Morgunblaðið - 11.02.2006, Qupperneq 55
Kvöldvaka í
Fríkirkjunni í Hafnarfirði
Á MORGUN, sunnudaginn 12. febrúar verður kvöld-
vaka í Fríkirkjunni í Hafnarfirði sem hefst kl. 20.
Hjónabandið verður til umfjöllunar og gestir að þessu
sinni eru þau hjónin Ágústa María Arnardóttir og
Hjörleifur Valsson fiðluleikari.
Að venju mun hljómsveit kirkjunnar leiða tónlistina
en hljómsveitina skipa Örn Arnarson, Guðmundur
Pálsson og Skarphéðinn Hjartarson.
Þá mun kór kirkjunnar syngja.
Myndir af Jesú – kvöldguðs-
þjónusta í Hafnarfjarðarkirkju
AÐ UNDANFÖRNU hefur mikið verið rætt um mynd-
ir og listir í hinum ýmsu trúarbrögðum eins og allir
vita. Af því tilefni verður þema kvöldguðsþjónustu
næstkomandi sunnudags í Hafnarfjarðarkirkju
„Myndir af Jesú“.
Sr. Þórhallur Heimisson hefur tekið saman myndir
sem listamenn hafa gert samkvæmt sínum hug-
myndum um Jesú frá ýmsum tímum og öllum heims-
hornum. Þar getur að líta afrískan Jesú, japanskan
Jesú, Jesú í Suður-Ameríku, Jesú í Evrópu, Jesú á Ís-
landi og Jesú eins og listamenn túlkuðu hann í forn-
öld, á miðöldum og gera enn á okkur tímum. Mynd-
irnar verða sýndar á stóru tjaldi í guðsþjónustunni og
mun sr. Þórhallur segja frá þeim og túlkun þeirra á
kristinni trú. Sr. Gunnþór Ingason leiðir helgihald en
hljómsveitin Gleðigjafar leikur undir söng.
Eftir stundina er boðið upp á hressingu í safn-
aðarheimilinu og gefst þá tækifæri til að ræða nánar
um kristna trú og listir.
Grafarvogskirkja – kyrrðarstundir
HELGISTUND í hádegi kl. 12 alla miðvikudaga. Alt-
arisganga og fyrirbænir. Tekið er á móti fyrirbænum
í kirkjunni í síma 587 9070 alla daga frá kl. 9–17.
Boðið er upp á léttan hádegisverð á vægu verði að
lokinni stundinni. Prestar safnaðarins þjóna fyrir alt-
ari, organisti er Hörður Bragason. Allir velkomnir.
Kvennakirkjan í Neskirkju
KVENNAKIRKJAN heldur guðsþjónustu í Neskirkju
sunnudaginn 12. febrúar kl. 20.30. Yfirskrift mess-
unnar er: Kvennakirkjan – það sem var, er og verður.
Kvennakirkjukonurnar Guðný Guðmundsdóttir, Sig-
ríður Magnúsdóttir og Elísabet Þorgeirsdóttir munu
fjalla um efnið, rifja upp aðdraganda og stofnun
Kvennakirkjunnar, segja hvað Kvennakirkjan hefur
gert fyrir þær og spá í framtíðina. Kór Kvennakirkj-
unnar leiðir sönginn undir stjórn Aðalheiðar Þor-
steinsdóttur. Á eftir verður kaffi í safnaðarheimilinu.
Kvöldmessa og virk
hlustun í Laugarneskirkju
VIÐ viljum vekja athygli á tvennu sem fram fer í
Laugarneskirkju á morgun, sunnudag.
Kl. 13–16 verður haldið námskeið í virkri hlustun
fyrir sambúðarfólk og hjón, þar sem hjónin Vigfús
Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur og Valdís Ösp Ív-
arsdóttir fíkni- og fjölskylduráðgjafi er leiðbeinendur.
Stofnaðir verða vinnuhópar sem koma saman í heima-
húsum á 6–8 vikna fresti og starfa eftir þrautreyndu
kerfi. Það kostar ekkert að sjá nýtt fólk og kynna sér
málið.
Kl. 20.30 er svo kvöldmessa febrúarmánaðar. Þar
mun María Magnúsdóttir syngja einsöng og Djass-
kvartettinn skipa að þessu sinni Gunnar Gunnarsson,
Ómar Guðjónsson, Erik Qvick og Tómas R. Einarsson.
