar mun ráð-
ast af menntunarstigi og gæðum
skólanna, allt frá leikskólum til há-
skóla. Framtíð okkar mun ráðast af
þeirri auðlind sem öllu skiptir í
framtíðinni, mannauðnum. Til að há-
marka nýtingu hans, þurfum við
skóla á heimsmælikvarða.
Menntasókn okkar Íslendinga
undanfarin ár er með ólíkindum, en
betur má ef duga skal. Við þurfum
að vinna gegn brottfalli í framhalds-
skólum sem er allt of hátt. Eðlilegt
er að allur þorri ung-
menna ljúki framhalds-
skólaprófi, út frá ein-
staklingsbundnum
þörfum hvers og eins.
Við þurfum einnig að
stefna að því að minnst
60% af hverjum ár-
gangi ljúki fyrstu há-
skólagráðu auk þess að
stórefla meistara- og
framhaldsnám á há-
skólastigi.
Þarfir þjóðarinnar til
menntunar í sí-
breytilegu alþjóðlegu
samkeppnisumhverfi eru skýrar.
Samfélagið og atvinnulífið þurfa á
betur menntuðu fólki að halda.
Það er því afar mikilvægt að
menntakerfið í heild sé samkeppn-
ishæft. Forgangsatriði í þeim efnum
er að við sem þjóð veitum okkar fólki
menntun af meiri gæðum, en á sam-
bærilegum tíma og flestar aðrar
vestrænar þjóðir. Svo er ekki í dag
og í því felst gríðarleg sóun sem ger-
ir ekkert annað en að lækka ævi-
tekjur alls háskólamenntaðs fólks og
draga úr framtíðarhagvexti lands-
ins. Samkomulag ráðherra og kenn-
ara um styttingu námstíma til stúd-
entsprófs er því mikið heilla- og
framfaraspor.
Samkomulagið er hins vegar víð-
tækt og mun kosta hið opinbera
töluverða fjármuni. Til að byggja
upp bestu skóla í heimi þarf bæði
fjármagn og faglegan metnað. Hér
virðast af samningsaðilum gefin fyr-
irheit um hvorutveggja og er það
vel.
Mennt er máttur
Runólfur Ágústsson fjallar um
samkomulag menntamálaráð-
herra og Kennarasambandsins ’Til að byggja upp bestuskóla í heimi þarf bæði
fjármagn og faglegan
metnað. Hér virðast af
samningsaðilum gefin
fyrirheit um hvoru-
tveggja og er það vel. ‘
Runólfur Ágústsson
Höfundur er rektor
Viðskiptaháskólans á Bifröst.
NÚ FER fram dýrasta prófkjör
Íslandssögunnar. Nú þegar hafa
frambjóðendur Samfylkingarinnar,
undir forystu Steinunnar Valdísar,
Stefán Jóhanns og
Dags B., látið hækka
laun og tilkostnað hjá
Reykjavíkurborg fyr-
ir hundruð milljóna,
eða lofað að eyða enn
meiri fjármunum.
Reikningurinn verður
sendur kjósendum í
formi hærri skatta.
Búseta í Reykjavík
er að verða venjulegu
launafólki ofraun,
vegna ofurskatta og
skipulagsleysis í sam-
göngumálum. Sam-
fylkingin býður nú lóðir til sölu
fyrir hina ríku, venjulegt fólk er
sett hjá. VG hafa þvegið hendur
sínar af þessu máli,
eins og Pontíus Pílat-
us gerði forðum. Allt
stefnir í met-
skattlagningu á hvern
íbúa Reykjavíkur og
skuldasöfnun, sem
ætluð er börnum
framtíðarinnar til
greiðslu.
Dýrasta prófkjör Ís-
landssögunnar mun
bitna á íbúum Reykja-
víkur um ókomna
framtíð.
Dýrasta prófkjör
Íslandssögunnar
Hreggviður Jónsson fjallar um
prófkjör Samfylkingarinnar
Hreggviður Jónsson
’Dýrasta prófkjör Ís-landssögunnar mun bitna
á íbúum Reykjavíkur um
ókomna framtíð.‘
Höfundur er fyrrverandi þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Í DAG og á morgun gefst Reykvík-
ingum kostur á að taka þátt í opnu
prófkjöri Samfylkingarinnar og hafa
þannig áhrif á það hverjir skipa fram-
boðslista flokksins við borgarstjórn-
arkosningarnar í vor. Frambjóð-
endur hafa síðustu daga og vikur
kynnt sig, verk sín og skoðanir. Ég
hef lagt áherslu á
reynslu mína sem
varaborgarfulltrúi og
formaður og fulltrúi í
nefndum og stjórnum
á sviði velferðar, um-
hverfis, jafnréttis og
rekstrar. Þá hef ég
lagt áherslu á sjón-
armið mín um velferð
fyrir alla, jafnrétti,
umhverfisvernd, gott
atvinnulíf og heil-
brigðan rekstur borg-
arinnar.
Ég hef lagt áherslu
á að það þurfi að efla
starfið í leikskólum og hverfisskólum
borgarinnar því það er börnunum og
framtíð borgarinnar fyrir bestu, og
að auðvelda þurfi enn frekar íþrótta-
og listiðkun barna. Ég hef lagt
áherslu á að eyða þurfi kynbundnum
launamun og auka jafnrétti kynjanna,
og að brýnt sé að koma á mannrétt-
indastefnu sem taki til ólíkra hópa og
í raun allra íbúa. Ég hef lagt áherslu á
að við þurfum að virða þarfir aldr-
aðra, hefja sem fyrst byggingu nýs
hjúkrunarheimilis og bæta þjónustu
við aldraða sem búa heima. Þá hef ég
lagt á það áherslu að við
förum vel með það fé,
landrými og umhverfi
sem okkur er trúað fyrir.
Ég hef ritað um þetta
margar blaðagreinar,
einkum hér í Morg-
unblaðinu, auk þess sem
ég hef rætt þessi mál í
útvarps- og sjónvarps-
þáttum. Þá er allt þetta
efni meira og minna á
þeim vef sem ég hef
komið mér upp í
tengslum við þetta próf-
kjör. Slóðin er www.stef-
anjohann.is og þar er
hægt að kynna sér þessi mál. Ég hvet
Reykvíkinga til að taka þátt í próf-
kjöri Samfylkingarinnar og ég hvet
þá einnig til að setja mig í þriðja sæt-
ið á listanum, eða því sem næst.
Tökum þátt í opnu
prófkjöri
Eftir Stefán Jóhann Stefánsson ’Ég hvet Reykvíkinga tilað taka þátt í prófkjöri
Samfylkingarinnar og ég
hvet þá einnig til að setja
mig í þriðja sætið á list-
anum …‘
Stefán Jóhann
Stefánsson
Höfundur er varaborgarfulltrúi,
sækist eftir 3. sæti í prófkjöri
Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Prófkjör Reykjavík
TENGLAR
..............................................
www.stefanjohann.is