Morgunblaðið - 29.05.2006, Side 16

Morgunblaðið - 29.05.2006, Side 16
Daglegtlíf maí „HEILBRIGÐISSTEFNA, sem hvetur til hollra lífshátta óháð lík- amsþyngd, hefur ekki í för með sér þær neikvæðu afleiðingar, sem fylgt geta áherslu á þyngdartap. Sá boðskapur að fita sé slæm er röklega til þess fallinn að ýta und- ir óánægju með líkamsvöxt, af- brigðilegar matarvenjur og for- dóma. Rannsóknir, sem sýna árangursleysi og skaðsemi megr- unar vekja enn frekari efasemdir um réttmæti þess að halda tryggð við ríkjandi stefnu. Lýðheilsu- stefna, sem markast af heilbrigði óháð holdafari sneiðir hjá þessum vanda og skapar kærkomið mót- vægi við þá þráhyggju, sem ríkir um megrun og grannan vöxt á Vesturlöndum. Hún beinir sjónum að því sem raunverulega skiptir máli: heilsu, velferð og vellíðan.“ Þetta kom m.a. fram í máli Sig- rúnar Daníelsdóttur, sálfræðings, á Megrunarlausa daginn, sem var í fyrsta skipti haldinn hér á landi nýlega, en á sér fimmtán ára sögu erlendis. Erindi Sigrúnar bar yf- irskriftina „Hundrað ára stríðið við aukakílóin“, en markmiðið með deginum er að berjast gegn megr- unarmenningunni og efla líkams- virðingu. Milljarðar í megrunariðnaðinn Fjallað var m.a. um tengsl megrunar og átraskana og Guðrún Beta Mánadóttir, forstöðukona staðalímyndahóps Femínistafélags Íslands, beindi spjótum sínum að þeim áhrifum, sem megrunaráróð- urinn hefði á konur og kvenfrelsi. „Útlitsiðnaðurinn veltir millj- örðum á milljarða ofan og beinist nær eingöngu að konum. Okkur er innprentað frá blautu barnsbeini að verið sé að hjálpa okkur og leiðbeina til að geta lifað af í full- komnum líkama. Við þurfum að átta okkur á því að það er ekki verið að gera okkur greiða. Það er verið að nota okkur. Það er verið að brjóta sjálfstraust okkar niður til þess að hægt sé að græða á okkur peninga. Í gegnum söguna hafa alltaf verið til reglur um útlit kvenna, en líði konu á einhvern hátt illa með líkama sinn, þarf hún auðvitað fyrst og síðast að finna það út með sjálfri sér hvort app- elsínuhúð eða aukakíló á lærum sé sá hryllingur, sem útlitsiðnaðurinn vill meina.“ Sigrún minnti á að lífsstíls- breytingar þjóðarinnar á síðari ár- um hafi verið heillavænlegar þó nú sé hamrað á því að þjóðin sé að drepa sig á óheilbrigðum lífs- háttum. Staðreyndin er að þrátt fyrir aukna þyngd hefur tíðni hjarta- og æðasjúkdóma farið hríðlækkandi og lífslíkur Íslend- inga aukist ár frá ári. „Tíðni kransæðastíflu hefur lækkað um meira en 50% á síðustu tveimur áratugum. Dauðsföllum af völdum kransæðasjúkdóma hefur sömu- leiðis fækkað og hafa ekki verið færri síðan um miðja síðustu öld. Við borðum meira af ávöxtum og grænmeti en áður. Við drekkum meira vatn, hreyfum okkur meira, reykjum minna og borðum fitu- minna fæði en áður.