Morgunblaðið - 04.03.2006, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 04.03.2006, Qupperneq 26
Daglegtlíf mars „PÍANÓIÐ er mikið stofustáss og ég er nú þegar farinn að hugsa í laumi um það hvert barnanna minna fái gripinn eftir minn dag,“ segir Gestur Traustason, framkvæmda- stjóri hjá Þekkingu, sem erfði fjör- gamalt og fallegt píanó eftir ömmu sína Maríu Jónsdóttur, húsmóður á Akureyri, sem, að sögn Gests, var ein af fínu frúnum í bænum og talaði dönsku á sunnudögum. María var fædd árið 1899 og lést árið 1969. Hún var þekkt í bænum sem spákona og píanókennari og kenndi þá meðal annars á píanóið, sem er danskt að ætt og uppruna og er nú í eigu Gests uppi í Breiðholti. „Eftir að ég eignaðist píanóið góða við lát ömmu árið 1969 hefur það síð- an verið lengst af geymt í bíl- skúrnum hjá mömmu minni norður á Akureyri, en þegar ég loksins eign- aðist mitt eigið hús árið 1999 var hún fljót að senda mér erfðagóssið suður um heiðar svo hún gæti rýmkað til í skúrnum sínum,“ segir Gestur þegar hann er spurður út í sögu píanósins, sem honum er nú orðið ósköp kært þó hann afneiti því með öllu að geta eitthvað glamrað á gripinn sér til ánægju og yndisauka. „Ég var að vísu í tónlistarskóla sem strákur, en hef ekki haft uppi nein áform um frekara tónlistarnám þar sem mér fannst það svo hræðilega leiðinlegt. Píanóið kom hins vegar í minn hlut þar sem ég mun hafa verið sá eini í fjölskyldunni sem hafði fengið eitt- hvað, sem líktist tóneyra í vöggu- gjöf. Það segir kannski meira um mína fjölskyldu en sjálfa mig.“ Góð áform um uppgerð Gestur hefur ekki minnstu hug- mynd um hvernig píanóið komst í eigu ömmu hans fyrir norðan. Á því stendur hins vegar að framleiðand- inn sé Herm. Peterson frá „Kjöben- hafn“ og sennilega er það smíðað á árunum 1885–1890. Inni í því má svo sjá raðnúmerið 720. Innan í píanóinu er skrifað að síðasta stilling hafi far- ið fram 1. febrúar árið 1938. „Miðað við þau óhljóð, sem frá því koma, hefur það varla verið stillt síðan. Ég hef aftur á móti stór áform og ein- beittan vilja til að láta gera píanóið upp og þá þarf meira að koma til en bara stillingin ein og sér. Það eitt er ljóst. Ég er bara alltaf að safna pen- ing til að hrinda þessu í framkvæmd. Píanóið er afskaplega fallegt á að líta. Það er úr antikbrúnum viði þar sem sést móta fyrir rótinni. Fram- hliðin er vel útskorin og nóturnar, sem sumar eru orðnar vel slitnar, eru úr fílabeini.“ Gestur gerir ekki ráð fyrir að pí- anóið seldist fyrir háar fjárhæðir yrði það boðið hæstbjóðanda. „Ég komst nefnilega fyrir nokkru í sam- band við danskan píanósérfræðing, sem fræddi mig um að svona píanó missti tónhæfileika sína eftir hundr- að ára endingu og yrði þar með verð- laust. Þar með varð sú von mín um að borga upp húsbréfin með píanó- inu að engu orðin. Héðan í frá verður danska píanóið mitt því bara stof- ustáss. Það er vel þess virði.“  HLUTUR MEÐ SÖGU | Gestur Traustason á fjörgamalt og rammfalskt píanó Erfðagóss verður verðlaust stofustáss Morgunblaðið/Sverrir Gestur Traustason situr við útskorna píanóið sitt sem hann erfði eftir ömmu sína, Maríu Jónsdóttur píanókennara. Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.isÞAÐ ER eins gott að hugsa sig vel um áður en maður skellir sér í heita nuddpottinn því ný rannsókn sýnir fram á það að slíkir pottar geta ver- ið góðar æxlunarstöðvar fyrir heilu bakteríusamfélögin. Dr. Rita B. Moyes, örverufræðingur við A&M háskólann í Texas tók sýni úr 43 nuddpottum, sem bæði voru í einka- eigu og á opinberum stöðum. Í ljós kom að allir pottarnir reyndust bera örveruvöxt af einhverju tagi. Í samtali við Reuters sagði Moyes að þessar lífverur næðu oft að búa til heilu samfélögin, sem gerðu vösku hreingerningafólki oft erfitt um vik, en væru pottarnir með- höndlaðir efnafræðilega á réttan hátt, ættu frískar manneskjur ekki að þurfa að hafa áhyggjur. Þegar kveikt er á þrýstistútum, rennur bakteríumengað vatnið í pottana og vegna hreyfinga vatns- ins myndast úði, sem auðveldar ör- verum leið að lungum og öðrum viðkvæmum stöðum. Þetta gerðist ekki í kyrru vatni. Bakteríurnar, sem fundust í nuddböðum, geta leitt til ýmissa sjúkdóma, segir Moyes, m.a. þvagfærasýkinga, húð- sjúkdóma og lungnabólgu. Bakteríur í nuddpottum  HEILSA LOFTIÐ í leikskólunum getur verið óheilnæmt fyrir börnin, að því er sænsk rannsókn bendir til. Á leik- skólanum eru margs konar agnir á sveimi og getur loftið því verið verra fyrir leikskólabörnin en loftið heima hjá þeim, að því er m.a. kemur fram í Svenska Dagbladet. Leikskólabörn geta fengið astma, ofnæmi og sýk- ingar í öndunarfæri vegna þessa en hægt er að bæta loftið með betri loft- ræstingu og þrifum. Börn eru við- kvæmari en fullorðnir og agnir sem þau anda að sér geta fest í önd- unarfærunum þótt sama loft valdi fullorðnum engu meini. Agnir t.d. úr ryki þyrlast upp í loftið í umhverfi þar sem mikið af fólki er og mikil hreyfing er. Einnig bera leik- skólabörn með sér ýmislegt að heim- an sem getur borið smit eða valdið öðrum erfiðleikum, t.d. frjókorna- agnir, efni úr tóbaksreyk eða hár af gæludýrum. Víst er að nútímabörn eru viðkvæmari fyrir alls kyns önd- unarfærasýkingum og ofnæmi en af- ar þeirra og ömmur voru. Lausnin felst í loftræstingu og þrifum. Þrífa ætti skóla og leikskóla á kvöldin eða morgnana en ekki á miðjum degi því þá þyrlast rykið bara um og agnirnar eru um kyrrt.  RANNSÓKN Morgunblaðið/Ómar Óheilnæmt loft í leikskólum?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.