Morgunblaðið - 04.03.2006, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Voltaren Emulgel® er notað sem staðbundin útvortis meðferð við vöðva- og liðverkjum.
Lyfið má ekki bera á skrámur, opin sár eða á exem, varist snertingu við augu og slímhúðir,
notist einungis útvortis og má aldrei taka inn. Á meðgöngu skal ávalt leita ráða læknis eða
lyfjafræðings áður en lyfið er notað, þó skal það ekki notað á síðasta þriðjungi meðgöngu. Lítil
hætta er á ofskömmtun vegna útvortis notkunar lyfsins. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á
umbúðum og fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
við vöðva- og
liðverkjum
Voltaren
Emulgel
MESHAAL Í MOSKVU
Khaled Meshaal, leiðtogi Ham-
as-samtaka Palestínumanna, fór í
þriggja daga heimsókn til Moskvu í
gær og ræddi m.a. við Sergei Lavr-
ov, utanríkisráðherra Rússlands.
Eftir fund þeirra sagði Meshaal
að Hamas léði ekki máls á frið-
arsamningum við Ísraela fyrr en her
þeirra væri farinn frá öllum þeim
svæðum sem hertekin voru í Sex
daga stríðinu 1967.
Spá kjarnavopnum í Íran
Rússneskir sérfræðingar segja í
skýrslu, sem lögð verður fyrir rúss-
neska utanríkis- og varnarmálaráðið
í dag, að Íranar geti verið komnir
með kjarnavopn eftir fimm ár í síð-
asta lagi. Í skýrslunni segir að
heimsbyggðin öll verði að venja sig
við þá tilhugsun að Íran sé að verða
eitt af kjarnorkuveldunum.
Ljósmæður semja
Ljósmæðrafélag Íslands undirrit-
aði í gær nýjan kjarasamning við
Tryggingastofnun og hefur heima-
þjónusta ljósmæðra því færst í eðli-
legt horf á ný. Þjónustan hafði legið
niðri í tvo sólarhringa. Greidd verða
atkvæði um samninginn á fundi ljós-
mæðra í dag klukkan 16.
90% skila framtölum
rafrænt
Níu af hverjum tíu skattframtelj-
endum skila nú framtali sínu inn raf-
rænt, að sögn ríkisskattstjóra. Í ár
verður aðgengi að leiðbeiningum
vegna skattframtals aukið og þjón-
usta vegna vefframtala bætt.
Sviptingar í stjórn
Magnús Kristinsson útgerð-
armaður, sem verið hefur varafor-
maður stjórnar Straums-Burðaráss
Fjárfestingabanka, var ekki endur-
kjörinn á stjórnarfundi í gær. Þess í
stað var stungið upp á að að Eggert
Magnússon, formaður KSÍ, tæki
sæti varaformanns. Magnús gagn-
rýnir undirbúning fundarins.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 32/39
Fréttaskýring 8 Minningar 40/45
Úr verinu 14 Skák 46
Viðskipti 18 Kirkjustarf 46/47
Erlent 20/21 Myndasögur 54
Minn staður 22 Dagbók 54/57
Akureyri 23 Víkverji 54
Landið 24 Velvakandi 55
Árborg 25 Staður og stund 56
Daglegt líf 26/29 Bíó 62/65
Menning 30, 58/59 Ljósvakamiðlar 66
Forystugrein 34 Staksteinar 67
Úr vesturheimi 31 Veður 67
* * *
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ (FME) fékk þær
upplýsingar við rannsókn á viðskiptum með stofn-
fjárbréf í Sparisjóði Hafnarfjarðar (SPH) að lög-
maður á vegum lögmannsstofunnar Lögmenn
Laugardal ehf. hafi í september sl. boðið spari-
sjóði til kaups 2/3 hluta stofnfjár SPH. Þetta kem-
ur fram í greinargerð Ríkislögreglustjóra sem
vitnað er til í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur,
sem Hæstiréttur staðfesti í gær. Hafnaði dóm-
urinn þeirri kröfu að lögreglu hefði verið óheimilt
að nota gögn sem FME aflaði af bankareikningum
lögmannsstofunnar við rannsókn málsins.
