Morgunblaðið - 31.05.2006, Síða 12

Morgunblaðið - 31.05.2006, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF � �� �  ��  � � ��  � � �� � � � �  H E I L B R I G Ð U R E I N K A R E K S T U R - TÆKIFÆRI TIL SÓKNAR Í ÍSLENSKRI HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU Morgunverðarfundur SA föstudaginn 2. júní kl. 8:15 – 9:30 Grand Hótel Reykjavík E R I N D I Sigurður Ásgeir Kristinsson, bæklunarlæknir og framkvæmdastjóri Orkuhússins. Anna Birna Jensdóttir, hjúkrunarforstjóri Sóltúns og framkvæmdastjóri Öldungs hf. Umræður og fyrirspurnir úr sal Fundarstjóri: Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA. Þátttökugjald kr. 2.500. Morgunverður innifalinn og nýtt rit SA: Heilbrigður einkarekstur. Skráning á vef SA www.sa.is og í síma 591-0000.    !"#  "#    $%#&  '  &  (#)   " " *%" 9 :)  ; ( / ; 9 :)< "(< %%= %+ @A   CD!& = !  &! &'"( !)*+ & '*+ & ,( !)*+ -,,"% ( !)*+ ./ 0*+ 12( !)*+ 1 ( !)*+ (  /,*+ 3!)4-,*+ 2 /,  *+ 5  *+ 5'1**+ 6 ! ! #-! 7 8198 +/,*+ :! *+ 1  D% +$!!  &"( !)*+ 1,  ,7!   *+$ -(  *+  )79*+ ;'  '( !)*+ <=* 9*+ >?1& '>  ! @ A 7%7*+ B !%7*+ !$ $ A0A 1, CA99 7 *+ 6 8! $ 6!7!  "+ 9(!! $ ;DCE 67 "7,+" 7                 #  #  #   # # # # - A 8 A "7,+" 7 # #       #     #  #   #  # # #  # #  # # # # # F#  G F  G F  G F  G F#  G F G F G F  G # F  G F#  G F  G # F G # # # F G # # F G # # # #   "7,)  @ /7 ,  3!)6  ++ + + + +  ++  + +  + + + +  ++  ++  + + ++ + +  + + +  +  + + # + # + # + +  + # # # #                 #  #    #  # #                 #    #      # #   B7,)40+, + &@+H&*!!  19%  "7,)      #  # #   # # # # ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● HLUTABRÉF hækkuðu í verði í Kaup- höll Íslands í gær. Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,58% og er 5.680 stig í viðskiptum upp á 2,9 milljarða, þar af fyrir 790 milljónir með bréf Glitnis. Mest hækkuðu bréf Flögu, eða um 3,75%, bréf Avion hækkuðu um 2,49% og bréf Glitnis um 2,31%. Bréf Alfesca lækkuðu um 0,8% og bréf Atlantic Petr- olium um 0,64%. Hlutabréf hækkuðu ● HAGNAÐUR Atorku Group, móð- urfélags, eftir skatta á fyrsta árs- fjórðungi nam rúmum fjórum millj- örðum króna en á sama tímabili á síðasta ári nam hagnaður- inn um 660 milljónum króna. Í tilkynningu til Kauphallar Ís- lands kemur fram að heildareignir í lok ársfjórðungsins voru 30,6 milljarðar króna, en þær jukust um 10,6 milljarða króna á ársfjórð- unginum. Eigið fé í lok fjórðungs- ins nam 15.573 milljónum króna og arðsemi eigin fjár á árs- grundvelli var 120,4%. Eiginfjár- hlutfall í lok fjórðungsins var 50,9%. Hagnaður samstæðu Atorku Group hf. var 765,7 milljónir króna. Þar af nam EBITDA Jarðbor- ana, þ.e. hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnskostnað, 298,9 millj- ónum króna, sem er skv. tilkynn- ingu Atorku til Kauphallarinnar í samræmi við áætlanir. EBITDA- hagnaður Promens var 198,4 millj- ónir króna og hagnaður félaga á heilbrigðismarkaði var 129,1 millj- ón króna. Hagnaður Atorku 4 milljarðar OLÍU- og orkumálaráðherra Noregs, Odd Roger Enoksen, hefur óskað eftir því við norska félagið Elkem, móðurfélag Íslenska járnblendifélagsins á Grundartanga, að beðið verði með að taka ákvörð- un um að loka hluta af verksmiðju félagsins í Ålvik í Noregi. Þetta kemur fram í frétt á norska frétta- vefnum HegnarOnline. Er haft eftir ráðherranum að til standi að enduskoða orkustefnu stjórnvalda og að þeirri endurskoðun verði lokið í júlímánuði næstkomandi. Fyrr í þessum mánuði var greint frá því að Elkem stefni að því að loka hluta af verksmiðju fé- lagsins í Ålvik. Ástæðan væri sú að árið 2010 muni norsk stjórnvöld hætta niðurgreiðslu á raforku- verði til verksmiðjunnar. Í frétt HegnerOnline segir, að vegna þessa muni orkuverð til verksmiðj- unnar, að öðru óbreyttu, hækka úr 12-13 norskum aurum fyrir hverja kílóvattstund í 33-40 aura. Flutningur til Íslands ekki ákveðinn Fyrr í þessum mánuði var einnig greint frá því, að til greina komi að flytja þann hluta starfsem- innar í verksmiðju Elkem í Ålvik sem snýr að framleiðslu á magnesíum-kísiljárni til Járnblendi- félagsins á Grundartanga. Það hefði í för með sér