Morgunblaðið - 19.05.2006, Síða 36

Morgunblaðið - 19.05.2006, Síða 36
36 FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FÁIR láta sér eflaust detta í hug að reyna að troða fótbolta í ull- arsokk. Þeir sem hinsvegar reyna það komast fljótt að raun um að slíkt er ekki hægt. Væri þeim hinsvegar sagt að þetta væri nú ekki erfitt og þeir yrðu að reyna, hvernig mundu þeir bregðast við. Mundu þeir neita að reyna og fara í upp- reisn gegn ríkjandi fyrirkomulagi? Yrði þá ekki sagt að þeir væru með hegðunarröskun eða jafnvel ,,mót- þróaþrjóskuröskun“ og þeir settir í sérmeðferð. Einhverjir mundu þó kjósa að láta undan og reyna þar til þeir uppskera vonleysi, tilgangsleysi og geðrænan tilfinningavanda. Þá yrðu kallaðir til sérfræðingar til að koma þeim í andlegt jafnvægi, tjasla upp á brotna sjálfsmynd þeirra og hjálpa þeim síðan við að koma boltanum í sokkinn. Á endanum verður úr þessu ann- að hvort, útfærsla á fótbolta í ein- hverju sem einu sinni var ull- arsokkur en hefur tekið á sig illnothæfa mynd eða loftlaus fót- bolti sem hægt er að vöðla ofan í sokkinn með ágætu móti en boltinn væri gjörsamlega ónothæfur. Bolt- inn er þó kominn í sokkinn og var ekki lagt á stað með það í upphafi? Við hljótum hinsvegar að leiða hug- ann að því hvort var vandamálið, boltinn eða sokkurinn. Mörgum er að verða ljóst að stærsta verkefnið sem framundan er um land allt í skólamálum er endurskoðun grunnskólans. Skóla- samfélagið þarf að fara að gera sér betur grein fyrir nauðsyn þess að mætt sé þörfum einstaklingsins á annan hátt en gert hefur verið. Beina þarf í auknum mæli athygl- inni að forsendum hvers ein- staklings til þroska. Öll erum við gædd greind á einhverju sviði og trúin á eigin getu er nauðsynleg öll- um til árangurs. Það er því brýnt að strax verði jafnaðar áherslur á námsgreinar svo ólíkum hæfi- leikum verði sýnd sama virðing og gert jafn hátt undir höfði. Mæta þarf hverjum einstaklingi þar sem hann er staddur og honum gefið tækifæri til að auka við náms- og þroskaferil sinn á eigin forsendum. Með því móti styðjum við betur við bráðger og seinfær börn. Almennt verk-, tækni- og listnám verður að stórauka í grunnskólum landsins svo ólíkir hæfileikar fái notið sín. Ekki er nóg að tala um að auka þurfi áhuga á verknámi hér á landi og bæta síðan bara endalaust við aðbúnað og aðgang í verklegar námsgreinar í framhaldskólum landsins. Ef efla á áhuga á verklegu námi í samfélaginu þarf að gera þeirri þekkingu jafnhátt undir höfði og bóklegri strax í grunn- skóla. Okkur ber að rækta bókvit, siðvit og verksvit jöfnum höndum í grunnskólum landsins og koma þannig til móts við hæfileika allra barna okkar. Með því móti gæti skapast mun jákvæðara viðmót margra barna til skólans og upp- reisnum gegn ríkjandi fyr- irkomulegi innan veggja hans myndi fækka. Við hljótum nefni- lega að spyrja okkur hvort það sé í raun nemandinn með hegð- unarröskun sem sé vandamálið eða skólasamfélag sem ekki skaffar honum viðfangsefni við hans hæfi. Góður skóli er skóli sem lærir. Vilja þarf til að breyta því sem breyta þarf til betri vegar og kjark til þess að fylgja