Morgunblaðið - 29.05.2006, Side 27

Morgunblaðið - 29.05.2006, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MAÍ 2006 27 MINNINGAR Laugardaginn 20. maí erum við stödd í Gilstreymi. Gleðin var mikil, sauðburður hafinn og beðið var eftir vinum. Þá kemur símtal frá syni okkar, Ómari, og segir hann okkur þau sorglegu tíðindi að yngri sonur þeirra hjóna, Jón Valur, sé látinn. Ekki óraði okkur fyrir því að föstudaginn 19. maí værum við að sjá þitt geislandi bros í hinsta sinn, elsku drengurinn okkar. Hugurinn leitaði fljótt aftur í tímann og minn- umst við sérstaklega jólaboðanna þegar þú komst svo fínn í svörtu buxunum og rauðu fallegu peysunni. Alltaf þegar þú, elsku vinur, komst til okkar á Esjubrautina lýstir þú upp húsið með þínu bjarta brosi og ljósa hári. Og hvað okkur þótti skondið að sjá þegar þú lítill dreng- ur reiddist, krosslagðir hendur á brjósti, en sagðir ekki neitt. Ekki er spurt um stund né stað þegar sorgin ber að dyrum og hversu vanmáttug við erum á svona stundum, elsku drengurinn okkar. En áfram þú lifir í hjörtum okkar um ókomna tíð. Við biðjum Drottin að vaka yfir sálu þinni, elsku vinur. Elsku Ómar, Jórunn, Siggi og Sigga. Hugur okkar og bænir eru hjá ykkur og biðjum við Drottin að vaka yfir ykkur og gefa ykkur styrk. Þeir segja þig látna, þú lifir samt og í ljósinu færð þú að dafna. Því ljósi var úthlutað öllum jafnt og engum bar þar að hafna. Frá litlu hjarta berst lítil rós, því lífið þú þurftir að kveðja. Í sorg og í gleði þú senda munt ljós, sem að mun okkur gleðja. (Guðm. Ingi Guðm.) Kveðja. Amma og afi, Höfðabraut 5, Akranesi. Elsku drengurinn hennar ömmu sinnar, aldrei hefði mig grunað er við hittumst síðast að það yrði í hinsta sinn, að þú yrðir horfinn degi síðar. Ég mun ávallt minnast gleði- stunda sem við áttum saman, þægi litli glókollurinn hennar ömmu sinn- ar. Ég fékk að fylgjast með hve dug- legur og vandvirkur þú varst í námi og starfi og einstaklega handlaginn. Ég veit í hjarta mínu að nú ert þú kominn á góðan stað þar sem þér líður vel. Ég sendi þér bænina sem við fór- um svo oft með saman: Vertu yfir og allt um kring, með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring, sænginni yfir þinni. (Sig. Jónsson.) Guð og gæfan fylgi þér og blessi, elsku vinurinn. Ástarkveðjur til foreldra þinna, bróður og mágkonu. Amma Jenny Lind. Laugardagskvöldið 20. maí sat ég heima og var að prjóna. Þá hringir síminn og nafn Ómars birtist á skjánum. Áður en ég svaraði flaug í gegnum huga minn að eitthvað væri að. Þá tek ég upp símann og svara og segir hann mér að Jón Valur JÓN VALUR ÓMARSSON ✝ Jón Valur Óm-arsson fæddist á Akranesi 9. apríl 1987. Hann lést á Akranesi 20. maí síðastliðinn. For- eldrar hans eru Jór- unn Friðriksdóttir og Ómar Sigurðs- son. Bróðir Jóns Vals er Sigurður Ari. Unnusta hans er Sigríður H. Sig- urðardóttir. Útför Jóns Vals verður gerð frá Akraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. elsku frændi sé látinn. Nú sit ég hér hjá mömmu og langar að koma smákveðju til þín. Margt fer í gegn- um hugann og minnist ég þess þegar þú lítill drengur komst með foreldrum þínum á Esjubrautina. Þú grést mikið því fæt- urnir þínir