Morgunblaðið - 06.05.2006, Qupperneq 65

Morgunblaðið - 06.05.2006, Qupperneq 65
Skrúðganga frá Kompunni kl. 13. Allir vel- komnir. Mokka-Kaffi | Nikulás Sigfússon sýnir vatnslitamyndir af íslenskum villijurtum til 15. maí. Norræna húsið | Sýning á dúkristum eftir börn frá Grænlandi, Færeyjum, Noregi, Danmörku og Íslandi. Viðfangsefnið er píslarsagan – frá páskum til hvítasunnu. Börnin eru nemendur í 6. og 7. bekk í sex skólum á Norðurlöndum. Íslensku þátttak- endurnir er frá Lágafellsskóla og Varmár- skóla í Mosfellsbæ. Næsti Bar | Undanfarin ár hefur Snorri Ás- mundsson þróað með sér andlega tækni í málaralist. Orkuflámamyndir hans sem eru taldar hafa lækningarmátt hafa vakið sterk áhrif hjá áhorfendum. Til 26. maí. Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir sýnir skilti á 20 stöðum víða um borgina. Til 28. ágúst. Salfisksetur Íslands | Anna Sigríður Sigur- jónsdóttir – Dýrið. Til 21. maí. Seltjarnarneskirkja | Málverkasýning Kjartans Guðjónssonar stendur til 7. maí. Suðsuðvestur | Indíana Auðunsdóttir vinn- ur sýningu útfrá samtíma menningu og að þessu sinni tekur hún fyrir metnað og myndugleik smáþjóðarinnar í norðri. Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndir Rob Hornstra eru afrakstur af ferðum hans um Ísland og veita sýn á Ísland nútímans og vitna um samfélagsbreytingar síðustu ára. Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin Huldu- konur í íslenskri myndlist fjallar um ævi og verk tíu kvenna sem voru nær allar fæddar á síðari hluta 19. aldar. Þær nutu þeirra for- réttinda að nema myndlist erlendis á síð- ustu áratugum 19. aldar og upp úr alda- mótum. En engin þeirra gerði myndlist að ævistarfi. Söfn Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Sigríður Bachmann í Skotinu, nýjum sýningarkosti hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur, til 7. júní. Veiðisafnið – Stokkseyri | Uppstoppuð veiðidýr ásamt skotvopnum og veiðitengd- um munum. Opið alla daga kl. 11–18. Sjá nánar á www.hunting.is Þjóðmenningarhúsið | Ný sýning í bókasal: Það gisti óður – Snorri Hjartarson 1906– 2006. Skáldsins minnst með munum, myndum og höfundarverkum hans. Aðrar sýningar: Handritin – m.a. Snorra Edda, Eddukvæðin og Íslendingasögur. Þjóð- minjasafnið svona var það – þegar sýning þess var í risinu. Fyrirheitna landið – vest- urfarar. Þjóðminjasafn Íslands | Boðið er upp á fræðslu og þjónustu fyrir safngesti. Þar eru sýningar auk safnbúðar og kaffihúss. Opið alla daga kl. 10–17. Leiklist Bæjarleikhúsið Mosfellsbæ | Leikfélag Hólmavíkur sýnir gamanleikinn Fiskar á þurru landi eftir Árna Ibsen í leikstjórn Kol- brúnar Ernu Pétursdóttur, sunnudaginn 7. maí kl. 19 í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ. Uppl. og miðapantanir í síma 865 3838 sunnudaginn 7. maí frá kl. 16. Norræna húsið | Samíski leikhópurinn Beaivvás sýnir ævintýrið Skuolfi sem er byggt á samnefndri joikóperu. Einstök upp- lifun í samísku leikhústjaldi, með lifandi ljósi, joik, upplestri og söng inni í sal Nor- ræna hússins. Aðgangseyrir kr. 2000, stúdentar og eldri borgarar kr. 1000. Skemmtanir Hlégarður | Vorfagnaður SÁÁ verður hald- inn í Hlégarði í Mosfellsbæ 12. maí. Fjöl- breytt skemmtiatriði, Geirmundur Valtýs- son leikur fyrir dansi. Miðasala á skrifstofu SÁÁ í Síðumúla 3–5, verð miða með mat er kr. 2.900. Kringlukráin | Hljómsveit Geira Sæm og Tryggvi Hubner með dansleik um helgina. Vélsmiðjan Akureyri | Danshljómsveit Friðjóns leikur fyrir dansi föstudags- og laugardagskvöld. Húsið opnað kl. 22, frítt