Morgunblaðið - 11.02.2006, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 69
Raðauglýsingar 569 1100
Atvinnuhúsnæði
Skrifstofuhúsnæði tll leigu
95 m² skrifstofuhúsnæði til leigu í Akralind,
Kópavogi, frá og með 1. mars næstkomandi.
Mjög snyrtilegt og frábært útsýni.
Leiga 125 þús. m. vsk. Innifalið er hiti, rafmagn
og öryggiskerfi.
Uppl. fást hjá Andra í s. 544 4888 eða 690 9966.
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur
Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík
og nágrenni verður haldinn á Hótel Sögu laug-
ardaginn 18. febrúar 2006 kl. 13.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Berglind Magnúsdóttir verkefnisstjóri skýrir
frá niðurstöðum samþættingar um heima-
hjúkrun og heimaþjónustu.
3. Önnur mál.
Ársreikningur félagsins liggur frammi á skrif-
stofu félagsins frá 16. febrúar.
Ath. aðeins þeir sem framvísa félagsskírteinum
hafa atkvæðisrétt. Félagsmenn fjölmennið og
takið með ykkur gesti.
Stjórnin.
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Bergþórugata 51, 200-8467, Reykjavík, þingl. eig. Gunnar Vigfús
Gunnarsson, gerðarbeiðendur Sparisjóður Hafnarfjarðar og Toll-
stjóraembættið, miðvikudaginn 15. febrúar 2006 kl. 13:30.
Búagrund 3, 208-5589, Reykjavík, þingl. eig. Tómas John Hounslow,
Kristín Norðmann og Hlynur Skúli Auðunsson, gerðarbeiðendur
Brimborg ehf., Íbúðalánasjóður og Kaupþing banki hf., miðvikudag-
inn 15. febrúar 2006 kl. 11:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
10. febrúar 2006.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Skógar-
hlíð 6, Reykjavík - 5, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Bergstaðastræti 11A, 200-5810, Reykjavík, þingl. eig. Pýramídinn
ehf., gerðarbeiðendur Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Tollstjóra-
embættið, miðvikudaginn 15. febrúar 2006 kl. 10:00.
Drafnarstígur 3, 200-0990, 25% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Illugi Jökuls-
son, gerðarbeiðandi Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, miðvikudaginn
15. febrúar 2006 kl. 10:00.
Dugguvogur 12, 0302, Reykjavík, þingl. eig. Guðný Hrafnsdóttir, gerðar-
beiðandi Tollstjóraembættið, miðvikudaginn 15. febrúar 2006 kl. 10:00.
Eiðistorg 13, 010003 og 010004, Seltjarnarnes, þingl. eig. ÁB fjárfesting-
ar ehf., gerðarbeiðandi Seltjarnarneskaupstaður, miðvikudaginn
15. febrúar 2006 kl. 10:00.
Eiðistorg 15, 206-7305, Seltjarnarnes, þingl. eig. ÁB fjárfestingar
ehf., gerðarbeiðendur Seltjarnarneskaupstaður og Ölgerðin Egill
Skallagrímsson e, miðvikudaginn 15. febrúar 2006 kl. 10:00.
Eikjuvogur 22, 202-3534, Reykjavík, þingl. eig. Haukur Örvar Weihe,
gerðarbeiðendur Kaupþing banki hf. og Sparisjóður Vestmannaeyja,
miðvikudaginn 15. febrúar 2006 kl. 10:00.
Langholtsvegur 128, 010002, Reykjavík, þingl. eig. Sverrir Pétur Péturs-
son, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, miðvikudaginn 15. febrúar
2006 kl. 10:00.
Markholt 17, 010203, Mosfellsbær, þingl. eig. Sigurður Ólafsson,
gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, miðvikudaginn 15. febrúar 2006
kl. 10:00.
Rauðás 19, 010001, Reykjavík, þingl. eig. Magnús Sigurðsson, gerðar-
beiðandi Tollstjóraembættið, miðvikudaginn 15. febrúar 2006
kl. 10:00.