Kór Laugarneskirkju leiðir safnaðarsönginn. Bjarni
Karlsson sóknarprestur þjónar ásamt Sigurbirni Þor-
kelssyni meðhjálpara og hópi safnaðarfólks sem flyt-
ur eigin bænir og ritningarorð.
Að messu lokinni er boðið til fyrirbæna við altarið
og messukaffi Gunnhildar kirkjuvarðar framreitt í
safnaðarheimilinu. Athugið að djasskvartettinn hefur
leik kl. 20, svo gott er að koma snemma í góð sæti og
njóta alls frá byrjun.
Klassísk messa í Hallgrímskirkju
LUX Aeterna, sem er áhugahópur um klassíska
messu og iðkun gregorssöngs, stendur fyrir messu
með gregorslagi 2. sunnudag hvers mánaðar kl. 20 í
Hallgrímskirkju.
Hópurinn kallar til helgiþjónustu ýmsa presta.
Kynning og æfingar á messunum verða hálfri klukku-
stund fyrir messuna sjálfa eða kl. 19.30 í Hallgríms-
kirkju. Næsta messa verður sunnudaginn 12. febrúar
kl. 20, prestur er sr. Kristján Valur Ingólfsson. Allir
eru hjartanlega velkomnir.
Klassísk messa og gregorssöngur er dýrmætur arf-
ur kirkjunnar og kjarnmikið andlegt fóður. Það er
von þeirra sem að þessari messuröð standa að með
henni skapist vettvangur fyrir þau sem gleði hafa af
því að iðka klassíska tilbeiðsluhætti, hins elsta söngs
kirkjunnar, sem tjáningarform trúarinnar.
Samskipti foreldra og
barna í Hallgrímskirkju
Á MORGUN, sunnudag kl. 10 verður fræðslumorgunn
í Hallgrímskirkju. Þar mun Anna Margrét Sigurð-
ardóttir, verkefnisstjóri hjá Heimili og skóla, flytja
erindi um samskipti foreldra og barna. Heimili og
skóli hafa í sívaxandi mæli látið til sín taka á vett-
vangi uppeldismála og í samstarfi heimilis og skóla. Í
vaxandi margmiðlunarsamfélagi er mikilvægt sem
aldrei fyrr að foreldrar hafi góð og aðhaldssöm
tengsl við börn sín. Erindið er framlag Hallgríms-
kirkju til átaksins: Verndum bernskuna.
Kl. 11 hefst síðan barnastarf og messa með þátt-
töku fermingarbarna, þar sem þau lesa ritning-
arlestra og flytja bænir, Drengjakór Reykjavíkur,
Hallgrímskirkju syngur í messunni. Þá mun Kristján
Rúnarsson menntaskólanemi leika á flautu. Prestur
er sr. Sigurður Pálsson, barnastarfið annast Magnea
Sverrisdóttir djákni. Organisti er Björn Steinar Sól-
bergsson.
Kvöldmessa í Dómkirkjunni
Á SUNNUDAGINN verður kvöldmessa í Dómkirkj-
unni kl. 20. Marteinn H. Friðriksson við orgelið og
flygilinn, sr. Hjálmar Jónsson við ræðupúltið. Jóhann
Friðgeir syngur einsöng og stjórnar almennum söng.
Verið velkomin til kvöldstundar í Dómkirkjunni.
Tónlistarmessa í Hjallakirkju
með íslenskri tónlist
VIÐ tónlistarmessuna í Hjallakirkju í Kópavogi
sunnudaginn 12 febrúar kl. 11 mun Kór Hjallakirkju
mæta og flytja íslenska kirkjutónlist, ýmist eftir ís-
lensk tónskáld eða raddsett af Íslendingum.
Má þar t.d. nefna þrjá sálma úr gömlum bókum
sem Smári Ólason hefur raddsett. Einnig sálminn nr.
356 með texta og lag eftir feðgana dr. Sigurbjörn
Einarssson, biskup og Þorkel Sigurbjörnsson, Íslenskt
lag frá 18. öld sem breytt var af Pétri Guðjohnsen og
raddsett af honum og einnig perluna Ó, faðir gjör
mig lítið ljós eftir Jónas Tómasson sem verður sungin
í almennum safnaðarsöng ásamt fleiri sálmum sem
tilheyra boðskap dagsins.
Morgunblaðið/Ómar
Fríkirkjan í Hafnarfirði
lok samkomu. Allir velkomnir. Barnakirkja
á meðan á samkomu stendur, öll börn vel-
kominn frá 1–12 ára. Hægt er að hlusta á
beina útsendingu á Lindinni fm 102,9 eða
horfa á www.gospel.is Á Omega er sýnd
samkoma frá Fíladelfíu kl. 20. www.go-
spel.is
KROSSINN: Almenn samkoma að Hlíða-
smára 5 kl. 16.30.
