Morgunblaðið - 06.05.2006, Síða 24

Morgunblaðið - 06.05.2006, Síða 24
Bókhlöðustígur 6c Einstakt tækifæri í hjarta borgarinnar. Til sölu: Tvær íbúðir með sérinngangi eru nú í húsinu en eignin býður upp á mikla möguleika hvort sem er sem einbýlishús, tvíbýlishús, gistiheimili eða til atvinnureksturs. Húsið stendur á 410,0m² eignarlóð og er um 300 m² gróðursæll garður sunnan við. Eigninni fylgir hellulagt einkabílastæði við Bókhlöðustíg. Afhending er 1. ágúst eða fyrr eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar veitir Edda Þórarinsdóttir í síma 8966041 eða í tölvupósti eddath@simnet.is. Myndir á http://homepage.mac.com/arnason.s • Efri hæð 4 herbergja 94,7m² • Neðri hæð 4 herbergja 94,2m² • Eignarlóð 410,0m² • Einkabílastæði Óskað er eftir tilboðum í Bókhlöðustíg 6c, steinhús byggðu árið 1927. Reykjavík | Nemendur Hlíðaskóla eru duglegir að nota leiksvæðið á Miklatorgi. Börn voru um allt svæðið einn góðviðrisdaginn. Hér sjást Valborg Sunna og Kristel í góðri sveiflu. Morgunblaðið/Eggert Í góðri sveiflu Leikur Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Blikur eru á lofti í atvinnumálum á Suð- urnesjum vegna breytinganna á Keflavík- urflugvelli og margir komnir í atvinnuleit. Eftir því sem næst verður komist hefur tuttugu og einum starfsmanni varnarliðsins sem búsettir eru í Sandgerði verið sagt upp störfum. Margir þeirra hafa sérþekkingu á búnaði sem þarna er notaður og vonandi fá þeir allir vinnu við sitt hæfi sem fyrst.    Líf er að færast í bæjarpólitíkina í Sand- gerði. Fjögur framboð verða að þessu sinni en talsverðar breytingar. Sandgerðislistinn sem bauð fram undir listabókstafnum Þ við síðustu kosningar hefur nú gengið til liðs við Samfylkinguna undir S-merkinu. K- listinn sem heldur upp á fjörutíu ára afmæli sitt um þessar mundir hefur verið stærsta pólitíska aflið í Sandgerði í öll þessi ár. Að honum stóðu lengst af alþýðuflokksmenn og óháðir. K-listinn býður enn fram þótt Samfylkingin hafi sagt skilið við listann. Sjálfstæðismenn fara nýjar leiðir því í fyrsta skipti fer sitjandi bæjarstjóri í fram- boð á D-lista sjálfstæðismanna. Framsókn- armenn eru með sitt B eins og venjulega. Á öllum listum eru nokkrar breytingar á efstu sætum. Töluverð fjölgun er á kjör- skrá því margir hafa flutt hingað á síðustu mánuðum og misserum. Það er því mikið verk framundan hjá frambjóðendum að kynna sig og stefnumálin í bæjarpólitíkinni.    Hefð er komin á það að bæjarfulltrúar og makar þeirra fari saman í ferðalag eina helgi á hverju kjörtímabili. Að þessu sinni var farið til útlanda. Flogið var frá milli- landaflugvellinum í Sandgerði til gömlu höfuðborgarinnar, Kaupmannahafnar, og sú ágæta borg skoðuð undir leiðsögn Guð- laugs Arasonar rithöfundar Þótt stutt sé til kosninga og hiti byrjaður að færast í baráttuna var ákveðið að bæj- arpólitíkin yrði skilin eftir heima svo makar þyrftu ekki að hlusta á pólitískt þras í tíma og ótíma. Ef einhverjum varð á í messunni í þessu efni, kannski eftir einn danskan öl, heyrðist fljótt „bless, bless“ frá einhverjum makanum. Þessi aðferð er að sjálfsögðu fengin að láni hjá flugfreyjunni í Spaugstof- unni og hún svínvirkaði alla ferðina. Úr bæjarlífinu SANDGERÐI EFTIR