Morgunblaðið - 06.05.2006, Síða 30
30 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Í DAG efnir Sinfóníuhljómsveit Íslands til
ævintýralegra tónleika.
Á tónleikunum verður leikin tónlist sem
heillað hefur börn á öllum aldri, meðal ann-
ars við ævintýrið um Öskubusku eftir
Prokofíev, ævintýrið um Aladdín eftir Carl
Nielsen, Gæsamömmu-svítan eftir Ravel
ásamt fögrum lögum úr söngleikjunum
Fríðu og dýrinu og Galdrakarlinum í Oz.
Ung og hæfileikarík söngkona, Valdís G.
Gregory, mun í fyrsta sinn syngja með Sin-
fóníuhljómsveit Íslands á þessum tón-
leikum. Hún er fædd árið 1985 og hóf korn-
ung tónlistarnám í forskóla og kórskóla
Langholtskirkju. Hún lærði klassískan söng
hjá Signýju Sæmundsdóttur og lauk mið-
stigi vorið 2004. Síðan hefur Valdís sótt
einkatíma hjá Ingveldi Ýri Jónsdóttur þar
sem áherslan hefur verið lögð á söng-
leikjastíl. Síðastliðið sumar var hún í söng-
leikjanámi í Summer Theatre Institute við
DeSales University í Pennsylvaníu í Banda-
ríkjunum og hlaut hæstu einkunn í náminu.
Hún mun hefja söngleikjanám (Musical
Theatre) við University of Hartford í Conn-
ecticut í haust. „Þetta er mjög virtur skóli í
hæsta gæðaflokki og ég er mjög ánægð með
að hafa komist þarna inn,“ segir Valdís.
„Söngleikjatónlist er það eina sem ég hlusta
á og draumur minn hefur alltaf verið að
syngja hana sjálf á sviði.“ Uppáhalds-
söngleikir Valdísar eru Vesalingarnir og
West Side Story.
Tónleikarnir með Sinfóníunni eru fyrstu
stóru tónleikar Valdísar og segist hún
hlakka mikið til að fá að syngja við undir-
leik hennar.
„Ég er ekkert kvíðin, frekar spennt yfir
að komast loks á svið með hljómsveitinni
sem mig hefur dreymt um lengi að vinna
með.“
Þetta eru fjölskyldutónleikar og eru
áheyrendur, bæði börn og fullorðnir, hvattir
til þess koma í ævintýrabúningum og hjálpa
þannig til við að skapa rétta andrúmsloftið.
Tónleikarnir hefjast kl. 16:00 í Há-
skólabíói, hljómsveitarstjóri er Rumon
Gamba og kynnir verður Halla Vilhjálms-
dóttir leikkona.
Tónlist | Valdís G. Gregory syngur með Sinfóníuhljómsveitinni
Ævintýralegir
fjölskyldutónleikar
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Morgunblaðið/ÞÖK
Valdís G. Gregory syngur með Sinfóníu-
hljómsveitinni á ævintýralegum tónleikum.
UM ÞESSAR mundir eru margir
kórar víðsvegar um land um það bil
að ljúka vetrarstarfi sínu og halda af
því tilefni uppskeruhátíðir sínar –
vortónleikana. Nokkrir slíkir verða
haldnir á næstunni; í dag kl. 17 heldur
Selkórinn tónleika í Neskirkju til
styrktar Ljósinu – endurhæfingar-
og stuðningsmiðstöð fyrir krabba-
meinsgreinda og aðstandendur
þeirra. Efnisskráin verður af léttara
taginu og leika nokkrir vel valdir
hljóðfæraleikarar undir með kórnum.
Á morgun efna eldri félagar Karla-
kórs Reykjavíkur til vortónleika
sinna kl. 17 í Digraneskirkju, en
fjörutíu ár eru liðin síðan eldri félagar
hófu starf við hinn 80 ára gamla
karlakór Reykjavíkur. Stjórnandi er
sem fyrr Kjartan Sigurjónsson.
Flutt í fyrsta sinn hérlendis
Kammerkór Seltjarnarneskirkju
ræðst ekki á garðinn þar sem hann er
lægstur, því hann vinnur nú í fjórða
sinn með Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna undir stjórn Pavels Manásek
og heldur tónleika í kirkjunni kl. 17
sem jafnframt eru lokaatriði á
Listahátíð Seltjarnarneskirkju í ár.
Flutt verður Dies irae fyrir kór, ein-
söngvara og hljómsveit eftir barokk-
tónskáldið Caldara og aríur eftir
Mozart, Massenet og Donizetti. Ein-
söngvari í aríunum er Viera Maná-
sek, sópran, en tónleikarnir eru liður í
einsöngvaraprófi hennar frá Nýja
tónlistarskólanum. Einsöngvarar í
Dies irae koma hins vegar úr röðum
kórsins, en ekki er vitað til þess að
Dies irae eftir Caldara hafi áður verið
flutt á Íslandi.
Þá ætlar kirkjukór Hafnarfjarð-
arkirkju að halda árlega vortónleika
sína í kirkjunni kl. 17 á morgun. Að
þessu sinni hefur kórinn samvinnu
við kirkjukór Lindasóknar, en stjórn-
endur kóranna eru þau Svava Kristín
Ingólfsdóttir og Hannes Baldursson.
Flutt verða meðal annars verk eftir
Gounod og Mozart.
Útgáfutónleikar Duo Landon
Duo Landon, sem skipað er fiðlu-
leikurunum Hjörleifi Valssyni og Hlíf
Sigurjónsdóttur, fagnar útkomu
geisladisks sem inniheldur 44 dúó eft-
ir Béla Bartók, sem út kom fyrr í vet-
ur. Geisladiskurinn hefur þegar hlot-
ið góða dóma tónlistargagnrýnenda
bæði hér í Morgunblaðinu og erlend-
is, en nafn sitt dregur dúettinn af fiðl-
unum sem þau leika á, sem eru úr
smiðju franska fiðlusmiðsins Christ-
ophe Landon. Tónleikarnir verða í
Hafnarborg annað kvöld kl. 20.
