Morgunblaðið - 31.05.2006, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2006 17
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
MA hátíð verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri
föstudaginn 16. júní
Fordrykkur frá 18:15-18:45
Miðasala er hafin á netinu, www.ma81.com og einnig er hægt að ganga frá greiðslu á
1175-26-101981, kt. 6402060630 og miðarnir verða sendir í pósti til viðkomandi.
Miðaverð er kr. 6.800 fyrir aðra en eins árs stúdenta
en fyrir þá er miðaverð kr. 4.200.
Miðasala stendur til 13. júní á netinu en verður í höllinni 15. og 16. júní
frá kl. 13.00-17.00.
Miðar á dansleik verða seldir við innganginn, verð kr. 2.000.
Afmælisárgangar eru hvattir til að fjölmenna.
Samkvæmisklæðnaður.
Upplýsingar um dagskrá og fyrirkomulag miðasölu á heimasíðu 25 ára
stúdenta: www.ma81.com.
OPIÐ HÚS Í DAG
Barmahlíð 14
Sérlega björt mikið endurnýjuð
og falleg 129,6 fm 3ja-4ra
herb. efri sérhæð með fallegri
sólstofu ásamt 32,2 fm bílskúr
á þessum vinsæla og eftirsótta
stað. Heildarstærð eignarinnar
er 161,8 fm. Eignin getur verið
til afhendingar strax.
Gunnur tekur á móti gestum í dag milli kl. 16:30 og 20
ÁÆTLUNARFLUG Iceland Ex-
press á milli Akureyrar og Kaup-
mannahafnar hófst í gærkvöldi. Þota
á vegum félagsins sem kom frá
dönsku höfuðborginni lenti í höfuð-
stað Norðurlands skömmu eftir kl. 21
með 109 farþega og rúmri klukku-
stund síðar fór hún af stað til baka
með 110 manns innanborðs. Vélin átti
að lenda í borginni við Sundið um
miðja nótt.
Framkvæmdastjóri Iceland Ex-
press greindi frá því í gærkvöldi að í
haust yrði flogið í fimm vikur beint
frá Akureyri til London, frá því í
september og fram í október, og í
framhaldi þess í aðrar fimm vikur til
Kaupmannahafnar á nýjan leik. Í
báðum tilfellum verður boðið upp á
ferðir frá Akureyri á fimmtudegi og
heim á sunnudegi.
Þóra Ákadóttir, forseti bæj-
arstjórnar, sagði í ávarpi í flugstöð-
inni í tilefni fyrsta áætlunarflugsins
til Kaupmannahafnar, að Akureyr-
ingar hefðu áður fengið að kynnast
því hve mikill lúxus það væri að geta
flogið beint til útlanda úr heimabæn-
um. „Það er ómetanlegt, og það eig-
um við Akureyringar og reyndar
Norðlendingar allir, og Austfirð-
ingar, eftir að finna,“ sagði Þóra.
Birgir Jónsson, framkvæmdastjóri
Iceland Express, lýsti við þetta tæki-
færi mikilli ánægju með að áætl-
unarflugið væri að hefjast. „Þetta er
stór dagur fyrir okkur hjá Iceland
Express og ekki síður farþegum okk-
ar.“
Birgir sagði þess misskilnings
stundum gæta að Iceland Express
vildi reka einhvers konar byggða-
stefnu með því að koma á beinu flugi
á milli höfuðstaðar Norðurlands og
Danmerkur. „Svo er auðvitað ekki
heldur fannst okkur þetta einfaldlega
gott viðskiptatækifæri. Hér á svæð-
inu búa 40 þúsund manns, við tókum
þá áhættu að hefja áætlunarflug
hingað og það er skemmst frá því að
segja að salan fyrir sumarið hefur
gengið gríðarlega vel og farið fram úr
okkar björtustu vonum.“
Flogið til London í haust
Birgir tilkynnti á Akureyrar-
flugvelli í gærkvöldi þá ákvörðun Ice-
land Express, að flogið yrði beint til
London frá Akureyri í fimm vikur í
haust, eftir að áætlunarfluginu til
Kaupmannahafnar lýkur, og síðan
jafnlengi til Kaupmannahafnar á ný.
