Morgunblaðið - 11.02.2006, Síða 71
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 71
DAGBÓK
Ímynd, gildi og viðhorf“ er heiti fyrirlestra-raðar Mannfræðifélags Íslands 2005–2006.Á þriðjudag mun Þorvaldur Kristinssonvera gestur Mannfræðifélagsins og flytja
erindi undir yfirskriftinni „Kynhneigð, vald, fjöl-
skylda“.
Í erindi sínu mun Þorvaldur ræða um rann-
sókn sem hann vinnur að til MA-prófs í uppeld-
is- og menntunarfræðum við Háskóla Íslands:
„Rannsóknarritgerð mín fjallar um lífssögur
nokkurra íslenskra homma af þremur kyn-
slóðum. Ég hef tekið viðtöl við þessa karlmenn
þar sem þeir segja mér sögu sína, og leitast við
að draga út nokkur atriði sem mér þykja at-
hygliverðust í lífi þeirra og reynslu, og skyggn-
ist síðan undir yfirborðið,“ segir Þorvaldur. „Í
þessum fyrirlestri ætla ég sérstaklega að beina
sjónum að upprunafjölskyldu þeirra, sam-
skiptum við foreldra og systkini, og ræða um
það sem ég kalla þversagnir ástar og andúðar í
lífi þessara manna.“
Þorvaldur segist fljótlega hafa greint hjá við-
mælendum sínum að þeirra sárustu minningar
um kynhneigð sína voru tengdar því fólki sem
þeir eru bundnir sterkustum böndum og þykir
vænst um, þ.e. foreldrum og systkinum: „Þar
hafa þeir átt sína sárustu reynslu og helst
kynnst valdbeitingu, en valdbeitingin getur tekið
á sig margar myndir,“ útskýrir Þorvaldur.
„Voldugasta valdbeitingaraflið er þögnin: að
sveipa staðreyndirnar þögn, horfa framhjá þeim,
láta sem menn sjái hvorki né heyri. Þá má nefna
kúgun sjúkdómsvæðingarinnar; þá aðferð sem
öðru hverju kemur upp og tíðkast jafnvel enn í
dag, að samkynhneigðum börnum og unglingum
sé vísað til sálfræðinga eða geðlækna. Í sjálfu
sér hið besta mál, enda er hér oftast um að
ræða upplýstar stéttir en þannig er oft að henni
staðið af hálfu nánustu ástvina að hún reynist
hræðileg auðmýking sem mörgum reynist erfitt
að vinna úr gagnvart sínum nánustu. Til eru
fleiri birtingarmyndir kúgunaraflanna, sem eru
okkur iðulega ómeðvituð, og hvorki að hinn sam-
kynhneigði né fjölskylda hans gera sér grein
fyrir. Nefna má dæmi þess hvernig foreldrar og
systkini vilja styðja, í orði kveðnu, við hinn sam-
kynhneigða en ómeðvituð viðbrögð vitna um það
öfuga: það er ekki rúm fyrir samkynhneigðina
sem þátt í fjölskyldulífinu, og hvað sem líður
visku og góðum vilja er grimmd, harka og nið-
urlægjandi viðbrögð hvað eftir annað svarið sem
verður ofan á.“
Fyrirlesturinn flytur Þorvaldur í húsakynnum
Reykjavíkur-Akademíunnar, Hringbraut 121, 4.
hæð, kl. 20, næstkomandi þriðjudag. Nánari
upplýsingar má finna á www.akademia.is/mi.
Fyrirlestur | Kynhneigð og fjölskyldusamskipti á fyrirlestraröð Mannfræðifélagsins
Þversögn ástar og andúðar
Þorvaldur Krist-
insson er fæddur í Hrís-
ey 1950. Að loknu stúd-
entsprófi frá MA 1970
stundaði hann nám í ís-
lensku og almennri bók-
menntafræði við Há-
skóla íslands og
Háskólann í Kaup-
mannahöfn. Hann
stundar nú framhalds-
nám í uppeldis og
menntunarfræðum við HÍ.
