Morgunblaðið - 04.03.2006, Page 6
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær portúgölskum trésmið í
vil í máli sem Samiðn höfðaði fyrir
hans hönd en maðurinn var ráðinn til
starfa hjá verktakafyrirtækinu Imp-
regilo í gegnum starfsmannaleiguna
Select. Féllst dómurinn á þau rök að
maðurinn hefði í raun verið starfs-
maður Impregilo, en ekki starfs-
mannaleigunnar.
Þetta er mjög þýðingarmikil niður-
staða að mati Þorbjörns Guðmunds-
sonar, framkvæmdastjóra Samiðnar,
þar sem hann þýðir að fyrirtæki sem
tekur við starfsmanni til vinnu í gegn-
um starfsmannaleigu, beri húsbónda-
ábyrgðina sem raunverulegur at-
vinnurekandi mannsins, að sögn
hans. „Menn hljóta að horfa til þessa
dóms. Það var gert samkomulag við
Impregilo um ábyrgðina en dómurinn
vitnar ekki til þess, heldur horfir al-
Talinn starfsmaður
verktakans en ekki
starfsmannaleigu
mennt á að einstaklingurinn hafi ver-
ið alfarið hjá Impregilo þrátt fyrir að
starfsmannaleigan hafi útvegað hann.
Að sögn Þorbjörns var maðurinn
ráðinn sem trésmiður en látinn starfa
sem verkamaður og fékk laun sem
slíkur. Gerði hann ítrekaðar tilraunir
til að fá þetta leiðrétt en án árangurs.
Í málinu kom fram að Impregilo
taldi kröfunni ranglega að sér beint
þar sem hann hefði í raun verið starfs-
maður Select. Því hafnaði dómurinn.
Tilgreining á Select sem vinnuveit-
anda mannsins hafi bersýnilega verið
til málamynda. Í dómnum segir að
maðurinn hafi verið ráðinn sem tré-
smiður. Var Impregilo dæmt til að
greiða honum 964.021 kr. vegna van-
goldinna launa auk dráttarvaxta. Var
fyrirtækið dæmt til að greiða 450 þús.
kr. málskostnað. Jón Finnbjörnsson
héraðsdómari kvað upp dóminn.
6 LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MINNINGARSJÓÐUR Margrétar
Björgólfsdóttur mun næstu þrjú ár-
in styrkja þrjár stöður við íslenska
háskóla, en skrifað var undir samn-
inga þess efnis í Listasafni Íslands í
gær.
Samkomulag var gert við lækna-
deild Háskóla Íslands og Krabba-
meinsfélag Íslands um kostun rann-
sóknarstöðu í krabbameinsfræðum,
við Félagsvísindadeild Háskóla Ís-
lands um stöðu verkefnisstjóra við
undirbúning stofnunar Rannsókn-
arseturs í fötlunarfræðum og við
Kennslufræði- og lýðheilsudeild Há-
skólans í Reykjavík um rannsóknir
og kennslu um líðan barna og ung-
menna hérlendis.
„Okkur er ekki sama,“ sagði
Björgólfur Guðmundsson, faðir
Margrétar, en hann er stjórn-
arformaður sjóðsins. Vísaði hann til
þess að einkaframtakinu fylgdu
ákveðnar samfélagslegar skyldur
hjá þeim sem vel vegnaði. „Við höf-
um reynt að hvetja nýja athafna-
menn til að sinna því sem máli skipt-
ir í þjóðfélaginu.“
Mikilvægar rannsóknir
„Ég er þakklát fyrir þennan skiln-
ing á mikilvægi rannsókna,“ sagði
Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri
Krabbameinsfélags Íslands . „Það er
sagt um þá sem deyja að þeir deyi
ekki meðan minningin lifir í hjörtum
þeirra sem lifa.“ Sjálf sagðist hún
hafa kynnst Margréti og ætti vel við
að velgjörðasjóður bæri nafn henn-
ar. „Hún var þannig kona.“ Guðrún
sagði að styrkurinn yrði notaður til
kostunar stöðu í sameinda- og
frumulíffræðirannsóknum, en nú
þegar hefði náðst hér mikill árangur
á alþjóðavísu í þess konar rann-
sóknum. Færu rannsóknirnar fram
á brjóstakrabbameini, sem er al-
gengasta krabbameinið meðal
kvenna.
Í þakkarræðu sinni fyrir hönd HÍ
lagði Kristín Ingólfsdóttir rektor
áherslu á mikilvægi nýrra fræði-
greina á borð við fötlunarfræði, en
kennsla á meistarastigi í greininni
hófst við HÍ í fyrra. Benti Kristín á
að rannsóknir beindust m.a. að fötl-
uðum börnum og háskólastúdentum,
lífi seinfærra foreldra o.s.frv. Rann-
veig Traustadóttir, sem stýrt hefur
uppbyggingu námsins, sagði fram-
lagið gífurlega mikilvægt.
„Við höfum heitið því að velja til
starfsins ungan og upprennandi vís-
indamann,“ sagði Inga Dóra Sigfús-
dóttir, deildarstjóri kennslufræði-
og lýðheilsudeildar HR. Nám í lýð-
heilsufræðum á meistarastigi hófst
við deildina í haust. „Við vildum
víkka hlutverk deildarinnar út fyrir
kennslufræði því til að efla æsku
landsins þarf börnum líka að líða
vel.“
Þörf fyrir að gefa af sér
Margrét Björgólfsdóttir lést af
slysförum aðeins 33 ára að aldri.
„Margrét hafði mesta þörf fyrir að
gefa af sér, var bæði fram-
kvæmdakona og bóhem og hafði allt-
af mörg járn í eldinum, gat aldrei
gert bara eitt í einu. Því má segja að
starf sjóðsins endurspegli hennar
persónu,“ sagði Björgólfur.
