Morgunblaðið - 06.05.2006, Page 52

Morgunblaðið - 06.05.2006, Page 52
52 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ GuðmundurGuðmundsson Lúðvíksson fæddist á Raufarhöfn 9. jan- úar 1941. Hann lést á Dalvík 29. apríl síðastliðinn. For- eldrar hans voru Sigurveig Jóhann- esdóttir húsmóðir, f. 21.2. 1905 á Gras- hóli í Presthóla- hreppi, d. 9.1. 1988, og Magnús Mar- teinn Lúðvík Ön- undarson, sjómaður og bátasmiður, f. 1.8. 1904 í Kumblavík á Langanesi, d. 10.3. 1995. Systkini Guðmundar voru Björn, f. 15.1. 1929, kvæntur Björgu Hrólfsdóttur, Ása, f. 4.11. 1931, gift Einari Guðmundssyni, Helga, f. 31.7. 1935, gift Guðmundi Friðrikssyni, og Sigríður, f. 20.8. 1938, gift Guðbirni Yngvarssyni. Guðmundur eignaðist dótturina Ölmu Jennýju, f. 13.1. 1959. Móðir hennar er Katrín Oddsteinsdóttir húsmóðir, f. 14. desember 1939, en foreldrar hennar voru Alma Jenný Sigurðardóttir og Oddsteinn Gíslason. Alma á soninn Kolbein Huga, f. 3.4. 1979 með Höskuldi Má Haraldssyni og soninn Arnald, f. 28.1. 1993 með fyrrv. eigin- manni sínum, Sigurði H. Karls- syni. Árið 1962 kvæntist Guðmundur Kristbjörgu Hallsdóttur húsmóð- ur, f. 13.2. 1943. Foreldrar hennar voru Kristín Haraldsdóttur og Hallur Þorsteinsson. Guðmundur og Kristbjörg eignuðust þrjár dæt- ur. Þær eru 1) Ása, hársnyrtir, f. 4.12. 1960. Hún eignaðist tvö börn öndru Perez, f. 11.1. 2002. 2) Berg Lúðvík, sjávarútvegsfræðing, f. 14.7. 1977. Sambýliskona hans er Andrea Ásgrímsdóttur. Þau eiga saman Ásu Bríeti, f. 21.9. 2003, og Helga, f. 20.6. 2005. Guðmundur ólst upp á Raufar- höfn frá 1941. Hann gekk í barna- og unglingaskólann á Raufarhöfn til ársins 1955. 15 ára fór hann á vertíð fyrst suður á nes og síðan til Vestmannaeyja. Hann settist síðan að á Raufarhöfn og vann þar ýmis störf við sjóinn, vann á síldarplön- um, reri á trillum, vann við báta- smíðar og var verkstjóri í frysti- húsinu Jökli h/f á árunum 1964–1973. Hann reri á grásleppu og þorskanet í nokkur ár en veiktist þá í baki og þurfti að hætta sjó- mannsstörfum um tíma. Hann setti þá á stofn saumastofuna Úskála og rak hana á árunum frá 1976–1986. Á Útskálum unnu þegar flest var 15 starfsmenn og voru aðallega saumaðar ullarflíkur fyrir Álafoss og Sambandið. 1986 hætti Guð- mundur rekstri saumastofunnar og sneri sér að útgerð og keypti fyrsta bátinn sinn Ásu Björgu sem reyndist farsæll bátur. Guðmund- ur átti marga báta eftir það og var ávallt fengsæll sjómaður. Síðustu árin var hann búsettur á Akureyri og gerði út frá Dalvík. Hann var einmitt að gera sig kláran á sjóinn þegar hinsta kallið kom. Guðmundur sinnti félagsmálum í mörg ár. Hann var um tíma for- maður Verkalýðsfélags Raufar- hafnar, sat í hreppsnefnd og stjórn frystihússins Jökuls á Raufarhöfn. Hann bar ávallt sterkar taugar til Raufarhafnarkirkju og sat í sókn- arnefnd í fjöldamörg ár. Hann sat í stjórn Landssambands smábáta- eigenda á árunum 1996–2006. Útför Guðmundar verður gerð frá Raufarhafnarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. með fyrrv. eigin- manni sínum Karli Ingvasyni, Særúnu Björgu, f. 25.11. 1985, sambýlismaður hennar er Jón Óskar Gunnlaugsson, og Al- exander, f. 6.11. 1991. 2) Kristín, stýrimaður, f. 14.5. 1962. Hún á tvær dætur: A) Ásu Björgu, f. 22.2. 1980. Faðir hennar er Árni Heiðar Árnason. Ása Björg er gift Ko- styantin Yakovliev. B) Sylvíu Mekkín, f. 8.7. 1988. Faðir hennar er Anton Narvaez. 3) Sigurveig, flugfreyja, f. 12.6. 1964. Sambýlis- maður hennar er Önundur Jó- hannsson. Árið 1971, skildu þau Guðmundur og Kristbjörg. Hinn 15. október 1972 kvæntist Guðmundur Líneyju Helgadóttur, kennara, f. 22.6. 