Að mati FME sé ljóst að lögmaðurinn hafi þá
talið sig geta boðið til sölu, ekki einungis hluta
stofnfjár sem félli undir að vera virkur eignarhlut-
ur í skilningi 40. gr. laga um fjármálafyrirtæki,
heldur meirihluta stofnfjár.
Í greinargerðinni segir að með hliðsjón af þeim
upplýsingum að sparisjóði hafi verið boðið stofn-
féð til kaups, hafi vaknað grunsemdir um að um-
ræddur lögmaður kynni að hafa gerst brotlegur
við 40. gr. laga um fjármálafyrirtæki, annaðhvort
sem aðalmaður eða hlutdeildarmaður, en skv. 112.
gr. laganna sé hlutdeild í brotum gegn þeim refsi-
verð.
Fengu ekki að vita hverjir væru
eigendur umræddra bréfa
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins
greindi FME Ríkislögreglustjóra í desember frá
því að embættið hefði upplýsingar um að lögmað-
urinn hefði boðið sparisjóðnum til kaups a.m.k. 32
stofnfjárhluti og ekki verði annað séð en um sé að
ræða 68 stofnfjárbréf eða um 72% stofnfjár spari-
sjóðsins. Hafi fulltrúar sparisjóðsins ekki fengið
að vita hverjir væru eigendur umræddra hluta.
Fram kemur í greinargerð héraðsdóms sem
fylgir dómi Hæstaréttar í gær að þar sem lögmað-
urinn hafi komið sér hjá því að svara spurningum
eftirlitsins með vísan til trúnaðarskyldu lögmanna
hafi FME talið þörf á að afla úrskurðar hjá Hér-
aðsdómi Reykjavíkur um að fá aðgang að gögnum
varðandi hreyfingar á bankareikningum lög-
mannsstofunnar. Hafi sá aðgangur verið veittur
og í kjölfarið fengist yfirlit um færslur á og af
reikningi lögmannsstofunnar. Hafi þær upplýs-
ingar styrkt fyrri grunsemdir Fjármálaeftirlits-
ins. Komi þar fram að greiðslur hefðu runnið af
reikningum lögmannsstofunnar til fjölmargra
stofnfjáreigenda. M.a. að 4 stjórnarmenn í Spari-
sjóði Hafnarfjarðar, sem hefðu fullyrt við Fjár-
málaeftirlitið að þeir hefðu hvorki fengið tilboð í
né selt hluti sína, hefðu fengið greiddar 50 millj-
ónir hver um sig af reikningi lögmannanna.
Skv. heimildum Morgunblaðsins hefur við rann-
sókn FME komið fram að einn eigandi stofnfjár í
SPH hafi upplýst um að hann hafi verið aðili að
samkomulagi um beitingu atkvæðisréttar á aðal-
fundi sparisjóðsins 20. apríl á síðasta ári og að það
hafi tengst sölu stofnfjár. | 4 og miðopna
Sagður hafa boðið spari-
sjóði 72% stofnfjár SPH
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Óskar í 2. sæti
Framsóknar
í Reykjavík
ÓSKAR Bergsson húsasmíðameist-
ari verður í 2. sæti á framboðslista
Framsóknarflokksins fyrir borg-
arstjórnarkosningarnar í Reykja-
vík í maí samkvæmt tillögu uppstill-
ingarnefndar, sem kynnt var í gær.
Óskar endaði í 3. sæti í prófkjöri
flokksins en Anna Kristinsdóttir
borgarfulltrúi, sem varð í 2. sæti í
prófkjörinu, ákvað að taka ekki það
sæti á listanum. Björn Ingi Hrafns-
son, aðstoðarmaður forsætisráð-
herra, verður í efsta sæti listans.
Þriðja sætið skipar Marsibil Sæ-
mundardóttir varaborgarfulltrúi
og Ásrún Kristjánsdóttir hönnuður
skipar fjórða sætið.
