Morgunblaðið - 04.03.2006, Side 68

Morgunblaðið - 04.03.2006, Side 68
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Sími 568 6625 ALTERNATORAR FYRIR BÍLA frá aðra leið Reykjavík Oslo Kr. 8.000 www.flysas.is Aðrir áfangastaðir í Noregi einnig á frábæru verði! Skattar og flugvallargjöld innifalin. Flug hefst 27. mars. Sími fjarsölu: 588 3600. frá aðra leið Reykjavík Bergen Kr. 9.500 MÖGULEG ferjuhöfn í Bakkafjöru var til um- ræðu á kynningarfundi sem Siglingastofnun Ís- lands og Vestmannaeyjabær stóðu fyrir í Höll- inni í Eyjum í gær. Um 200 manns sóttu fundinn. Voru sérfræðingar spurðir út í ýmislegt tengt þessari mögulegu samgönguleið við eyjarnar, t.d. um sandfok og hvernig hægt væri að gera hafnaraðstöðu á sandi. Gísli Viggósson, forstöðumaður rannsókna- og þróunarsviðs Siglingastofnunar Íslands, sat fyrir svörum á fundinum, og segir hann að áhugi heimamanna á þessari hugmynd hafi verið mik- ill. „Það var farið víða og voru umræður góðar,“ segir Gísli. Fyrr um daginn sigldi hann, ásamt bæjarfulltrúum og fulltrúum í hafnarstjórn, á Lóðsinum að mögulegu bryggjustæði á Bakka- fjöru til að kanna aðstæður. Siglingin frá Eyjum tók tæpar 30 mínútur, en ferðin í heild um tvær klukkustundir. Í dag gefst áhugasömum tæki- færi til að kynna sér hugmyndir um ferjusigl- ingar til Bakkafjöru, en opið hús verður hjá Sigl- ingastofnun milli kl. 13 og 16 í dag. Ljósmynd/Ómar Garðarsson Sveinn Valgeirsson, skipstjóri á Lóðsinum (t.h), ræðir við Gísla Valgeirsson á siglingu að Bakkafjöru. Áhugi á höfn í Bakkafjöru RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gær tillögu mennta- málaráðherra um að komið verði á fót bráðabirgðaað- stöðu við Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði á Keldum. Þessi ákvörðun var tekin vegna hugsanlegr- ar hættu á fuglaflensu. Áætlaður kostnaður við þessa aðstöðu er 22 milljónir. Hafist verður handa við breytingarnar strax, en reiknað er með að lokið verði við þær á nokkrum vikum. Vilhjálmur Lúðvíksson, skrifstofustjóri á skrifstofu vísindamála í menntamálaráðuneytinu, segir að með þessari bráðabirgðaaðstöðu ætti að verða hægt að taka inn á stöðina sýni og skoða þau í aðstöðu sem verði aðgreind frá annarri starfsemi á Keldum. Að- staðan er m.a. hugsuð til að tryggja öryggi starfs- manna. Vilhjálmur sagði að áfram væri gert ráð fyrir að hræin yrðu send til rannsóknar erlendis líkt og gert hefur verið í vetur, en búið er að taka nokkra tugi sýna til að leita að flensu í fuglum. „Þessi greining fer fram erlendis, a.m.k. svo lengi sem ekki er búið að hækka viðbúnaðarstig. Verði við- búnaðarstig hækkað þarf að auka eftirlit með ali- fuglabúum. Menn munu hugsanlega endurskoða þetta ef fugla- flensan greinist á Bretlandseyjum, sem getur vel orð- ið,“ sagði Vilhjálmur. Bráðabirgðaaðstaða á Keldum KASSINN, nýtt leiksvið Þjóðleikhússins, verður vígður í kvöld með frumsýningu á meistaraverki Ibsens, Pétri Gaut. Guðrún Árnadóttir hjúkr- unarkona verður viðstödd frumsýninguna í kvöld og klippir á vígsluborðann. Guðrún er einstök áhugamanneskja um leikhús, því hún hefur sótt hverja einustu frumsýningu á stóra sviði Þjóðleik- hússins frá því það var vígt árið 1950. Sjálfri finnst Guðrúnu það ekkert merkilegt að hafa stundað Þjóðleikhúsið af þvílíkri elju frá stofnun þess, enda hafi hún fyrst og fremst haft gaman af. „Það var nú heilmikið leikið hér áður fyrr í þessum smábæjum sem ég bjó í, eins og á Stokks- eyri, en það var auðvitað ekki eins og að sjá sýn- ingar í Þjóðleikhúsinu,“ segir Guðrún. Hún kveðst þó ekki hafa viljað vera í leikfélagi sjálf – hún hafi notið sín betur sem áhorfandi. „Satt að segja er nú mjög sérstök ástæða fyrir þessu, en um hana vil ég ekki tala. En það er auð- vitað afskaplega gaman að fara í leikhúsið, annars væri ég varla að þessu. Það er svo margt sem heillar í leikhúsinu þótt það geti líka verið mis- jafnt.“ Hefur fylgst með mörgum kynslóðum Það er ómögulegt að freista Guðrúnar til að gefa nokkuð upp um uppáhaldssýningar, uppá- haldsleikara og uppáhaldsverk á þessum langa ferli hennar í rauðu og gylltu sætunum. „Það er nú bara ekki hægt að svara því hvað sé í uppá- haldi. Ég er að verða níræð og búin að fylgjast með mörgum kynslóðum leikara.