Morgunblaðið - 06.05.2006, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2006 55
KIRKJUSTARF OG FERMINGAR 7. MAÍ
Fjölskylduhátíð
Fríkirkjunnar í
Hafnarfirði
í Kaldárseli
Á MORGUN, sunnudaginn 7. maí,
verður fjölskylduhátíð Fríkirkj-
unnar í Hafnarfirði haldin í sumar-
búðum KFUM í Kaldárseli.
Tónlistarfólk Fríkirkjunnar
mætir á staðinn og heldur uppi
miklu fjöri. Farið verður í leiki en
fullorðna fólkinu boðið í gönguferð
um nágrenni sumarbúðanna. Þá
verður að sjálfsögðu grillveisla en
kaffi og veisluborð fyrir fullorðna
fólkið. Dagskráin hefst kl.11 og
þeim sem ekki koma á eigin bílum
uppeftir er bent á rútuferð frá
kirkjunni kl.10:30.
Þetta er sextánda vorið sem slík
fjölskylduhátíð er haldin í Kaldár-
seli og jafnan hafa mætt á fjórða
hundrað manns enda mikil
náttúrufegurð í Kaldárseli og gott
að koma þar saman við sumarbúð-
irnar sem KFUM hefur starfrækt
um áratugaskeið.
Vorferð Safnaðarfélags
Grafarvogskirkju
NÆSTKOMANDI þriðjudag 9. maí
verður farið í hina árlegu vorferð
Safnaðarfélags Grafarvogskirkju.
Lagt verður af stað kl. 19:30 frá
kirkjunni og haldið í Hvalfjörðinn.
Þar verður boðið upp á leiðsögn
um næsta nágrenni við Hótel Glym.
Þar verður kvöldkaffi og listsýn-
ingar á hótelinu skoðaðar, en þær
tengjast meða annars vefnaði,
skúlptúrum og ljósmyndum.
Komið verður til baka kl. 23.
Þátttökugjaldið er kr. 1.000,-
kvöldkaffið innifalið. Allir vel-
komnir.
Barnamessuferð
Grafarvogssafnaðar
EINS og undanfarin ár mun barna-
starfi Grafarvogskirkju ljúka með
hinni árlegu barnamessuferð
laugardaginn 6. maí.
Í þetta sinn verður lagt af stað
kl.10.00 frá Grafarvogskirkju.
Farið verður til Eyrarbakka. Þar
verður barnastund um kl.11:15 í
kirkjunni.
Krakka- og barnakór Grafar-
vogskirkju syngur og barnastarfs-
fólkið mun taka þátt í guðsþjónust-
unni ásamt staðarpresti og
prestum Grafarvogssafnaðar.
Grillað verður fyrir börn og full-
orðna. Komið verður heim um kl.
15.
Aðalsafnaðarfundur
Grafarvogskirkju
AÐALSAFNAÐARFUNDUR Graf-
arvogskirkju verður haldinn eftir
messu sunnudaginn 7. maí. Auk
hefðbundinna aðalsafnaðarfundar-
starfa, verða skýrslur um safnaðar-
starfið lagðar fram. Að lokinni
guðsþjónustu er boðið upp á léttan
hádegisverð.
Fjölskyldu-
guðsþjónusta
í Útskálaprestakalli
SAMEIGINLEG fjölskylduguðs-
þjónusta prestakallsins og loka-
samvera barnastarfsins verður
sunnudaginn 7. maí kl. 11 í safn-
aðarheimilinu í Sandgerði.
Sóknarbörn Breiðholtskirkju
koma í heimsókn og taka þátt í
guðsþjónustunni, ásamt prestum
og starfsfólki. Barnakór kirkj-
unnar, kórstjóri og organisti og
margt góðra gesta sækir okkur
heim og margt verður til gamans
gert. Kirkjugestum verður boðið
að þiggja grillaðar pylsur að lokinn
afhöfn og halda að því loknu út í
Hvalsneskirkju, og eiga þar stund,
hvort heldur í leikjum fyrir utan
kirkjuna eða í kirkjunni við fræðslu
og söng.
Fjölmennum til guðsþjónustunn-
ar, og tökum vel á móti Breiðholts-
söfnuði er við fögnum komandi
sumri og kveðjum veturinn.
Helgistund á Garðvangi sunnu-
dag kl. 15.30.
Sr. Lilja Kristín Þorsteinsdóttir.
50, 60 og 70 ára
fermingarbörn
í Hafnarfjarðarkirkju
SUNNUDAGINN 7. maí nk. sem er
3. sd. eftir páska munu 50, 60 og 70
ára fermingarbörn Hafnarfjarðar-
kirkju sækja messu í kirkjunni kl.
