Morgunblaðið - 06.05.2006, Side 27

Morgunblaðið - 06.05.2006, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2006 27 MINNSTAÐUR Húsavík | Bæjarráð Húsavík- urbæjar fagnar því að loks skuli hilla undir varanlega vegagerð með Jökulsá á Fjöllum af hring- vegi niður á þjóðveg 85 í Keldu- hverfi. Ályktun þess efnis var samþykkt samhljóða. „Með umræddri vegagerð næst fram marga ára baráttumál og mikilvægt hagsmunamál byggð- anna og ferðaþjónustunnar á svæðinu. Umrædd vegtenging vestan Jökulsár er lykilatriði varðandi aðgengi að Þjóðgarð- inum í Jökulsárgljúfrum sem opn- ar um leið mjög áhugaverða hringleið á svæðinu sem nefnd hefur verið Demantshringurinn,“ segir m.a. í ályktuninni. Þá er á það bent að vegur vestan ár tengi betur saman byggðina við Öx- arfjörð og í Mývatnssveit en veg- ur austan ár. Bæjarráð harmar þá neikvæðu afstöðu sem fram kemur í at- hugasemdum stjórnar Land- verndar til Skipulagsstofnunar vegna fyrirhugaðrar vegagerðar. Að mati bæjarráðs lýsa þær skiln- ingsleysi á aðstæðum og hags- munum heimamanna. Bæjarráð hvetur skipulags- yfirvöld í landinu til þess að fall- ast á umrædda vegagerð vestan ár og samgönguyfirvöld til þessa að tryggja eins hraða fram- kvæmd verksins og kostur er. Fagnar fyr- irhuguðum Dettifossvegi væri svo ánægður með vélina að ég vildi fá að skila henni.“ Hann hafði nefnilega æst sjálfan sig upp í að kaupa vél sem kostaði tvær og hálfa milljón. „Og til þess að trúa því að ég ætti að gera það þá bætti ég við þessari sjálfsblekk- ingu: Svo ætla ég að verða bestur! Þessi hugsunarháttur er nátt- úrlega hollur en hann er líka mjög erfiður. Maður leggur sig allan fram. Verkefnið verður lífið sjálft.“ Þú ert ekki margir menn Örn Ingi hefur í gegnum árin leikstýrt út um allt land, haldið 30 myndlistarsýningar. Hann hefur mikið unnið í fjölmiðlum; segist hafa gert 200 útvarpsþætti og 30 sjónvarpsþætti og sú reynsla sam- einist í einu auga á bak við lins- una. „Konan mín segir stundum: At- hugaðu að þú ert ekki margir menn. Kannski er ég það samt. Ég er blanda af manni sem getur ver- ið duglegur og húðlatur, eða svo virðist stundum vera. En þá er ég að hugsa.“ Örn Ingi er jafnan með mörg járn í eldinum. Frá því í haust hef- ur hann skilað af sér þremur heimildarmyndum. „Ein þeirra er um síðasta mánuðinn í Húsabakka- skóla, önnur um listahátíð í Mos- fellsbæ sem tengdist 100 ára af- mæli Halldórs Laxness og sú þriðja var gerð í tilefni 30 ára af- mælis fyrirtækisins Hölds, sem var fyrir tveimur árum.“ Hann hefur unnið mikið en seg- ist aldrei hafa yfirkeyrt sig. „Ég er frjáls í þessu hugtaki sem tím- inn er. Ég hef gaman af hinu óvænta. Óvænt atburðarás getur orðið til þess að listaverk verður betra. Ef eitthvað datt í gólfið og brotnaði þegar ég vann að mynd- list gat ég notað það. Ég nýti allt sem fer úrskeiðis sem bendingu um það að ég hafi verið stoppaður af til þess að fara aðra leið sem verður betri. Þess vegna er myndin að hluta til dulræn. Og sá sem hingað kem- ur á ekki bara að setjast niður og annaðhvort hlæja eða verða súr. Þetta hefur allt tilgang.“ fullri lengd í eigin sal Barnalist | Fimm ára börn á leik- skólanum Klöppum opna sýningu á myndverkum á Bókasafni Háskólans á Akureyri í dag kl 13. Þau hafa í vet- ur tekið þátt í rannsóknarverkefni um fagurfræðilega upplifun barna. Verkefnið er unnið af Rósu Kristínu Júlíusdóttur lektor í myndlista- kennslu við Háskólann á Akureyri og Valgerði Dögg Jónsdóttur heim- spekingi. Sjónþing | Í tengslum við opnun sýningarinnar HOMESICK - For- tíðarfíkn eða nauðsyn? verður Sjón- þing í dag í Deiglunni kl. 13. Þátttak- endur í pallborðsumræðum verða Ólafur Árni Ólafsson, Libia Pérez de Silez de Castro, Nevin Aladag, Guy Ben-Ner, Haraldur Jónsson, Hann- es Sigurðsson og Christian Schoen. SKÓLASTEFNA Akureyrar var gefin út í vikunni í fyrsta skipti og lögðu fulltrúar flokka í minnihluta og meirihluta bæjarstjórnar áherslu á að sérlega góð samstaða hefði verið á milli allra flokka við þá vinnu. Skólanefnd ákvað í febrúar 2003 að hefja vinnu við mótun þessarar heildstæðu skólastefnu. Ákveðið var að þar skyldi lögð áhersla á framtíð- arsýn þannig að skilyrði til uppeldis og menntunar barna í leikskólum, grunnskólum og tónlistarskóla væru ávallt til fyrirmyndar, s.s. með fram- sæknu skólastarfi, vel menntuðu og hæfu starfsfólki, góðum starfsskil- yrðum barna og starfsfólks og vönd- uðu húsnæði. Einkunnarorð skóla- stefnunnar eru þekking, leikni, virðing, vellíðan og voru fulltrúar allra flokka í skólanefnd sammála um að mjög vel hafi til tekist. Skólaþróunarsvið kennaradeildar HA aðstoðaði við stefnumótunar- vinnuna og veitti ráðgjöf. Á fundi bæjarráðs var svo í vik- unni samþykkt 15 milljón króna fjár- veiting til tölvukaupa fyrir grunn- skóla Akureyrarbæjar. Fjárveiting þessi er til ráðstöfunar fyrir skóla- nefnd til kaupa á fartölvum fyrir kennara við grunnskóla bæjarfélags- ins. Skólastjórar allra skólanna fengu fyrstu tölvurnar afhentar við athöfnina þegar skólastefnan var formlega gefin út. Ný skólastefna: þekking, leikni, virðing, vellíðan

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.