Skarphéðinn Njálsson starði einbeittur út í sal Perlunnar á dögunum með-
an Hafdís Karlsdóttir fægði glerkassann hans á Sögusafninu sem þar er að
finna. Við fyrstu sýn mætti halda að þessi persóna úr Íslendingasögunum
væri lifandi komin í Perlunni. Svo er þó ekki, því Skarphéðinn í glerkass-
anum er gerður úr silíkoni. Í safninu hafa verið sviðsett atriði úr Íslend-
ingasögum og eru notaðar afsteypur af fólki til þess að skapa þær persón-
ur sem fjallað er um.
Morgunblaðið/Ásdís
Skarphéðinn fægður
Svifryk yfir mörkum
SVIFRYK mældist hátt yfir heilsu-
verndarmörkum í Reykjavík í gær,
fjórða daginn í röð. Heilsuverndar-
mörk miða við að mengun á einum
sólarhring megi ekki fara yfir 50
míkrógrömm í rúmmetra, en þau
hafa verið yfir þessum mörkum lang-
tímum saman síðustu daga.
Þegar umferð var í hámarki í
fyrradag mældist mengunin í stutta
stund um 400 míkrógrömm á mæli-
stöð Umhverfis- og heilbrigðisstofu
við Grensásveg.
Umhverfissvið Reykjavíkurborg-
ar vekur athygli á að hyggilegt er,
fyrir þá sem eru með viðkvæm önd-
unarfæri, að halda sig fjarri fjölförn-
um umferðargötum.
Í fyrirsögn á forsíðu í Morgun-
blaðinu í gær sagði í frétt um meng-
unina „Kuldi og logn valda auknu
svifryki.“ Þessi fullyrðing stenst
tæplega því að það eru fyrst og
fremst nagladekk og hraðakstur sem
valda menguninni. Þegar hins vegar
er logn á höfuðborgarsvæðinu nær
vindur ekki að blása menguninni í
burt og því skapast þetta ástand sem
lýst er í fréttinni.
98% samþykkja
boðun verkfalls
SLÖKKVILIÐS- og sjúkraflutn-
ingsmenn samþykktu í atkvæða-
greiðslu boðun verkfalls dagana 20.
og 21. mars og síðan ótímabundið
viku síðar náist ekki samningar fyr-
ir þann tíma.
197 voru á kjörskrá og greiddu
183 atkvæði. 97,8% sögðu já við
boðun verkfalls, tveir voru á móti
og tveir seðlar voru auðir og ógild-
ir. Sáttafundur í kjaradeilunni, sem
hófst upp úr hádegi í gær hjá Rík-
issáttasemjara, stóð enn yfir þegar
Morgunblaðið fór í prentun í nótt.
Undirbúa
kæru vegna
fjárdráttar
á sambýli
STYRKARFÉLAG vangefinna er
að undirbúa að kæra til lögreglu
fjárdrátt fyrrum starfsmanns sam-
takanna, sem vann á sambýli og
hafði fé af skjólstæðingum sínum
þar, að sögn Þóru Þórarinsdóttur,
framkvæmdastjóra styrktarfélags-
ins.
Þóra sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi að hún gæti ekki
staðfest hversu háar upphæðir væri
um að ræða, enda væri enn verið afla
gagna um brotin. Í fréttum Sjón-
varpsins í gærkvöldi var sagt að
starfsmaður sambýlisins hefði tekið
rúmar þrjár milljónir króna af
bankareikningum skjólstæðinga
sinna á sambýlinu.
Þóra sagði fremur stutt liðið frá
því grunsemdir vöknuðu um að ekki
væri allt með felldu. Viðkomandi
starfsmanni hefði þá verið vikið úr
starfi, en hann hefði starfað á sam-
býlinu í tiltölulega skamman tíma.
Röð atvika hefði orðið til þess að
fjárdrátturinn komst upp. „Við erum
að fara yfir málið og skoða hvert um-
fang þess er,“ segir Þóra. Málið hefði
enn ekki verið kært til lögreglu en
það yrði senn gert.