því eftir. – Við megum aldrei hætta að læra. Uppreisn gegn ríkjandi fyrirkomulagi Eftir Þráin Lárusson Skólameistari Hússtjórnar- skólans á Hallormsstað og 2. maður á lista sjálfstæð- ismanna á Fljótsdalshéraði. NÚ LÍÐUR að sveitarstjórnarkosningum. Eins og svo oft áður eru atvinnumálin ofarlega á baugi og þá ekki síst á landsbyggðinni enda eru þau mál með þeim mik- ilvægustu í hverju sveitarfélagi. Oft er haft á orði að öfl- ugt atvinnulíf sé forsenda þess að fólk setjist til fram- búðar að á ákveðnum stað. En getur verið að í þessari umræðu sé horft of þröngt á atvinnumálin? Getur verið að það eigi jafnvel ekki síður að snúa þessu við og segja að góð lífsskilyrði séu for- senda fyrir öflugu atvinnulífi? Vænt- anlega liggur rétta svarið þarna á milli og vissulega þurfi öflugt atvinnulíf en það er til lítils ef sveitarfélagið býður íbúum sínum ekki það umhverfi sem þeir vilja búa í. Það ætti einnig að vera meginmarkmið sveitarstjórna að skapa góð lífs- skilyrði fyrir íbúana og þannig stendur sveitarfélagið einna best við atvinnuuppbyggingu á svæðinu. Umhverfismál á Akureyri Umhverfismál hafa alltaf verið ofarlega í huga Ak- ureyringa. Bærinn hefur langa sögu í garðrækt og trjá- rækt, Lystigarðurinn hefur verið eitt af táknmyndum bæjarins og útivistarsvæðið í Kjarna er landsþekkt perla í útjaðri bæjarins. Akureyri tók forystu í um- hverfismálum á níunda áratugnum þegar aukin áhersla var lögð á fegrun bæjarins og skipulag grænna svæða. Allar götur síðan hefur Akureyri verið fyrirmynd ann- arra sveitarfélaga í fegrun umhverfisins. Enn má þó gera betur. Sorpmálin eru ekki í nógu góðu ástandi og urðunarsvæðið í Glerárdal er til skammar. Þá má gera meira í því að efla umhverfisvitund bæjarbúa, til dæmis með því að taka þátt í umhverfisverkefnum Land- verndar svo sem „Vistvernd í verki“ og „Grænfán- anum“. Síðuskóli náði þeim merka áfanga að flagga grænfánanum nú í vor og áður hafði Grunnskólinn í Hrísey náð sama takmarki og er það sérstaklega ánægjulegt og vonandi fylgja fleiri skólar í kjölfarið. Stóriðja við Eyjafjörð Það vakti athygli nú á útmánuðum hversu mikil and- staða er meðal Eyfirðinga gegn stóriðjuframkvæmdum. Stóriðja við Eyjafjörð hugnast ekki íbúum og samræm- ist ekki þeirri ímynd sem Eyfirðingar vilja byggja upp og halda í. Þetta er ekki síst athyglisvert í ljósi þess að meirihluti bæjarstjórnarinnar á Akureyri hafði lagt mikla áherslu á þetta mál með dyggum stuðningi Sam- fylkingarinnar þegar sá flokkur átti enn bæjarfulltrúa hér í bænum. Einungis Vinstri græn lögðust gegn þess- um framkvæmdum og fylgdi þannig eftir skoðunum meirihluta bæjarbúa. Þessi afstaða endurspeglar vel þær hugmyndir að vilja efla atvinnulíf án þess að skerða ímynd Eyjafjarðar sem fallegs og umhverfisvæns hér- aðs. Þessi hugmyndafræði fellur vel að þeirri kenningu að ekki megi horfa á atvinnumálin í of þröngu samhengi því fyrst og fremst þarf að leggja áherslu á að fólki líði vel og vilji setjast hér að. Þannig stuðlum við með best- um hætti að vexti og viðgangi bæjarins og uppbyggingu atvinnulífsins. Umhverfismál og ímynd Eyjafjarðar Eftir