BETANÍA, Lynghálsi 3: Samkoma kl. 11
sunnudaga. Einnig samkomur kl. 19.30 á
föstudögum.
KIRKJA JESÚ KRISTS Hinna síðari daga
heilögu, Mormónar, Ásabraut 2, Garða-
bæ: Guðsþjónusta sunnudag kl. 9 árdeg-
is á ensku og kl. 12 á hádegi á íslensku.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík, Kristskirkja í Landakoti, dóm-
kirkja og basilíka: Sunnudaga: Messa kl.
10.30. Messa á ensku kl. 18.00. Alla
virka daga: Messa kl. 18.00. Tilbeiðslu-
stund er haldin í Kristskirkju á hverju
fimmtudagskvöldi að messu lokinni, þ.e.
frá kl. 18.30 til 19.15. Trúfræðsla
barnanna fer fram á laugardögum kl.
13.00 í Landakotsskóla. Barnamessan er
kl. 14.00 í Kristskirkju. Reykjavík, Mar-
íukirkja við Raufarsel: Sunnudaga:
Messa kl. 11.00. Laugardaga: Messa á
ensku kl. 18.30. Virka daga: Messa kl.
18.30. Riftún í Ölfusi: Sunnudaga:
Messa kl. 16.00. Miðvikudaga kl. 20.00.
Hafnarfjörður, Jósefskirkja: Sunnudaga:
Messa kl. 10.30. Alla virka daga: Messa
kl. 18.30. Tilbeiðslustund á hverjum degi
kl. 17.15. Karmelklaustur: Sunnudaga:
Messa kl. 08.30. Virka daga: Messa kl.
8.00. Keflavík, Barbörukapella: Skóla-
vegi 38: Sunnudaga: Messa kl. 14.00.
Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla virka
daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga:
Messa kl. 10.00. Ísafjörður: Sunnudaga:
Messa kl. 11.00. Flateyri: Laugardaga:
Messa kl. 18.00. Bolungarvík: Sunnu-
daga kl. 16.00. Suðureyri: Sunnudaga:
Messa kl. 19.00. Akureyri, Kaþólska
kirkjan: Péturskirkja, Hrafnagilsstræti 2:
Laugardaga: Messa kl. 18.00. Sunnu-
daga: Messa kl. 11.00. Tilbeiðslustund á
hverjum föstudegi kl. 17.00 og messa kl.
18.00.
KIRKJA SJÖUNDA DAGS AÐVENTISTA:
Aðventkirkjan Ingólfsstræti 19, Reykja-
vík. Biblíufræðsla kl. 10.00. Guðþjónusta
kl. 11.00. Ræðumaður: Gavin Anthony.
Loftsalurinn Hólshrauni 3, Hafnarfirði:
Guðþjónusta/Biblíufræðsla kl. 11.00.
Ræðumaður: Maxwell Ditta. Safnaðar-
heimili aðventista Gagnheiði 40, Sel-
fossi: Biblíufræðsla kl. 10.00. Guðþjón-
usta kl. 11.00. Ræðumaður Stefán Rafn
Stefánsson. Safnaðarheimili aðventista
Blikabraut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl.
10.15. Guðþjónusta kl. 11.00. Ræðu-
maður Björgvin Snorrason. Aðventkirkjan
Brekastíg 17, Vestmannaeyjum: Biblíu-
fræðsla kl. 10.00. Guðsþjónusta kl.
11.00. Ræðumaður Eric Guðmundsson.
BRAUTARHOLTSKIRKJA á Kjalarnesi:
Messa sunnudag kl. 14. Ath. breyttan
messutíma. Gunnar Kristjánsson sóknar-
prestur.
LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Kirkjukór Lágafellssóknar. Organisti
Jónas Þórir. Sunnudagaskóli í Lágafells-
kirkju kl. 13 í umsjá Hreiðars Arnar og
Jónasar Þóris. Jón Þorsteinsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Fjölskylduhá-
tíð kl. 11. Unglingakór kirkjunnar syngur
undir leiðsögn Helgu Loftsdóttur. Undir-
leik annast Anna Magnúsdóttir. Báðir
prestar kirkjunnar þjóna. Sr. Þórhallur
segir söguna af því hvernig Guð skapaði
manninn í sinni mynd. Brúður koma í
heimsókn. Hljómsveitin gleðigjafar leiðir
söng. Eftir stundina í kirkjunni er boðið
upp á heilsunammi í safnaðarheimilinu.