Reykás 5, 030101, Reykjavík, þingl. eig. Ingigerður Gunnarsdóttir,
gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf. og Sparisjóður
Reykjavíkur og nágrennis, útibú, miðvikudaginn 15. febrúar 2006
kl. 10:00.
Skólavörðustígur 12, 200-5762, Reykjavík, þingl. eig. Ragnar Halldórs-
son, gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., Skúli fógeti
ehf., Tollstjóraembættið og Vátryggingafélag Íslands hf., miðvikudag-
inn 15. febrúar 2006 kl. 10:00.
Stóragerði 20, 030402, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Jón Valdimar
Aðalsteinsson, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, miðvikudaginn
15. febrúar 2006 kl. 10:00.
Súðarvogur 24, 224-6069, Reykjavík, þingl. eig. Eðvarð Franklín
Benediktsson, gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., mið-
vikudaginn 15. febrúar 2006 kl. 10:00.
Tunguháls 7, 010101, Reykjavík, þingl. eig. Ljósvirki ehf., gerðarbeið-
andi Tollstjóraembættið, miðvikudaginn 15. febrúar 2006 kl. 10:00.
Víkurás 4, 040403, Reykjavík, þingl. eig. Arnþór Vilhelm Sigurðsson,
gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, miðvikudaginn 15. febrúar 2006
kl. 10:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
10. febrúar 2006.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Jöklafold 37, 204-1899, Reykjavík, þingl. eig. Almar Danelíusson,
gerðarbeiðendur Jöklafold 37, húsfélag og Tollstjóraembættið,
fimmtudaginn 16. febrúar 2006 kl. 13:30.
Orrahólar 7, 204-9960, Reykjavík, þingl. eig. Sigríður Árnadóttir, gerð-
arbeiðandi Lífeyrissjóður sjómanna, fimmtudaginn 16. febrúar 2006
kl. 11:00.
Vesturberg 30, 205-0837, Reykjavík, þingl. eig. Jóhann Skarphéðins-
son, gerðarbeiðendur Kreditkort hf., Sparisjóður Hafnarfjarðar, Toll-
stjóraembættið og Vesturberg 8, 10, 26, 28, 30, húsfél., fimmtudaginn
16. febrúar 2006 kl. 11:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
10. febrúar 2006.
Félagslíf
12.2. Rosmhvalanes, 2. áfangi
Garðskagi - Stafnes
Brottf. frá BSÍ kl. 10:30. Fararstj.
Ragnar Jóhannesson. V. 2.300/
2.700 kr.
18.-19.2. Þorrablót í Básum -
Jeppaferð. Brottf. frá Hvolsvelli
kl. 10:00.
24.-26.2. Langjökull - Jeppa-
ferð. Brottf. kl. 19:00.
25.-26.2. Nesjavellir
Skíðaferð. Brottf. frá BSÍ kl. 8.00.
Sjá nánar á www.utivist.is.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Raðauglýsingar
sími 569 1100
Í DAG, laugardaginn 11. febrúar,
verður haldið málþing um fyrsta stór-
meistara Íslendinga, Friðrik Ólafs-
son, í aðalútibúi Landsbanka Íslands í
Austurstræti. Eins og kunnugt er
mun fyrrverandi heimsmeistarinn í
skák, Boris Spasskí, verða meðal fyr-
irlesara og verður fróðlegt að heyra
hvað hann hefur að segja um íslenska
skákjöfurinn. Það er viðbúið að fjallað
verði um arfleifð Friðriks frá mis-
munandi sjónarhornum en hann var á
sínum tíma meðal bestu skákmanna í
heimi og hafði mikil áhrif á þróun ís-
lenskrar skákhreyfingar. Á síðasta
ári varð hann sjötugur og lét þá af
störfum sem skrifstofustjóri Alþingis
en það hefur vakið vonir margra
skákunnenda um að hann geti í aukn-
um mæli sinnt skákinni, bæði með því
að tefla og kenna.
