Morgunblaðið - 06.05.2006, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 06.05.2006, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2006 23 ERLENT Puerto Iguazu. AFP. | Evo Morales, forseti Bólivíu, hét því á leiðtoga- fundi, sem haldinn var vegna þeirrar ákvörðunar forsetans að þjóðnýta gas- og olíulindir lands- ins, að Bólivíumenn myndu sjá grannríkjunum Brasilíu og Arg- entínu fyrir nægu jarðgasi. Leið- togar grannríkjanna létu þó í ljósi áhyggjur af hugsanlegum verðhækkunum vegna þjóðnýt- ingarinnar. „Tryggt hefur verið nægilegt framboð á jarðgasi,“ sagði Nestor Kirchner, forseti Argentínu, eftir fimm klukkustunda fund með for- setum Bólivíu, Brasilíu og Vene- súela í Puerto Iguazu, argent- ínskum bæ við landamærin að Brasilíu og Paragvæ. Argentína og Brasilía eru mjög háð jarðgasi frá Bólivíu sem er með næstmestu gaslindir Róm- önsku Ameríku á eftir Venesúela. Um helmingurinn af jarðgasi, sem notað er í Brasilíu, kemur frá Bólivíu. Verðið sem Bras- ilíumenn greiða er langt undir heimsmarkaðsverði og Banda- ríkjamenn greiða að minnsta kosti fjórum sinnum meira fyrir jarðgas. Boðað var til fundarins með skömmum fyrirvara eftir að Mor- ales tilkynnti þjóðnýtinguna á mánudaginn var. Forsetarnir sögðu í yfirlýsingu eftir fundinn að breytingar á jarðgasverðinu ættu að endurspegla „jafnvægi milli framleiðenda og kaupenda“. Reuters Nestor Kirchner, forseti Argentínu (t.v.), með starfsbræðrum sínum, þeim Evo Morales frá Bólivíu, Luiz Inacio Lula da Silva frá Brasilíu og Hugo Chavez frá Venesúela á leiðtogafundinum í Puerto Iguazu á fimmtudag. Lofar að sjá grann- ríkjum fyrir jarðgasi Stokkhólmi, Jerúsalem. AP, AFP. | Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, varði í gær þá ákvörðun sænskra yfirvalda að veita ráð- herra í heimastjórn palestínsku Hamas-samtakanna, Atef Atwan, vegabréfsáritun. Áritunin merkir að Atef getur farið til allra ríkjanna 15 sem taka þátt í Schengen-samstarfinu um afnám landamæraeftirlits. Stjórnvöld í Ísrael gagnrýndu Svía hart og sama gerði talsmaður franskra stjórnvalda og ýmsir sænskir stjórnmálamenn. „Besta leiðin til að kalla fram jákvæðar breytingar hjá Palestínustjórn er að halda sig við þau skilyrði sem kvartettinn [Evrópusambandið, Bandaríkin, Rússland og Samein- uðu þjóðirnar] hefur sett,“ sagði Mark Regev, talsmaður ísraelska utanríkisráðuneytisins. „Það mun ekki reynast hjálplegt í því ferli að veita hryðjuverkamönnum, sem ekki hafa séð að sér, yfirbragð lög- mætis.“ Persson sagði ákvörðunina í fullu samræmi við reglur Scheng- en og vísaði gagnrýni Ísraela á bug. Tveimur palestínskum embætt- ismönnum hefur áður verið neitað um vegabréfsáritanir til Svíþjóðar. Svíar veittu Hamas- ráðherra áritun Wellington. AFP. | Flóðbylgjuvarna- kerfi brugðust er jarðskjálfti varð í sunnanverðu Kyrrahafi, skammt frá eyjunni Tonga, á þriðjudag. Íbúar Tonga fengu enga viðvörun, líklega sökum þess að rafmagn fór af í skjálftanum, sem hefði getað haft al- varlegar afleiðingar, að sögn stjórn- anda flóðbylgjuvarnarstöðvarinnar í Hawaii, Gerards Fryer. Fryer sagði að farið yrði nákvæm- lega ofan í það hvers vegna Tonga og öðrum litlum eyjum á svæðinu barst ekki viðvörunin. Fryer viðurkenndi ennfremur að samskipti milli stöðvarinnar á Hawa- ii og fjölmiðla á Nýja Sjálandi hefðu getað verið betri, en stöðin sendi fyrst frá sér viðvörun um að hætta væri á að flóðbylgja, tsunami, skylli á landinu í kjölfar skjálftans. Fimmtán mínútum síðar dró stöð- in viðvörunina til baka, enda þá ljóst að engin hætta væri á flóðbylgju á Nýja Sjálandi. Þau skilaboð bárust hins vegar ekki fjölmiðlum í landinu, sem þýddi að næstu tvær klukku- stundirnar fluttu þeir áfram fregnir um að hætta væri á flóðbylgja skylli á landinu. Þýddi þetta að fjöldi fólks flýði heimili sín að óþörfu. Átján mánuðir eru liðnir síðan 216.000 manns létu lífið í Indónesíu, Taílandi og víðar í risaflóðbylgju, tsunami, sem varð í kjölfar jarð- skjálfta í Indlandshafi. Hann mæld- ist níu á Richter og skjálftinn í fyrra- dag var 8,6; því urðu menn áhyggjufullir um að sambærilegar hamfarir yrðu líka að þessu sinni. Kanna hvers vegna engin við- vörun barst Washington. AFP. | Porter Goss hef-ur sagt af sér sem forstjóri banda- rísku leyniþjónustunnar, CIA. George W. Bush, Bandaríkjaforseti, tilkynnti þetta í Hvíta húsinu í Washington í gær. Ekki kom fram hver ástæða afsagnarinnar var en Bush sagði að Goss hefði eflt öryggi Bandaríkjamanna í forstjóratíð sinni. Goss gegndi embættinu í tvö ár og hefur verið afar umdeildur hjá CIA en í tíð hans hafa verið gerðar miklar skipulagsbreytingar á ör- yggismálum landsins. Hann hefur gripið til harkalegra ráðstafana til að reyna að koma í veg fyrir að starfsmenn leki mikilvægum leyndarmálum í fjölmiðla en einn- ig reynt að gera starf leyniþjón- ustunnar árang- ursríkara. Nokkrir hátt- settir menn CIA hafa sagt upp í tíð Goss, þ. á m. John McLaughlin, aðstoðarforstjóri CIA, einnig að- stoðaryfirmaður á sviði aðgerða, Stephen Kappes, auk nokkurra valdamikilla liðsmanna á sviði leyni- legra aðgerða. Goss hættir sem forstjóri CIA Porter Goss
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.