Morgunblaðið - 06.05.2006, Síða 34
34 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF Í MAÍ
Ferðir til Hringeyjaklasans
Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason
mun gefa íslenskum ferðamönnum
hlutdeild í því besta sem hann hefur
notið í Grikklandi með því að stýra
ferðum til Hringeyjaklasans (Cycla-
des) í gríska Eyjahafinu í sumar. Egill
hefur dvalið á grísku eyjunum á sumr-
um síðasta áratuginn og er þaulkunn-
ugur á þessum slóðum, eins og fram
kemur á vef ferðaskrifstofunnar
Prímu Emblu sem stendur fyrir ferð-
unum.
Alls verða fjórar tveggja vikna ferðir í
sumar og haust og fyrsta ferðin verð-
ur 1.–15. júní. Flogið er með Icelandair
til London og þaðan með Olympic
Airlines til Aþenu. Gist er á 4 stjörnu
hóteli í miðborg Aþenu í eina nótt á
útleið og eina nótt á heimleið. Flogið
frá Aþenu til Naxos og gist þar í tólf
nætur. Naxos er grónasta eyjan í klas-
anum og þaðan er hægt að fara í
lengri og styttri ferðir til nágranna-
eyja eins og Mykonos, Paros og Delos.
Góðar strendur eru á grísku eyjunum
og sjórinn hreinn. Hafgolan gerir að
verkum að ekki er of heitt í veðri. Litlu
hringeyjarnar eru einnig skammt frá
Naxos og auk þess er sérstaklega
mælt með eins til tveggja daga ferð til
Santorini, eins og fram kemur í upp-
lýsingum frá Prímu Emblu.
Kynning á ferðunum í máli og
myndum verður haldin að Stang-
arhyl 1, mánudaginn 8. maí klukk-
an 20
ÍSLENDINGURINN Guðrún
Ingibjörg Gunnarsdóttir, sem bú-
sett er í Orlando á Flórída, hefur
nú komið sér upp
ferðaþjónustu í
sólarríkinu
vestra og býður
áhugasömum Ís-
lendingum upp á
margþætta þjón-
ustu, sem felst
m.a. í akstri, far-
arstjórn, útvegun
húsnæðis og
upplýsingagjöf
um siglingar og verðlag skemmti-
ferðaskipa.
Guðrún er Vesturbæingur, en
hefur verið búsett á Flórída und-
anfarin tólf ár. Áður hafði hún búið
í þrjú ár á Puerto Rico eyjunni í
Karíbahafi og í þrjú ár í Napólí á
Ítalíu. Hún er gift Bandaríkja-
manninum Willie Jenkins, sem ver-
ið hefur í bandaríska sjóhernum í
þrjátíu ár, þar af á Íslandi í fimm
ár og í önnur tíu ár starfaði hann
sem innkaupastjóri hjá Navy Ex-
change á Keflavíkurflugvelli. Hann
starfar nú fyrir Navy Exchange í
Orlando. Þau Guðrún og Willie eiga
saman fimm börn, frá 10 ára aldri
upp í 29 ára og eru þau eldri farin
að aðstoða móður sína í ferðaþjón-
ustunni og æfa sig þá í íslenskunni
um leið.
„Það má í raun segja að ég hafi
tekið við þeirri þjónustu, sem Atli
Steinarsson og Anna Bjarnason
ráku hér um árabil, en undanfarin
tíu ár hef ég verið að aðstoða Ís-
lendinga í frí til Flórída. Jafnframt
hef ég farið sem fararstjóri í nokkr-
ar siglingar með stóra hópa frá Ís-
landi á vegum Ingólfs Guðbrands-
sonar og ferðaskrifstofunnar
Prímu. Ég hef því safnað að mér
dágóðri reynslu af gæðum siglinga
og kostum skipafélaga og get upp-
lýst um sanngjarnt verð. Ég er
m.a. í samvinnu við ferðaskrifstofu,
sem sérhæfir sig í siglingum og tek
auk þess að mér fararstjórn og
akstur til og frá skipi,“ segir Guð-
rún í samtali við Ferðablaðið, en
sjálf segist hún hafa farið í um tíu
siglingar með nokkrum skipa-
félögum. „Vinsælasta leiðin finnst
mér vera svokölluð „Austurleið“,
það er Bahamaeyjar, St. Thomas
og St. Marteen, sem er hálf-
hollensk og hálffrönsk einkar falleg
eyja með yndislegum ströndum og
vinalegu fólki.“
Guðrún segist geta útvegað hús
og íbúðir í öllum stærðarflokkum.