“ 90% árangursleysi af megrun Að sögn Sigrúnar felst mikil missögn í að draumurinn um grannan vöxt sé handan hornsins ef við bara leggjum okkur nógu mikið fram. Ef mögulegt væri að grennast varanlega, myndum við eflaust þekkja fleiri, sem hefði tekist það. Viðurkenndar tölur yfir árangur megrunar sýna 90% ár- angursleysi þrátt fyrir að sífellt séu að koma fram á sjónarsviðið „nýir“ megrunarkúrar í mismun- andi pakkningum. „Ljóst er að megrunarhringekjan hefur ekki gert okkur grennri, en mjög lík- lega gert okkur feitari. Hún hefur ekki skilað okkur betri heilsu eða vellíðan, en alið af sér fjöldamörg tilfelli þunglyndis, slæmrar lík- amsmyndar og átraskana. Hún hefur eyðilagt æsku hundraða ís- lenskra ungmenna og stuðlað að félagslegu óréttlæti, fordómum og mannfyrirlitningu. Fitufordómar eru útbreiddir á Íslandi og það er smánarblettur á samfélagi, sem hreykir sér af fordómaleysi.“ Vísindastarfið í kreppu Fræðimenn, sem hafa áhyggjur af hugsanlegum aukaverkunum offitustríðsins, knýja á um straum- hvörf í rannsóknum, forvörnum og meðferð offitu. Þeir telja að vís- indastarf á þessu sviði sé í kreppu þar sem það byggist alfarið á þeirri forsendu að þyngdartap sé mögulegt, æskilegt og nauðsynlegt til að bæta heilsu. Þeir hafa kallað eftir nýju viðmiði með áherslu á reglulega hreyfingu, heilbrigðar matarvenjur, bætta sjálfs- og lík- amsmynd og alhliða heilsueflingu, en án áherslu á líkamsþyngd. Þetta sjónarmið felur í sér bylt- ingarkennda viðhorfsbreytingu gagnvart heilbrigði þar sem hvorki er gert ráð fyrir því að grannur líkami sé forsenda góðrar heilsu né að þyngdartap skuli vera markmið heilsueflingar, að sögn Sigrúnar. „Ýmislegt bendir til að slík heil- brigðisstefna yrði heillavænlegri en sú, sem nú er við lýði. Í fyrsta lagi er enginn undanskilinn nauð- syn þess að lifa heilbrigðu lífi þeg- ar áhersla er lögð á heilsu en ekki holdafar. Í öðru lagi er líklegra að fólk geri varanlegar breytingar á lífi sínu þegar ekki er lengur ástæða til að gefast upp þótt vigt- in sýni ekki lægri tölu. Áhersla á þyngdartap er í raun andstæð markmiðinu um varanlegar lífs- stílsbreytingar því fæstum tekst að grennast til frambúðar.“  HEILSA | Hinn vestræni heimur hefur í hundrað ár háð hatramma baráttu gegn fitu Morgunblaðið/Ómar Sigrún Daníelsdóttir og Guðrún Beta Mánadóttir. Reuters Í gegnum söguna hafa allt- af verið til reglur um útlit kvenna, en líði konu á ein- hvern hátt illa með líkama sinn, þarf hún auðvitað fyrst og síðast að finna það út með sjálfri sér hvort appelsínuhúð eða aukakíló á lærum sé sá hryllingur, sem útlitsiðn- aðurinn vill meina. Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Grannur líkami er ekki forsenda góðrar heilsu VIÐKVÆMAR taugar í heilastofni eru taldar eiga þátt í sjúkdómnum mígreni sem nokkuð margir þjást af. Í Göteborgs-Posten er greint frá rannsókn sem gerð var við Sahlgrenska sjúkrahúsið í Gautaborg og bendir til þessa. Margt er enn óljóst varðandi mígreni og þau verkjaköst sem mígrenisjúk- lingar fá að meðaltali 1,3 sinnum í mánuði, en talið er að mígreni sé arfgengur sjúkdómur. Rannsóknin bendir til þess að mígreni- sjúklingar hafi næmari taugar í heilastofninum og séu því viðkvæmari fyrir sársauka. Venjulegur æða- sláttur í höfðinu verði þann- ig að sársauka hjá þeim. Ekki hefur fundist lækn- ing við mígreni en margir geta linað þjáningarnar og jafnvel losnað við einkenni með þeim lyfjum sem nú eru til.  HEILSA Mígreni- sjúklingar með næmari taugar í heilastofni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.