Morgunblaðið - 31.05.2006, Blaðsíða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
THE POSEIDON ADVENTURE kl. 5 - 7 - 9 - og 11 B.I. 14 ÁRA
THE DA VINCI CODE kl. 4 - 6 - 8 - og 10 B.I. 14 ÁRA
MI:3 kl. 5:30 - 8 og 10 B.I. 14 ÁRA
SHAGGY DOG kl.6 - 8
eeee
VJV, Topp5.is
VERÐUR HANN HUND-
HEPPINN EÐA HVAÐ!
eee
S.V. MBL.
eee
VJV - TOPP5.is
Leitið Sannleikans
- Hverju Trúir Þú?
LOKAUPPGJÖRIÐ Í HINUM STÓRKOSTLEGA X-MEN SAGNABÁLKI.
NÚNA MUNU HINIR STÖKKBREYTTU BERJAST INNBYRÐIS
SIGURVEGARINN RÆÐUR ÖRLÖGUM MANNKYNS.
MEÐ HVERJUM HELDUR ÞÚ?
MAGNAÐUR SUMARSMELLUR
SEM ENGINN MÁ MISSA AF!
POSEIDON ADVENTURE kl. 8 - 10 B.I. 14 ára
X-MEN 3 kl. 8 B.i. 12 ára
DA VINCI CODE kl. 10:10 B.i. 14 ára
NÝ GAMANMYND FRÁ LEIKSTJÓRA „AMERCAN PIE“ & „ABOUT A BOY“
FRÁ FRAMLEIÐENDUM „BRIDGET JONE’S DIARY“ OG „LOVE ACTUALLY“
eee
L.I.B.Topp5.is
FRÁ LEIKSTJÓRA "TROY"
OG "PERFECT STORM"
HALTU NIÐRI Í ÞÉR ANDANUM. MÖGNUÐ
SPENNA FRÁ BYRJUN TIL ENDA.
POSEIDON ADVENTURE kl. 6 - 8 - 10 B.I. 14
AMERICAN DREAMZ kl. 6 - 8
MI : 3 kl. 10 B.I. 14 ára
eee
S.V. MBL.
eee
V.J.V.Topp5.is
SAMBÍÓ KEFLAVÍKSAMBÍÓ AKUREYRI
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA STAFRÆ
NORSKA stuttmyndin Sniffer
hlaut Gullpálmann á kvik-
myndahátíðinni í Cannes að
þessu sinni, en íslenskur kvik-
myndatökumaður, Jakob Ingi-
mundarson, sá um tökur á
myndinni.
Jakob hefur starfað í Noregi
um árabil, en hann var hins
vegar tökumaður í íslensku
kvikmyndunum Dís og Gems-
um, auk þess sem hann vann
við gerð Nóa albínóa. Sniffer
fjallar um samfélag þar sem
mannfólkið getur flogið, en
það fjötrar sig niður til þess að
falla ekki í þá freistni að
fljúga. Einn daginn ákveður
hins vegar maður nokkur að
nóg sé komið, og ákveður að
hefja sig til flugs.
Leikstjóri myndarinnar heit-
ir Bobbie Peers, en hann skrif-
aði einnig handritið.
Kvikmyndir | Cannes
Íslendingur tók
bestu stuttmyndina
NORSK-ÍSLENSKA kvikmyndin
Den brysomme mannen, sem hlotið
hefur enska nafnið The Bothersome
Man, hlaut gagnrýnendaverðlaunin
á kvikmyndahátíðinni í Cannes á
sunnudaginn var. Þeir Ingvar Þórð-
arson og Júlíus Kemp hjá Kvik-
myndafélagi Íslands ehf. eru með-
framleiðendur myndarinnar, en hún
var að töluverðu leyti tekin hér á
landi.
Ingvar segir verðlaunin skipta
miklu máli fyrir myndina. „Þetta er
mikil alþjóðleg viðurkenning og það
er mjög mikill áhugi fyrir mynd-
inni,“ segir hann og bætir því við að
Íslendingar muni sjá myndina von
bráðar. „Já, pottþétt. Hún verður
frumsýnd á íslensku kvikmyndahá-
tíðinni (Iceland International Film
Festival) í haust og svo fer hún bara
í almenna dreifingu.“ Stór hluti Den
brysomme mannen er tekinn hér á
landi og segir Ingvar að íslensk
náttúra njóti sín vel á hvíta tjaldinu.
„Ísland kemur mjög vel út í mynd-
inni og tökurnar héðan eru margar
hverjar vægast sagt glæsilegar,“
segir hann.
„Myndin gerist hins vegar á al-
gjörlega óræðum stað. Hún er tekin
á Íslandi og í Ósló en á ekki að ger-
ast á neinum tilteknum stað.“
Ingvar segir að um 40 Íslend-
ingar hafi unnið við gerð mynd-
arinnar hér á landi, en tökurnar
fóru fram í ágúst á síðasta ári. Leik-
stjóri myndarinnar er Norðmað-
urinn Jens Lien.
Fyrirtæki Pitt og
Aniston áhugasamt
Ingvar segir að stórir aðilar í
Bandaríkjunum hafi nú þegar lýst
áhuga á að endurgera myndina þar
í landi. „Fyrirtæki leikarans Brad
Pitt sem hann á ásamt fyrrverandi
eiginkonu sinni, Jennifer Aniston,
hefur lýst yfir áhuga á að endur-
gera myndina í Bandaríkjunum,“
segir Ingvar.
Fjölmargar norskar kvikmyndir
hafa verið endurgerðar í Bandaríkj-
unum, til dæmis Head Above Water
og Insomnia, auk þess sem verið er
að endurgera kvikmyndina Elling
um þessar mundir. Ingvar segir
töluverðar líkur á því að samningar
muni nást við bandaríska fyrir-
tækið. „Það er verið að semja, en
það er mjög mikill áhugi fyrir
hendi,“ segir hann.
Den brysomme mannen fjallar
um Andreas, 42 ára gamlan mann
sem kemur til undarlegrar borgar
án nokkurra minninga um hvernig
hann komst þangað. Með tímanum
áttar hann sig á því að hann er kom-
inn í sitt eigið líf eftir dauðann.
Kvikmyndir | Norsk-íslensk kvikmynd verðlaunuð í Cannes
Bandarísk end-
urgerð í bígerð
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
Framleiðendur myndarinnar saman komnir, Ingvar Þórðarson, Jörgen
Storm og Júlíus Kemp, ásamt Tóbíasi Ingvarssyni.
Den brysomme mannen var að hluta til tekin hér á landi, en hér má sjá aðalpersónu myndarinnar á Sprengisandi.