11 en þau voru fermd 1936 á
krepputíð, 1946 ári eftir að heims-
styrjöld lauk og 1956 á endursköp-
unarskeiði eftirstríðsára. Þau hafa
lifað margvísleg umskipti og breyt-
ingar í samfélagi og veraldarsögu
og hafa margs að minnast frá fyrri
tíð sem rifjast upp við endurfundi.
Sr. Gunnþór Þ. Ingason, sóknar-
prestur, mun þjóna við messuna.
Eftir messu munu þessir afmælis-
árgangar fermingarbarna hittast í
hádegisverði og samsæti í Hásölum
Strandbergs. Hjörtur Howser mun
þar leika á flygil.
Lofgjörð og aðalfundur
í Hjallakirkju
NÆSTKOMANDI sunnudag, 7.
maí, verður haldinn aðalsafnaðar-
fundur Hjallasóknar í Kópavogi,
strax að lokinni lofgjörðarguðs-
þjónustu kl. 11.
Í guðsþjónustunni mun Þorvald-
ur Halldórsson, tónlistarmaður,
leiða safnaðarsönginn á sinn ein-
staka hátt. Að henni lokinni hefst
aðalsafnaðarfundurinn og munu
venjuleg aðalfundarstörf fara þar
fram. Léttur hádegisverður er
fram borinn á meðan fundurinn
stendur yfir. Allir velkomnir.
Kirkjudagur
Kálfatjarnarkirkju
KIRKJUDAGUR Kálfatjarnar-
kirkju verður sunnudaginn 7. maí.
Dagskráin hefst með guðsþjónustu
í Kálfatjarnarkirkju kl. 14. Guðrún
Ásmundsdóttir, leikkona prédikar
og Carlos Ferrer, sóknarprestur
þjónar fyrir altari. Kór Kálfatjarn-
arkirkju leiðir söng undir stjórn
Frank Herlufsen.
Kaffisala kvenfélagsins Fjólu í
Tjarnasal Stóru-Vogaskóla að
guðsþjónustu lokinni. Allur ágóði
af kaffisölunni rennur í styrktar-
sjóð félagsins.
Leikmannamessa
í Vídalínskirkju
SUNNUDAGINN 7. maí verður
leikmannamessa í Vídalínskirkju
kl.11:00. Nanna Guðrún Zoega
djákni leiðir guðsþjónustana en
Helgi K. Hjálmsson flytur hugleið-
ingarorð og segir m.a. frá leik-
mannastarfi þjóðkirkjunnar. Kór
Vídalínskirkju og Jóhann Baldvins-
son leiða lofgjörðina. Ragnheiður
Helga Sæmundsdóttir og Jóhann
Sigurðsson lesa ritningarlestra, en
bænagjörðin er leidd af Jóhönnu
Ólafsdóttur og Hjalta Karlssyni.
Þegar kemur að predikun er þeim
börnum sem koma til guðsþjónust-
unnar boðið yfir í safnaðarheimili
en þar munu systkinin Hafrún Lilja
Haraldsdóttir og Haraldur Axel
Haraldsson vera með kirkjulegt
tómstundahorn. Sjá www.garda-
sokn.is. Allir velkomnir.
Samvera og sumarferð
eldri borgara
í Laugarneskirkju
SÍÐASTA samvera eldri borgara í
Laugarneskirkju á þessum vetri
verður fimmtudaginn 11. maí. Þá
mun Þorvaldur Halldórsson syngja
dægurperlur og Sigurbjörn Þor-
kelsson framkvæmdastjóri safn-
aðarins leiða stundina.
En þótt síðasta samveran af
þessu tagi sé runnin upp að sinni
erum við hvergi nærri hætt, því á
döfinni er ferð eldri borgara í Skál-
holt þar sem sr. Bernharður Guð-
mundsson og hans góða starfsfólk
mun taka á móti okkur af sinni
rausn í glæsilegum húsakynnum
Skálholtsskóla.
Lagt verður í hann þriðjudaginn
23. maí kl. 14 og komið heim að
nýju á uppstigningardegi 25. maí
þegar haldin verður hin árlega
guðsþjónusta eldri borgara með
tertukaffi í safnaðarheimilinu.
Innsetning í
Keflavíkurkirkju
SUNNUDAGINN 7. maí kl. 20
setur sr. Gunnar Kristjánsson
prófastur í Kjalarnesprófastsdæmi
sr. Skúla S. Ólafsson inn í embætti
sóknarprests við Keflavíkur-
prestakall. Athöfnin fer fram í
Keflavíkurkirkju og að henni lok-
inni verður kirkjugestum boðið til
samsætis í safnaðarheimili kirkj-
unnar.
