Morgunblaðið - 06.05.2006, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Jórunn, Kjartan og Þorbjörg taka á móti þér í
Laugardagskaffi með frambjóðendum
á kosningaskrifstofunni Hverafold 5, í dag kl. 11.00.
Allir velkomnir!
TÍMI TIL AÐ HITTAST
NEYTENDUR sem krafðir eru um
hærra verð fyrir pakkaferðir hjá
ferðaskrifstofum vegna breytinga á
gengi krónunnar ættu að greiða
hækkunina með fyrirvara, enda ekki
skýrt að í öllum tilvikum sé fylgt lög-
um um slíkar hækkanir, segir
Tryggvi Axelsson, forstjóri Neyt-
endastofu.
Neytendastofa hefur nú til umfjöll-
unar mál manns sem krafinn var um
18 þúsund krónur vegna gengisbreyt-
inga, og er verið að afla gagna vegna
þess máls áður en úrskurðað verður í
málinu. En þar sem þessar hækkanir
séu í umræðunni núna segir Tryggvi
brýnt að láta almenning vita að ekki
sé eins skýrt og Samtök ferðaþjón-
ustunnar vilja meina að heimilt sé að
hækka verð með þeim hætti sem ein-
hverjar ferðaskrifstofur hafa gert.
Um pakkaferðir er fjallað í lögum
um alferðir, en þar segir m.a. að verð
sem sett sé fram í samningnum skuli
haldast óbreytt nema skýrt sé tekið
fram að verð geti hækkað eða lækk-
að, og „nákvæmlega sé tilgreint
hvernig reiknað skuli út breytt verð“.
Hér segir Tryggvi að verið geti að
misbrestir séu í samningum ein-
hverra ferðaskrifstofa, þar sem ekki
sé tekið fram nákvæmlega hvernig
reikna eigi út nýtt verð.
Hann segir ekki fullnægjandi að
rukka kaupendur um ákveðna krónu-
tölu, án þess að sýna þeim fram á
hvernig hún var fundin út. Einnig sé
eðlileg krafa að tilgreint sé á samn-
ingi nákvæmlega hversu mikið geng-
ið megi flökta áður en til hækkana
komi og við hvaða gjaldmiðil sé mið-
að.
Tryggi endurgreiðslu
Því segir Tryggvi eðlilegt að þeir
neytendur sem krafðir eru um hærra
verð en upphaflega var samið um
greiði hækkunina með fyrirvara, þ.e.
skrifi það inn á staðfestingu á
greiðslu að gerður sé fyrirvari um
lögmæti hækkunarinnar, og þeir
áskilji sér þar með rétt til að krefjast
endurgreiðslu ef krafan reynist ekki
réttmæt. Með því tryggi neytendur
að þeir fái endurgreitt, komist Neyt-
endastofa og/eða dómstólar að þeirri
niðurstöðu að hækkunin hafi ekki
verið gerð með lögmætum hætti.
Tryggvi tekur þó fram að við-
skiptahættir séu afar mismunandi
milli einstakra ferðaskrifstofa, og
hann haldi því ekki fram að ekki séu
til ferðaskrifstofur sem uppfylli skil-
yrði laganna. Þó sé rétt að vekja at-
hygli neytenda á lagaákvæðum til
þess að þeir geti komist hjá tjóni
reynist viðskiptahættir þeirrar ferða-
skrifstofu sem þeir skipti við ekki
vera í samræmi við lög.