voru mikið að angra þig. Margar aðrar minningar leita á hugann og flestar koma þær upp á Esju- brautinni því þar var aðalmiðstöðin. Miklir vinir og félagar vorið þið öll æskuárin, þú og Benni, og ég er þakklát fyrir allar þær stundir sem þið áttuð saman. Nú kveð ég þig, elsku frændi, og bið algóðan Guð að vernda þig og vaka yfir þér. Elsku Ómar, Jórunn, Siggi og Sigga. Drottinn styrki ykkur og varðveiti í þessari miklu sorg. Það er svo tæpt að trúa heimsins glaumi, því táradöggvar falla stundum skjótt og vinir berast burt á tímans straumi og blómin fölna á einni hélu nótt. Því er oss best að forðast raup og reiði og rjúfa hvergi tryggð né vinakoss; en ef við sjáum sólskinsblett í heiði að setjast allir þar og gleðja oss. (Jónas Hallgr.) Kveðja. Elínborg frænka, Selfossi. Elsku Jón Valur frændi okkar. Að kvöldi laugardagsins 20. maí, voru okkur bornar þær hræðilegu sorg- arfréttir að elskulegur frændi okk- ar, Jón Valur Ómarsson, hefði yf- irgefið þennan heim. Eftir stöndum við frændsystkini þín og veltum fyrir okkur gangi lífs- ins. Við erum óskaplega þakklát fyr- ir allar þær stundir sem við áttum saman með þér, þá sérstaklega þær á Esjubrautinni. Það er óhætt að segja að þú hafir verið mesti engillinn af okkur öllum krökkunum, þó auðvitað hafir þú brallað margt, litli glókollur. En ekki fór mikið fyrir þér, þú varst hlédrægur en afskaplega skemmti- legur, en oft stóðstu hjá og horfðir á okkur hin gera eitthvert prakkara- strikið. Við vorum eins og bræður, þú og ég (Benni), og gerðum margt skemmtilegt saman, fórum í fótbolta í garðinum heima hjá ömmu og afa og þá léku Edda og Anna sér líka mikið við okkur, við vorum oft fjög- ur saman. Ekki megum við heldur gleyma öllum ferðalögunum með afa og ömmu og sundferðunum, hjóla- túrunum og ferðunum út á vídeó- leigu ásamt því að oft gistum við hjá hvor öðrum. Þessar stundir eru mér ógleymanlegar og minnist ég þín með söknuði í hjarta. Takk, elsku frændi, fyrir allar þessar stundir. Það var líka gaman hjá okkur (Sigrún) þegar þú varst fimm ára og ég níu ára, manstu. Ég var að passa þig heima hjá þér á Grenigrund og lágum við oft saman í vatnsrúminu sem mamma þín og pabbi áttu og lásum saman bækur, fórum út að leika og í gamla pottinn sem var í garðinum ykkar og er ég þakklát fyrir þær stundir með þér frændi. Fljótlega kom fram færni þín á tölvur og varstu snillingur á þær og lékst þér klukkutímunum saman í tölvuleikjum. Endalaust gætum við frænd- systkinin talið upp góðar minningar um þig og erum við búin að vera að rifja upp minningar um þig og skoða myndir, okkur finnst hræðilegt hversu lítið samband við höfum haft undanfarin ár við þig, kæri vinur, hittumst reyndar í veislum en þar með er það talið. Þú áttir auðvitað þinn vinahóp eins og við hin, en þetta fráfall þitt hefur dregið okkur hin frændsystkinin sem eftir stöndum nær hvert öðru og ætlum við að vera duglegri að styrkja böndin okkar á milli. Elsku Ómar, Jórunn, Siggi Ari og Sigga, megi guð gefa ykkur styrk á þessum erfiðu tímum og liggja okk- ar bænir hjá ykkur. Elsku frændi, við verðum að trúa því að þar sem þú ert nú niðurkom- inn líði þér vel og megir þú hvíla í friði, kæri