Raddbandafélag Reykjavíkur
heldur síðan tónleika á mánudaginn
kl. 20 í Laugarneskirkju, þar sem yf-
irskriftin er „Létt og laggott“ og
verður efnisskráin í stíl við hana, en
hópurinn undirbýr um þessar mundir
ferð til Rússlands.
Kórar syngja
inn vorið
Duo Landon heldur útgáfutónleika
í Hafnarborg á morgun.
NORRÆNA húsið býður í dag og á morgun
upp á óvenjulega leikhúsupplifun. Gestum er
boðið í samískt leikhústjald þar sem sönglist
og upplestur við kertaljós skapar óvenjulegt
andrúmsloft. Leiksýningin heitir Skuolfi, eða
Uglan, og er einskonar dæmisaga um mann
sem finnst á fjöllum og hefur alist upp án
tengsla við nútímasamfélag. Leikendur eru
þrír en auk þeirra koma fram hljómlist-
armenn og kór.
Sýningarnar hefjast kl. 17.
Samískt leikhús
ÞAR SEM þessi útskriftarárgang-
ur byrjaði í Nemendaleikhúsi með
einni af bestu sýningum vetrarins,
„Forðist okkur“ eftir Hugleik
Dagsson, og fylgdi því eftir með
hugmyndaríkri, kraftmikilli sýningu
á „Þremur systrum“ eftir Anton
Tjekov, þá kemur maður með mikl-
ar væntingar á þessa þriðju sýn-
ingu þeirra: Spunaverk úr íslensk-
um þjóðsögum fyrir börn.
Metnaðarfullt er viðfangsefnið eins
og þau fyrri og þarft að miðla
áfram þjóðsagnaarfi okkar til yngri
kynslóða.
Þjóðsögurnar sem spunnið er úr
eru meðal annars Búkolla, sögur af
Bakkabræðrum, Nú skyldi ég
hlæja væri ég ekki dauður, Ása,
Signý og Helga, Gilitrutt, Neyttu á
meðan nefinu stendur, saga af Sæ-
mundi fróða og tvær þulur eftir
Theódóru Thoroddsen koma einnig
við sögu. Heimska, kænska, gæska,
vonska, leti og græðgi eru kjarninn
í þjóðsögunum. Í fljótu bragði
mætti ætla að sá einfaldi, alþýðlegi
leikstíll sem Ágústa Skúladóttir
hefur komið með inn í íslenskt leik-
hús undir áhrifum frá Ítölum og
Jaques Leqoc hæfði vel einföldum,
skipulegum frásagnarmáta munn-
mælasögunnar. Og hér getur vissu-
lega að líta ýmsar bráðsmellnar
hugmyndir og lausnir; nemend-
urnir hafa tileinkað sér nokkrar
brellur trúðs- og gamanleiks sem
nýtast þeim til að draga upp gáska-
fullar smámyndir af persónum. En
allt verður það einhvern veginn að
engu af því hér ríkir allsherjar
óreiða. Og í óreiðunni er engin
sögn. Þjóðsögum, söngvum og þul-
um er hrært saman án nokkurs
sýnilegs tilgangs eða merkingar
líkt og væri maður bara kominn á
skólaskemmtun í barnaskóla og að-
alatriðið væri að það væri sungið
svolítið, lesið svolítið og leikið svo-
lítið. Túlkun hverrar sögu er einnig
með afbrigðum grunn og vísar
aldrei neitt út fyrir söguþráðinn.
Nýting rýmisins, ofhleðsla leik-
myndar og tímalausir samantíndir
búningar styrkja óreiðuna og hafa
það samt til síns máls að af þeim
geta börnin lært að hvaðeina í um-
hverfinu má nota í leikhús. Óreiðan
hlýtur að skrifast á leikstjórann og
einn af stærstu göllum okkar Ís-
lendinga, dugnaðinn, sem ég hef
áður í umsögn varað við. Taki
menn að sér að setja upp fimm
sýningar á einum vetri lenda þeir
óhjákvæmilega í því að líkt og í
ævintýri eða þjóðsögu gerist það
einn daginn að í fremsta sæti situr
barn sem endurtekið gegnum alla
sýninguna spyr hástöfum: Hvað er
þetta, mamma?
Hvað er þetta, mamma?
LEIKLIST
Nemendaleikhús í samvinnu
við Þjóðleikhús
VERK byggt á þjóðsögum unnið í sam-
vinnu leikhóps og listrænna aðstand-
enda. Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir.
Leikmynd og búningar: Frosti Friðriksson
og Þórunn Sveinsdóttir. Lýsing: Páll
Ragnarsson. Tónlist: Ragnhildur Gísla-
dóttir. Leikarar: Birgitta Birgisdóttir,
Dóra Jóhannsdóttir, Halldóra Malín Pét-
ursdóttir, Jörundur Ragnarsson, Magnea
Björk Valdemarsdóttir, Stefán Hallur
Stefánsson, Sveinn Ólafur Gunnarson og
Víðir Guðmundsson. Litla sviðið, Þjóð-
leikhúsinu, 4. maí kl. 18.00
Nú skyldi ég hlæja væri ég ekki dauður
Heimska, kænska, gæska, vonska, leti og græðgi eru kjarninn í þjóðsög-
unum sem eru efniviður þessarar sýningar Nemendaleikhússins.
María Kristjánsdóttir
Fréttasíminn
904 1100