Jón Kr. Arnarson Höfundur er garðyrkjufræðingur og skipar 10. sæti á V-lista Vinstri grænna á Akureyri. MIKIL uppbygging hefur átt sér stað í Kópavogi sl. 10–15 ár en hún hefur haft það að markmiði að tryggja fjárhagslega stöðu bæjarfélagsins. Ef litið er til annarra nágrannabæjarfélaga er óhætt að segja að festan í rekstrinum sé mismikil en góður rekstur er grundvöll- ur þess að hægt sé að búa vel að fjöl- skyldufólki, öldruðum og fötluðum. Fjölgun íbúa hefur treyst tekjustofna bæjarfélagsins og traust fjár- málastjórn hefur lagt grunninn að lækkun skulda sem aftur hefur skap- að grundvöll fyrir lækkun skatta og þjónustugjalda. Kópavogur er vel stætt bæjarfélag en auðlindir Kópavogs felast hins vegar í fólkinu í bænum og framtíð- arauðlindirnar í ungviðinu. Það er ekki rétt þegar andstæðingar okkar í bæjarstjórn halda fram að fólkið í bænum ráði engu og hafi engin áhrif á uppbyggingu bæjarins og framtíð- aráform. Síðastliðin ár hefur átt sér stað mikil uppbygging í bænum þar sem íbúarnir, ásamt leiðandi bæj- arstjórn, hafa lagt hönd á plóg við að skapa þau tækifæri sem blasa við öll- um Kópavogsbúum í dag. Bæjarbúar hafa tekið virkan þátt í að byggja upp öflugt íþrótta- og æskulýðsstarf og skólana sem eru með þeim bestu á landinu. Félagslíf aldraða er öflugt, tómstunda- og menningarstarf bæj- arins blómstrar og atvinnuuppbygg- ing er mikil. Bæjarbúar standa allir að þessari uppbyggingu bæjarfélags- ins. Krafturinn í bæjarbúum er mikill og mannlífið fjölbreytt. Það er vel hlúð að auðlindum bæjarins, bæði ungum og öldnum. Ég vil halda áfram að taka þátt í uppbyggingu Kópavogs í samvinnu við forystuaflið í bæjarlífinu, Sjálfstæðisflokkinn. Kópavogur hlúir að auðlind sinni Eftir Lovísu Ólafsdóttur Höfundur skipar 9. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. FRÆÐSLUMÁL eru viðamesti málaflokkur í rekstri hvers sveitar- félags. Undir forystu Sjálfstæð- isflokksins á Ak- ureyri síðastliðin átta ár hefur mikil gróska átt sér stað í skólastarfi bæj- arfélagsins. Leik- skólum hefur fjölg- að, biðlistum eytt og leikskólagjöld eru einhver þau lægstu á landinu. Öll húsnæðis- og vinnuaðstaða í grunn- skólunum hefur stórbatnað og þá var Tónlistarskólanum fundið nýtt húsnæði. Áhersla hefur verið lögð á faglegt þróunarstarf og skólaráð- gjöf svo að þörfum allra nemenda sé mætt. Unnið hefur verið að áhuga- verðum þróunarverkefnum í leik- og grunnskólunum sem vakið hafa athygli víða um land. Mótuð hefur verið ný og metnaðarfull skóla- stefna fyrir bæjarfélagið en horn- steinar hennar eru þekking, leikni, virðing og vellíðan. Skólastefnu Ak- ureyrarbæjar er ætlað að efla sjálf- stæði skóla og draga fram eft- irsóknarverða þætti í skólastarfi. Sjálfstæðisflokkurinn leggur ríka áherslu á að halda áfram þessari já- kvæðu þróun og vera áfram í fremstu röð í skólamálum. Sameig- inleg ábyrgð heimila og skóla á upp- eldi og menntun kallar á náin tengsl þar á milli. Um leið og sjálfstæði skóla er aukið þarf að leita nýrra leiða til að skapa foreldrum tæki- færi til að gerast aðilar að því starfi sem fram fer í skólunum og tryggja aukna