Fyrir utan málþingið, sem hefst kl.
13.30, kennir ýmissa annarra grasa á
dagskránni. Friðrik mun etja kappi
við Spasskí í tveggja skáka einvígi og
verður spennandi að sjá hvort ís-
lenska víkingnum tekst að sigra full-
trúa Sovétmanna í heimsmeistarein-
víginu í skák árið 1972 sem haldið var
í Reykjavík og þar sem skáksnilling-
urinn frá Brooklyn, Bobby Fischer,
hrifsaði heimsmeistaratitilinn úr
höndum stórveldisins í austri. Þegar
skákir Friðriks eru skoðaðar í stórum
gagnagrunni kemur í ljós að hann bar
aldrei sigur úr býtum gegn Spasskí
en lagði Fischer tvívegis að velli.
Fyrra skiptið var á millisvæðamótinu
í Portoros en síðara skiptið var á
áskorendamótinu í Bled/Belgrad árið
1959. Við skulum skoða list Friðriks í
síðarnefndu skákinni.
Hvítt: Friðrik Ólafsson
Svart: Bobby Fischer
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bc4 e6 7. a3
Rólyndislegur leikur sem á kannski
ekki sérstaklega vel við í þessari
stöðu. Venjulega er 7. Bb3 leikið.
7… Be7 8. O-O O-O 9. Ba2 b5 10. f4
Bb7 11. f5 e5 12. Rde2 Rbd7 13. Rg3
Hc8 14. Bg5
Sozin-afbrigðið í Sikileyjarvörn var
tiltölulega nýfætt á sjötta áratugnum
en síðar varð það að eftirlætisvopni
Fischers með hvítu mönnunum. Í
þessari stöðu verður hinum 16 ára
Bandaríkjamanni á ónákvæmni sem
gerir að verkum að hvítur fær betra
tafl.
Sjá stöðumynd 1
14… Rb6?!
Eins og seinni tíma skákir hafa
sýnt fram á hefur svart prýðilegt tafl
eftir 14… Hxc3 en textaleikurinn hef-
ur í för með sér mikilvægt tempótap.
15. Rh5 Hxc3 16. bxc3 Rxh5 17.
Bxe7 Dxe7 18. Dxh5 Bxe4 19. Dg4 d5
20. f6 Dc5+ 21. Kh1 g6
21… Bg6 hefði einnig komið til
álita en textaleikurinn er í samræmi
við hinn beinskeytta stíl undrabarns-
ins.
22. Hae1! He8
Svartur hefði staðið illa að vígi eftir
22… Dxa3?! 23. Dh4 He8 24. Hxe4!
dxe4 25. Bxf7+! Kxf7 26. Dxh7+ Ke6
27. Dxg6 þar eð f6-f7 er of öflug hót-
un.
23. Dh4 h5?!
23… Bxc2 hefði verið betra.
24. Dg5 Rc4 25. Bxc4 bxc4
26. He3!
Sjá stöðumynd 2.
Dæmigerður leikur fyrir Friðrik
þar sem allt kapp er lagt á að máta
andstæðinginn. Hugmyndin er að
leika Hg3 eða Hh3 og þrýsta á h5-
peðið.
26… Df8 27. Hb1! Hb8 28. Hee1
Hxb1 29. Hxb1 Bxc2 30. Hb7 Bf5 31.
De3 Be6 32. Dxe5 Dxa3 33. h3 Dc1+
34. Kh2 g5 35. Ha7 h4 36. Hxa6 Kh7
Friðrik hefur unnið vel úr stöðuyfir-
burðum sínum og nú er orðið tíma-
bært að ljúka skákinni með fléttu.
Sjá stöðumynd 3
37. Ha1! Df4+
Svartur hefði orðið óverjandi mát
eftir 37… Dxa1 38. Dxg5 og 37… Dd2
hefði ekki bjargað neinu vegna 38.