Strætisvagn ekur frá Hvaleyrarskóla kl.
10.55 og heim aftur kl. 12. „Myndir af
Jesú“ – kvöldguðsþjónusta kl. 20. Hljóm-
sveitin gleðigjafar leikur. Sr. Þórhallur
Heimisson sýnir og segir frá myndum sem
listamenn hafa gert í mörgum löndum og
á ýmsum tímum samkvæmt sínum hug-
myndum um Jesú. Sr. Gunnþór Ingason
leiðir helgihaldið. Eftir stundina er boðið
upp á hressingu í safnaðarheimilinu.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Sunnu-
dagaskólinn kl. 11. Skemmtileg stund fyr-
ir börn á öllum aldri. Guðsþjónusta kl. 13.
Kór Víðistaðasóknar syngur létta söngva
undir stjórn Úlriks Ólasonar.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Sunnudaga-
skóli kl. 11, góð stund fyrir alla fjölskyld-
una. Umsjón hafa Edda, Hera og Örn.
Kvöldvaka kl. 20. Kirkjubandið og kórinn
leiða söng. Gestir að þessu sinni eru
hjónin Ágústa María Arnardóttir og Hjör-
leifur Valsson fiðluleikari.
ÁSTJARNARSÓKN: Barnaguðsþjónustur í
samkomusal Hauka Ásvöllum á sunnu-
dögum kl. 11–12. Léttar veitingar og hlý-
legt samfélag eftir helgihaldið.
KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkjuskóli í Tjarn-
arsal Stóru-Vogaskóla á sunnudögum kl.
11–12. Léttar veitingar og hlýlegt sam-
félag eftir helgihaldið. Messa í Kálfatjarn-
arkirkju sunnudag kl. 14. Altarisganga,
foreldrar fermingarbarna fylgi börnum sín-
um til altarismáltíðarinnar, mæting kl.
13.30 fyrir þau.
VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Sunnudagaskólinn á saman tíma. Börn
borin til skírnar. Kór Vídalínskirkju leiðir
safnaðarsönginn. Organisti Jóhann Bald-
vinsson. Sr. Friðrik J. Hjartarþjónar. Mola-
sopi eftir guðsþjónustu í safnaðarheim-
ilinu. Allir velkomnir.
BESSASTAÐASÓKN: Sunnudagaskóli kl.
11 í sal Álftanesskóla. Umsjón: Kristjana,
Ásgeir Páll, Sara og Oddur. Foreldrar
hvattir til að koma með börnum sínum.
Allir velkomnir.
BESSASTAÐAKIRKJA: Messa sunnudag
kl.11. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir, Gréta
Konráðsdóttir djákni, Halldóra Pálsdóttir
kirkjuvörður og fermingarbörn þjóna í
messunni ásamt Bjarti Loga Guðnasyni
organista og Álftaneskórnum, einnig verð-
ur barn borið til skírnar. Allir velkomnir.
ÞORLÁKSKIRKJA: Sunnudagaskóli kl.
11. Séra Baldur, Sissa og Julian. Messa
kl. 14. Vænst er þátttöku fermingarbarna
og foreldra þeirra. Fermingarfræðsla kl.
13. Sóknarprestur.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðsþjón-
usta sunnudag kl. 11. Barn borið til skírn-
ar. Kór Ytri-Njarðvíkurkirkju leiðir söng
undir stjórn Natalíu Chow Hewlett organ-
ista. Sunnudagaskóli sunnudaginn 12.
febrúar kl. 11 í umsjá Ástríðar Helgu Sig-
urðardóttur, Kristjönu Gísladóttur og Arn-
ars Inga Tryggvasonar. Kirkjutrúðurinn
mæti.
NJARÐVÍKURKIRKJA (Innri-Njarðvík):
Sunnudagaskólinn verður í Ytri-Njarðvík-
urkirkju og verður börnum ekið frá Safn-
aðarheimili Njarðvíkurkirkju kl. 10.45. Að-
alsafnaðarfundur Innri-Njarðvíkursókn
verður haldinn 19. febrúar nk. að lokinni
fjölskylduguðsþjónustu. Dagskrá; Venju-
leg aðalfundarstörf. Hlévangur. Helgi-
stund 12. febrúar kl. 14.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11 árd. Laufey Gísla-
dóttir, umsjónarmaður sunnudagaskól-
ans, Sara Valbergsdóttir, Sigríður H.