1949. Hún er dótt- ir Líneyjar Jóhannesdóttur og Helga M. Bergssonar. Guðmundur ættleiddi og gekk í föðurstað dótt- ur Líneyjar, Helgu Þórdísi, tónlist- arkennara, f. 24.2. 1969. Eigin- maður hennar er Ólafur Magnús Birgisson og eiga þau þrjár dætur, Líneyju Rögnu, f. 2.4. 1996, Gunn- laugu Margréti, f. 23.12. 1997, og Birgittu, f. 6.9. 2003. Ólafur átti áður soninn Daníel Má, f. 14.1. 1992. Saman áttu Guðmundur og Líney synina: 1) Friðmund Helga, sjómann, f. 6.7. 1974. Hann kvænt- ist Borghildi Freyju Rúnarsdóttur og eiga þau Guðrúnu Jóhönnu, f. 24.11. 2001. Núverandi sambýlis- kona Friðmundar er Merrizel Inot Perez og á hún dótturina Kass- Faðir minn, Guðmundur Lúðvíks- son frá Raufarhöfn, varð bráðkvadd- ur laugardaginn 29. apríl sl. Með þessum orðum vil ég minnast ákaflega góðs föður og afa, mikils vin- ar og ekki síst stórbrotins manns. Ég var orðin 11 ára gömul þegar ég hitti hann fyrst. Það var ekki að vilji stæði ekki til þess að við hitt- umst, heldur voru aðstæður þannig að leiðir foreldra minna skildi og ég ólst upp hjá mömmu og stjúpa mín- um í Stykkishólmi. Fyrir 40 árum og rúmlega það voru löng ferðalög miklu meira mál en þau eru í dag, alla leið til Raufarhafnar að fara og þá að „hlut- irnir voru bara svona“. Ég átti mynd af honum og man hvað mér þótti hann fallegur og hugs- aði gjarnan um það hvers konar mann hann hefði að geyma. Þegar sá dagur rann upp að við hittumst var ég óskaplega feimin við hann en jafnframt forvitin. Upp frá þeim tíma sem við hitt- umst fyrst fór ég nokkuð reglulega til Raufarhafnar og fannst það ævinlega mikið ævintýr. Strax fyrsta sumarið mitt fann ég að hér var á ferðinni ák- flega hlýr og skemmtilegur pabbi. Systur mínar sem ég var einnig að sjá fyrsta sinni, Ása, Stína og Sibba, leiddu mig líka mjög fljótlega í sann- leika um það að skemmtilegri pabba væri eflaust hvergi að finna, svo rammur væri hann. Ég öðlaðist full- vissu um það strax þetta fyrsta sum- ar að þær vissu sínu viti. Þarna kynntist ég einhverjum mesta sagna- manni sem ég hef kynnst fyrr og síð- ar. Það voru hátíðlegar stundir á hverju kvöldi, ef ég man rétt, og mik- ið tilhlökkunarefni, þegar við vorum háttaðar og … framan úr eldhúsi fór að heyrast: „Jæja,“ með þungri áherslu, „er þá ekki kominn tími á eina sögu?“ Og hvílíkar sögur – alger- lega ekta, langar, dró seiminn þegar við átti, öll smáatriði með og maður fann að hann var staddur á sögustað og var að lýsa því sem þar fyrir bar. Það var annað mjög sterkt ein- kenni á pabba og þá ekki síst gagn- vart okkur börnunum hans sem og barnabörnum að hann fékk mann til að finnast maður mjög sérstakur og búa yfir alveg stórmerkilegum eigin- leikum. Sérstaklega tók maður eftir því þegar hann var að tala við barna- börnin að það tognaði ævinlega úr þeim og þau komu auga á hluti sem urðu oft í þeirra augum að hreinu gulli. Við urðum öll svo rík á því að vera í kringum hann. Ríkidæmi í huga pabba var náttúr- an í öllu sínu veldi, samferðafólk og litróf mannlífsins. Hann las einhver ósköp og var mjög fróður um land, lönd og sögu en merkilegast fannst honum þó mann- lífið í allri sinni mynd. Það speglaðist svo undur vel í sögunum hans því hann hafði yndi af því að segja sögur. Það sem einkenndi þær var hvað hon- um virtist þykja smæstu hlutir í lífinu merkilegir og hvað hann bar mikla virðingu fyrir söguefni sínu, sem oft- ar en ekki snerist um fólk og atvik því tengd. Þær persónur, atburðir og hlutir sem okkur virðast alla