Morgunblaðið - 04.06.2006, Side 6
6 SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
TALA látinna eftir jarðskjálftann á
Jövu, stærstu eyju Indónesíu, um
síðustu helgi hækkar stöðugt og er
nú talið að a.m.k. 6.234 hafi farist og
46.000 slasast í hamförunum. Hjálp-
arsamtök segja þörfina á aðstoð
gríðarlega og í gær tilkynntu Sam-
einuðu þjóðirnar að þær væru í
kapphlaupi við tímann við að útvega
fórnarlömbunum mat og húsaskjól.
Jarðskjálftinn, sem reið yfir Jövu
á laugardag, var 6,2 a Richter-
kvarðanum. Yfir 139.000 heimili
lögðust í rúst og eru tugir þúsunda
manna á vergangi af völdum skjálft-
ans.
Ásta Hrund Guðmundsdóttir og
Sara Kristín Finnbogadóttir eru
skiptinemar í Indónesíu. Ásta er í
Yogyakarta og Sara í Semerang, en
borgirnar eru báðar nærri upp-
tökum skjálftans.
Aðspurð um aðkomuna að ham-
farasvæðinu sagði Ásta að henni
hefði brugðið mjög þegar hún kom
þangað fyrst. „Tveimur dögum fyrir
skjálftann var ég í skoðunarferð á
Bantul-svæðinu nærri Yogyakarta
skammt frá hamfarasvæðinu og brá
því rosalega þegar ég sá eyðilegg-
inguna,“ sagði Ásta í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Fólk lá sof-
andi í tjöldum eða einfaldlega á göt-
unni.“
Hún segir að ástandið sé betra
núna.
„Á föstudag voru margir í tjöld-
um og búnir að fá mat og lyf og
flestir þeirra sem eru mikið veikir
eru búnir að fá pláss á sjúkra-
húsum. Það er mjög mikil samhjálp
á meðal landsmanna og allir sem
geta hafa lagt sitt af mörkum til að
aðstoða.“
Heyrðu skothvelli
Aðspurð um öryggi á skjálfta-
svæðinu sagði Ásta að þjófar hefðu
notfært sér neyðina og brotist inn á
heimili og í tómar verslanir. „Við
Sara gistum eina nótt í tjaldi í þorpi
í Yogyakarta,“ sagði Ásta. „Við
heyrðum þá skothvelli en lögreglan
var þá að skjóta þjófa í fæturna í
áhlaupi á glæpagengi. Við sjálfar
vorum hins vegar öruggar.“
Spurð um ástandið í gær sagði
Sara Kristín að hún væri „hissa
hvað fólkið væri samt bjartsýnt og
yndislegt“. „Þegar við Ásta vorum á
skjálftasvæðinu fyrir helgi var bók-
staflega allt í rúst,“ sagði Sara. „Það
stóð ekki steinn yfir steini.“
Sara segir að hún og Ásta hafi
tekið þátt í hjálparstarfinu.
„Ég fór fyrst með rúmlega 20
krökkum á opnum vörubíl með
kassa af drykkjarvatni, núðlum og
ungbarnamjólk til að dreifa á svæð-
inu,“ sagði Sara. „Ásta kom seinna
um kvöldið en morguninn eftir út-
deildum við lyfjum og mjólk til
barnanna og fórum í leiki með þeim.
Sum barnanna voru illa farin and-
lega enda enn í áfalli eftir að hafa
misst húsin sín og fjölskyldu-
meðlimi.“
„Það stóð ekki steinn yfir steini“
Íslenskir skiptinemar segja aðkomuna að skjálftasvæðinu á Jövu hræðilega
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ljósmynd/Sara Kristín FinnbogadóttirMargir eiga um sárt að binda eftir hamfarirnar á Jövu um síðustu helgi.
ÞESSIR gljásvörtu hrafnsungar
bíða eftir æti frá foreldrum sínum.