Áætlunarfluginu til Kaup-
mannahafnar, sem hófst í gær, lýkur
5. september og í beinu framhaldi
hefjast ferðirnar til London. Flogið
verður á fimmtudagsmorgni frá Ak-
ureyri til Stanstead-flugvallar og
heim á sunnudagskvöldi.
Frá því í október og fram í desem-
ber verður síðan flogið á fimmtudags-
morgnum frá Akureyri til Kaup-
mannahafnar og heim aftur á
sunnudagskvöldum.
Áætlunarflug hafið á milli
Akureyrar og Kaupmannahafnar
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Af stað Birgir Jónsson, framkvæmdastjóri Iceland Express, klippir á
borða í flugstöðinni á Akureyri í tilefni þess að áætlunarflugið er hafið.
Iceland Express tilkynnir um áætlunar-
flug til London í fimm vikur í haust og
aftur til Kaupmannahafnar fyrir jól
Velkomnir! Fyrstu farþegarnir ganga í átt að flugstöðinni í gærkvöldi.
ALÞJÓÐLEG tónlistarhátíð, Akur-
eyri International Music Festival,
verður haldin í fyrsta skipti á Akur-
eyri um hvítasunnuhelgina, 2.–4. júní,
og hefst á föstudaginn. Blúsinn verð-
ur þema þessarar fyrstu hátíðar og
verða haldnir þrennir blústónleikar í
hæsta gæðaflokki, að sögn aðstand-
enda.
Opnunartónleikar hátíðarinnar
verða að kvöldi föstudagsins 2. júní á
Hótel KEA þar sem annars vegar
kemur fram Blúskompaní Magnúsar
Eiríkssonar, sem auk Magnúsar
skipa Pálmi Gunnarsson, Gunnlaugur
Briem og Agnar Már Magnússon.
Með þeim kemur fram gestasöngkon-
an Hrund Ósk Árnadóttir, sem sigr-
aði í Söngkeppni framhaldsskólanna
á sl. ári. Hins vegar leikur Park Proj-
ekt, sem er samvinnuverkefni Krist-
jáns Edelstein, gítarleikara og upp-
tökustjóra og Pálma Gunnarssonar.
Þeim til aðstoðar eru Agnar Már
Magnússon og Gunnlaugur Briem.
Á laugardagskvöldið verða tón-
leikar blússveitarinnar Lamont
Cranston Blues Band frá Minn-
eappolis í Bandaríkjunum í Ketilhús-
inu, en hún er talin ein af þeim
fremstu á þessu sviði í heiminum í
dag. Sveitin er skipuð Pat Hayes,
söngvara, gítarleikara og munn-
hörpuleikara, Ted Larsen, gítarleik-
ara, bassaleikaranum Mike Carvale,
Dale Peterson, sem leikur á píanó og
hammond B3, Greg Shucks, tromm-
ara, Jim Greenwell, saxófónleikara og
píanistanum Bruce McCabe.
Þriðju og síðustu tónleikar AIM-
festival verða á veitingastaðnum
Rocco á Akureyri að kvöldi hvíta-
sunnudags. Þar koma fram Lamont
Cranston Blues Band, Blúskompaní
Magnúsar Eiríkssonar og Blúsmenn
Andreu, en þá sveit skipa Andrea
Gylfadóttir, Guðmundur Pétursson,
Haraldur Þorsteinsson, Einar Rún-
arsson og Jóhann Hlöðversson.
Forsala aðgöngumiða er á vefsíð-
unni www.midi.is.