Sr. Skúli þjónar fyrir altari
ásamt sr. Sigfúsi Baldvin Ingva-
syni. Kór Keflavíkurkirkju syngur
undir stjórn Hákons Leifssonar
organista kirkjunnar.
Vorhátíð barna-
og æskulýðsstarfs
Bústaðakirkju
LOKASAMVERA í barnastarfi Bú-
staðakirkju verður sunnudaginn 7.
maí og hefst hún kl. 11. Að lokinni
helgistund í safnaðarsalnum okkar
á neðri hæð verður samvera úti á
kirkjuplaninu, þar sem farið verð-
ur í leiki og grillað. Allir sem hafa
tekið í þátt í barnaguðsþjónustum,
TTT-starfinu ásamt öðru starfi
kirkjunnar í vetur eru hjartanlega
velkomnir og mega taka með sér
gesti.
Vorhátíð í
Árbæjarkirkju
VIÐ fögnum vorinu með fjölskyldu-
guðsþjónustu um morguninn og
léttmessu um kvöldið í Árbæjar-
kirkju. Fjölskylduguðsþjónustan er
samvinnuverkefni Fylkis og kirkj-
unnar. Leikhópurinn Perlan kemur
í sína árlegu heimsókn með leik-
ritið sitt og er sá góði hópur orðin
sannur vorboði hjá okkur í Árbæn-
um. Fimleikadeild og Karatedeild
Fylkis koma og sýna listir sínar.
Barn verður borið til skírnar. Eftir
stundina í kirkjunni verða grillaðar
pylsur og þær seldar gegn vægu
gjaldi. Meðan pylsurnar grillast er
boðið uppá „stífluhlaup“ og þau
sem eru í formi skokka þriggja km
hring og verðlaunin eru vellíðan
fyrst og fremst, en líka pylsa og
svaladrykkur.
Um kvöldið heldur vorhátíðin
áfram. Söngvarinn Bjarni Ara
mætir með hljómsveit og ætlar að
syngja með Gospelkór Árbæjar-
kirkju undir stjórn Krisztínu Kalló
Szklenár. Margrét Ólöf Magnús-
dóttir djákni leiðir stundina.
Þráinn Haraldsson guðfræðinemi
flytur prédikun.
Fjölmennum í Árbæjarkirkju á
sunnudaginn, allir velkomnir.
Aðalsafnaðarfundur
í Háteigskirkju
AÐ venju verður messa og barna-
guðsþjónusta klukkan 11 í Háteigs-
kirkju. Eftir messu verður boðið
upp á léttan hádegisverð. Að því
loknu verður haldinn aðalsafnaðar-
fundur í safnaðarheimili kirkjunn-
ar. Þar fara fram venjuleg aðal-
fundarstörf, skýrslur og reikning-
ar lagðir fram og kosning til
sóknarnefndar.
Sóknarfólk er hvatt til að koma
og taka þátt í messu og fundi.
Sumarhátíð barna-
og æskulýðsstarfs
Lágafellskirkju
SUMARHÁTÍÐ barna- og æsku-
lýðsstarfs Lágafellskirkju verður
sunnudaginn 7. maí kl. 13.30. Þang-
að eru allir velkomnir sem tekið
hafa þátt í safnaðarstarfi kirkjunn-
ar þetta starfsár. Sumárhátíð þessi
er samvera sunnudagaskóla, for-
eldramorgna, kirkjukrakka, TTT-
starfsins og æskulýðsfélagsins.
Farið verður í leiki og pylsur grill-
aðar handa öllum þátttakendum.
Í lok samverunnar verður stutt
söng- og bænastund í kirkjunni.
Sumarhátíðin verður eins og áður
segir í og við Lágafellskirkju. Allir
velkomnir.
Vöfflukaffi og barna-
starf í Fríkirkjunni
í Reykjavík
SÍÐASTA barnaguðsþjónusta vors-
ins kl. 14. Þema guðsþjónustunnar
er upprisa Jesú Krists og það að
vera kristin manneskja. Fastir liðir
eru helgisagan, söngur og biblíu-
myndir. Pétur Markan spilar á
gítarinn og Ása Björk Ólafsdóttir
Fríkirkjuprestur leiðir stundina.
Andabrauð er í lok stundarinnar,
en síðan göngum við saman upp í
Safnaðarheimilið við Laufásveg,
þar sem Lovísa bíður okkar með
kaffi, safa og vöfflur. Samfélagið
heldur áfram.
Safnaðarferð
Breiðholtssóknar
SUNNUDAGINN 7. maí munum við
í Breiðholtssókn fara í safn-
aðarferð til Sandgerðis. Lagt verð-
ur af stað frá Breiðholtskirkju kl.
