Morgunblaðið - 04.03.2006, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 39
UMRÆÐAN
Á MORGUN, sunnudaginn 5.
mars, verður leiðakerfi Strætó bs.
breytt í samræmi við ábendingar
farþega og vagnstjóra.
Nýjar leiðir verða inn-
leiddar í Reykjavík og
Kópavogi og aðrar
breytast, mismikið. Al-
menningssamgöngur
hafa átt undir högg að
sækja að undanförnu.
Farþegum hefur
fækkað jafnt og þétt
sl. 40 ár og þegar
Strætó bs. ákvað að
blása til sóknar með
nýju samræmdu leiða-
kerfi á síðasta ári
heyrðust einungis
óánægjuraddir, en lítið
frá þeim sem ánægðir
voru. Nú snúum við
vörn í sókn með lag-
færingum á leiðakerf-
inu og öðrum ávinn-
ingum sem eru í
farvatninu. Það verður
þó að halda til haga
mikilvægi þess að hafa
samræmt leiðakerfi
fyrir höfuðborg-
arsvæðið sem er eitt
búsetu- og atvinnu-
svæði. Því var skrefið
sem við tókum á sl. ári
nauðsynlegur áfangi í
bættum almennings-
samgöngum.
Breiðholt og Grafarholt
Meginþorri allra athugasemda
sem okkur hafa borist snúa að vönt-
un á tengslum Breiðholts við
Mjódd, Grensásveg, Suðurlands-
braut og þaðan niður á Hlemm.
Nýrri leið, nr. 17, verður bætt við
og er hún mjög lík gömlu Tólfunni.
Leiðin liggur um Fella- og Hóla-
hverfin, um Austur- og Vesturberg
og þaðan niður í Mjódd. Leið 17
mun aka Sogaveg á leið sinni milli
Mjóddar og Grensásvegar og þann-
ig verður komið á móts við marga
sem sakna aksturs um þá götu. Þá
mun stofnleið 4 aka bæði um Aust-
urberg og Vesturberg og stofnleið
3 mun nú aka hring um Seljahverfi.
Þessar breytingar bæta þjónustu
Breiðholtshverfanna verulega.
Íbúar Grafarholts hafa eðlilega
verið ósáttir við að hafa ekki beina
tengingu við miðbæ Reykjavíkur.
Leið 18 er ný leið sem
mun aka úr Graf-
arholti um Bústaðaveg
og Snorrabraut niður á
Hlemm. Með þessari
nýju leið erum við í
fyrsta lagi að auka
þjónustuna við íbúa
Grafarholts, í öðru lagi
að bæta tengingar við
Landspítalann í Foss-
vogi og í þriðja lagi við
íbúa Fossvogshverfis
sem tengjast miðborg-
inni.
Hamrahverfi,
Hamrahlíð og
Hamraborg
Það er líklega til-
viljun, en íbúar svæða
sem draga nafn sitt af
hömrum hafa ekki
verið ánægðir með
strætósamgöngur
undanfarna mánuði.
Við í stjórn Strætó bs.
erum sammála og því
verða breytingar í
Hamrahverfi, Hamra-
hlíð og Hamraborg.
Við Hamrahlíð er
einn fjölmennasti
menntaskóli landsins,
MH, og þar er Blindrafélagið til
húsa. Nú mun leið 13 sem fer um
vesturbæ og miðbæ aka um
Hamrahlíð bæði á leið sinni austur
á Sléttuveg og eins á vesturleið.
Það var sérstaklega gagnrýnt að
hafa engin bein tengsl frá Hamra-
hverfi í Grafarvogi við aðra hluta
hverfisins, svo sem Spöng, Egils-
höll og sundlaug Grafarvogs. Þetta
verður lagfært á þann hátt, að leið
16 fer nú hring um Hamrahverfið
og tengir það við aðra hluta hverf-
isins og einnig um hverfið á leið
niður í bæ.
Hamraborgin er vissulega mið-
bær Kópavogs og þar eru fjölsóttir
staðir eins og tónlistarskóli og lista-
söfn. Í nýja leiðakerfinu vantaði
tengingu nokkurra hverfa Kópa-
vogs við Hamraborgina og þá sér-
staklega norðan Nýbýlavegar. Á
morgun mun leiðakerfið taka mikl-
um breytingum í Kópavogi sem
m.a. fela í sér að tenging verður úr
öllum hverfum Kópavogs við
Hamraborg.
Ég mun ekki tíunda frekar þær
breytingar sem farið verður í en
þær eru allar til hagsbóta fyrir við-
skiptavini okkar. Rétt er að taka
fram að ekki var hægt að taka tillit
til allra athugasemda sem bárust,
enda óskir íbúa á svæðinu mjög
mismunandi og fara ekki alltaf
saman við heildarhagsmuni al-
mennings. En vissulega erum við
að koma verulega á móts við þarfir
viðskiptavina okkar.