vinur. Þín frændsystkini, Guðmundur, Gunnar, Nanna, Sigrún, Edda, Benjamín og Anna. Það var okkur mikið reiðarslag þegar sú frétt barst okkur að jafn- aldri okkar og árgangsfélagi Jón Valur hefði látist. Við bjuggumst ekki við því að við myndum missa jafnaldra okkar og félaga svona snemma, og hvað þá að sá félagi yrði Jón. Okkur langar því að nota tækifærið til að kveðja þennan ljúfa og góða dreng. Síðan fréttin barst okkur til eyrna hafa margar hugsanir sótt að, við minnumst allra þeirra stunda er við áttum með honum, og það er með sárum söknuði að við kveðjum, enda óendanlega sorglegt að þurfa að kveðja jafn yndislegan og vel skap- aðan dreng svona fljótt. Þótt það hafi aldrei farið mikið fyrir Jóni fann maður alltaf fyrir nærveru hans, hann var svo skap- andi og fyndinn og var alltaf tilbú- inn að standa með vinum sínum í öllu og gaf ótrúlega mikið af sér. Hann kom manni sífellt á óvart með uppátækjum sínum og maður gat verið viss um að þar sem Jón Valur fór, þar ríkti gleði og hlátur, því að við höfum sjaldan kynnst mann- eskju sem lætur líðan fólksins í kringum sig skipta sig jafn miklu máli, hann var alltaf tilbúinn að gera hvað sem þyrfti til að láta manni líða vel. Jón Valur var kannski dulur, en það duldist samt engum að þar fór strákur sem átti framtíðina fyrir sér, hann var með eindæmum vel gefinn og þurfti aldrei að leggja neitt á sig til að læra, hann var mikill tölvukall og ef einhvern vantaði aðstoð, þá var Jón alltaf tilbúinn að hjálpa. Og það lýsir hon- um kannski best, því að hann var með eindæmum hjálpsamur og góð- ur, og var alltaf tilbúinn að leggja mikið á sig fyrir samferðamenn sína. Við erum öll sammála um það að við eigum engar slæmar minningar um Jón, þær vekja allar ljúfsárar tilfinningar og hlátur, og við munum aldrei gleyma þér, Jón, hvorki húm- ornum né góðseminni, þú skilur eft- ir þig skarð sem enginn á eftir að geta fyllt. Það er svo erfitt að kveðja þig, en við erum svo þakklát fyrir að hafa kynnst þér og fengið þennan tíma með þér, þótt hann hafi verið stutt- ur. Þú varst yndislegur, og þannig munum við alltaf minnast þín. Við viljum votta foreldrum, fjöl- skyldu og vinum innilegustu samúð okkar. Árgangur 1987 í Brekkubæjarskóla. Á köldum en fallegum vordegi barst mér fregnin um andlát Jóns Vals Ómarssonar. Mér kólnaði í fyrstu en ég hef síðan yljað mér við góðar minningar um góðan dreng og nemanda. Jón Valur var í fyrsta og raunar eina umsjónarárgangi mínum í Grundaskóla. Einstakur og hlýr var hann alla tíð. Það fór ekki mikið fyr- ir honum, hann hafði ekki mjög hátt en hann er í alla staði minnisstæður fyrir prúðmennsku og góða nær- veru. Ég kenndi árgangnum hans Jóns Vals í þrjú ár en fylgdist með þeim alla grunnskólagönguna eins og oft gerist með kennara. Einnig hef ég fylgst með framgöngu þeirra í fram- haldsskóla. Síðast hitti ég Jón Val einmitt með móður sinni í prófatörn framhaldsskólans fyrir skömmu og hann sagði mér frá því sem hann var að gera og hvernig honum gengi. Ég hef oft sagt að það séu forrétt- indi að vera kennari. Það eru nefni- lega forréttindi að umgangast og kynnast börnum og unglingum, for- eldrum þeirra og aðstandendum og um leið