Þorvaldur hefur í aldarfjórðung starfað sem
bókmenntaritstjóri, framan af árum við ýmis
forlög í Reykjavík, en nú síðustu ár sem sjálf-
stæður ritstjóri og rithöfundur.
Frá árinu 1982 hefur Þorvaldur starfað með
hreyfingu samkynhneigðra á Íslandi og hefur
þrívegis gegnt formennsku í Samtökunum ’78.
1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6 4. Rf3
Rxe4 5. Rc3 Rxc3 6. dxc3 Be7 7. Be3
Rc6 8. Dd2 O-O 9. O-O-O Re5 10.
Kb1 a6 11. Be2 Be6 12. Rd4 Bc4 13.
f4 Bxe2 14. Dxe2 Rc6 15. Rf5 g6 16.
Rh6+ Kg7 17. f5 Bg5 18. Rg4 gxf5
19. Dd2 Bxe3 20. Rxe3 Dg5 21. h4
Dh5 22. Hdf1 Hae8 23. Hxf5 Dh6 24.
Hg5+ Kh8 25. Rd5 He6 26. Rxc7
Hg6 27. Hf1 Dxh4 28. Hxg6 hxg6 29.
g3 Dh3
Staðan kom upp í B-flokki Corus
skákhátíðarinnar sem lauk fyrir
skömmu í Wijk aan Zee í Hollandi.
Arkadij Naiditsch (2.657) hafði hvítt
gegn Evrópumeistara kvenna, hinni
16 ára Katerynu Lahno (2.500) frá
Úkraínu. 30. Dc1! Kg7 svartur gat
ekki leyft hvítum að koma drottning-
unni á h6 þar sem eftir t.d. 30...
Dxg3 31. Dh6+ Kg8 32. Hh1 er fátt
um fína drætti. 31. Hh1 Dg2 32.
Dh6+ Kf6 33. Hd1! og svartur kaus
að gefast upp þar sem eftir t.d. 33...
Hd8 34. Rd5+ Ke5 35. Df4+ Ke6 36.
Dg4+ er taflið gjörtapað sem og eft-
ir 33... Ke7 34. Rd5+ Ke8 35. Df4.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Vondur samningur.
Norður
♠ÁKD87
♥ÁG4
♦5
♣10643
Suður
♠104
♥KD3
♦Á96
♣Á8752
Suður verður sagnhafi í þremur
gröndum og er heppinn með útspil
– fær út smátt hjarta. Hvernig er
best að spila?
Augljóslega er betra að spila
fimm lauf eða fjóra spaða, en eftir
útspil í hjarta líta þrjú grönd
býsna vel út. Sagnhafi er með átta
toppslagi og þarf að búa til einn á
svartan lit. Sem er einfalt ef spað-
inn liggur ekki verr en 4-2.
Vandinn er sem sagt að glíma
við 5-1 legu í spaða (það eru hverf-
andi líkur á 6-0 legu og ekki
ástæða til að hafa áhyggjur af
henni). Á að spila litlum spaða á
tíuna?
Norður
♠ÁKD87
♥ÁG4
♦5
♣10643
Vestur Austur
♠G9632 ♠5
♥10876 ♥952
♦D102 ♦KG8743
♣D ♣KG9
Suður
♠104
♥KD3
♦Á96
♣Á8752
Nei. Sú leið skilar árangri í
þeirri einu stöðu þegar austur á
G9xxx. Betra er að taka fyrst á ás-
inn, fara svo heim og spila tíunni
að blindum með því hugarfari að
láta hana svífa yfir ef vestur fylgir
smátt. Þannig má ráða við G9xxx í
vestur og gosann blankan í hvorum
megin sem er.
En aðalatriðið er þó það að hægt
er að skipta um áætlun og spila
upp á 2-2 legu í laufi ef austur
reynist eiga G9xxx í spaðanum.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Vegna skrifa Sigrúnar
VEGNA skrifa Sigrúnar Krist-
insdóttur í Velvakanda 8. febrúar sl.