Akranes, Árborg
og Reykjanesbær
Það er gaman að fylgjast með og
taka þátt í þeirri sókn sem sveit-
arfélögin í útjaðri höfuðborg-
arsvæðisins eru í gagnvart almenn-
ingssamgöngum. Akranes er komið
inn og þar höfum við bara einn
vanda – stærstu vagnarnir eru of
litlir. Nú þegar liggur fyrir vilji Ár-
borgar og Hveragerðis til að tengj-
ast Strætó og viðræður eru í gangi
við þau sveitarfélög. Þá hefur bæj-
arstjórn Reykjanesbæjar óskað eft-
ir viðræðum við Strætó bs. um
tengingu við leiðakerfið okkar og
að sjálfsögðu tökum við á móti
slíkri ósk af áhuga og finnum lausn-
ir.
Ekki ætti að undrast þennan
áhuga á almenningssamgöngum
þar sem þær eru mikill kostur fyrir
umhverfið, samfélagið og síðast en
ekki síst pyngju hvers og eins far-
þega.
Það má með sanni segja, að
Strætó bs. sé í öflugri sókn, ekki
bara á sínu hefðbundna þjón-
ustusvæði heldur á öllu stór-
höfuðborgarsvæðinu. Velkomin í
strætó sem fer vítt og breitt og
þangað sem viðskiptavinir okkar
vilja fara.
Strætó vítt og breitt
Björk Vilhelmsdóttir fjallar
um breytingar sem eru
á leiðinni hjá Strætó bs.
’Það má meðsanni segja, að
Strætó bs. sé í
öflugri sókn,
ekki bara á sínu
hefðbundna
þjónustusvæði
heldur á öllu
stór-höfuðborg-
arsvæðinu. ‘
Björk Vilhelmsdóttir
Höfundur er borgarfulltrúi
og formaður stjórnar Strætó bs.
FORYSTUMENN Sjálfstæð-
isflokksins segja eitt en gera annað.
Þeir tala um skattalækkanir en
þyngja skattbyrðina hjá þorra al-
mennings. Þeir tala um stöðugleika
í hagkerfinu en kynda
undir þenslu með
hagstjórnaraðgerðum
sínum.
Eins og aðrir hægri
flokkar leggur Sjálf-
stæðisflokkurinn ríka
áherslu á það í stefnu
sinni að minnka hið
opinbera og draga úr
skattheimtu. Hann
hefur hins vegar gert
hið öndverða. Eftir
samfellt 15 ára for-
ræði flokksins á fjár-
málaráðuneytinu er
staðan þessi: Hið op-
inbera hefur aldrei frá
lýðveldisstofnun tekið
til sín stærri hlut af
þjóðarframleiðslunni
og skattbyrðin hefur
þyngst hjá 75–80%
skattgreiðenda. En
þar með er ekki öll
sagan sögð. Hin
ómengaða hægri stefna hefur nefni-
lega náð fram að ganga með þeim
hætti að á sama tíma og hinir tekju-
lægstu greiða hærra hlutfall af
tekjum sínum í skatta hefur skatt-
byrðin lést hjá stóreigna- og há-
tekjufólki. Þannig hefur Sjálfstæð-
isflokkurinn stuðlað að auknum
ójöfnuði á Íslandi. Á þetta benti ég í
grein í Mbl. 8. febrúar sl.
Fyrir síðustu kosningar var mikið
rætt um skattamál. Sjálfstæð-
isflokkurinn lagði til þá lækkun á
álagningarhlutfalli tekjuskatts sem
nú er orðin að veruleika með þeim
afleiðingum sem að ofan eru raktar.
Samfylkingin lagði aftur á móti
áherslu á að hækka skattleysismörk
og barnabætur og stuðla þannig að
aukinni tekjujöfnun í skattkerfinu.
Að auki lögðum við til að tekið yrði
upp víðtækt samráð við samtök
launafólks um endurskoðun á skatt-
kerfinu, bótakerfinu og kerfi al-
mannatrygginga. Markmiðið var að
þróa leiðir til að auka jöfnunaráhrif
þessara kerfa, draga úr jað-
arsköttum og tryggja að enginn
þyrfti að una fátækt eða óvissu um
afkomu sína. Mikilvægi þessara til-
lagna ætti að verða öllum ljóst sem
hafa fylgst með umræðunni um
aukna skattbyrði almennings, bág
kjör lífeyrisþega,
ósanngjarna jað-
arskatta og nú síðast
stagbætt trygg-
ingakerfi sem mis-
munar fólki gróflega.