ótrúlega gefandi. Ég átti því láni að fagna að eiga mjög góð samskipti við Jón Val og foreldra hans. Þau og fjölskyldan öll eiga nú um sárt að binda. Ég kann engin orð sem geta sefað sorg þeirra eða söknuð. Ég votta þeim öllum og vinum Jóns Vals innilega samúð mína. Minning hans mun lifa með öllum sem þekktu hann. Hrönn Ríkharðsdóttir. Það er með sárum söknuði og sorg að ég rita þessi orð, orð til að kveðja yndislegan dreng, sem hafði gefið mér svo mikið. Síðan mér var sagt að þú hefðir farið frá okkur, Jón, hef ég hugsað um lítið annað en þig. Ótal minn- ingar um þær stundir sem við áttum hafa komið upp í huga mér og þær hafa veitt mér huggun í þessari sorg sem hvílir yfir öllu og öllum síðan þú féllst frá. Ég átti bágt með að trúa því að þú værir farinn þegar mér var sagt það, ég vonaði af öllu hjarta að þeg- ar nýr dagur rynni myndi ég vakna og sjá að þetta hefði allt verið vond- ur draumur, þú værir enn til staðar með brosið þitt og hláturinn sem einkenndi þig. Svo reyndist ekki vera, og þegar ég áttaði mig á því var eins og ský drægi fyrir sólu. Ég trúi því varla enn að þú sért farinn. Þú varst svo yndislegur og hjálp- samur, þú reyndir alltaf að gera það sem í þínu valdi stóð til að hjálpa og það gastu líka oftast. Ég veit að ég á bara góðar minningar um þig. Þú gast alltaf komið mér til að hlæja, jafnvel þegar mér leið sem verst. Þá gast þú sagt réttu hlutina á réttum tíma og látið mér líða betur. Þú varst mesti húmoristi sem ég hef kynnst, með sérstakan og auð- kenndan húmor sem fáir skildu. Þú sagðir stundum svo mikla vitleysu að ég vissi ekki hvað ég átti að halda, en þegar ég náði því lá við að ég grenjaði af hlátri. Þú gerðir aldrei neitt á minn hlut, og það er sama hversu mikið ég hugsa, þá finn ekki neitt sem þú hef- ur gert eða sagt til að særa neinn. Þú gerðir líf mitt svo miklu skemmtilegra að ég á eftir að vera þér að eilífu þakklát fyrir að sýna mér kómísku hliðarnar á hlutunum og fyrir allan þann hlátur sem þú gafst mér. Það var orðið langt síðan ég hafði talað við þig, alltof langt. Ég hafði misst sambandið við þig og mér þykir það svo óendanlega sárt núna, því að ég fékk ekki tækifæri til að kveðja þig. Ég vildi óska að ég gæti snúið aftur í tímann og tekið frum- kvæðið að því að byrja að tala við þig aftur eins og við gerðum í gamla daga, en ég get það ekki, og það þykir mér afar leitt. Jón, þú trúir því aldrei hversu marga þú snertir á þinni stuttu ævi, þú trúir því ekki hversu margir syrgja þig, en hjörtun sem þú snert- ir án þess að vita af því lifa nú í þeirri von að þú hvílir í friði, og mitt hjarta er eitt af þeim. Ég er óendanlega þakklát fyrir að hafa orðið þess heiðurs aðnjótandi að kynnast þér, og fá að sjá smá inn í það dýpi sem hugur þinn var. Því að þú varst svo margslunginn og skemmtilegur, og hlutirnir sem þú pældir í létu mig sjá út fyrir kass- ann. Ég á þér svo margt að þakka, Jón, og ég vil gera það hér. Takk fyrir að hafa haft tíma fyrir mig þegar ég þurfti á þér að halda, takk fyrir að vera ein af skemmti- legustu manneskjum sem ég hef kynnst, takk fyrir að hafa verið þú sjálfur í gegnum þykkt og þunnt. Takk Jón, fyrir að hafa verið til. Ég