Ekki skýrt að hækka megi ferðir vegna gengisbreytinga, segir Neytendastofa
Kaupendur ættu að greiða
hækkunina með fyrirvara
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
KOMA Vigdísar
Finnbogadóttur,
fyrrverandi for-
seta Íslands, til
Noregs og kynn-
ing á Stofnun
Vigdísar Finn-
bogadóttur við
Háskóla Íslands
(SVF) hefur
vakið mikla at-
hygli í Noregi,
segir Auður Hauksdóttir, for-
stöðumaður SVF. Auður er með
Vigdísi í Noregi, ásamt nokkrum
fræðimönnum stofnunarinnar, en
tilgangur heimsóknarinnar er að
kynna SVF og leita eftir samvinnu
við norskar háskóla- og rannsókn-
arstofnanir. Markmið SVF er að
stunda rannsóknir og kennslu í er-
lendum tungumálum. Það verður
ekki gert svo vel sé, nema í sam-
starfi við erlendar háskólastofn-
anir, útskýrir Auður.
Fjölmiðlar hafa sýnt komu Vig-
dísar mikinn áhuga, segir Auður,
og hefur hún farið í viðtöl hjá
sjónvarps- og útvarpsstöðvum. Ít-
arleg viðtöl hafa einnig birst við
hana í m.a. dagblöðunum Aften-
posten og Dagbladet. Í gærkvöld
var hún svo gestur í vinsælum
sjónvarpsþætti á norska ríkissjón-
varpinu, NRK, sem heitir Først &
sist.
Heimsóknin hófst 2. maí með
málþingi við Háskólann í Bergen
um norrænan málskilning og lauk
á ráðstefnumiðstöðinni Lysebu í
Ósló, í fyrradag, með ráðstefnu
um rannsóknir á gildi forn-
norrænna bókmennta fyrir nú-
tímabókmenntir á Norðurlöndum.
Með í för eru einnig rithöfund-
arnir Thor Vilhjálmsson og Stein-
unn Jóhannesdóttir sem og Úlfar
Bragason, forstöðumaður Stofn-
unar Sigurðar Nordals. Tóku þau
þátt í dagskránni í fyrradag. Auk
þeirra tóku þátt norsku rithöfund-
arnir Roy Jacobsen, Thorvald
Sten og Knut Ødegård og nokkrir
norskir fræðimenn.
Forvitnir um starfsemina
Vigdís segir aðspurð að í heim-
sókninni hafi verið lögð áhersla á
mikilvægi tungumálanna og starf-
semi SVF. „Við höfum kynnt þær
hugsjónir og hugmyndir sem við
höfum í sambandi við stofnunina
og framtíð hennar.“ Vigdís segir
að undirtektir Norðmannanna hafi
verið afar jákvæðar. Hún segir að
henni hafi hvarvetna verið vel tek-
ið og að margir hafi lýst áhuga á
samstarfi við Háskóla Íslands.
Spurð hvers vegna tungumál séu
svona mikilvæg segir hún: „Vegna
þess að þau styðja við margbreyti-
leikann í heiminum og gerir okkur
ekki öll að einu og sama andlit-
inu.“
Stofnun Vigdísar
vekur athygli í Noregi
Vigdís
Finnbogadóttir
MIKLAR vangaveltur hafa verið uppi um uppruna tjaldspars-
ins Styrmis og frúar, sem Morgunblaðið greindi frá í gær, en
parið hefur tekið sér bólfestu á þaki Morgunblaðshússins í
Kringlunni. Hafa meðal annars verið uppi meiningar um að par-
ið ætti ættir að rekja til Kirkjusands í Reykjavík, nánar tiltekið
til athafnasvæðis Strætó bs.
Elínborg Kristinsdóttir, starfsmaður Strætó, sagði í samtali
við blaðamann að tjaldspar hafi haft hreiður á athafnasvæðinu
undanfarin ár, en þetta árið hefur parið ekki látið sjá sig nú í
vor. Hana grunaði að Styrmir hafi flutt sig um set vegna yf-
irvofandi framkvæmda, en til stendur að rífa hús Strætó á
næstunni. Að sögn Elínborgar var karlfuglinn einstaklega gæf-
ur og goggaði reglulega á glugga eldhúss Strætó og voru hon-
um iðulega gefnir ostastrimlar.