til miðnættis. Uppákomur Leikskólarnir í Seljahverfi | Börn og starfsfólk leikskóla í Seljahverfi verða með opið hús kl. 11–13. Þá bjóða börnin vanda- mönnum, vinum og öllum þeim sem vilja kynna sér starfsemi og menningu leikskól- anna í heimsókn. Oddi – Félagsvísindahús Háskóla Íslands | Þýski sjónvarpsgrínistinn Manuel Andrack les úr bók sinni sem fjallar í léttum dúr um reynslu hans sem áhangandi þýsks úrvals- deildarliðs. Að auki sýnir hann skyggnur sem varpa gamansömu ljósi á hina þýsku „fótboltasál“. Fer fram í dag kl. 16.15, í Odda, stofu 101. Mannfagnaður Húnvetningafélagið í Reykjavík | Kaffi- samsæti verður í Húnabúð Skeifunni 11, 3. hæð, 7. maí. M.a. syngur Húnakórinn, stjórnandi Eiríkur Grímsson. Húsið opnað kl. 13.30 allir velkomnir. 9. maí kl. 19.30 er aðalfundur félagsins. Skaftfellingabúð | Eldri félögum í Skaftfell- ingafélaginu og gestum þeirra er boðið til kaffisamsætis 7. maí kl. 14, í Skaftfellinga- búð, Laugavegi 178. Söngfélag Skaftfell- inga flytur, Þorsteinn Helgason sagnfr. les úr dagbókum Þorláks Vigfússonar frá Múlakoti á Síðu og að lokum verður stiginn dans undir harmonikkuspili. Fyrirlestrar og fundir Kaffi Hljómalind, lífrænt kaffihús | Vígdís Steinþórsdóttir hjúkrunarfræðingur flytur erindi um mátt hugans kl 14.30. Norræna húsið | Aðalfundur Heilsuhrings- ins verður haldinn 9. maí kl. 20. Að fundi loknum, kl. 8.30 flytur Sigmundur Guðbjarnason, próf. emeritus, erindið: Hvernig virka náttúruefni úr lækninga- jurtum? Aðgangur er ókeypis. Allir vel- komnir. Reykjavíkurborg | Steinar Björgvinsson garðyrkjufræðingur og fuglaáhugamaður fræðir fólk hvernig hægt er að laða fugla að görðum með réttu plöntuvali í Grasa- garði Reykjavíkur 7. maí kl. 11. Í garðinum eru nokkrir varpkassar og fuglaböð. Mæt- ing er í lystihúsinu. Ókeypis fræðsla og allir velkomnir. Fréttir og tilkynningar Ferðaklúbbur eldri borgara | Vegna for- falla eru 4 sæti laus í Færeyjaferð Ferða- klúbbs eldri borgara dagana 30. maí til 9. júní. Einnig er hafin skráning í aðrar ferðir sumarsins. Dagsferð um Reykjanes 24. maí. Ekið um Reykjanes. Verð 3.800 kr., innifalið kaffi og veitingar. Upplýsingar gefur Hannes í síma 892 3011 GA-fundir | Ef spilafíkn að hrjá þig eða þína aðstandendur? Er hægt að hringja í síma: 698 3888. List án landamæra | Handverkssýning og sala í kjallara Hins hússins, Pósthússtræti, á löngum laugardegi kl. 12–17. Handverk til sýnis og sölu. Geðveikt kaffihús í kjallara í umsjá Hugarafls. Kökur og uppákomur í samstarfi við Vesturport. Karnival stemmning. Frístundir og námskeið Magadanshúsið | Magadanshúsið, Ármúla 18, verður með áframhaldandi starfsemi í allt sumar og eru ný námskeið að hefjast. Ný byrjendanámskeið í magadansi verða í hverjum mánuði. Kennarar eru Josy Za- reen, Jóhanna Jónas, Kristína Berman, Rosanna Ragimova og Heiða Jónsdóttir. Danssýning verður 27 maí. Nánari uppl. www.magadans.is Útivist og íþróttir Heiðmörk | Fræðsluganga fyrir alla fjöl- skylduna við Elliðavatn í Heiðmörk. Jón Kristjánsson fiskifræðingur leiðir gönguna. Mæting kl. 11 við Elliðavatnsbæinn. Að- gangur ókeypis og allir velkomnir. Blikastaðakró/Leiruvog | F-listinn býður borgarbúum í gönguferð um Blikastaðakró undir leiðsögn Ástu Þorleifsdóttur jarð- fræðings um síðustu óspilltu ströndina í borginni, með fuglum, fiskum og mögulega sel, undir kjörorðinu „Verndum náttúruna í borginni“. Farið verður frá Geldinganeseiði kl. 11, 7. maí. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2006 65 DAGBÓK Félagsstarf Árskógar 4 | Handverkssýning opin kl. 13.30–16.30. Fallegir munir. Kaffi og gott meðlæti. Allir velkomnir. Breiðfirðingabúð | Fundur verður haldin í Breiðfirðingabúð 8. maí kl. 20. Rætt verður um vorferð. Félagsheimilið Gjábakki | Hin árlega sýning á handunnum munum sem unnir eru af eldra fólki verður í Gjá- bakka í dag, laug. 6. maí, og á morg- un, sun. 7. maí. Sýningin verður opin frá kl. 14–18, báða dagana. Vöfflukaffi. Allir velkomnir. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Vor- sýning. Sýning verður á handverki eldra fólks í Gullsmára laugardaginn 6. og sunnudaginn 7. maí og er opið frá kl. 14–18, báða dagana. Einnig verður myndlistarsýning barna á leik- skólanum Arnarsmára. Vöfflukaffi. Myndlistaklúbbur Gullsmára verður með sölusýningu. Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka daga kl. 9–16.30 er fjölbreytt dagskrá fyrir fólk á öllum aldri, m.a. opnar vinnustofur og spilasalur, sund og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug, kór- starf, dans, „Kynslóðir saman í Breið- holti“ o.m.fl. Veitingar í hádegi og kaffitíma í Kaffi Berg. Strætisvagnar S4, 12 og 17. Hæðargarður 31 | Hæðargarður 31 er hlýleg og falleg félagsmiðstöð sem þú getur heimsótt alla virka daga milli kl. 9–16. Kíktu við, fáðu þér kaffi- sopa, líttu í dagblöðin og skoðaðu dagskrána. Eða komdu með einhverja góða tillögu! Allt tekið til jákvæðrar skoðunar! Fastir liðir eins og venju- lega! Sími 568 3132. Átta konur 12. maí. Kringlukráin | Félagsfundur París, fé- lag þeirra sem eru einar/einir, verður kl. 11.30. Stjórnin. Lífeyrisþegadeild Landssambands lögreglumanna | Síðasti fundur vetr- arins verður haldinn 10. maí kl. 10 að Brautarholti 30. Félagar fjölmennið. Þvottalaugarnar í Laugardal | Sunnudaginn 7. maí verður hinn ár- legi hláturdagur haldinn hátíðlegur um allan heim. Hláturkætiklúbburinn býður til hláturgöngu í Laugardalnum klukkan 13. Lagt verður af stað frá þvottalaugunum og gengið upp í Grasagarð. Ásta og Kristján leiða gönguna. Allir velkomnir. Takið með nesti og góða skapið! Kirkjustarf Bústaðakirkja | Kvenfélag Bústaða- sóknar heldur félags- og skemmti- fund í safnaðarheimilinu mánudaginn 8. maí kl. 20. Félagskonur eru hvattar til að taka með sér gesti. Kaffiveit- ingar. Stjórnin. Ellimálaráð Reykjavíkurprófasts- dæma | og ellimálanefnd þjóðkirkj- unnar efna til sumardvalar fyrir eldri borgara á Löngumýri í sumar. 5 daga dvöl frá mánudegi til föstudags. Um er að ræða tvo hópa í júní og einn í júlí. Þar er mjög góð aðstaða og gott að njóta sumars í sveitasælunni. Uppl. eru gefnar á skrifstofu Ellimála- ráðs f.h. virka daga í síma 557 1666. Grensáskirkja | Fundur verður hald- inn í Safnaðarheimilinu 15. maí kl. 20. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Það verður allsherjar vinnu- og tiltektar- dagur í kirkjunni. Nú á að gera allt fínt fyrir afmælishátíðina. Adda sér um að útbúa góðan mat eins og vana- lega, fyrir fúsar hendur. Við viljum hvetja safnaðarmeðlimi til að mæta. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is HVUNNDAGSLEIKINN tekur á sig ýmsar myndir. Bestur er hann með brosi á vör. Einhvern veginn þannig áhrif hafa smásögur Páls Kristins Pálssonar á mig. Sannast sagna kom hið litla yfirlætislausa smásagnakver hans sem hann nefnir Það sem þú vilt mér þægilega á óvart. Þótt sögurnar 6 í bókinni láti ekki mikið yfir sér við fyrstu sýn með sín- um hversdagslegu viðfangsefnum býr þó margt í textanum. Það sem einkennir þessar sögur er hversu hnitmiðaðar þær eru. Þær eru sagðar í 1. persónu eintölu. Þetta