vil senda foreldrum, fjöl- skyldu og vinum Jóns mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Megi guð vera með ykkur í gegnum þessa erf- iðu tíma. Ásdís Sigtryggsdóttir. Kæri Jón Valur. Það er sorglegt hvernig þetta fór. Við vildum að við hefðum getað hjálpað þér betur en raun bar vitni. Við vonum að þú vitir það að við söknum þín. Við vildum öll að þetta hefði aldrei gerst. Þó að samband okkar hafi ekki verið mikið viljum við samt að þú vitir að af okkar vin- um ertu einn af þeim kærustu! Von- andi líður þér betur þar sem þú ert núna en þér leið í lifanda lífi. Við vitum þó tvennt fyrir víst. Við munum hittast aftur, og ef þú vilt vera hjá okkur er það alveg velkom- ið. Hitt er það að þú og minning þín mun lifa í brjóstum okkar alla ævi. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur, heyrði ég eitt sinn sagt. Nú veit ég að það er eigi rétt. Ég tel mig hafa vitað hvað ég átti og vildi að ég hefði aldrei misst það. Við munum sakna þín alla okkar ævi, okkar kæri vinur. Hvíldu í friði. Jóhann Þorsteinsson og Kristján Sigurðarson. Elsku Jón Valur, hjartans þakkir fyrir samverustundirnar sem við áttum saman. Guð varðveiti þig. Á hvítum vængjum kom vorið inn um gluggann rétti þér hönd og hvíslaði: Komdu með mér í ferð um ódáinslendur þar sem gullnar rósir vaxa í hverju spori svo hverfum við saman í sólarlagið. (Þórdís Guðjónsdóttir.) Elsku Ómar, Jórunn, Siggi Ari og Sigga. Guð veri með ykkur og styrki í þessari miklu sorg. Þórir, Barbara, Óli Þór og Steinþóra, Heiðar og fjölskylda. Dauðinn bankar á dyr, óvænt, farðu burt, farðu burt, bökkum, bökkum aftur í tímann. Reynum að breyta, reynum að hjálpa. En of seint föttum við, hugarangist sveinsins. Sorg, eymd, ótti, samt reynt að hugga. Strokur, faðmlag, byrja að reyna, reyna að græða hið blæðandi sár, vitandi að það tekst aldrei, aldrei að fullu. Myrkur helltist yfir okkur við þau hörmulegu tíðindi að þú værir horf- inn yfir móðuna miklu. Aðeins 19 ára gamall og því alltof ungur til að leggja í slíka langferð. Fyrir hug- skotum vorum birtist þú með þína björtu og ljósu ásýnd og glettnislegt brosið. „Hann Jón Valur er eins og Jesús“ varð yngstu dóttur okkar, Yrsu Þöll, að orði í fermingu systur sinnar, Öldu Bjarkar, nú í aprílbyrj- un. Ástæðan var sítt ljóst hárið, skeggið og skínandi útgeislunin. Alls ekki slæm samlíking hjá barninu en líklega hefur útlitinu að hluta til ráðið áhugi þinn á víkingum til forna, siðum þeirra og sögu. En börnin eru oft næmari en við sem eldri erum og því ekki ólíklegt að eitthvað hafi blasað við henni sem auga okkar ekki nam. Það er sárt að geta ekki lengur átt spjall við þig, kæri vinur, og sorgin í hjörtum okkar er meiri en nokkur orð fá lýst. Við óskum þér farsællar ferðar að ljósinu eina og megi Guð vera þér náðugur. Elsku drengurinn! Far þú í friði og megi englar alheimsins vaka yfir þér um alla eilífð. Elsku Ómar, Jórunn, Siggi Ari og Sigga; Vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Megi Guð vaka yfir ykkur og styrkja í ykkar miklu sorg. Kveðja, Hugrún og Eyjólfur. Minningarkort Krabbameinsfélagsins 540 1990 krabb.is/minning

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.