Hrafninn er með fyrstu varpfugl-
um vorsins. Þeir gera sér stór og
vönduð hreiður eða laupa, eins og
hrafnshreiður eru nefnd, úr kvistum
og fóðra með ull og sinu. Myndin var
tekin í Fljótshlíðinni á dögunum.
Beðið eftir bitanum
HRÓBJARTUR Jónatansson, lög-
maður Jónínu Benediktsdóttur, seg-
ir óskiljanlegt að beiðnin í máli henn-
ar gegn 365 prentmiðlum og
ritstjóra Fréttablaðsins hafi verið
talin of víðtæk og óákveðin og
hyggst vísa máli hennar til Mann-
réttindadómstóls Evrópu.
Hæstiréttur komst að þeirri nið-
urstöðu að krafa Jónínu um að lagt
yrði lögbann við birtingu efnis úr
persónulegum gögnum hennar í
Fréttablaðinu hafi verið of víðtæk og
óákveðin til að sýslumaður hefði
mátt taka hana til greina. Hæstirétt-
ur hafnaði af þeim sökum, líkt og
héraðsdómur, staðfestingu lögbanns
þess sem sýslumaðurinn í Reykjavík
lagði á birtingu efnisins 30. septem-
ber síðasta árs.
Hróbjartur segir almennt tíðkast
að hafa kröfugerð í lögbannsbeiðn-
um svo rúma að hún nái yfir allt sem
lögbann geti hugsanlega tekið til og
óskiljanlegt sé að beiðnin hafi verið
talin of víðtæk og óákveðin því tölvu-
pósta, sem Jónína sendi og var við-
takandi að, hafi sérstaklega verið
getið í henni. Það gefi ástæðu til að
ætla að krafa um staðfestingu lög-
banns hefði ekki verið tekin til
greina jafnvel þótt hún hefði ein-
vörðungu lotið að tölvupóstunum.
Hróbjartur bendir á að ekki hafi ver-
ið gerðar athugasemdir af hálfu
stefndu við kröfugerðina og „dóm-
urinn gangi langt til að þurfa ekki að
taka lögbannskröfuna til greina“ því
frá upphafi hafi legið ljóst fyrir um
hvaða gögn var að ræða.
Hróbjartur segir að enn sé ótíma-
bært að tjá sig um hugsanlega nið-
urstöðu hjá mannréttindadómstóln-
um, enda sé óvíst hvort dómstóllinn
taki málið yfirhöfuð til meðferðar.
Hvorki 365 prentmiðlar né ritstjóri
Fréttablaðsins yrðu aðilar að því
máli heldur íslenska ríkið og myndi
þá reyna á hvort íslensk löggjöf hafi í
þessu tilfelli veitt friðhelgi einkalífs
Jónínu vernd sem samræmist kröf-
um þeim sem 8. gr. mannréttinda-
sáttmála Evrópu gerir. Að því gefnu
að dómstóllinn tæki málið til með-
ferðar og kæmist að þeirri niður-
stöðu að friðhelgi einkalífs Jónínu
hafi ekki verið veitt nægileg vernd
hefði það engin áhrif á gildi lög-
bannsins þar sem fullnaðardómur ís-
lenskra dómstóla liggur fyrir, hins
vegar myndi hún væntanlega eign-
ast bótakröfu á hendur íslenska rík-
inu.
Mál Jónínu Benediktsdóttur gegn 365 prent-
miðlum sent Mannréttindadómstóli Evrópu
Segir óskiljanlegt
að beiðnin hafi
verið talin of víðtæk
Eftir Jóhann Magnús Jóhannsson
johaj@mbl.is
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hefur
dæmt karlmann á sextugsaldri til
greiðslu 200 þúsund króna sektar
fyrir að láta ryðja tæplega fjögurra
km reiðveg í Gufudal ofan Hvera-
gerðis án þess að hafa tilskilin leyfi
frá yfirvöldum, en vegurinn olli um-
talsverðum náttúruspjöllum.