Fyrir síðustu kosn-
ingar var líka rætt um
álver og virkjanir á
Austurlandi og þá
vandasömu hagstjórn
sem ríkisstjórn, hver
sem hún yrði, myndi
standa frammi fyrir á
kjörtímabilinu. Í þeim
efnum lagði Samfylk-
ingin ríka áherslu á
mikilvægi þess að hafa
víðtækt samráð við að-
ila vinnumarkaðarins,
fjármálamarkaðinn o.fl.
um allar aðgerðir í
efnahagsmálum. Það
þyrfti samræmda hag-
stjórn en ekki eins og
nú er þegar rík-
isstjórnin kyndir bál sem Seðla-
bankinn reynir síðan að slökkva. Á
hagstjórnarmistök ríkisstjórn-
arinnar benti ég í grein í Mbl. 23.
febrúar sl.
Aukinn ójöfnuður og handahófs-
kennd hagstjórn hafa dregið úr
efnahagslegum og félagslegum stöð-
ugleika á Íslandi. Ríkisstjórnin hef-
ur aðeins eitt ár til að bæta fyrir af-
glöp sín. Svo er hennar tíma lokið.
Orð og efndir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
svarar grein Birgis
Ármannssonar
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
’ Ríkisstjórninhefur aðeins eitt
ár til að bæta
fyrir afglöp sín.
Svo er hennar
tíma lokið.‘
Höfundur er formaður
Samfylkingarinnar.
ÞAÐ vekur sífellt meiri athygli að
menntamálaráðherra okkar er
ósýnilegur þegar erfið og óþægileg
málefni ber að garði.
Þar fetar Þorgerður
Katrín í fótspor fyr-
irrennara síns, Björns
Bjarnasonar sem lék
einnig þennan leik.
Í fersku minni mínu
er enn langa kenn-
araverkfallið haustið
2004. Þar heyrðist
hvergi né sást til Þor-
gerðar og henni virtist
ekki koma þetta mál
neitt við. Deilurnar í
Menntaskóla Ísafjarðar hafa staðið
lengi yfir en menntamálaráðherra
getur ekki tjáð sig um málið.
Og svo er það mál tónlistanem-
enda á framhaldsskólastigi. Í langan
tíma hefur þetta fólk verið milli
steins og sleggju vegna þess að
óljóst hefur verið hver borgar með
námi þess.
Staða málsins er þannig að tón-
listarnemar geta flestir einungis
stundað nám sitt í nokkrum tónlist-
arskólum í Reykjavík eftir að þeir
eru komnir á það stig að sérhæfa sig.
Reykjavíkurborg hafði tekið
ákvörðun um að borga ekki lengur
með nemendum annarra sveitarfé-
laga – að mörgu leyti skiljanlegt. En
hin sveitarfélögin hafa ekki heldur
viljað styðja við framhaldstónlist-
arnám sinna íbúa. Nú, á síðustu
stundu er búið að komast að ein-
hverju bráðabirgða-
samkomulagi. En óviss-
an varir áfram í
framtíðinni og verst úti
verða þeir sem hafa náð
25 ára aldri því þeir fá
engan styrk lengur.
Þetta ástand er óvið-
unandi því landslög
kveða á um að allir
skulu njóta sömu tæki-
færa til náms óháð bú-
setu og aldri.
Hingað til hefur ríkið rekið fram-
haldsskólana. Hver er staða tónlist-
arskóla á framhaldsskólastiginu?
Eru þeir ekki framhaldsskólar?
Hvernig eru þeir þá skilgreindir?
Nemendur þeirra eru ekki í einhvers
konar hobbí-námi, þetta er alvör-
unám, bæði erfitt og krefjandi.
Þetta mál kemur þér, Þorgerður
Katrín sem menntamálaráðherra
meira en lítið við. Óvissuástandið í
þessum málum er búið að vara allt of
lengi. Stígðu nú fram á sviðið – líka í
erfiðum málunum. Vertu þar jafn-
glæsileg og þegar þú ert að sýna þig
brosandi, opnandi einhverjar sýn-
ingar eða klippa á borða. Vertu líka
ráðherra tónlistarmanna því án tón-
listar yrði menningarlífið okkar
mjög fátæklegt.
Vaknaðu nú, Þyrnirós
Úrsúla Jünemann fjallar
um tónlistarnám í skólum
Úrsúla Jünemann
’Vertu líka ráðherra tón-listarmanna því án tón-
listar yrði menningarlífið
okkar mjög fátæklegt.‘
Höfundur er móðir tónlistanema.
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Ýmislegt áhugavert
fyrir safnara
Ýmislegt áhugavert fyrir safnara
Borðstofuhús ögn
Stakir skápar