þátttöku þeirra, ábyrgð og skyldur gagnvart námi barna þeirra. Meðal þeirra verkefna sem við hyggjumst hrinda í framkvæmd í þessu augnamiði, fáum við til þess umboð kjósenda, er að skólum verði falin forganga um kjör skólastjórna með þátttöku kennara, foreldra og nemenda við hvern grunnskóla. Hlutverk þeirra verði að annast gerð kostnaðaráætlana og bera ábyrgð ásamt skólastjóra á rekstri skólans og starfi. Af hverju skólastjórnir? Ýmis rök styðja þau áform að koma á skólastjórnum með aðkomu for- eldra og nemenda. Skólastjórn- endur sveitarfélagsins telja að brýn þörf sé á því að auka formlegt sam- starf og bein áhrif foreldra á skóla- starf. Í sama streng taka lands- samtök foreldra Heimili og skóli. Í viðtali, í Morgunblaðinu 7. maí sl. við Elínu Thorarensen, fram- kvæmdastjóra samtakanna, kemur fram að aðkoma foreldra að skóla- starfi er mun minni hér á landi en í nágrannalöndum okkar. Einnig kemur þar fram það álit að lykillinn að farsælu skólastarfi er að skólar og foreldrar hafi sameiginlega stefnu og sýn á starfið. Síðast en ekki síst má geta þess að í könnun, sem lögð var fyrir alla nemendur 10. bekkja í grunnskólum Akureyr- arbæjar, kemur fram að meirihluti þeirra telur að kennsluaðferðir skólanna mættu vera fjölbreyttari. Í nýsamþykktri skólastefnu Ak- ureyrarbæjar er fjallað um sameig- inlega ábyrgð foreldra og skóla á menntun barna og unglinga. Við sjálfstæðismenn teljum að með því að koma á skólastjórnum við grunn- skólana séum við að koma til móts við óskir skólasamfélagsins, for- eldra og nemenda. Að skólastjórnir stuðli að auknum skilningi og trausti milli heimila og skóla, auk- inni ábyrgð í skólasamfélagi hvers skóla sem hafi ekki síst góð áhrif á námsárangur og líðan barna í skól- anum, öllu bæjarfélaginu til heilla. Nýjar áherslur í skólastarfi Eftir Elínu Margréti Hallgrímsdóttur Höfundur skipar 3. sæti á D-lista Sjálfstæðisflokks á Akureyri. HVERS eigum við að gjalda? Er það markviss stefna íslenskra ráða- manna að flæma Íslendinga burt af landsbyggðinni og koma okkur öllum fyrir á suðvesturhorninu? Ég var spurður að þessu af eldri konu sem þurfti í end- urhæfingu á Reykjalund eftir aðgerð sem tókst afar vel á sjúkrahúsinu hér á Akureyri. Þessi ágæta kona var búin að fara tvisvar suður í skoðun áður en hún fékk inni á Reykjalundi. Hún átti engan að fyr- ir sunnan og kveið fyrir að vera þar ein. Var hún þó búin að bíða mánuðum saman eftir endurhæfingu á Kristnesi en komst fyrr að á Reykjalundi. Ég spyr eins og þessi ágæta frú, af hverju er endurhæf- ingarstöðin á Kristnesi ekki stækkuð og fengnir til þess peningar úr síma- sölusjóðnum? Þetta eru peningar sem öll þjóðin á, einnig fólk á lands- byggðinni, peningar sem urðu til með langlínusamtölum okkar. Hversvegna að eyða 18 milljörðum í nýtt „hátæknisjúkrahús“ sem eng- inn vill nema Davíð í seðlabankanum og nokkrir bitlingar sem eiga að fá að hafa umsjón með byggingunni? Hefur ekki verið gert nóg af minnismerkjum um Davíð Oddsson uppi í Öskjuhlíð og víðar? Einnig er altalað að þessi framkvæmd verði mun dýrari en til stendur. Heilbrigðiskerfið er fjársvelt