REYNI SVEINSSON FRÉTTARITARA Krakkarnir á leikskól- anum Grænatúni voru svo ánægð með heimsóknina að þau máluðu málverk af Kletti og Lukku, aðalleik- urum í sýningunni, og gáfu SPK. Leikskólar í Í tilefni af 50 afmæliSparisjóðsins íKópavogi, SPK, bauð sparisjóðurinn öll- um leikskólabörnum í Kópavogi að sjá brot úr söngleiknum Hafið bláa. Kópavogi eru 20 talsins og stóðu heimsóknirnar yfir dagana 20. til 23. mars. SPK hefur komið málverkinu fyrir á vegg á þjónustustað sínum á Digranesvegi 10. Listaverk Listamennirnir á Grænatúni færa SPK myndina. Leikskólabörn gefa málverk Rúnar Kristjánssoná Skagaströndbrá sér í borg- arferð í febrúar. Var þetta reynslurík ferð og þegar heim var komið orti hann um umferðina í höfuðborginni: Heim ég sótti höfuðborg, hljóður gekk um stræti og torg. Hávaða ég heyrði og org, horfði í augu full af sorg. Friðsæld séð þar fráleitt var, fátt mér veitti gleðisvar. Inn í hjartað eitthvað skar eins og hnífur væri þar. Svo í bíl ég brautir fór, barst að eyrum véla kór. Ekki var ég ýkja rór, ægðu hraðagildin stór. Keyrslan öll var reynslurík, rann mér sviti um hverja flík. Enda fannst mér engu lík umferðin í Reykjavík! Af umferðinni í Reykjavík pebl@mbl.is Hellisheiði | Stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga fagnar hugmyndum sem Sjóvá hefur kynnt stjórninni um einka- framkvæmd á fjögurra akreina upplýstum vegi á milli Selfoss og Reykjavíkur og hvet- ur samgönguráðherra og yfirvöld sam- göngumála til að kanna rækilega mögu- leika á slíkri framkvæmd. „Áhugi fyrirtækisins sýnir svo ekki verður um villst að um arðsama fram- kvæmd er að ræða. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga leggja mikla áherslu á að þessum bráðnauðsynlegu samgöngubótum verði hraðað eins og kostur er og telja að hér gefist einstakt tækifæri sem rétt sé að grípa,“ segir í ályktuninni. Jafnframt var á stjórnarfundi í fyrradag samþykkt að óska eftir fundi með sam- gönguráðherra, þingmönnum kjördæmis- ins og forstjóra Sjóvár-Almennra um mál- ið. Fagna hug- mynd um einkafram- kvæmd á Hellisheiði Akranes | Bæjarráð Akraness hefur sam- þykkt að Akraneskaupstaður leiti eftir samvinnu við Reykjavíkurborg um launa- og kjaramál. Ákvörðunin kemur í kjölfar óskar Starfsmannafélags Akraness (StAk) um að félagið sameinist Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar. Fram kemur á vef Skessuhorns að þegar laun verða löguð að launum borgarstarfsmanna þýði að laun sumra starfsmanna Akraneskaupstaðar geti hækkað á þriðja tug prósenta. Forystumenn Akraneskaupstaðar og starfsmannafélagsins viðurkenna í samtöl- um við Skessuhorn að óánægja hafi verið með störf Launanefndar sveitarfélaga. Kostnaður kaupstaðarins vegna þessa hef- ur ekki verið metinn en Magnús Guð- mundsson bæjarráðsfulltrúi telur líklegt að hann verði um 70–80 milljónir kr. á ári í upphafi. Í Skessuhorni kemur fram hjá Karli Björnssyni, framkvæmdastjóra Launa- nefndar sveitarfélaga, að búið hafi verið að hækka laun allra starfsmanna sveitarfé- laganna, nema þeirra hæstlaunuðu. Á hon- um er að skilja að breytingin á Akranesi skili einungis hækkunum til þess hóps. Laun bæjar- starfsmanna hækka ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.