eru sögur af mannlífi í borginni. Aðstæð- ur eru einfaldar, flugferð, setið í sól- baði, beðið á biðstofu hjá lækni o.s.frv. Ein sagan sker sig þó nokkuð úr. Hún er lengri en aðrar sögur bók- arinnar, einhvers konar glæpasaga þar sem glæpurinn bítur í rófuna á sjálfum sér og saga innan í sögunni verður að veruleika. Fyrir bragðið verður sagan margræð. Þetta er skemmtileg til- raun með klass- ískt söguform og vel útfærð. Í sögum sínum fjallar Páll ekki um hin stóru mál þjóðfélagsins. Nær væri að kalla sögur hans dag- stofusögur. Athyglinni er beint að einföldum tilfinningum, afbrýðisem, flughræðslu, ótta við dauða, svo að nokkuð sé nefnt en einnig koma glæpir við sögu. Söguþræðir sagn- anna eru jafnan einfaldir og skýrir og höfundur hefur næmi til að kveikja grun um óvænt endalok. Það er ein- kenni margra þessara sagna að les- andi er togaður inn í sögufléttuna í lokin. Það er hans að vinna sögulokin með höfundinum. Sem fyrr segir er form sagnanna mjög hnitmiðað. Páll hefur augljós- lega legið lengi yfir þeim flestum. Þetta eru fágaðar sögur. Hér eru engir lausir endar. Þegar best lætur byggja þær á hugvitsamlegri mynd- sköpun sem gæðir þær myndrænum og jafnvel ljóðrænum blæ. Á þetta ekki síst við sögurnar Andlit á borði og Vegur inn í skóginn en þær tvær höfða raunar mest til mín. Einn besti styrkur Páls er gott auga hans fyrir samþættingu hins hversdagslega og hins sérstaka í fari persóna sinna. Þær verða fyrir bragðið eftirminnilegar þó að þær séu einungis dregnar fáum skýrum dráttum. Mikilvægur er einnig sá hæfileiki hans að láta lesandann skilja ýmislegt án þess að segja það beinum orðum. Hann treystir á les- endur sína. Í sögum Páls er einatt einhver óleyst gáta með svörum sem vakna til lífsins þegar lesandi lætur höfundinn leiða sig í dansi söguflétt- unnar. Danssporin verða einhvern veginn svo augljós þó að í reynd séu þau flókin. Á bak við allt vakir svo kímið auga rithöfundarins. Það verður því ekki annað sagt en hér sé á ferðinni vandað bókmennta- verk. Það sem þú vilt er yfirlætislaust smásagnakver fullt með kímni og hvunndagslegum viðfangsefnum sem höfundur gæðir lífi með fáguðum og hnitmiðuðum texta og hugvitssemi. Hvunndagsleiki með brosi á vör BÆKUR Smásögur eftir Pál Kristin Pálsson, Jpv-útgáfa. 2006 - 127 bls. Það sem þú vilt Skafti Þ. Hallórsson Páll Kristinn Pálsson Innihaldið skiptir máli Til sölu nokkrar glæsilegar fullbúnar íbúðir í grónu hverfi, 2ja, 4ra og 5 herbergja • Tveggja herbergja 80 m² • Fjögurra herbergja 135 m² • Fimm herbergja 143 m² Baðherbergi eru rúmgóð, 90 cm sturta, baðkar, eikarinnréttingar og fínar flísar. Svefnherbergi er 12 til 16 m² með fallegum eikarskápum. Eldhús eru rúmgóð með góðum borðkrók og eikarinnréttingum. Stofurnar eru 30-40 m² Á gólfum eru flísar og gott eikarparket. Stórar svalir á móti suðri og sérstaklega fallegt útsýni. Stutt í golfvöll. Hrauntún ehf. byggir Uppl. gefur Örn Ísebarn byggingameistari í símum 896 1606 og 557 7060. Dæmi um 5 herbergja íbúð Guðrún Arnalds Kundalini jóga á meðgöngu Námskeið í maí og júní Kennari: Guðrún Arnalds Jóga hjálpar okkur að losa um spennu og mýkja þreytta vöðva. Kennir okkur aukna einbeitingu og líkamsvitund. Eykur orku, styrk og lífskraft. Eiginleikar sem koma sér vel á meðgöngu, í fæðingu og í móðurhlutverkinu. Hugleiðsla - jógaæfingar - meðvituð öndun - dans - slökun Tímar: Andartak, Ármúla 20. Mán. og fim. kl. 19.30 Guðrún s. 896 2396. www.andartak.is, gudrun@andartak.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.