Þannig var að ég og mín fjölskylda
fengum einnig leigt sumarhús í Út-
hlíð, hjá stéttarfélaginu Eflingu, þá
sömu helgi og Sigrún Kristinsdóttir
og hennar maður, en höfum allt aðra
sögu að segja.
Vissulega var færðin afleit en
svona er Ísland, aldrei að vita, það
vitum við öll sem hér búum. Okkur
vantaði einnig, eins og þau hjón, að-
stoð við að komast að bústaðnum,
sem var auðfengin og sjálfsögð af
hálfu umsjónarmanns húsanna, bónd-
ans í Miðhúsum. Okkur datt ekki til
hugar að þessi sami ágæti umsjón-
armaður væri búinn að moka allt í
kringum húsið og setja rauðan dregil,
það gerðum við sjálf að sjálfsögðu,
enda vel útbúin til ferðar að vetr-
arlagi, með skóflu í farteskinu.
Við förum aldrei öðruvísi af stað í
ferð, hvað þá á þessum árstíma. Bú-
staðurinn var hlýr og notalegur og
heiti potturinn dásamlegur. Sam-
skipti okkar við starfsfólk Eflingar
voru hin elskulegustu. Ég tek undir
með starfsmanni Eflingar; fólk á að
vita að von getur verið á öllum veðr-
um jafnt sumar sem vetur, það er
ekki nýtt hér á Fróni.
Takk kærlega fyrir okkur, starfs-
fólk Eflingar og umsjónarmaður
sumarhúsa í Úthlíð, Biskupstungum.
Sigrún Sigurjónsdóttir,
Austurbrún 33, Rvík.
Trúlofunarhringur
tapaðist
TRÚLOFUNARHRINGUR úr
hvítagulli tapaðist, laugardaginn 4.
febrúar sl. Þetta er kvenmanns-
hringur, frekar breiður og er áletrun
innan í hringnum. Skilvís finnandi
hafi samband við Evu í síma 694 8999.
Kettlingar fást gefins
FJÓRIR kassavanir, kelnir kett-
lingar fást gefins á góð heimili. Upp-
lýsingar í síma 564 2954.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
80 ÁRA afmæli. Í dag, 11. febrúar,er áttræð Bryndís Bjarnason,
Lautasmára 5, Kópavogi. Af því tilefni
bjóða hún og börn hennar vinum og
vandamönnum upp á kaffi og kleinur í
Sjálfsbjargarsalnum, Hátúni 12, í
Reykjavík á afmælisdaginn á milli kl.
15 og 17.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
BRÁVALLAGATA
3ja herbergja glæsileg nýstandsett
íbúð sem er laus nú þegar. Íbúðin
skiptist í hol, tvær stórar skiptanlegar
stofur, stórt svefnherbergi, eldhús og
baðherbergi. V. 23,7 m. 5618
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Heimsóknavinir
óskast!
Kópavogsdeild óskar eftir sjálfboðaliðum
til að sinna heimsóknaþjónustu.
Undirbúningsnámskeið verður haldið í sjálfboða-
miðstöðinni Hamraborg 11 miðvikudaginn
15. febrúar kl. 18-21.
Námskeiðið er ókeypis og opið öllum áhugasömum.
Sjálfboðamiðstöðin Hamraborg 11
opin virka daga kl. 11-15
Sími 554 6626 / kopavogur@redcross.is
www.redcross.is/kopavogur
Skráning:
Námskeið fyrir nýja sjálfboðaliða
Heimsóknavinir heimsækja fólk
sem býr við einsemd og einangrun.
Heimsóknavinir veita félagsskap
m.a. með því að spjalla, lesa fyrir
viðkomandi og fara í gönguferðir.
Heimsóknir eru að jafnaði einu sinni
í viku í klukkustund.
Heimsóknavinir Kópavogsdeildar hittast reglulega
og fá fjölbreytta fræðslu.
Vilt þú taka þátt í gefandi starfi?
Laugavegi 71, sími 551 0424.
Seyma
Seyma
Vegna flutnings eru allar vörur
með 50% afslætti
Lokum á Laugaveginum
25. febrúar nk. Opnum í
Hafnarfirði í byrjun mars