Morgunblaðið - 04.03.2006, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 04.03.2006, Qupperneq 44
44 LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Við skólasystur frá Húsmæðraskólanum Ósk, Ísafirði, sam- hryggjumst með fjöl- skyldu þinni, guð blessi ykkur öll. Vegna mistaka féll þessi kveðja J. GUÐRÚN SVEINSDÓTTIR ✝ Jósefína GuðrúnSveinsdóttir fæddist í Reykjavík 3. ágúst 1942. Hún lést á krabbameins- deild Landspítalans 16. febrúar síðast- liðinn og var útför hennar gerð frá Bú- staðakirkju 24. febr- úar. niður á útfarardegi Guðrúnar og er beðist velvirðingar á því. Shalom! Þessi fallega „frið- ar“ kveðja hljómar af hvers manns vörum í Ísrael, en einmitt þar lágu leiðir okkar fyrst saman. Tólf stórkost- legir dagar „Í fótspor Móse“ oft erfiðir dag- ar, miklar göngur, lítill svefn en stórfengleg upplifun. Þú gafst okkur ekkert eftir þrátt fyrir veikindi þín. Ég hef aldrei kynnst kraftmeiri og viljasterkari konu eins og þér, elsku Guðrún mín. Bros þitt á eftir að lifa í hjarta mínu og ég á eftir að þakka guði ævilangt fyrir að hafa leitt okk- ur saman. Drottinn blessi og varðveiti börn þín og barnabörn á þessari erfiðu stundu. Shalom! Þín vinkona Anna Hulda. ✝ Viðar Gísli Sig-urbjörnsson fæddist á Steinholti á Fáskrúðsfirði 24. nóvember 1934. Hann lést þar í febr- úarlok síðastliðin. Foreldrar hans voru Sigurbjörn Gíslason og Valborg Bene- dikta Jónasdóttir. Systkini hans eru Olga, látin, Jóna og Valgeir, látinn. Við- ar flutti með for- eldrum sínum að Höfðahúsum 1939 og bjó þar til 1950 flutti þá aftur að Steinholti og bjó þar til æviloka. Viðar lauk gagnfræðaprófi frá Héraðsskólanum að Laugarvatni. Hann stundaði svo verslunarstörf hjá Kaupfélagi Fáskrúðsfirðinga og opnaði síðan eigin verslun, Við- arsbúð, árið 1961 á Búðavegi 3. Í fyrstu afgreiddi Viðar viðskiptavini sína yfir borðið, en seinna breyttist verslunin í litla kjör- búð. Eftir að versl- unartími var gefinn frjáls og smærri verslanir viku fyrir stórverslunum hætti Viðar rekstri Viðarsbúðar, en tók kjölfarið við rekstri Hinnar búðarinnar á Skólavegi 50. Þar höndlaði hann m.a. með fatnað, gjafavöru, hannyrða- vörur og rak samhliða ljósastofu. Viðar lokaði Hinni búðinni í des- ember á síðasta ári og lauk þá 44 ára samfelldum verslunarrekstri á Fáskrúðsfirði á hans vegum. Útför Viðars verður gerð frá Fáskrúðsfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Þegar móðir mín hringdi í mig og sagði mér að Viðar væri dáinn, þá varð mér hugsað 30 ár aftur í tímann þegar pabbi og Viðar ráku búð sam- an. Allt var til í þessari búð, ef eitt- hvað vantaði þá var það til í þessari litlu búð sem var opin frá morgni þar til klukkan var hálf gengin í mið- nætti, alla daga vikunnar, sem varla þekktist þá. En hvað um það, ég man þegar ég var pínulítil og hljóp niður í búð rétt fyrir kl. 12 á hádegi, eingöngu til að ganga með þeim pabba og Viðari upp Hraunsbrattann og segja við Viðar: „Verði þér af því“. Þá sagði Viðar á móti „sömuleiðis“ og þá leið mér svo vel því þá vissi ég að hádeg- ismaturinn mundi fara vel í mig. Viðar labbaði svo inn götuna og ég og pabbi gengum beint upp og heim. Minningin er svo ljúf. Einu sinni fékk ég afskaplega fal- lega innpakkaða gjöf frá Viðari úr búðinni góðu. Mér brá mjög þegar ég opnaði pakkann því í honum var svört dúkka og svoleiðis hafði ég aldrei séð áður. Ég henti henni langt upp í loft og var yfir mig glöð með dúkkuna sem Viðar sagði að yrði að heita Dondó, því það passaði svo vel við hana. Nafnið Dondó fékk hún og er dúkkan til enn þann dag í dag. Svo liðu árin og pabbi hætti með búðina en Viðar hélt áfram að reka hana allt til síðustu áramóta þegar hann lokaði fyrir fullt og allt. Vænt þótti mér einnig þegar ég varð fullorðin og eignaðist mann, þá urðu þeir Viðar