jafna venjulegir og ekkert sérstaklega eft- irtektarverðir urðu að hinum mergj- uðustu sögum og eftir stóð hjá manni svo mikil virðing fyrir „hinu litla og smáa“ í daglegu lífi okkar mannanna. Pabbi hafði mikið yndi af lífinu, var mikið í pólitík á sínum yngri árum, sveitarstjórnarmálum, og alls kyns félagsmálastörfum. Hann naut góðra bókmennta, var mikill djassáhuga- maður. Seinna meir þegar hann var fluttur á Akureyri gekk hann í Fær- eyingafélagið, Harmonikufélag og fé- lag djassáhugamanna með meiru. Hann gegndi trúnaðarstörfum fyr- ir stjórn smábátaeigenda um alllangt skeið og svo mætti áfram telja. Hann hafði svo holla sýn á lífið. Það var mikið gott að tala við hann um líf- ið og tilveruna. Ef hún vafðist eitt- hvað fyrir manni þá var enginn betri að tala við en hann. Ég man að einhverju sinni sem mér fannst óþægilega mikill mótbyr að ég sagði honum að ég væri orðin svo þreytt á því að velja mér á köflum svo erfiðar leiðir í lífinu. Svar hans til mín var það að ég skyldi ævinlega muna það að það væru alltof margir sem veldu sér aldrei neina sérstaka leið, flytu með straumnum og það gæti aldrei orðið ávísun á hamingju til langframa. Pabbi og Líney, eftirlifandi eigin- kona hans, voru eitt í mínum huga. Þau höfðu að mörgu leyti mjög lík viðhorf til lífsins og voru náin. Þau áttu saman Helgu, Mumma og Begga. Strákunum mínum, Kolbeini Huga og Arnaldi Smára, þótti svo undur vænt um afa sinn og líkt og mér þótti þeim mikið til hans koma og þær stundir sem við höfum átt með hon- um gersemar einar. Hann gaf okkur svo fallegt veganesti út í lífið með við- horfum sínum og viðmóti. Við mun- um halda í heiðri minningu hans með því að tileinka okkur eitthvað af öllu því góða sem hann gaf okkur. Heimurinn er fátækari við fráfall hans. Alma Guðmundsdóttir. Elsku besti pabbi minn, nú þegar þú ert farinn í ferðina löngu sem kom eins og reiðarslag 29. apríl síðastlið- inn sit ég hér með sjálfri mér og hugsa. Þá koma upp svo margar góð- ar minningar í huga mér um okkar samverustundir í gegnum tíðina. Þú varst svo skemmtilegur og góður karakter og frásagnarlist þín var engu lík, þú varst alltaf hrókur alls fagnaðar þar sem þú komst. Þegar ég var lítil stelpa á Raufarhöfn var alltaf svo spennandi að bíða eftir sögu- stundum frá þér á kvöldin og voru þar tröllasögurnar þínar um Fettir- ófu, Blátönn og Depilrössu í miklu uppáhaldi hjá okkur systrum og ekki vantaði þig hugmyndaflugið í sögurn- ar. Mín börn voru svo lánsöm að fá að kynnast þessari frásagnarlist þinni þegar þú komst í heimsókn suður eða við til þín norður. Aðskilnaður okkar þegar ég var 11 ára var mér oft erfiður og ég saknaði þín oft mikið, en með tímanum lærði ég að njóta augnablikanna þegar við hittumst og ég geymi þessi augnablik í huga mér eins og hin dýrustu djásn. Eftir að við dæturnar urðum full- orðnar fannst okkur mikið til þess koma þegar þú komst suður í heim- sókn og fórst með okkur út að borða. Þá sagðir þú alltaf: „Nú halda allir að ég sé olíufursti með kvennabúrið mitt,“ og við hlógum. Það var alltaf stutt í húmorinn hjá þér. Elsku pabbi, ég er svo þakklát fyr- ir að hafa fengið að fagna nýju ári 2006 með þér og Líneyju ásamt hluta af okkur systkinum og barnabörnum þínum. Það hafði ég ekki upplifað í 34 ár og áttum við skemmtilega kvöldstund saman sem endaði með glæsilegri danssýningu þér til heiðurs, og ég sem hafði hugsað mér að geyma hana þangað til síðar. Ég bið góðan Guð um styrk okkur aðstandendum þínum til handa og ég veit að heimurinn er fátækari við frá- fall þitt. Þín verður sárt saknað. Sum ykkar segja: „Í heimi hér er meira af gleði en sorg, og aðrir segja: „Nei, sorgirnar eru fleiri.