fjárfestingu upp á 1,5 til 2 milljarða króna hér á landi og allt að 40 ný störf gætu þá skapast á Grundartanga. Ingimundur Birnir, forstjóri Ís- lenska járnblendifélagsins, tók fram í samtali við Morgunblaðið í tengslum við þessar fréttir á sín- um tíma, að yfirstjórn Elkem hefði ekki tekið ákvörðun í þessum efnum. Elkem bíði með að loka í Noregi Morgunblaðið/Þorkell Móðurfélag Norska félagið Elkem er móðurfélag Íslenska járnblendifélagsins. FLEIRI neytendur eru nú svartsýnir í efnahags- og atvinnu- málum en þeir sem eru bjartsýnir og er þetta í fyrsta sinn frá því í desember 2002 sem væntingavísitala Gallup mælist und- ir 100 stigum. Þetta er meðal þess sem má lesa úr niðurstöð- um Gallup sem birtar voru í gær, en væntingavísitalan hefur verið mæld mánaðarlega frá því í mars 2001. Um þriðjungur neytenda telur að núverandi ástand í efnahagsmálum sé gott, hins vegar telja 27% neytenda að ástandið sé slæmt. Væntingar neytenda til ástandsins í efnahags- og atvinnu- málum eftir sex mánuði hafa dregist verulega saman og hafa ekki mælst jafnlitlar síðan í nóvember 2001, en þá reyndist samdráttur vera framundan í efnahagslífinu. Á þetta bendir greiningardeild Glitnis í Morgunkorni í gær, en þar er jafn- framt skrifað að þessar mælingar rími við spá deildarinnar um að verulega dragi úr hagvexti á næsta ári. Þá telur grein- ingardeildin að lækkunin bendi sterklega til þess að nú hægi verulega á hröðum vexti einkaneyslu og að á næstunni muni hún dragast saman. Þá telja 46% neytenda að atvinnumöguleikar séu miklir í dag en tæp 17% telja aftur á móti að atvinnumöguleikar séu litlir. 42% telja að efnahagsástandið muni verða verra eftir sex mánuði en það er nú, en það er lækkun upp á 6 prósentu- stig frá fyrri mánuði þegar hlutfallið var sem hæst. Aðeins 14% neytenda telja að efnahagsástandið muni reynast betra eftir sex mánuði. 17% telja að atvinnumöguleikar reynist minni eftir sex mánuði en 11% telja að möguleikar sínir verði meiri. Aukinnar svartsýni gætir meðal neytenda Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Vísbending um samdrátt Greiningardeild Glitnis segir aukna svartsýni vera vísbendingu um sam- drátt í einkaneyslu. MATSFYRIRTÆKIÐ Fitch hefur hækkað lánshæfismat sitt á Her- itable Bank Ltd., dótturfélagi Landsbankans í Bretlandi til sex ára. Er matið hækkað úr C/D í C, fyrst og fremst vegna aukins hagn- aðar bankans. Verðbréfaútgáfur bankans fá einkunnina A og skamm- tímaeinkunnin er F1, sem byggist á ábyrgðum móðurfélagsins, Lands- bankans, sem er með lánshæfismatið A. Sem ástæðu fyrir hækkuðu mati nefnir Fitch Ratings einnig góðan vöxt Heritable Bank, aukna arðsemi og dreifðari áhættu í lánasafninu. Þá eru horfur í starfsemi bankans sagð- ar stöðugar. Hins vegar nefnir Fitch áhyggjur sínar af því að gæði eigna- safnsins geti minnkað. Landsbankinn keypti Heritable Bank árið 2000 en bankinn, sem stofnaður var árið 1877, stundar að- allega fjármögnun á fasteignum. Fitch Ratings hækkar mat Heritable Bank FARÞEGUM Icelandair fjölgaði um 13% í apríl miðað við sama mánuð í fyrra. Á síðasta ári voru farþegar um 104 þúsund en í ár voru þeir rúmlega 117 þúsund. Þá jókst sæta- nýting félagsins í mánuðinum um sjö prósentustig og var 78%. Frá áramótum hefur farþegum Icelandair fjölgað um 5% og eru tæp 370 þúsund talsins. Hefur sæta- nýting batnað um 2 prósentustig á fyrstu fjórum mánuðum ársins. Einnig hefur farþegum fjölgað í innanlandsflugi Flugfélags Íslands eða um 3% í apríl og um 8% frá ára- mótum, miðað við sömu tímabil á síðasta ári. Fluttum tonnum Icelandair Cargo fjölgaði um 12% í apríl og um 13% frá áramótum. Fartímum í al- þjóðlegu leiguflugi Loftleiða – Ice- landic fækkaði um 11% í apríl, en á fyrstu fjórum mánuðum ársins hef- ur þeim fjölgað um 18% frá því í fyrra. Í tilkynningu frá Icelandair er haft eftir Jóni Karli Ólafssyni for- stjóra að bókunarútlitið fyrir sum- arið sé gott, en að framboð Ice- landair verði svipað í ár og í fyrra. Farþegum Icelandair fjölgaði um 13% < I 6J>       1@6C .&K      D&D L5K      L5K3*% <,,      ;DCK .MN      

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.