Brot mannsins var einnig talið
varða við náttúruverndarlög þar
sem framkvæmdirnar ollu sjón-
mengun, jarðvegsrofi og jarðvegs-
bili, sem opnar gróðurþekjuna og
hleypir að auknu vatnsrofi. Segir í
dómnum að dómarar hafi farið á
vettvang og kynnt sér aðstæður.
Ljóst sé að veruleg náttúruspjöll
hafi verið unnin á svæðinu og það
beri þess enn merki, tæpum tveimur
árum eftir verknaðinn.
Ýtustjórinn sem ruddi veginn var
sýknaður. Dómari taldi ekki sannað
að hann hefði vitað annað en vinnu-
veitandinn hefði öll tilskilin leyfi.
Héraðsdómarinn Hjörtur O. Að-
alsteinsson kvað upp dóminn. Ólaf-
ur Helgi Kjartansson sýslumaður
flutti málið af hálfu ákæruvaldsins
og Steingrímur Þormóðsson hrl.
varði ýtustjórann.
Dæmdur fyrir að
ryðja veg án leyfis
TÍÐARFAR í nýliðnum maí var
óvenju kaflaskipt, samkvæmt upp-
lýsingum frá Veðurstofunni, og
voru fyrstu tíu dagarnir með allra
hlýjasta móti en vikan í kringum
20. maí var hins vegar meðal þeirra
köldustu á þessum tíma árs. Hiti
komst víða yfir 20 stig í hlýinda-
kaflanum og hæstur varð hitinn
22,8 stig á sjálfvirku stöðinni á
Hjarðarlandi í Biskupstungum.
Lægst fór hitinn hins vegar niður í
11 stiga frost á Brúarjökli.
Meðalhiti í Reykjavík var 6,4 stig
sem er í meðallagi, á Akureyri var
meðalhitinn 4,5 stig sem er einu
stigi undir meðallagi áranna 1961
til 1990. Sólskinsstundir í Reykja-
vík mældust 272 og voru 80 stund-
um yfir meðallagi. Sólskinsstundir í
apríl og maí mældust samtals 492
og hafa aðeins einu sinni orðið
fleiri, eða 509, vorið 1924.
Óvenju kaflaskipt
veður í maí
„VEÐRIÐ hefur verið alveg æð-
islega gott og eiginlega bara póst-
kortaveður,“ segir Jón Eggert
Guðmundsson göngugarpur, sem
gengur nú strandhringinn í kring-
um landið.
Þegar Morgunblaðið náði tali af
honum í gærdag
var hann stadd-
ur í Skagafirði
þar sem hann
tók sér daginn í
hvíld og reyndi
að byggja upp
orkuforðann.
„Ég reyni að
fara í heita pott-
inn og borða
prótínríkt fæði, fisk og kjöt, til að
byggja upp orku,“ segir Jón Egg-
ert sem er rétt rúmlega hálfnaður
með gönguna en hann ætlar að
ljúka henni í Reykjavík á Menning-
arnótt, 19. ágúst. Hann kláraði
Lágheiði á föstudag og á eftir um
1.580 kílómetra, en býst við að
enda daginn í dag um tíu kíló-
metra frá Hofsósi.
Jón Eggert lenti í nokkrum
hremmingum í kuldakastinu sem
gekk yfir Norðurland síðari hlut-
ann í maí og raskaðist þá áætlun
hans aðeins. Honum hefur hins
vegar tekist að komast á áætlun á
nýjaleik. „Áætlunin stenst alveg en
ég tók nokkra 30 kílómetra daga
til að leiðrétta og það gekk bara
mjög vel,“ segir Jón Eggert sem
annars gengur 25 kílómetra á dag.
Hægt er að fylgjast með fram-
vindu göngu Jóns Eggerts frá degi
til dags á vefsíðu göngunnar,
http://strandvegaganga.blog.is/.
Rétt rúmlega
hálfnaður með
gönguna