Morgunblaðið - 04.06.2006, Qupperneq 1
F
A
B
R
I
K
A
N
M
Æ
TUM
ALLAR!
Allar upplýsingar á
www.sjova.is
Kvennahlaupið
um land allt
10. júní
Leyndin
yfir Lordi
Finnar vildu forsetatilskipun um að
Lordi léki ekki í Evróvisjón | 28
Tímarit og Atvinna í dag
Tímarit | Feðgin saman á 400 kílóa Kawasaki Lúsífer í
kvikmyndahúsunum 6.6. ’06 Elskulegt fólk í hvítum sloppum
Atvinna | Margvísleg atvinna í boði í öllum landshlutum
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
STOFNAÐ 1913 151. TBL. 94. ÁRG. SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Bagdad. AFP. | Rannsókn Bandaríkja-
hers hefur leitt í ljós að bandarískir
hermenn hafi ekki gerst brotlegir
við starfsreglur þegar á annan tug
Íraka féll í áhlaupi á hús í bænum
Ishaqi í mars sl. Hermennirnir
höfðu áður verið sakaðir um að
hafa myrt fólkið með köldu blóði,
nú þegar Bandaríkjaher verst ásök-
unum vegna rannsóknar á dauða 24
Íraka í bænum Haditha í nóv-
ember.
„Vegna ásakana um að allt að 13
óbreyttir borgarar hafi verið myrtir
í loftárás í nágrenni Ishaqi, suður
af Samarra, 15. mars, var þegar í
stað hafist handa við að rannsaka
atvikið,“ sagði William Caldwell,
hershöfðingi og talsmaður hers
bandamanna í Írak.
„Ásakanir um að hermennirnir
hafi tekið af lífi fjölskyldu sem bjó í
þessu húsi og síðan reynt að fela at-
vikið með loftárás eru hreinn upp-
spuni,“ sagði Caldwell í gær.
Upphaflega sögðu fulltrúar
Bandaríkjahers að fjórir hefðu fall-
ið í áhlaupinu í Ishaqi, sem hafði
það markmið að handsama meintan
liðsmann al-Qaeda-hryðjuverka-
samtakanna. Sú tala var hins vegar
endurskoðuð í kjölfar þess að
breska ríkisútvarpið, BBC, sýndi í
fyrradag myndband sem talið var
styðja þá frásögn írösku lögregl-
unnar að herinn hefði skotið 11
manns til bana. Myndbandið barst
BBC frá hópi súnníta sem er and-
vígur veru hers bandamanna í Írak.
Segja ásakanir „uppspuna“
ÍSLENDINGAR hafa ástæðu til að óttast
áhrif af hlýnun jarðar á Golfstrauminn,
segir Al Gore, fyrrverandi varaforseti
Bandaríkjanna, í viðtali
við Tímarit Morgun-
blaðsins. Í kvikmynd
Gore, An Inconvenient
Truth, fjallar hann um
hættuna af loftslags-
breytingum og lýsir
hættunni á rofi haf-
strauma vegna bráðn-
unar jökla, sér í lagi á
Grænlandi. „Slíkt
mundi hafa hörmulegar
afleiðingar í för með sér fyrir Ísland,“ seg-
ir hann í viðtalinu. Al Gore gagnrýnir
harðlega stefnu Bandaríkjanna í umhverf-
ismálum í viðtalinu.
„Hörmulegar
afleiðingar
fyrir Ísland“
Al Gore
„Og mennirnir verða viðmótsþýðir,/ því veröldin hitnar og loftin
blána./ Óvinir bera byrðar hvers annars/ og bankarnir keppast um það
að lána,“ orti Reykjavíkurskáldið Tómas Guðmundsson um vorkomuna.
Í dag er varla fréttnæmt ef bankar vilja lána. En hvað sem svo verald-
legum hlutum líður má ekki gleyma að njóta augnabliksins eins og Krist-
ín, sem blés sápukúlur yfir vegfarendur í sólinni.