Var því brugðið á það ráð að athuga hvort um sömu fugla
væri að ræða og hinar vösku matráðskonur Morgunblaðsins
beðnar um að matreiða nokkrar girnilegar ostssneiðar, og at-
huga hvort Styrmir og frú myndu líta við þeim kræsingum. En
allt kom fyrir ekki, tjaldarnir flögruðu af þaki hússins og harð-
neituðu að ræða við fjölmiðla þegar blaðamaður og ljósmyndari
læddust út á húsþak.
Voru þá góð ráð dýr. Haft var samband við Ævar Petersen,
fuglafræðing og umsjónarmann fuglamerkinga hjá Nátt-
úrufræðistofnun Íslands, og hann beðinn um að koma á vett-
vang og athuga merkingar. En ekki vildi betur til en svo að þeg-
ar Ævar kom í hús hafði parið skotist frá og sat í makindum
sínum á þakskeggi næsta húss og mátti nánast sjá parið glotta í
átt að Ævari og blaðamanni þegar gripið var í tómt. Ævar taldi
þó, af myndum að dæma, að Styrmir hefði verið merktur árið
2001 á Vatnleysuströnd en efaðist um að um sama par væri að
ræða, þ.e. Styrmi og frú og Strætóparið. Hins vegar væri mögu-
legt að Styrmir og frú væri sama parið og verpti á þaki Kringl-
unnar í fyrra, en hún stendur einmitt hinum megin götunnar.
Morgunblaðið/Ásdís
Tjaldurinn Styrmir marseraði fram og aftur á svalahandriðinu fyrir utan skrifstofu ritstjóra Morgunblaðsins í gær.
Strætóparið
hefur ekki
látið sjá sig í ár
Eftir Sigurð Pálma Sigurbjörnson
siggip@mbl.is
FYRIRGREIÐSLA við stjórn-
málaflokka vegna sveitarstjórn-
arkosninga í ár var afgreidd á
fundi ríkisstjórnarinnar í gær-
morgun, en hefðbundið er að fram-
kvæmdastjórar stjórnmálaflokk-
anna fari fram á slíka fyrirgreiðslu
fyrir hverjar sveitarstjórnarkosn-
ingar.
Samkvæmt upplýsingum frá for-
sætisráðuneytinu óska stjórn-
málaflokkarnir eftir því að fá yfirlit
yfir kjörskrárstofna sveitarfélag-
anna. Í öðru lagi að hið opinbera
tryggi að utankjörfundaratkvæða-
greiðslur verði auglýstar og í þriðja
lagi að því sé beint til Íslendinga-
félaga á Norðurlöndum að hægt sé
að kjósa utan kjörfundar.
Fá yfirlit yfir
kjörskrárstofna
ÁKVEÐIÐ hefur verið að vínbúð-
ir ÁTVR á höfuðborgarsvæðinu
verði opnar til 18 á laugardögum,
en fram að þessu hafa einungis
þrjár vínbúðir verið opnar á
laugardögum. Sigrún Ósk Sigurð-
ardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR,
segir þessa breytingu gerða
vegna eindreginna óska frá við-
skiptavinum.
„Þetta er í takt við þá þróun
sem er að verða í þjóðfélaginu.
Laugardagar eru almennt orðnir
miklir verslunardagar. Almennar
verslanir eru orðnar mjög lengi
opnar á laugardögum. Við sáum
þessa breytingu vel í þessum
þremur vínbúðum sem voru opn-
ar hjá okkur. Við þurftum að
hleypa inn í hollum,“ sagði Sig-
rún.
Vínbúðirnar verða framvegis
opnar frá 11:00 til 18:00 á laug-
ardögum. Vínbúðin Heiðrún verð-
ur þó áfram opin frá kl. 9:00, eins
og verið hefur.
Einnig verða vínbúðirnar við
Dalveg og Holtagarða opnar frá
kl. 9:00–20:00 alla virka daga.
Morgunblaðið/Golli
Rýmri afgreiðslu-
tími hjá ÁTVR