“ En ég segi þér: Sorgin og gleðin ferðast saman að húsi þínu, og þegar önnur situr við borð þitt, sefur hin í rúmi þínu. (Kahlil Gibran.) Elsku pabbi minn, hvíl þú í friði. Þín Ása. Laugardaginn 29. apríl, snemma morguns, sat ég um borð í seglskútu í Tyrklandi og var að ræða um þig við vini mína, upplýsa þá um þig og þína hagi. Mér hlýnaði um hjartarætur þegar ég hugsaði til þess að þegar ég kæmi heim til Íslands yrði það mitt fyrsta verk að hringja til þín og bjóða þér að koma með í siglingu í Tyrk- landi í sumar. Ég sá þig fyrir mér, á sjónum, sem var þinn vettvangur eins og kastali er fyrir konung, í léttri bómullarskyrtu, með kaskeiti jafnvel, gleypandi í þig allt það nýja og framandi sem fyrir augu myndi bera. Alsæll, forvitinn um hag fólksins, opinn, eins og þér var einum lagið. Þér yrði tekið opnum örmum hvar sem við færum. Ég hlakkaði mikið til þessarar viku. Hugsaði með mér, nú fáum við gott tækifæri til að vinna upp tapaðan tíma sem orsakaðist hér áður fyrr af fjarlægð og seinna meir af tíma- skorti. En skjótt skipast veður í lofti. Þennan sama dag lagði ég upp að bryggju rétt búin að koma landfest- um fyrir þegar hringt var og mér til- kynnt að þú hefðir dáið um morgun- inn. Í fyrstu hugsaði ég með mér hvernig á því stæði að þú hefðir verið svona ofarlega í huga mér þennan morgun. Var það tilviljun? Var ég skyggn? Nei, því fer fjarri. Ég var bara svo oft að hugsa til þín. Næstum því daglega, stundum meira, stund- um minna, oftast með miklum sökn- uði. Leiðir okkar skildu fyrir mörgum árum. Skilnaður sem var okkur báð- um mjög sár. Lítil hnokka, klædd í rautt heimaprjónað sjal, á flugvellin- um á Raufarhöfn. Við kvöddumst og vissum bæði að þessi kveðjustund var þung og erfið þótt við reyndum að láta lítið á því bera. Seinna meir vissi ég að þessi stund var þér miklu erf- iðari heldur en nokkurn mann grun- aði. Við töluðum um þetta fyrir nokkru og þá ákváðum við að við yrðum að bæta okkur þetta einhvern veginn upp, vinna upp töpuð ár, tapaðan tíma, kynnast hvort öðru. Það var nú samt ekki alveg sam- bandslaust. Ég kom alltaf í heimsókn á sumrin. Það var alltaf gott að koma norður, svo mikil ævintýri. Útilegur, sjóferð- ir, útivera, svo óendanlega gaman að vera með þér. Þú varst svo fróður um umhverfið þitt, með svo næmt auga fyrir fegurðinni í náttúrunni, varst ólatur við að miðla öllu því góða sem í þér bjó, nema sósuuppskriftunum. Sælkeri í hástert og þegar kom að sósugerðinni voru allir reknir út úr eldhúsinu því röðin var komin að sós- unni og þá gat enginn verið að flækj- ast fyrir. Þú ert það mesta náttúrubarn sem ég þekki. Jarðbundinn og laus við allt heimsins prjál.Fyrir þig var mikil- vægt að lifa í sátt og samlyndi við bæði menn og dýr.Þú hafðir ótrúlegt jafnaðargeð, varst góður sögumaður, ég hafði yndi af að hlusta á þig. Ég sá þig aðeins einu sinni reiðan, verulega reiðan. Ég var aðeins fimm ára gömul og ákvað að gera smágagn og „flikka aðeins upp á“ gamla vöru- bílinn þinn, með ljósgrænni báta- málningu sem ég fann inni í bílnum og málaði ég allt innanstokks í stýr- ishúsinu og var viss um að þér þætti þetta flott. En það var nú öðru nær. Elsku pabbi. Nú er komið að ann- arri skilnaðarstund í lífi okkar, ekki síður erfiðri en þeirri fyrstu en þó vit- andi það að öll eigum við eftir að kveðja þetta jarðlíf, fyrr eða seinna. Með það fyrir augum ætla ég að „græja“ mér heimaprjónað, rautt sjal, sem ég mun