„Meðal annars leigi ég út dýrasta
og stærsta húsið sem er til leigu í
Orlando, en það inniheldur átta
svefnherbergi, sem öll eru með sér-
baðherbergjum. Auk þess er að
finna í húsinu leikfimisal, leik-
tækjasal og bíósal með sérstökum
bíósætum. Hús þetta leigist í viku-
tíma á 4.200 dollara sem svarar til
315 þúsund króna með daglegum
þrifum. Einnig get ég útvegað
þriggja, fjögurra, fimm og sex her-
bergja einbýlishús sem flest státa
af einkasundlaugum í bakgarði.
Þau eru nálægt Disney-garðinum
og er leigan frá 950 dollurum vikan.
Í Ventura-hverfinu, sem er ró-
legt lokað golfsvæði miðsvæðis í
Orlando, segist Guðrún geta útveg-
að bæði íbúðir frá 550 dollurum
vikuna og einbýlishús með sund-
laugum frá 750 dollurum á viku.
„Íslendingum stendur líka til
boða aðgangur að nokkrum
skemmtilegum raðhúsum með sér-
lega aðlaðandi sameignum, svo sem
sundlaugum, klúbbhúsum, tækja-
sölum og verslunum. Nýjasti kjarn-
inn stendur við aðalgötuna Int-
ernational Drive.“
Guðrún segist ekki mæla með
einu umfram annað þegar kemur
að húsakostinum því smekkur
manna sé bæði misjafn og þarf-
irnar sömuleiðis. „Húsin hafa öll
sinn sjarma og Disney-svæðið er
mikið aðdráttarafl fyrir barnafólk.
Fólk verður þó að gera ráð fyrir
því að vera á bíl hvar sem er í Or-
lando.“
FLÓRÍDA | Íslensk kona býður Íslendingum ferðaþjónustu í Orlando
Disney-garðurinn og
siglingarnar draga að
Glæsileg aðstaða er um borð í skemmtiferðaskipum Karíbahafsins.
Íslendingum stendur m.a. til boða stærsta og dýrasta húsið, sem er til leigu
í Orlando.
Eitt af sumarhúsahverfunum í Orlando,
Guðrún Ingibjörg
Gunnarsdóttir
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
TENGLAR
.....................................................
www.floridafri.com
HEIMILDAMYNDIN Supersize
me eftir Morgan Spurlock
vakti mikla athygli, m.a.
hér á landi. Í myndinni
borðar kvikmyndagerð-
armaðurinn ekkert
nema skyndimat í heil-
an mánuð og áhrifin á
heilsuna urðu greinilega
slæm.
Í Svíþjóð er nú áformað
að gera vísindalega könnun
með svipuðu sniði, þ.e. tuttugu
manns munu borða skyndimat að
eigin vali í einn mánuð og munu fá þau fyrirmæli að
hreyfa sig eins lítið og hægt er.
Í frétt Svenska Dagbladet kemur fram að Heilsuháskólinn í Lin-
köping standi fyrir rannsókninni og tilgangurinn er að skoða afleið-
ingar skyndilegrar þyngdaraukningar fyrir mannslíkamann.
Þátttakendur verða stúdentar við skólann og allir í kjörþyngd.
RANNSÓKN
Tuttugu manns borða
skyndimat í mánuðVika á Ítalíu
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
3
25
46
05
/2
00
6 16.600 kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar.
Bíll úr flokki B
50 50 600 • www.hertz.is
*
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
*Verð miðað við gengi 1. maí 2006.frá