svo góðir vinir þó að 30 ára aldursmunur væri á þeim. Þeir fóru í bíltúra á næstu firði, drukku kaffi bæði heima hjá okkur og hjá honum og ekki má gleyma öll- um bókunum sem þeir skoðuðu því nóg var til af þeim hjá Viðari. Hann átti stórt hús fullt af bókum og margar þeirra batt faðir Viðars inn. Viðar hugsaði vel um þær því hann var einstakt snyrtimenni. En nú er Viðar búinn að kveðja þennan heim kominn í annan. Ég á eftir að sakna hans. Mér finnst að Viðar eigi bara að vera hér, hann hefur alltaf verið hér og ég þekki ekkert annað. Herdís Pétursdóttir. Á fyrsta degi þorra komst þú til okkar í þorrablót. Brimneshópurinn var að hittast og bauð ég þér að vera með okkur. Þetta var yndislegt kvöld og var gaman að heyra ykkur eldra fólkið tala um gömlu dagana. Margar skemmtilegar myndir voru teknar og eigum við þær í minning- unni. Viðar minn, margar góðar spjall- stundir áttum við saman í búðinni þinni á sl. ári. Þú lokaðir henni í nóv- ember sl. eftir rúmlega fjörutíu ára starf sem kaupmaður hér á Búðum. Ég hjálpaði þér að setja niður í síð- ustu kassana. Þú nefndir það við mig að það væru blendnar tilfinningar að pakka ævistarfinu niður þegar allt væri á uppleið hér fyrir austan. Við Óli buðum þér í skötu á Þorlák ásamt Guðmundi vini okkar og börn- um, þetta var skemmtileg stund svona í upphafi jólanna. Ég var búin að ákveða það að þetta yrði föst venja hér á Setbergi. Þín verður saknað. Kæri vinur, þú kallaðir á mig eftir áramótin í kaffisopa og sýndir mér heimilið þitt. Þú vissir að ég hefði svo gaman af öllu þessu gamla, enda má líkja heimilinu þínu við safn frá gamla tímanum. Allt var svo snyrti- legt og skemmtilega uppsett. Það var greinilegt að þar bjó mikið snyrtimenni. Í lok þorra kvaddir þú þennan heim. Guð geymi þig, kæri vinur. Þín vinkona Lára Björnsdóttir. VIÐAR GÍSLI SIGURBJÖRNSSON Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Önnumst alla þætti útfararinnar Þegar andlát ber að höndum Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson útfararstjóri Frímann Andrésson útfararþjónusta Svafar Magnússon útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta Halldór Ólafsson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta Móðir mín, tengdamóðir og amma, HANSÍNA HANNESDÓTTIR, Hlaðbrekku 12, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi fimmtudaginn 2. mars. Jarðarförin auglýst síðar. Jónína Magnúsdóttir, Jens Karlsson, Perla Dögg Jensdóttir, Magnús Geir Jensson. Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og sonur, Hjálmur Sigurjón Sigurðsson, Mánabraut 5, Skagaströnd, lést á heimili sínu fimmtudaginn 2. mars. Sigríður Rut Sigurðardóttir, Guðbjörg Hjálmsdóttir, Harpa Hjálmsdóttir, Brett Harris, Ólafur Freyr Hjálmsson, Ásdís Hjálmsdóttir, Guðbjörg Hjálmsdóttir, Sigurður Sigurjónsson. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð við andlát og útför bróður okkar, REYNIS BÖÐVARSSONAR, Breiðabóli, Eyrarbakka. Lilja Böðvarsdóttir, Ragnar Böðvarsson, Guðlaug Böðvarsdóttir. Þökkum samúð og vinsemd við andlát og útför PÁLS K. TÓMASSONAR, Skarphéðinsgötu 6, Reykjavík. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Gréta Tómasdóttir, JóhannaTómasdóttir, Guðbjörg Tómasdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, JÓHANNA EINARSDÓTTIR (NANNÝ), Flókagötu 69, Reykjavík, lést föstudaginn 3. mars á Landspítalanum við Hringbraut. Einar Jónsson, Sveinhildur Vilhjálmsdóttir, Anna Jónsdóttir, Hallgrímur Stefánsson, Þórunn María Einarsdóttir, Valgerður Anna Einarsdóttir, Stefán Fannar Hallgrímsson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALHEIÐUR HANNESDÓTTIR, Gullsmára 9, Kópavogi, er látin. Sjöfn Stefánsdóttir, Guðgeir Einarsson, Sigríður Stefánsdóttir, Reynir Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.