Minningarsjóður Margrétar var
settur á fót fyrir rúmu ári með 500
milljóna króna framlagi hjónanna
Björgólfs og Þóru Hallgrímsson.
Markmið sjóðsins er að stuðla að
heilbrigðu líferni og bættu mannlífi
og efla menntir, menningu og íþrótt-
ir. Frá stofnun hefur sjóðurinn
styrkt 385 einstaklinga, stofnanir og
félög um alls 170 milljónir króna.
Morgunblaðið/Kristinn
Skrifað undir í Listasafni Íslands. Björgólfur Guðmundsson og Þóra Hallgrímsson eru vinstra megin í aftari röð.
Þrjár stöður við íslenska há-
skóla verða styrktar í þrjú ár
Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur
aps@hi.is
ýmsum aldri á kynferðislegan og
klámfenginn hátt.
Fram kemur í dómnum, að við
húsleit á heimili mannsins fundust
rúmlega 38 þúsund ljósmyndir og
192 hreyfimyndir á tveimur hörð-
um diskum og fjórum geisladisk-
um. Við það bættust 1.209 ljós-
myndir sem fundust á vinnustað
mannsins.
Hefur ekki áður orðið uppvís
að refsiverðri háttsemi
Maðurinn hefur ekki áður orðið
uppvís að refsiverðri háttsemi og
taldi dómari að líta bæri til þess
við ákvörðun refsingar. Þá þótti
mega virða honum til hagsbóta að
hann leitaði meðferðar við sjúk-
legri klámfíkn sinni og hefur síðan
verið undir handleiðslu geðlæknis,
gengist undir viðtals- og lyfjameð-
ferð og sækir reglulega fundi hjá
sjálfshjálparsamtökunum SLA,
sem glíma við að hjálpa klámfíklum
að ná tökum á lífi sínu á nýjan leik.
Á hinn bóginn þótti horfa til
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær karlmann á fertugs-
aldri í tólf mánaða fangelsi, þar af
eru þrír mánuðir óskilorðsbundnir,
fyrir að hafa í vörslu sinni mikið
magn ljósmynda og hreyfimynda
sem sýna börn á kynferðislegan
eða klámfenginn hátt.
Kolbrún Sævarsdóttir saksókn-
ari segir í samtali við Morgunblað-
ið að þetta sé þyngsti dómur sem
fallið hefur hér á landi fyrir vörslu
á barnaklámi. Árið 2004 var karl-
maður dæmdur í fjögurra mánaða
fangelsi, þar af voru tveir mánuðir
skilorðsbundnir, fyrir vörslu á
mjög grófum ljósmyndum með
barnaklámi.
Karlmanninum sem dæmdur var
í gær var einnig gert að greiða
sakarkostnað, 190 þúsund krónur,
þar með talda 175 þúsund króna
þóknun verjanda síns.
Héraðsdómur segir í niðurstöðu
sinni, að margar myndanna, sem
maðurinn hafði í fórum sínum, hafi
verið afar grófar og sýnt börn á
refsiþyngingar að maðurinn hafði í
vörslum sínum tæplega 40.000 ljós-
myndir, sem sýna börn á ýmsum
aldri á kynferðislegan og klám-
fenginn hátt og eru margar mynd-
anna afar grófar. Þá hafði ákærði í
sínum vörslum tæplega 200 hreyfi-
myndir af sama toga, þar á meðal
myndskeið sem sýnir nauðgun
tveggja karlmanna á tánings-
stúlku.
Tekur dómari fram í forsendum,
að „til að spyrna á móti slíkri mis-
notkun barna og útbreiðslu jafn
svívirðilegs efnis og ákærði hafði í
vörslum sínum er nauðsynlegt að
gefin verði skýr skilaboð um
hverju það varði að fremja afbrot
af þessu tagi“. Tekið var fram við
ákvörðun refsingar að maðurinn er
fyrirvinna á heimili sínu.
Málið dæmdi Jónas Jóhannsson
héraðsdómari. Hulda Elsa Björg-
vinsdóttir sótti málið af hálfu
ákæruvaldsins. Guðrún Sesselja
Arnardóttir héraðsdómslögmaður
var verjandi mannsins.
Tólf mánaða fangelsi
fyrir vörslu barnakláms
SAMORKA kostar starf sérfræð-
ings til rannsókna í auðlindarétti
við Lagastofnun Íslands næstu þrjú
árin.
Samstarfssamningur milli Há-
skóla Íslands og Samorku var und-
irritaður í Háskóla Íslands í gær.
Samningurinn hljóðar upp á fjórar
milljónir króna til að kosta nýja
rannsóknarstöðu sérfræðings í
auðlindarétti við Lagastofnun skól-
ans næstu þrjú árin. Án þessa
samnings hefði ekki verið hægt að
koma á fót þessari nýju rannsókn-
artöðu, samkvæmt upplýsingum
Kristínar Ingólfsdóttur, rektors
Háskóla Íslands.
„Það er geysilega mikilvægt fyr-
ir skólann að finna þennan skilning
og þessa hvatningu af hálfu fyr-
irtækis eins og Samorku. Það er al-
veg ljóst að styrkir eins og þessir,
sem gefa okkur tækifæri til að ráð-
ast í ný verkefni og ráða í nýjar
stöður, eru mjög mikilvægir fyrir
starfsemi skólans,“ segir Kristín.
Samstarfssamningur
milli Háskóla
Íslands og Samorku
Morgunblaðið/Kristinn
Samningurinn milli Samorku og Háskólans var undirritaður í gær.