9:45 að morgni og komið til baka
u.þ.b. kl. 16.
Í Sandgerði munum við eiga
helgistund í safnaðarheimilinu, þar
sem sr. Lilja Kristín Þorsteins-
dóttir, sem þjónaði við Breiðholts-
kirkju í nokkur ár, mun taka á móti
hópnum. Hún mun síðan sýna okk-
ur merka staði í nágrenninu eins
og t.d. Hvalsneskirkju, þar sem
Hallgrímur Pétursson byrjaði sinn
prestskap. Að sjálfsögðu er miðað
við að þetta verði ferð fyrir alla
fjölskylduna og er dagskráin
skipulögð í samræmi við það.
Ferðin kostar 1000 kr. fyrir full-
orðna, en ókeypis er fyrir börn.
Innifalið er rútuferð, ásamt mat og
kaffi. Vonandi sjáumst við sem
flest.
Vorhátíð barna- og
æskulýðsstarfs
Seltjarnarneskirkju
VORHÁTÍÐIN hefst með fjöl-
skylduguðsþjónustu kl.11. Barna-
kór kirkjunnar syngur falleg lög
og trúðurinn Gunnsó fræðir börnin
á sinn einstaka hátt. Biblíusaga,
söngur og bæn. Eftir guðsþjón-
ustuna verður boðið upp á pylsu og
svala í safnaðarheimili kirkjunnar.
Lúðrasveit tónlistarskóla Seltjarn-
arness spilar af miklum krafti.
Uppblásin rennibraut verður fyrir
utan kirkjuna og allir fá blöðrur.
Andlitsmálning og leikir. Allir vel-
komnir.
Starfsfólk Seltjarnarneskirkju.
Morgunblaðið/ÓmarFríkirkjan í Hafnarfirði
Ferming í Seljakirkju 7. maí kl. 14.
Prestur: Sr. Bolli Pétur Bollason.
Fermdar verða:
Hólmfríður Sara Geirsdóttir,
Engjaseli 67.
Glódís Baldursdóttir,
Brekkuseli 32.
Tinna Rut Hauksdóttir,
Engjaseli 65.
Rakel Ýr Jóhannsdóttir,
Vallengi 11.
Ferming í Selfosskirkju 7. maí kl. 11.
Prestur: Sr. Gunnar Björnsson.
Fermd verða:
Axel Arnþór Þrastarson,
Sunnuvegi 12.
Einar Daði Gunnarsson,
Engjavegi 4.
Jóhanna Kristín Elfarsdóttir,
Tjaldhólum 13.
Sarah Þrastardóttir,
Sunnuvegi 12.
Þórhildur Helga Guðjónsdóttir,
Álftarima 36.
Ferming í Selfosskirkju 7. maí kl. 14.
Prestur: Sr. Gunnar Björnsson.
Fermdur verður:
Daníel Geir Einarsson,
Hrísholti 19.
Ferming í Eyrarbakkakirkju
7. maí kl. 13.30.
Prestur sr. Úlfar Guðmundsson.
Fermd verða:
Erling Ævarr Gunnarsson,
Háeyrarvöllum 6.
Guðmundur Einar Vilbergsson,
Túngötu 24.
Guðrún Telma Þorkelsdóttir,
Túngötu 26.
Kamil Daníel Sigurðarson,
Mundakoti 2.
Lilja Viktoría Guðbjörnsdóttir,
Eyrargötu 42.
María Ósk Guðmundsdóttir,
Túngötu 47.
Rakel Ýr Gunnlaugsdóttir,
Háeyrarvöllum 30.
Sandra Sif Sigvardsdóttir,
Foldahrauni 42, Vestmannaeyjum.
Ferming í Hveragerðiskirkju 7. maí kl. 10.30.
Prestur sr. Jón Ragnarsson.
Fermdir verða:
Andri Már Agnarsson,
Kambahrauni 52.
Elíeser Þór Jónsson,
Heiðmörk 6b.
Helgi Þór Jóhannsson,
Dynskógum 7.
Hjalti Valur Þorsteinsson,
Laugarskarði.
Ívar Örn Guðjónsson,
Heiðarbrún 5.
Ferming í Stykkishólmskirkju 7. maí kl. 14.
Prestur: Séra Gunnar Eiríkur Hauksson.
Fermd verða:
Aron Freyr Svansson,
Garðaflöt 10.
Helgi Jóhann Ellertsson,
Sundabakka 13.
Ívar Sindri Karvelsson,
Ásklifi 1.
Kristjana Þrastardóttir,
Laufásvegi 11.
Rúnar Kúld Heimisson,
Vallarflöt 8.
Fermingar 7. maí