Morgunblaðið - 06.05.2006, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2006 35
DAGLEGT LÍF Í MAÍ
Á HEIMASÍÐUNNI www.bbnor-
way.com má finna upplýsingar um
hina ýmsu gistimöguleika víðs-
vegar í Noregi. Þeir sem eru á leið-
inni til Ósló og vantar gistingu geta
fundið þar eitthvað við hæfi.
Vigelandsparken B & B reka ung
og hress hjón ættuð frá Noregi og
Sviss. Þetta er hundrað ára gamall
herragarður þar sem þau búa með
þremur börnum sínum og einum
vinalegum ketti. Áður fyrr ferð-
uðust hjónin mikið en eftir að börn-
unum fjölgaði hafa þau ekki eins
mikinn möguleika á því og bjóða
því ferðalöngum heim til sín.
Gistiheimilið er vel staðsett í ró-
legu umhverfi með stórum garði,
nálægt miðbæ Ósló og Vigeland
höggmyndagarðinum. Aðeins eru
þrjú herbergi á gistiheimilinu,
morgunmatur er innifalinn í verði
og gæludýr eru velkomin með eig-
endum sínum.
Morgunkaffið í fallegum garði
Annað gistiheimili í stórum og
fallegum herragarði og ekki svo
langt frá hinum er Kristinelund.
Þar hefur fjölskylda rekið gisti-
heimili inni á heimili sínu í nokkur
ár. Gistiheimilið er við Bygdøy Allé
sem er ein af frægustu götum Nor-
egs, og er þekkt fyrir fegurð sína á
vorin þegar kastaníutrén eru í full-
um blóma. Kristinelund er staðsett
á lítilli hæð í miðri þessari fegurð.
Gestir geta notið kaffibolla í fal-
legum garði gistiheimilisins og
upplifað arkitektúr 19. aldar þegar
húsið var byggt. Gistiheimilið er í
göngufæri frá miðbænum og ýms-
um áhugaverðum stöðum í Ósló.
Bátaleiga og sundlaug
Þeir sem vilja gista aðeins fyrir
utan Ósló og njóta náttúrunnar
geta heimsótt Midori Koyama
Poppe sem rekur B&B Poppe gisti-
heimilið, nálægt Nordmark skóg-
inum. Staðsetning gistiheimilisins
býður upp á mikla möguleika á úti-
veru. Stutt er þó með lestinni niður
í miðbæ Osló.
Í úthverfi Ósló bjóða Tone og As-
geir gestum til sín að gistiheimilinu
The Blue Room. Þeir búa í stóru nú-
tímalegu húsi og eru með tvö her-
bergi til útleigu. Húsið er með
sundlaug innandyra og sauna. Þeir
bjóða líka upp á báta- og hjólaleigu
auk þess sem græn svæði eru ná-
lægt húsinu. Gistiheimilið býður
upp á borgarfrí með mörgum úti-
vistarmöguleikum.
Kristinelund-gistihúsið er glæsilegt að utan sem innan.
Vigelandsparken-gistiheimilið er í
gömlum herragarði.
FERÐALÖG
Rúm og morgun-
matur í Ósló
Frekari upplýsingar má finna á:
www.bbnorway.com og
www.visitoslo.com
NÚ Í BYRJUN sumars kemur út
gönguleiðakort af norðanverðum
Tröllaskaga og mun það kort ná yf-
ir Fljótin, Siglufjörð, Héðinsfjörð,
Ólafsfjörð og Svarfaðardal. Kortið
er gefið út af Hólaskóla, en er sam-
starfsverkefni sveitarfélaganna
Skagafjarðar, Siglufjarðar, Ólafs-
fjarðar og Dalvíkurbyggðar.
Ferðamálastofa Íslands hefur
styrkt gerð kortsins.
Tilgangurinn með útgáfunni er
að vekja athygli á Tröllaskaga sem
áhugaverðu útivistarsvæði, hvort
sem fólk ferðast um gangandi eða
ríðandi, að sögn Kjartans Bollason-
ar, verkefnisstjóra við ferða-
máladeild Hólaskóla.Á Tröllaskag-
anum eru starfandi göngufélög,
sem bjóða upp á gönguferðir. Í
Skagafirði starfar Ferðafélag
Skagafjarðar, á Siglufirði er ný-
lega búið að stofna Ferðafélag
Siglufjarðar, á Ólafsfirði starfar
göngufélagið Trölli og á Dalvík er
starfandi Ferðafélag Svarf-
aðardals.
Framhald á kortaútgáfu
Hólaskóla
Að auki býður Ferðafélag Ak-
ureyrar, Ferðafélag Íslands, Úti-
vist og fleiri aðilar upp á ferðir um
svæðið.
Nýja kortið mun vera framhald á
kortaútgáfu Hólaskóla frá því í
fyrra, en þá kom út gönguleiðakort
af Tröllaskaganum undir yfirskrift-
inni „Gönguleiðir á Tröllaskaga,
Heljardalsheiði – Hólamannavegur
– Hjaltadalsheiði“. Það nær yfir
miðjan Tröllaskagann og er m.a.
fáanlegt hjá FÍ í Mörkinni og hjá
Eymundsson í Kringlunni.
Göngukort um
Tröllaskagann
Morgunblaðið/Þorkell
TENGLAR
.....................................................
www.olafsfjordur.is
www.siglo.is
www.dalvik.is
FERÐALÖG
NÝJAR rannsóknir benda til að það hafi engin áhrif á
líkamsklukkuna að stilla tímann við flugtak í samræmi
við tíma á áfangastað þegar lagt er upp í flug yfir tíma-
belti eins og margir telja. En það eru til önnur ráð.
Reyndar er ekki hægt að „eiga inni svefn“ ef svo
mætti að orði komast en góður langur svefn sólarhring-
inn áður er gott ráð við flugþreytu.
Ef hægt er að koma því við er gott að leggja sig aðeins
eftir lendingu. Lúrinn hressir mann við um stund án
þess þó að veita varanlega hvíld.
Þegar um er að ræða nokkurra daga ferð en yfir mörg
tímabelti er best að sofa sem minnst á meðan á ferðalag-
inu stendur. Sofa í mesta lagi 3–5 tíma ef þess er kostur á
sama tíma og nótt er heima. Líkamsklukkan truflast síð-
ur og flugþreytan verður minni þegar heim er komið.
Flugþreyta er ekki ímyndun og það er ekki hægt að
bægja henni frá með því að hugsa um eitthvað annað.
Þreytuna má stundum yfirvinna sálrænt en líkaminn
finnur fyrir henni eftir sem áður.
Gott er að drekka vel af vatni og hreyfa sig á meðan á
fluginu stendur.
Áfengi og svefnpillur hjálpa ekki heldur auka einungis
á vanlíðan.
Ljós og myrkur hafa mikil áhrif á líkamsklukkuna.
Með myrkvun má líkja eftir nótt og góð lýsing kemur í
stað dags.
Góð ráð við flugþreytu
FLUG
Morgunblaðið/Golli