Morgunblaðið - 06.05.2006, Page 18
18 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Úr bolta
í bisness
á morgun
ÚR VERINU
SU
MA
RSKÓ
R
fyrir
hressa
krakka
Flottur sundpoki fylgir
hverju keyptu pari.
BORGARNESI S: 437 1240
Meðan birgðir endast.
EINAR K. Guðfinnsson sjáv-
arútvegsráðherra sótti á miðvikudag
og fimmtudag norræna ráðstefnu í
Færeyjum um hagræna fisk-
veiðistjórn og auðlindarentu. Á ráð-
stefnunni var m.a. kynnt áfanganið-
urstaða norræns rannsóknarhóps
um hagræna útkomu fiskveiðistjórn-
unar á Norðurlöndum að slepptu
Finnlandi.
Eyjólfur Guðmundsson, deild-
arforseti við Háskólann á Akureyri,
kom meðal annarra að vinnu hópsins
og kynnti sérstaklega íslenska hluta
rannsóknarinnar. Carl-Christian
Schmidt, forstöðumaður fiski-
máladeildar OECD, og Ásgeir Daní-
elsson, hagfræðingur Seðlabanka Ís-
lands, fluttu fræðileg inngangserindi
um hagræna fiskveiðistjórn og
Kjartan Hoydal, framkvæmdastjóri
Norðaustur-Atlantshafsfiskveiði-
nefndarinnar, NEAFC, flutti erindi
um almennar forsendur fisk-
veiðistjórnunar. Á ráðstefnunni voru
tvennar pallborðsumræður. Sú fyrri
um almenna framkvæmd fiskveiði-
stjórnar á Íslandi, Danmörku, Fær-
eyjum og Grænlandi. Friðrik Már
Baldursson, prófessor við Háskóla
Íslands, tók þátt í þeim fyrir Íslands
hönd.
Í lok ráðstefnunnar var síðari pall-
borðsumræðan þar sem sjáv-
arútvegsráðherrarnir Einar K. Guð-
finnsson og Björn Kalsö frá
Færeyjum sátu fyrir svörum ásamt
Amalie Jessen, ráðuneytisstjóra
sjávarútvegsráðuneytisins á Græn-
landi. Megininntak umræðunnar var
spurningin um auðlindarentu,
hvernig hún myndaðist og ráðstöfun
hennar. Svaraði Einar K. fjölmörg-
um fyrirspurnum úr sal um íslenska
fiskveiðistjórnunarkerfið.
Um hundrað gestir sóttu ráð-
stefnuna frá sex löndum.
Í tengslum við ráðstefnuna var
haldinn óformlegur fundur sjáv-
arútvegsráðherra Vestnorrænu
ríkjanna þriggja; Íslands, Færeyja
og Grænlands. Í forföllum græn-
lenska ráðherrans sótti ráðuneyt-
isstjóri hans fundinn. Þar var m.a.
rætt um mikilvægi góðrar og náinn-
ar samvinnu þjóðanna bæði í sjávar-
útvegi og á öðrum sviðum með sér-
staka áherslu á hvernig styrkja megi
norrænt samstarf á sviði sjávar-
útvegs.
Norræn ráðstefna um
hagræna stjórn fiskveiða
Ráðstefnur Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra, Björn Kalsö, sjáv-
arútvegsráðherra Færeyja, og Amalie Jessen, ráðuneytisstjóri sjávarútvegs-
ráðuneytisins á Grænlandi, sitja fyrir svörum um sjávarútvegsmál.
Í NÝLOKNUM leiðangri á rann-
sóknaskipinu Árna Friðrikssyni, þar
sem unnið var að neðansjávar-
myndatökum botnveiðarfæra í
mynni Arnarfjarðar, náðust óvænt
einstakar myndir af skipsflaki. Flest
bendir til að um sé að ræða flak af
skútunni Gyðu BA, sem fórst með 10
manns árið 1910. Stærð og staðsetn-
ing flaksins er 65°51́129 N og
023°58́332 V. Flakið fannst er áhöfn
Árna Friðrikssonar RE 200 var við
neðansjávarmyndatökur í Arnarfirði
nú fyrir skemmstu þar sem fylgst
var með virkni veiðafæra. „Leiðang-
ursmönnum brá óneitanlega við
þessa uppákomu þar sem alltaf er
hætta á árekstri þegar verið er að
mynda á ferð svo nálægt botni, en
flakið liggur á 55 metra dýpi á slétt-
um sand- og leirbotni. Lega flaksins
á botninum er þannig að vörpur fara
auðveldlega yfir það, sem ef til vill
skýrir hvers vegna það hefur ekki
uppgötvast fyrr,“ segir í frétt frá
Hafrannsóknastofnuninni.