Karlsdóttir, Víðir Guðmundsson og Elín
Njálsdóttir. Vestfirðingafélagið tekur þátt í
guðsþjónustunni. Prestur sr. Kjartan Jóns-
son. Kór Keflavíkurkirkju leiðir söng. Org-
anisti og stjórnandi Hákon Leifsson. Með-
hjálpari Guðmundur Hjaltason. Kaffi og
djús eftir guðsþjónustu.
BORGARPRESTAKALL: Barnaguðsþjón-
usta í Borgarneskirkju kl 11.15. Messa í
Álftaneskirkju kl 14. Taize-guðsþjónusta í
Borgarneskirkju kl 20. Barnakór syngur,
ásamt kirkjukór undir stjórn Steinunnar
Árnadóttur. Hljóðfæraleikarar Gunnar
Ringsted og Ólafur Flosason. Sóknar-
prestur.
MÖÐRUVALLAKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta verður fyrir allt prestakallið
sunnudag kl. 11 f.h. Mikill og skemmti-
legur söngur. Börn taka þátt í guðsþjón-
ustunni. Allir velkomnir. Sóknarprestur.
AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Svavar A. Jónsson. Félagar úr Kór
Akureyrarkirkju syngja. Á orgelið leika Ey-
þór Ingi Jónsson og nemendur úr Tónlist-
arskólanum á Akureyri. Sunnudagaskóli í
safnaðarheimili á sama tíma. Kvöld-
messa kl. 20.30. Sr. Sólveig Halla Krist-
jánsdóttir. Haukur Árni Hjartarson flytur
hugleiðingu. Stúlknakór Akureyrarkirkju
syngur undir stjórn Eyþórs Inga Jónsson-
ar. Fermingarbörn og foreldrar þeirra sér-
staklega hvött til að koma.
GLERÁRKIRKJA: Barnasamvera og
messa kl. 11. Sr. Gunnlaugur Garðarsson
þjónar. Kór Glerárkirkju syngur. Organisti
Hjörtur Steinbergsson. Fermingarbörn
ásamt foreldrum boðin sérstaklega vel-
komin.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Fjöl-
skyldusamkoma sunnudag kl. 11. Anna
Merethe Jakobsen talar.
LAUFÁSPRESTAKALL: Svalbarðskirkja:
Guðsþjónusta sunnudag kl. 14. Kyrrðar-
stund sama kvöld kl. 21.
FÁSKRÚÐSFJARÐARKIRKJA: Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Sérstök stund fyrir
börnin niðri eftir guðspjall. Sóknarprestur.
STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA: Guðsþjónusta
og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Skírnir
Garðarsson þjónar.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 11. Egill Hallgrímsson.
HAUKADALSKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 14. Félagar úr Skálholts-
kórnum leiða sönginn. Egill Hallgrímsson.
STÓRUBORGARKIRKJA, Grímsnesi:
Guðsþjónusta sunnudag kl. 16. Les-
messa án organleiks. Egill Hallgrímsson.
MOSFELLSKIRKJA, Grímsnesi: Kvöld-
guðsþjónusta sunnudag kl. 20.30. Les-
messa án organleiks. Egill Hallgrímsson.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11. Aðstand-
endur vegna fermingar í voraðstoða við at-
höfnina. Fermingarbörn og foreldrar sér-
staklega hvött til þess að koma.
Barnaguðsþjónusta kl. 11.15 í safnaðar-
heimilinu. Léttur hádegisverður eftir at-
höfnina. Kirkjuskóli í Félagsmiðstöðinni
við Tryggvagötu þriðjudag 14. febrúar kl.
14. Foreldramorgunn miðvikudaginn15.
febrúar kl. 11. Opið hús. Guðfinna
Tryggvadóttir, íþróttakennari og einkaþjálf-
ari, kynnir líkamsrækt handa mæðrum á
meðgöngu og eftir barnsburð. Fundur í
Æskulýðsfélagi Selfosskirkju fimmtu-
dag16. febrúar kl. 19.30. Sr. Gunnar
Björnsson.
STOKKSEYRARKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 11.
HVERAGERÐISKIRKJA: Sunnudagaskóli
kl. 11. Orgelstund kl. 17. Ritningarlestur,
hugleiðing og bænargjörð. Alfa-námskeið
á mánudögum kl. 19–22. Foreldramorgn-
ar á þriðjudögum kl. 10.
Heilsustofnun NLFÍ: Guðsþjónusta kl. 11.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 55
MESSUR Á MORGUN KIRKJUSTARF