Morgunblaðið - 04.06.2006, Side 12

Morgunblaðið - 04.06.2006, Side 12
12 SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ www.bluelagoon.is Það eru tuttugu mínútur í úr-slitaleik Þjóðverja og Arg-entínumanna og í bænumNegril á Jamaíku er raf-magnslaust. Einn veitinga- staður í bænum er þó sagður vera með eigin rafstöð og þangað er förinni heitið til að horfa á leikinn. Staðurinn er fullur og flestir eru frá staðnum eða Suður-Ameríku. Þjóðverjar eiga fáa stuðningsmenn þarna inni. Þegar Þjóðverjar fá dæmt víti fussa við- staddir. Enn einu sinni er verið að hygla Evrópu á kostnað Rómönsku Ameríku, segja þeir. Þetta er ekkert annað en samsæri. Knattspyrna vekur heitar tilfinn- ingar og umgjörðin um hana er mikil. Leikvangarnir eru iðulega mestu mannvirki stórborga og hefur þeim veri líkt við dómkirkjur samtímans. Knattspyrna er afl sameiningar, en líka sundrungar. „Tími til að afla vina“ er eitt af kjörorðum heims- meistarakeppninnar í knattspyrnu, sem hefst í Þýskalandi á föstudag. Keppnin stendur í mánuð og þar munu lið frá öllum heimshornum etja kappi í baráttunni um eftirsóttasta titilinn í íþróttum. Þar eigast við álfur, en oft er hitnar mest í kolunum þegar grannþjóðir mætast. Árið 1969 varð landsleikur milli El Salvador og Honduras meira að segja kveikjan að sex daga stríði, þótt undirliggjandi ástæður væru aðrar. Áhyggjur af bullunum Knattspyrna er vinsælasta íþrótt heims og þegar hún er vel leikin er auðvelt að hrífast með. Góður árang- ur í heimsmeistarakeppni getur lyft þjóðarsál og sigur getur haft áhrif á þjóðarframleiðslu í landi sigurvegar- anna. En knattspyrnan á líka sínar skuggahliðar. Henni fylgja knatt- spyrnubullur og þeim er ekki efst í huga að afla vina. Þeim fylgir ofbeldi, sem Þjóðverjar vilja síst sjá. Léleg öryggisgæsla á Ólympíuleik- unum í München árið 1972, þegar hryðjuverkamenn tóku ólympíulið Ísraels í gíslingu og 11 létu lífið, er mótshöldurum ofarlega í huga, en sennilega hafa þeir þó meiri áhyggjur af bullunum en hryðjuverkamönnum. Keppninni er ætlað að efla ímynd Þýskalands og Þjóðverjar eru við öllu búnir. Þeir vilja ekki skjóta hinum venjulega fótboltaáhugamanni skelk í bringu, en bullurnar eiga ekki að komast upp með neitt múður. 64 leikir munu fara fram á HM. Fyrir skömmu kom fram að þýsk yfirvöld líta svo á að sérstök ástæða sé til að hafa áhyggjur af 21 leik í keppninni. Það á til dæmis við um leik Eng- lands og Paragvæ 10. júní. Enskar bullur fóru hamförum á HM í Frakk- landi fyrir átta árum. Gerist það aftur núna? „Það verða 20 þúsund enskir áhugamenn með miða og 10 þúsund án miða,“ sagði Rolf Tophoven, þýsk- ur öryggissérfræðingur, í samtali við The New York Times fyrir skömmu. „Hvað á að gera við þessa áhuga- menn? Lenda þeir í átökum við lög- reglu?“ Í blaðinu segir frá því að Þjóðverjar hyggist taka upp eftirlit á landamær- um Þýskalands til vesturs og suðurs, sem venjulega séu opin, til að leita að vandræðagemlingum. Bresk stjórn- völd hafa tekið vegabréfin af 3.500 þekktum bullum. Þau hyggjast senda 40 lögregluþjóna til að koma auga á menn, sem gætu valdið vandræðum. Að auki verða sendir fjórir saksókn- arar, sem hafa umboð til að taka á breskum bullum á meðan þær eru enn í Þýskalandi. En það eru líka áhyggjur vegna pólskra knattspyrnufanta. Ekki er langt síðan þýskar og pólskar bullur mæltu sér mót á skóglendi í grennd við Berlín til þess að slást. Pólverjar og Þjóðverjar hafa í sameiningu æft aðgerðir gegn knattspyrnuofbeldi. Þjóðverjar og Pólverjar leika í Dort- mund 14. júní. Á meðal fantanna Ofbeldið er ein af skuggahliðum knattspyrnunnar og hefur fylgt henni lengi. Hörðustu bullurnar fylgja fé- lagsliðunum. Sennilega hefur mest verið fjallað um ofbeldið, sem fylgir enskri knattspyrnu, en það er að finna um alla Evrópu, Suður-Amer- íku og víðar. Bullunum fylgja kyn- þáttafordómar og gyðingahatur. Í framferði þeirra birtist þjóðremba í sinni verstu mynd. Bandaríski blaðamaðurinn Bill Bu- ford, sem um tíma var ritstjóri á hinu virta tímariti Granta, fór í undirheima knattspyrnubullanna á Englandi og skrifaði bókina „Á meðal fantanna“ (Among the Thugs) um reynslu sína af þessum ógnvekjandi heimi. Í bók- inni lýsir hann refskák lögreglunnar og fantanna. Lögreglan reynir að stöðva ofbeldismennina, en þeir reyna að komast fram hjá henni til að geta ráðist á andstæðinginn. Buford rekur hvernig bullurnar leggja undir sig heilu borgirnar með ógnvekjandi framferði sínu. Honum stendur ógn af þessari veröld, en hún dregur hann einnig til sín og lýsingar hans á því hvernig hann nánast ánetjast því að vera hluti af múgnum, sem fer um með ofbeldi og líkamsmeiðingum, eru hrollvekjandi. Buford segir frá því þegar hann fer með stuðningsmönnum Manchester United á leik gegn Juventus í Tórínó. Í kringum leikinn fór allt úr böndun- um, en þó ekki eins og næst þegar Juventus lék gegn ensku liði. Það var ári síðar, 1985, í úrslitum Evrópu- keppni meistaraliða í knattspyrnu gegn Liverpool á Heysel-leikvangin- um í Brüssel. Juventus sigraði með einu marki gegn engu. Áður en leik- urinn hófst létu 36 manns lífið á vell- inum og 600 slösuðust. Það er furða að leikurinn skyldi fara fram. Þaulskipulagt ofbeldi Öryggisgæsla er nú orðin svo ræki- leg í kringum knattspyrnuleiki að fátt Afl sundrungar og sameiningar Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu er að hefjast í Þýskalandi. Þar er lögð áhersla á einingu og vináttu, en þýsk yfirvöld eru búin undir það versta. Karl Blöndal skoðaði skuggahliðar knattspyrnunnar og skyggndist inn í heim knattspyrnubullunnar. Lögregla stendur vörð fyrir utan leikvang liðsins Legia í Varsjá. Ofbeldi hefur færst í aukana í kringum pólska knattspyrnu og hafa þýskir löggæslumenn áhyggjur af því að brotist geti út átök og óeirðir þegar landslið Póllands og Þýskalands mætast í Dortmund 14. júní.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.