klæðast þegar minn tími kemur. Við tökum þá upp þráð- inn þar sem frá var horfið. Gildi lífsins verður ekki metið eftir lengd þess heldur hvernig því er lifað. Ég kveð þig með söknuði. Þín dóttir Sigurveig (Sibba). Nú sárnar það, vinur, hve veik eru hljóð og vanmáttug orðin á tungu; en flestum er ofætlun, íslenska þjóð að eiga að kveða þeim skilnaðar ljóð, sem lengi’ og svo ljómandi sungu. Þó nú hafi skuggarnir skeiðið þitt stytt, þá skína þó ljóðin í heiði; þau breiða’ yfir næturnar norðurljós sitt á nafnið þitt kæra, og á ættlandið þitt og verða þér ljómi’ yfir leiði. (Þ. Erl.) Hafðu þökk fyrir allt, elsku bróðir og mágur. Ása og Einar. Horfinn er af sjónarsviðinu vinur okkar, mágur og svili, Guðmundur Lúðvíksson frá Raufarhöfn. Hann varð bráðkvaddur að morgni laugar- dagsins 29. apríl aðeins sextíu og fimm ára gamall. Ljúfur maður og hæglátur, en dugnaðarforkur og ósérhlífinn. Hann var tilfinningarík- ur, bókelskur og listfengur. Glettnin var sjaldan fjarri og hann átti ein- staklega auðvelt með að sjá hinar skoplegu hliðar lífsins. Hann hafði góða frásagnarhæfileika og kunni býsn af sögum af samferðamönnum sínum, lífs og liðnum. Hann talaði kjarnmikið, fallegt mál sem margir Norður-Þingeyingar hafa enn á valdi sínu án þess þó að vottaði fyrir nokk- urri tilgerð í framburði eða orðavali. Hann var ævinlega kallaður Gvendur af vinum sínum og fjölskyldu og til aðgreiningar frá öðrum nöfnum sín- um á Raufarhöfn var hann kallaður Gvendur Lúlla. Sjómennskan var ævistarf Guð- mundar. Hann var að vísu verkstjóri í frystihúsinu um tíma og einnig rak hann saumastofu á Raufarhöfn í nokkur ár, en sjómennskan blundaði alltaf í honum og síðustu árin stund- aði hann sjóinn svo til eingöngu á trillunni sinni. Fyrr á árum var Guðmundur ákaf- lega pólitískur, fylgdi Alþýðubanda- laginu hart að málum og sat í hrepps- nefnd Raufarhafnarhrepps fyrir þann flokk. Hann beitti sér fyrir ýms- um framfaramálum í þágu sveitarfé- lagsins og honum sveið ef hann þurfti að lúta í lægra haldi fyrir pólitískum andstæðingum. Hann var einlægur talsmaður þeirra sem minna mega sín í þjóðfélaginu og varð fljótt heitt í hamsi þegar rætt var um auðsöfnun, einkavæðingu og ýmsa aðra fylgi- fiska hins frjálsa hagkerfis. Um- hverfismál og verndun hinnar villtu náttúru voru honum hugleikin og lítil var hrifning hans á yfirstandandi virkjunarframkvæmdum. Með árun- um dofnaði áhugi hans á flokkspóli- tík, en alla tíð var hann staðfastur vinstri jafnaðarmaður og hafði óbeit á þeirri óheftu einkavæðingarstefnu sem nú er rekin. Líf Guðmundar var ekki alltaf dans á rósum. Það skiptust á skin og skúrir eins og gengur, en hann átti góða fjöl- skyldu, sem hann unni og sem unni honum. Heilsan var löskuð þótt fáir vissu en hann lét það ekki aftra sér í baráttunni. Hann unni sér sjaldan hvíldar og var við vinnu sína þegar kallið kom. Guðmundur fæddist á Raufarhöfn og þar var hans heima. Örlögin hög- uðu því hins vegar svo að þau hjónin, Líney og hann, fluttu sig til Akureyr- ar fyrir nokkrum árum og settust þar að. Hann stundaði hins vegar sjó frá Dalvík því mun lengra er á mið frá Akureyri en þaðan. Hann saknaði hins vegar alltaf Raufarhafnar. Nú þegar komið er að leiðarlokum snýr Gvendur Lúlla aftur heim og mun hvíla í kirkjugarðinum á Rauf- arhöfn. Í rúmlega þrjátíu ár höfum við ver- ið þeirrar gæfu aðnjótandi að vera samferðamenn Guðmundar Lúðvíks- sonar. Þegar horft er til baka eru þessi ár eins og örskot, en því miður GUÐMUNDUR G. LÚÐVÍKSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.