Hd1!.
38. Dxf4 gxf4 39. Hf1
Endataflið er gjörunnið á hvítt.
39… d4 40. cxd4 Kg6 41. Hxf4 Bf5
42. Hf3 Kxf6 43. He3! Kg5 44. g3 Bd3
45. d5 Bf5 og svartur gafst upp um
leið. Sannarlega góður sigur hjá Frið-
riki og um leið dæmigerð skák fyrir
sóknarstíl hans.
Að einvígi Friðrik og Spasskís
loknu verður haldið öflugt hraðskák-
mót og er áætlað að það hefjist kl. 17.
Áhorfendur eru velkomnir meðan
húsrúm leyfir en nánari upplýsingar
um dagskrána er að finna á
www.skak.is.
Óvænt úrslit á
Meistaramóti Hellis
Eins og endranær er Meistaramót
Taflfélagsins Hellis fljótlega haldið
eftir að Skákþingi Reykjavíkur hefur
lokið. Í ár hófst meistaramótið sl.
mánudag og mættu 32 galvaskir skák-
menn til leiks. Margir þeirra eru ungir
að árum og eru að stíga sín fyrstu
skref í skáklistinni. Aðrir eru reyndari
og hafa margoft tekið þátt í skákmót-
um af þessu tagi. Um kappskákmót er
að ræða þar sem tefldar eru sjö um-
ferðir. Strax í fyrstu umferð urðu
óvænt úrslit þegar stigahæsti kepp-
andi mótsins, Sigurbjörn Björnsson
(2.337), lék sig í mát í 18. leik gegn
Snorra Snorrasyni (1.740). Annar
stigahæsti keppandinn, Tómas
Björnsson (2.213), lenti einnig í erfið-
leikum í sinni viðureign í fyrstu um-
ferð en hann gerði jafntefli við Aust-
firðingurinn knáa úr
Hallormsstaðaskóla, Bjarna Jens
Kristinsson (1.675).
Egyptinn Omar Shalama (2.199)
hefur dvalist um nokkurt skeið á Ís-
landi og á dögunum varð hann hlut-
skarpastur á Hraðskákmóti Reykja-
víkur en hinn 12 ára Hjörvar Steinn
(2.046) kom næstur með hálfum vinn-
ingi minna. Þeir félagar tefla saman í
þriðju umferð á meistaramótinu en
handbragð Omars í fyrstu tveim um-
ferðunum hefur verið öruggt. Fyrir
utan Omar og Hjörvar hafa fimm aðrir
skákmenn fullt hús vinninga eftir
fyrstu tvær umferðirnar og þar á með-
al er Íslandsmeistari kvenna, Guðlaug
Þorsteinsdóttur (2.147). Nánari upp-
lýsingar um mótið er að finna á
www.skak.is og heimasíðu Hellis,
www.hellir.com.
Róbert að tafli í Búdapest
Róbert Harðarson (2.369) hefur
unnið tvær skákir í röð á alþjóðlegu
móti í Búdapest sem fer fram þessa
dagana. Að loknum sex umferðum er
hann efstur á mótinu með fjóra vinn-
inga ásamt tveim öðrum skákmönn-
um. Um fyrsta laugardagsmót er að
ræða en þau eru haldin í hverjum
mánuði. Nánari upplýsingar um mótið
er að finna á heimasíðu þess,
www.firstsaturday.hu.
Skákjöfurinn Friðrik
SKÁK
Skáksamband Íslands og
Landsbanki Íslands
MÁLÞING UM SKÁKLIST FRIÐRIKS
ÓLAFSSONAR
11. febrúar 2006
Friðrik
Ólafsson
Boris
Spasskí
Stöðumynd 3.
Stöðumynd 2.Stöðumynd 1.
HELGI ÁSS GRÉTARSSON
daggi@internet.is