Frá þessu er einnig sagt á vefsíð-
unni www.bildudalur.is og segir þar
svo:
„Eins og sagt er frá hér á síðunni
þá var áhöfn Gyða BA var í eigu Pét-
urs Thorsteinssonar athafnamanns á
Bíldudal. Í nóvember 1953 fékk
Frigg BA mastrið af Gyðu BA upp í
rækjutrolli og var minnisvarði til
minningar um áhöfn Gyðu BA reist-
ur á Bíldudal sumarið 1954 og var
mastrið hluti minnisvarðans.
Árið 2003 var mastrið endurnýjað
við minnisvarðann og flaggað fyrst á
því er hátíðin Bíldudals grænar var
sett í fyrsta sinn. Mastrið sem nú
stendur er úr 50 tonna bát sem var
síðast hér á Bíldudal og hét Katrín
BA en áður Gísli Júll ÍS og var þá frá
Ísafirði.“
Gamalt skipsflak finnst
í mynni Arnarfjarðar
Tvíburabræðurnir
Arnar og Bjarki
Gunnlaugssynir
Vestmannaeyjar | Í gær var formlega
opnað útibú Fiskistofu í Vest-
mannaeyjum. Starfsmenn eru þrír
en mun væntanlega fjölga á næstu
mánuðum. Verkefni útibúsins er eft-
irlit með framleiðslu frystihúsa um
allt land og bakvinnsla á gögnum um
innvegið magn hráefnis og magn af-
urða. Er þetta liður í að færa störf
Fiskistofu út á land í meira mæli en
útibúið í Eyjum er hrein viðbót.
Hlynur Sigmarsson er for-
stöðumaður en með honum eru Jóna
Sigríður Guðmundsdóttir viðskipta-
fræðingur og Ingólfur Ingólfsson
fiskitæknir. Viðstaddir opnunina
voru Einar Kr. Guðfinnsson sjáv-
arútvegsráðherra, Geir Haarde ut-
anríkisráðherra, Guðjón Hjörleifs-
son alþingismaður og formaður
sjávarútvegsnefndar og Þórður Ás-
geirsson fiskistofustjóri.
Hlynur sagði í samtali við Morg-
unblaðið að þau yrðu þrjú til að byrja
með en á næstu mánuðum verður
fjölgað í fimm. „Helsta verkefni okk-
ar til að byrja með er eftirlit með öll-
um frystihúsum á landinu þannig að
við verðum talsvert á ferðinni,“ sagði
Hlynur. „Starfið felst í að við mætum
á staðinn, förum ofan í bókhald fyr-
irtækjanna og berum saman fram-
leiddar afurðir og aðkeypt hráefni.
Síðan tekur við bakreikningur til að
sjá hvort allt stemmir.“
Stofnun útibús Fiskistofu í Vest-
mannaeyjum er liður í ákvörðun
sjávarútvegsráherra og Þórðar Ás-
geirssonar fiskistofustjóra að flytja
störf út á land. Fyrir eru starfs-
stöðvar á Ísafirði og Akureyri en nýj-
ar verða settar upp í Grindavík, á
Hornafirði og í Stykkishólmi. Þar er
um að ræða tilfærslu á störfum en
Hlynur segir að Vestmannaeyjar séu
hrein viðbót.
„Þetta er mjög jákvætt fyrir bæj-
arfélagið. Við þrjú búum öll í Vest-
mannaeyjum og vorum í góðum
störfum, ég hjá Sparisjóðnum, Jóna
hjá Vestmannaeyjabæ og Ingólfur
hjá Fiskverkun Narfa. Þessi störf
losna um leið og við byrjum hér og
þetta er því hrein viðbót hér í Eyj-
um.“
Hlynur hefur undanfarin ár verið
formaður handknattleiksdeildar
ÍBV. Verður framhald á því með nýju
starfi? „Við erum að klára tímabilið
og þó strákarnir hafi ekki náð sæti í
fyrstu deildinni gerðu stelpurnar það
gott, stóðu uppi sem Íslandsmeist-
arar og voru hársbreidd frá því að
vinna deildarbikarinn. Þetta hefur
verið mikið starf en skemmtilegt en
ég hef ákveðið að klára næsta tímabil
og stefni á að þá verði handboltinn
hjá ÍBV réttum megin við núllið,“
sagði Hlynur að lokum.
Útibú Fiskistofu opnað
í Vestmannaeyjum
Morgunblaðið/Sigurgeir
Ráðherrar, fiskistofustjóri og starfsmenn voru viðstaddir opnun Fiskistofu í Vestmannaeyjum.