Morgunblaðið/Golli
Veröldin hitnar og loftin blána
HAFRANNSÓKNASTOFNUN
leggur til að dregið verði úr heildar-
afla í þorski um 11 þúsund tonn milli
ára og dregið úr heildarafla ýsu um
10 þúsund tonn. Þetta kemur til
vegna ástands stofnanna en í
skýrslu stofnunarinnar segir að
meðalþyngd þorsksins sé nú nálægt
sögulegu lágmarki og að meðal-
þyngd ýsu sé mun minni en gert var
ráð fyrir. Hér er um tillögur að ræða
en það er sjávarútvegsráðuneytið
sem tekur endanlega ákvörðun um
ilvægt að stjórnvöld grípi til aðgerða
vegna þorskstofnsins. Ástand hans
sé enn áhyggjuefni og til að veiði-
heimildir geti aukist verði uppbygg-
ing að hefjast. „Það þarf að grípa til
aðgerða ef menn vilja auka líkurnar
á að ná meiri afla en verið hefur und-
anfarið,“ segir Jóhann.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, segir að
heildaráhrif þessara tillagna séu
tekjumissir upp á um 2–3 milljarða á
föstu verðlagi. Hann segist hafa
vonast til þess að breytingarnar
yrðu minni en vitað hafi verið að afl-
inn myndi minnka.
heildarafla. Lagt er til að aflamark í
þorski verði 187 þúsund tonn, sam-
anborið við 198 þúsund tonn í fyrra
og að 95 þúsund tonn af ýsu verði
veidd miðað við 105 þúsund tonn í
fyrra. Í flestum tegundum er lagt til
að veiði verði sú sama og í fyrra en
þó leggur stofnunin til að aflamark í
síld verði 130 þúsund tonn í ár miðað
við 110 þúsund tonn í fyrra.
Samkvæmt tillögu Alþjóðahaf-
rannsóknaráðsins verður engin
veiði í úthafskarfa á fiskveiðiárinu
en aflamark í ufsa er óbreytt.
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunar, segir mik-
!
" !
" ! #
$ %&
'()
'
)
*
+',
'
''
-
.&-
!" Hafró leggur til minni
veiðar á þorski og ýsu
Tekjumissir upp á 2–3 milljarða
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
Teheran. AFP, AP. | Manouchehr Mottaki,
utanríkisráðherra Írans, tilkynnti í gær að
stjórnin í Teheran myndi íhuga tillögur
stórveldanna í deilunni um kjarnorkuáætl-
un landsins, sem lagðar voru fram á fundi
fulltrúa fimm fastaríkja öryggisráðs SÞ
auk Þýskalands á fimmtudag.
„Við teljum að ef vilji er fyrir hendi sé
möguleiki á lausn á þeirri stöðu sem stór-
veldin hafa komið sér í,“ sagði Mottaki í
gær. Mottaki lagði þó áherslu á að Íranar
myndu ekki hætta að auðga úran, en sagði
jafnframt að Íranar „þyrftu að íhuga til-
lögurnar“ áður en þeir brygðust við þeim.
Vísaði Mottaki þar með til þess að stór-
veldin réttu fram sáttahönd gegn því að
Íranar létu af kjarnorkuáætlun sinni, en
eigi ellegar refsiaðgerðir yfir höfði sér.
Þá ræddi Mahmoud Ahmadinejad, for-
seti Írans, við Kofi Annan, framkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna, í síma í gær
og ítrekaði vilja Írana til viðræðna.
Að sögn Mottakis mun Javier Solana,
sem fer með utanríkismál í framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins, mæta til við-
ræðna við yfirvöld í Teheran. „Solana mun
koma til Teheran á næstu tveimur dögum
til að leggja fram nýju tillögurnar,“ sagði
Mottaki í gær.
Íranar
íhuga
tillögurnar
Solana fer til Teheran
♦♦♦
Það þarf | 4