Blús í öndvegi á alþjóðlegri tón-
listarhátíð um hvítasunnuhelgina
Myndlist | Sýningu Gunnars Krist-
inssonar, Sigurliðið, á Café Karólínu
lýkur á föstudaginn, 2. júní. Á sýn-
ingunni gefur að líta málverk, teikn-
ingar og prjónaskap þar sem sig-
urlið heimsmeistarakeppninnar í
knattspyrnu 2006 er kynnt.
Á sama tíma stendur yfir sýningin
„Mjúkar línur / Smooth lines“ eftir
Joris Rademaker á Karólínu Rest-
aurant. Joris er bæjarlistamaður
Akureyrar. Sýning Jorisar stendur
til 6. október 2006.
Meistaravörn | Fyrsta meist-
aravörnin við heilbrigðisdeild Há-
skólans á Akureyri fer fram í dag.
Það er Sigríður Jónsdóttir sem mun
verja meistararitgerð sína en þar
fjallar hún um sjálfsónæmis-
sjúkdóminn iktsýki, streitu og til-
einkun bjargráða eftir áföll. Hún
skoðar hvað það er sem leysir sjúk-
dóminn úr læðingi, áhrif langvarandi
streitu á sjúkdómseinkenni og
bjargráð sem sjúklingar tileinka sér
eftir alvarleg áföll.
Um 3000 Íslendingar eru með ikt-
sýki og veldur sjúkdómurinn mörg-
um ómældum þjáningum, skv. frétt
frá HA.
ODDVITAR Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingarinnar á Akureyri hitt-
ust í gærkvöldi ásamt fleirum og
ræddu möguleika á myndun nýs
meirihluta í bæjarstjórn.
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri og leiðtogi sjálfstæðismanna,
og Hermann Jón Tómasson, oddviti
Samfylkingarinnar, ræddu saman
ásamt fleirum. Ekki var rætt af
neinni alvöru um málefni og ekkert
var ákveðið annað en það að annar
fundur verður haldinn á morgun.
Sjálfstæðismenn
og Samfylking
hefja viðræður
♦♦♦
BJARNI E. Guðleifsson náttúru-
fræðingur á Möðruvöllum í Hörgár-
dal hefur skrifað bókina Úr jurtarík-
inu, sem er önnur af þremur í
ritröðinni Náttúruskoðarinn. Bóka-
útgáfan Hólar á Akureyri gefur út.
„Þetta er ekki fræðirit, heldur
kver fyrir almenning en ekki síður
merkilegt en stóru, flottu bæk-
urnar,“ sagði Bjarni þegar hann
kynnti bókina í Lystigarðinum á Ak-
ureyri. Hann fjallar í einföldum
texta um ýmis fyrirbæri í nátt-
úrunni. Ekki er um tæmandi fræði-
lega úttekt á að ræða, heldur auð-
lesnar vangaveltur um ólík fyrirbæri
sem höfundi hafa þótt áhugaverð.
Einnig eru í kverinu ljóð tengd
hverju viðfangsefni.
Bjarni afhenti Landvernd fyrsta
eintak bókarinnar að gjöf og tók
Bergur Sigurðsson framkvæmda-
stjóri samtakanna við bókinni.
„Almenningur þarf að læra meira
um náttúruna, það er góð leið til þess
að vernda hana. Þetta er því kær-
komin bók,“ sagði Bergur. Hann tók
við 10 eintökum bókarinnar að auki,
sem höfundur og útgáfan gáfu Lög-
verndarsjóði náttúru og umhverfis,
sem stofnaður var 2002 og Land-
vernd sér um. Sagði Bjarni að sjóð-
urinn gæti vonandi selt bækurnar til
þess að afla fjár, en þeir sem verja
hagsmuni náttúru og umhverfis geta
sótt um styrki úr sjóðnum.
Nýtt kver um jurtaríkið
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Bjarni Guðleifsson, t.h., afhendir
Bergi Sigurðssyni fyrsta eintakið.