Morgunblaðið - 31.05.2006, Síða 19

Morgunblaðið - 31.05.2006, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2006 19 MINNSTAÐUR SUÐURNES Níutíu ára en samt ný Við opnum2. júní Keflavík | Keflvíska hljómsveitin Safnaðarfundur eftir messu und- irbýr útgáfu hljómplötu með eig- in lögum í bland við lög eftir aðra. Hljómsveitin leikur mikið á dansleikjum, um allt land, og framundan er þétt dagskrá. „Það var hóað saman strákum í sal Tónlistarskóla Reykjanes- bæjar til að spila saman og hafa gaman af. Við vorum allir í námi þar,“ segir Gunnar Ingi Guð- mundsson bassaleikari hljóm- sveitarinnar Safnaðarfundur eftir messu. Hljómsveitin var stofnuð haustið 2002 og hefur lengst af þeim tíma verið virk í spila- mennsku, leikið á dansleikjum um allt land. „Við erum miklir fé- lagar, nánast eins og bræður. Það viðheldur áhuganum,“ segir Gunnar Ingi. Félagarnir úr Safnaðarfundi eftir messu hafa mest leikið tón- list eftir aðra, aðallega gamla góða tónlist sem Gunnar Ingi seg- ir að fólkið vilji hlusta á. Þeirra eigin hlutur í tónlistinni hefur þó heldur vaxið. Gunnar Ingi er aðal lagahöf- undur hljómsveitarinnar. Auk lagasmíða fyrir eigin hljómsveit átti hann Þjóðhátíðarlag Vest- mannaeyja 2003. Þorvaldur Hall- dórsson trommuleikari semur textana. Jón Marinó Sigurðsson er söngvari hljómsveitarinnar og Gylfi Gunnar Gylfason gítarleik- ari. „Við stefnum að því að gefa út plötu, með okkar lögum í meiri- hluta en nokkur verða eftir aðra. Vinnum hægt og hljótt að þessu,“ segir Gunnar Ingi og telur að þeir séu um það bil hálfnaðir með upptökur. Þeir eru að reyna að koma fyrstu lögunum í spilun í útvarpi en lögin er hægt að nálg- ast á rokksíðum og vef hljóm- sveitarinnar, folk.is/sfmessa. Hljómsveitin hefur verið undir smásjá hjá bandarísku fyrirtæki sem vill gefa út fyrir þá þar. Hafa þeir fengið boð um að koma út til að kynna það sem þeir eru að gera. Gunnar Ingi segir að það sé mikið mál að breyta öllu efninu en segir að þeir séu spenntir fyrir þessu. „Það verður kannski af því næsta sumar.“ Þangað til ætla þeir að einbeita sér að íslenska markaðnum, gefa út plötuna og spila. Gunnar Ingi segir að mikil spilamennska sé framundan, úti um allt, eins og hann kemst að orði. „Erum nánast eins og bræður“ Vinir Gunnar Ingi, Þorvaldur, Jón Marinó og Gylfi Gunnar spila undir merkjum Safnaðarfundar eftir messu. Framundan er þétt dagskrá. Keflavík | Framkvæmdir við inn- réttingu nýrra skurðstofa á þriðju hæð D-álmu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í Keflavík hefjast á næst- unni. Samþykkt hefur verið að ráð- ast í framkvæmdina og verður útboð auglýst á næstunni. Þriðja hæðin er fokheld að hluta og tilbúin undir tréverk að hluta. Stjórnendur Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja hafa viljað nýta húsnæð- ið fyrir nýjar skurðstofur sem nú eru í þröngu húsnæði í gamla sjúkrahús- inu. Nú hefur nefnd um opinberar framkvæmdir samþykkt tillögu heil- brigðisráðuneytisins um að ráðast í þessa framkvæmd. Að sögn Sigríðar Snæbjörnsdótt- ur, framkvæmdastjóra HSS, er hús- næðið um 1.000 fermetrar. Það verð- ur nýtt til að koma upp skurðstofu og aðgerðastofu, sótthreinsun og að- stöðu fyrir starfsfólk, auk skrifstofa. Áætlanir sem gerðar voru á vegum HSS á sínum tíma gerðu ráð fyrir að kostnaður gæti orðið allt að 200 milljónum kr. „Þegar þessi aðstaða kemur verð- um við tilbúin að takast á við fram- tíðina. Við verðum komin með þá að- stöðu sem þarf til að veita alla nauðsynlega heilbrigðisþjónustu í útjaðri höfuðborgarsvæðisins,“ segir Sigríður. Leyfi veitt til að inn- rétta nýjar skurðstofur Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.