og fólki ekki greidd mannsæmandi laun. Þannig er vegið að velferðarkerfinu og komugjöld hækkuð og fyrr en varir verður farið að forgangsraða sjúklingum eftir efnum. Ágæta sveitarstjórnarfólk á Norðurlandi, stöndum saman og krefjumst þess að á okkur verði hlustað, eyðum 2000 manna biðlistum eftir end- urhæfingu og krefjumst þess að á Kristnesi í Eyjafirði verði hafnar fram- kvæmdir við stækkun og endurbætur strax í ár. Byggjum upp endurhæfingu á Kristnesi Eftir Baldvin H. Sigurðsson Höfundur er matreiðslumaður og skipar 1. sæti hjá Vinstri grænum á Akureyri. FÁUM dylst mikilvægi góðra útivistarsvæða. Þegar svæði eru skipulögð, lóðum úthlutað eða fasteignir seldar er sérstaklega tekið fram ef um er að ræða nálægð við góð útivistarsvæði. Nýjustu hverfi Kópavogs hafa m.a. verið dásömuð vegna nálægðar við helstu náttúruperlur höfuðborgarsvæðisins, El- liðavatn og Heiðmörkina. Mikilvægt er að sveitarfélagið hafi umráðarétt yfir útivistarsvæðum bæjarfélagsins og marki sér framtíðarsýn um uppbyggingu þeirra. Aftur á móti er þannig háttað með þau útivistarsvæði í efri byggðum Kópavogs, sem hafa mest aðdráttarafl, að þau eru ekki í eigu bæjarins. Bakk- ar Elliðavatns og Heiðmörkin (þeir hlutar sem á annað borð eru í lögsögu Kópavogs) ásamt skógræktarsvæðinu í Guð- mundarlundi eru í eigu ábúanda á Vatnsenda. Það er auðvit- að ljóst að einkaaðili hefur engar skyldur gagnvart bæj- arbúum við að leggja þeim til land eða aðstöðu til útivistar, slíkar skyldur eru alfarið á ábyrgð sveitarfélagsins. Aðgengi íbúa að þessum svæðum verður því takmörkum háð og óvissa getur skapast um uppbyggingu þeirra til útivistar. Hvernig getur bærinn t.d tryggt að almennir Kópavogsbúar geti með góðum hætti komist að bökkum Elliðavatns Kópavogsmegin til þess að veiða? Hver er svo framtíð Guðmundarlundar, með myndarlegri skógrækt og skipulögðu úti- vistarsvæði þegar ábúandi á Vatnsenda hefur nú sagt Skógræktarfélagi Kópavogs upp samningi um leigu landsins með eins árs fyrirvara? Til að tryggja aðgengi bæjarbúa að útivistarsvæðum þarf að huga að skipulagsmálum til framtíðar. Þegar bærinn kaupir land undir íbúðabyggð skal jafnframt gera ráð fyrir svæðum til útivistar, stórum sem smáum. Við skipulagningu nýrra hverfa eða endurskipulagningu eldri hverfa skal gera ráð fyrir grænum svæðum inni í hverfunum. Það er ekki ásættanlegt að vísa íbúum á útivistarsvæði í landi í einkaeigu eða nærliggjandi sveitarfélögum. Þess vegna vildi Samfylkingin í Kópavogi að ekki yrði ráðist í byggingu tæp- lega 30 einbýlishúsa í Smalaholti, þess í stað yrði svæðið byggt upp sem skóg- ræktarsvæði og almenningsgarður sem væri tryggt útivistarsvæði Kópa- vogsbúa um ókomin ár. Því miður var núverandi meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á annarri skoðun en það er ótvíræð stefna Samfylking- arinnar að huga að uppbyggingu útivistarsvæða alls staðar í Kópavogi. Góð útivistarsvæði eru gulls ígildi og sómi hvers bæjarfélags. Útivistarsvæði í Kópavogi Eftir Rut Kristinsdóttur Höfundur er umhverfisfræðingur og skipar 17. sæti á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.