“ Álit Guðrúnar á ungu leikurunum í dag er skýrt og skorinort. „Þeir eru auðvitað misjafnir, eins og leikarar hafa alltaf verið. Margir þeirra eru ágætir; – stundum geta leikarar verið góðir í einu og vondir í öðru.“ Guðrún segir líka ómögulegt að svara því hvers konar leikverkum hún hafi mesta ánægju af, enda liggur í hlutarins eðli að með því að sjá bók- staflega allar sýningar er varla hægt að gera upp á milli gamanleikja og hádramatískra verka. Að- spurð um eljuna við leikhússókn í fimmtíu og sex ár hlær Guðrún dátt og er skorinorð sem fyrr: „Það er enginn dugnaður að sækja leikhús þegar manni finnst það gaman.“ Hefur séð allar sýningar á stóra sviði Þjóðleikhússins frá upphafi Morgunblaðið/Kristinn „Ég væri ekki að þessu ef mér þætti ekki gaman í leikhúsi,“ segir Guðrún Árnadóttir. Enginn dugnaður að sækja leikhús Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is ÁGREININGUR kom upp innan stjórnar Straums-Burðaráss fjárfestingarbanka við kjör varaformanns stjórnar félagsins á stjórnarfundi, sem haldinn var að afloknum aðalfundi félagsins í gær. Magnús Krist- insson útgerðarmaður, sem verið hefur vara- formaður stjórnar, var ekki endurkjörinn varaformaður heldur var á fundinum stungið upp á að Eggert Magnússon, formaður KSÍ, tæki sæti varaformanns í hans stað. Magnús greiddi atkvæði á móti og gagnrýnir hvernig staðið var að undirbúningi fundarins. Magnús sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að þegar fundurinn átti að hefjast hefði komið í ljós að einn aðalmaður af fimm, Páll Magnússon, var fjarverandi. Hann segir að Björgólfur Thor Björgólfsson, formaður stjórnar, hafi greinilega verið bú- inn að ákveða fyrir fundinn hver yrði vara- maður Páls og greint frá því að Þórunn Guð- mundsdóttir lögmaður, sem er einn af varamönnum í stjórn, sæti fundinn í stað Páls. Þetta hafi komið Magnúsi í opna skjöldu. „Allt í einu er Þórunn sest við stjórn- arborðið en við gerum enga athugasemd við það. Eggert Magnússon tekur síðan til máls og tilkynnir að hann sé öldungur fundarins og eigi að setja fundinn, sem hann og gerði. Fyrsta mál á dagskrá var að hann stakk upp á Björgólfi Thor sem formanni og voru allir samþykkir því,“ segir Magnús. Hann segir að þessu næst hafi Þórunn tekið til máls á fundinum, nánast tilbúin með skrifaða ræðu um að henni þætti eðlilegt að fulltrúi litla mannsins, eins og hún orðaði það, yrði kosinn varaformaður stjórnar Straums-Burðaráss fjárfestingarbanka. Sá hafi verið Eggert Magnússon, sem var síðan kosinn varaformaður gegn atkvæði Magn- úsar. „Og óska ég Eggerti Magnússyni, fulltrúa litla mannsins, innilega til hamingju með að vera orðinn varaformaður Straums-Burðar- áss fjárfestingarbanka. Vonast ég til þess að hann ræki það embætti vel og dyggilega,“ segir Magnús. Greiddi atkvæði á móti „Ég sit þarna klumsa sem fyrrverandi varaformaður og greiði atkvæði á móti þessu en einn sat hjá, þrír studdu og svo var þessu bara lokið,“ segir hann ennfremur. ,,Það eru ekki nema fimm eða sex mánuðir síðan þess- ir menn tókust í hendur við sameininguna um að vinna saman að uppbyggingu og ágæti þessa félags,“ segir Magnús að lokum. Sviptingar í stjórn Straums-Burðaráss Eggert Magnússon kjörinn varaformaður í stað Magnúsar Kristinssonar Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.s KRAFTMIKLIR einstaklingar og fyrirtæki hafa á undanförnum árum látið til sín taka og nú er svo komið að íslenskur fjárfestingamarkaður hefur æ fleiri einkenni annarra markaða. Bernskuár hins frjálsa fjármála- markaðar eru trú- lega að baki. Þetta sagði Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Straums-Burðar- áss fjárfestingar- banka, í ræðu sinni á aðalfundi bank- ans sem fram fór í gær. Hann sagði jafnframt að óvarlegt væri að vænta sambærilegrar ávöxtunar á íslensk- um fjármálamarkaði til frambúðar, og um leið sama stuðnings hins ís- lenska fjármálamarkaðar við alþjóða- fyrirtæki okkar. Að mati Björgólfs Thors hefur tækifærum til umbreyt- inga og uppstokkunar á íslenskum fjármálamarkaði fækkað. Á aðalfundinum var samþykkt að greiða 6.679 milljónir króna í arð. Hluti arðsins verður greiddur með hlutabréfum í Avion Group og Ice- landic Group. Þannig gefst fyrrver- andi hluthöfum Eimskipafélags Ís- lands tækifæri til að eignast aftur hlut í því félagi.| 18 Bernskuár hins frjálsa markaðar að baki Björgólfur Thor Björgólfsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.