Morgunblaðið - 11.02.2006, Page 75
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 75
MENNING
LISTAMENNIRNIR Þórunn
Maggý Kristjánsdóttir, Harpa
Árnadóttir og Jóhannes Atli Hin-
riksson hlutu í gær styrki úr Lista-
sjóði Dungals. Var þetta í fjórtánda
sinn sem ungir myndlistamenn eru
styrktir af sjóðnum, sem áður nefnd-
ist Listasjóður Pennans og var
stofnað til hans í minningu hjónanna
Margrétar og Baldvins P. Dungal.
Þórunn Maggý, einnig þekkt sem
Dodda Maggý, hlaut styrk að upp-
hær kr. 500.000 og Jóhannes Atli og
Harpa hlutu 300.000 krónur. Auk
þess kaupir sjóðurinn myndverk eft-
ir listamennina. Dómnefnd Lista-
sjóðsins skipa Gunnar Dungal, Guð-
rún Einarsdóttir myndlistarmaður,
fulltrúi SÍM, og Kristján Stein-
grímur, deildarforseti myndlistar í
Listaháskóla Íslands.
Í ávarpi Gunnars Dungal við af-
hendinguna kom fram að þegar þau
Þórdís Alda Sigurðardóttir seldu
Pennann á síðasta ári, hefðu þau
ákveðið að halda Listasjóðnum eftir
og jafnframt safni verka sem keypt
hafa verið eftir fyrri styrkþega.
Gunnar sagði það tilgang sjóðsins að
styrkja ungt myndlistarfólk og
hvetja það áfram á listabrautinni, en
einnig að kaupa markvisst verk eftir
styrkþega og koma þannig upp safni
verka eftir yngstu kynslóð lista-
manna á hverjum tíma.
Gunnar sagði það staðreynd að
erfitt væri fyrir ungt listafólk að
koma sér á framfæri og afla tekna til
að halda áfram. „Oft er það vegna
þess að list þeirra þykir of fram-
sækin og/eða vegna þess að list-
markaðurinn hér á landi er ekki
nógu þróaður til að meta verk
þeirra. Ungu listamennirnir sjá
vissulega um að breyta listinni og
„eyðileggja“ hana reglulega, eins og
sumir segja en markaðurinn verður
að fara að opna augu sín fyrir mik-
ilvægi nýsköpunar í listum.“
Dodda Maggý er fædd í Keflavík
árið 1981. Hún útskrifaðist frá
Listaháskóla Íslands árið 2004. Hún
hefur tekið þátt í fjölda sýninga víða
um heim en sem stendur býr hún í
Svíþjóð og hyggur á frekara nám.
Dodda Maggý vinnur einkum með
vídeó og í umsögn dómnefndar kem-
ur fram að hún vinni oft með eigin
líkama í verkum sínum, og fjalli um
kynhneigð og ímynd, tengsl hugar,
líkama og sálar.
Harpa Árnadóttir fæddist á
Bíldudal árið 1965. Hún nam við
MHÍ á árunum 1989 til 1993 og við
Listaháskólann í Gautaborg 1994 til
1996. Hún bjó lengi í Svíþjóð og hef-
ur aðallega sýnt erlendis. Harpa er
málari en verk hennar eru lífræn og
hafa skírskotun í náttúruna.
Jóhannes Atli fæddist á Blönduósi
árið 1975 og útskrifaðist frá LHÍ ár-
ið 2000. Hann lauk framhaldsnámi
frá School of Visual Arts í New York
á síðasta ári. Jóhannes blandar sam-
an ýmsum miðlum í listsköpun sinni
og í verkum hans eru skírskotanir í
daglegt líf, en með fáránleika og
húmor í forgrunni.
Myndlist | Markaðurinn verður að opna augu sín
Þrír hlutu styrki
Morgunblaðið/Ómar
Þórdís Alda Sigurðardóttir, Dodda Maggý, Gunnar Dungal, Jóhannes Atli,
Harpa Arnardóttir, Guðrún Einarsdóttir og Kristján Steingrímur.
NÁTTÚRAN í sinni smæstu mynd
og þeirri stærstu er yrkisefni Ingi-
bergs Magnússonar á sýningu hans í
Grafíksafni Íslands. Fyrir tíu árum
hélt Ingibergur sýninguna Ljós og
tími í Gerðarsafni og ber að líta á
sýninguna nú sem sjálfstætt fram-
hald. Ekki kemur nákvæmlega fram
í sýningarskrá hvernig Ingiberg
vinnur myndir sínar en hann segir
að sólin hafi málað þær fyrir sig, hér
er sem sagt ljósmyndatæknin í fyr-
irrúmi. Ingiberg skrifar einnig um
gildi tímamóta þeirra sem setja
mark sitt á sumar og vetur, fegurð
og dulúð sumar- og vetrarsólstaðna,
lengsta og stysta sólargangs. Á sýn-
ingunni má sjá hvernig Ingiberg
hefur myndað skugga sem fellur á
grasblett á þessum dögum en
stærsta verk sýningarinnar er tólf
mynda röð sem sýnir hreyfingu
skuggans yfir myndflötinn á sum-
arsólstöðum.
Á sýningunni koma saman nokkr-
ir þættir. Líkt og í heimsmynd mið-
alda má sjá hið stóra birtast í því
smáa, samspil míkrókosmos og
makrókosmos í hreyfingum skugg-
ans á myndfletinum. Áhorfandinn
getur ímyndað sér að skugginn sem
varpast sé hans eigin og allt að því
fundið jörðina snúast undir fótum
sér. Einnig kemur hér fram tilfinn-
ing norðurslóðabúa sem við þekkj-
um öll, tilfinningin fyrir árs-
tíðaskiptunum í daglegu lífi okkar,
líkt og upphaf og endalok síend-
urtekin í smárri mynd sem end-
urspeglar stóra samhengi lífs og
dauða. Áhugaverðustu verk sýning-
arinnar eru þó að mínu mati þau sem
hvað mest leggja upp úr hinum sjón-
ræna og grafíska þætti og sýna
margbreytilegt og flókið mynstur
grasstráanna sem aldrei endurtekur
sig en lýtur þó lögmálum náttúrunn-
ar eins og við öll.
Upphaf og endir
MYNDLIST
Grafíksafn Íslands
Ingiberg Magnússon
Til 12. febrúar. Opið fim. til sun. frá kl.
14-18.
Sólstöður/Sólhvörf
Ljós og tími II
Morgunblaðið/Sverrir
„Líkt og í heimsmynd miðalda má
sjá hið stóra birtast í því smáa.“
Ragna Sigurðardóttir