Morgunblaðið - 04.06.2006, Síða 14

Morgunblaðið - 04.06.2006, Síða 14
14 SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Miles Davis syngur úr stórum há-talara á gólfi vinnustofu mál-arans við Laugaveg. Aragrúilistaverka hallar sér upp aðveggjum. Inn af vinnustofunni eru vistarverurnar hólfaðar af, – rekkja, mynd- ir og geisladiskar. Sigurður Örlygsson afsakar að allt sé á rúi og stúi, hann hafi verið að hætta með kærustunni og sé fluttur á vinnustofuna til bráðabirgða. Svo sækir hann öl handa sér og blaðamanni. – Ég spila Miles mikið, segir hann. Á litlu borði lagasafn Miles Davis, teiknibóla, blýantur, gíróseðill og flísalagt skákborð. – Hér byrja gestir alltaf með hvítt! Sigurður setur upp ljósgræn gleraugu, sem stinga óneitanlega í stúf við svört fötin. Og skákin hefst. Eftir nokkrar sviptingar fellur blaðamaður á tíma í endatafli. – Þú verður að gera eitthvað eða falla, segir Sigurður djarflega. Á veggnum dansar Örlygur Sigurðsson rit- höfundur og listmálari, faðir Sigurðar, á stóru olíumálverki, og ekki sést í neðri part verksins. – Þetta er mynd af pabba gamla. Ég málaði oft fjölskylduna, leit á það sem þerapíu. Það uppgjör stóð lengur en ég ætlaði, hátt í tíu ár. Nú segist Sigurður vera að hverfa aftur að því sem hann fékkst við fyrir rúmum áratug, verkum sem eru abstrakt og fígúratív. – Ég verð sextugur eftir nokkra mánuði og held tvær sýningar. Á annarri verða tvær serí- ur af vatnslitamyndum, sem ég leit alltaf meira á sem föndurliti en alvöru, – hafði skömm á þeim. En þetta létta form hentaði vel efniviðn- um. Hvor sería er sextíu myndir og mynda þær tvö verk, þótt hver mynd sé sjálfstæð. Sýningin verður í galleríi Ófeigs á Skólavörðustíg. Svo rifjaði eigandi Næsta bars upp fyrir mér um daginn að ég hefði lofað að sýna hjá honum. Þar verða þyngri myndir af sama meiði. Sigurður fæddist í „dýragarðinum“ í Laug- ardal árið 1946, sonur Örlygs og Unnar Eiríks- dóttur, sem rak Storkinn, fyrstu barnafata- verslun á Íslandi, en Unnur verður 86 á árinu. – Hvernig var að alast upp í Laugardalnum? – Ég var mikill einfari, gekk í Laugarnes- skólann eins til tveggja kílómetra leið, allt í myrkri og trúði á drauga og tröll. Ég varð kannski svolítið einrænn á því, segir hann og hlær. En ég lék mér alltaf einn sem barn. Og finnst erfitt að fást við myndlist vegna þess að maður er alltaf einn. Ef engin er kærastan eða eiginkonan, þá sefur maður einn, borðar einn og vinnur einn. Þess vegna skiptir músíkin mig miklu máli. Jú, það eina sem mér finnst ágætt að gera einn er að fara á klósettið. Þetta er ástæðan fyrir því að margir gefast upp, – þessi hræðilega langa einvera. En ég hef haldið út í 35 ár, fyrsta sýningin 11. september 1971 og haldið var veglega upp á það 30 árum síðar! Sigurður útskrifaðist úr Myndlistar- og handíðaskólanum árið 1971, opnaði fyrstu sýn- inguna og hélt utan til Kaupmannahafnar. – Ég seldi eina mynd Listasafni Íslands og það dugði fyrir flugmiðanum út. Þar sótti ég tíma hjá einum af mínum uppáhalds málurum, Richard Mortensen, og makalaust að fá tæki- færi til að kynnast honum. Ég hafði dáð þennan geómatríska abstraktmálara í mörg ár. – Hvernig var dvölin í Kaupmannahöfn? – Ljúfa lífið! Ég málaði mikið, stundaði skól- ann grimmt og bjó hjá Tryggva Ólafssyni list- málara, en þá var hann með hálfgert gistiheim- ili heima hjá sér. Menn gengu inn og út, komu færandi hendi með brennivín keypt í flugvél- unum, drukku, fengu mat og gistu á gólfinu. – Hvenær ákvaðstu að helga þig listinni? – Ég ætlaði aldrei að gera það. Ég drakk í mig listaverkabækur, sem mikið var af heima, en ég skammaðist mín fyrir karlinn og var ekki hrifinn af verkum hans, þó að ég sé hreykinn af þeim í dag. Ég ætlaði að verða arkítekt, en sog- aðist einhvern veginn inn í þetta. Maður ræður sér ekki alveg sjálfur. – Sérðu eftir því? – Nei, ég held nú ekki, svarar hann og hlær. Margir listamenn voru tíðir gestir á heimilinu, eins og Sigurður Sigurðsson frá Sauðárkróki, Steinn Steinarr og Tómas Guðmundsson. – Gáfu þeir gaum litlum strák? – Þeir voru huggulegir við mig. Pabbi brugg- aði og þegar tappinn var tekinn úr varð ægileg bjórsprengja. Fúsi spilaði Fluguna á píanóið og allir grétu af hrifningu; það var eins og Bítl- arnir hefðu komið í heimsókn tíu árum seinna. – Og bóhemískt líf? – Mjög, en líka einkennilegt, hálfpartinn í sveit, bændur í kring með rollur og búskap. – Er allt lagt undir í listamannslífinu? – Heldur betur! Ég gerði mér enga grein fyr- ir erfiðinu. Fólk hefur þá ímynd af listamönnum að þeir séu skapandi, haldi sýningar og verði frægir. En hitt gleymist, – peningavandræði og efasemdir um sjálfan sig. – Hvað er þá aðdráttaraflið? – Ég veit það ekki. Auðvitað heillar að búa til og vera sjálfs síns herra. Og víst er gaman þeg- ar vel gengur, en erfiðleikatímabil ganga nærri manni. Á fyrstu sýningunni fyrir 30 árum var ég með hraun í maganum af kvíða. Ég hélt að það ætti aðeins við í upphafi, en það fylgir manni alla tíð og breytist ekkert. Leikarar fá sviðsskrekk þótt þeir leiki þúsund sinnum sama hlutverkið. Þannig er þetta hjá flestum. – Þessi lífsháski er kannski nauðsynlegur? – Kannski sambland af sjálfsöryggi og efa- semdum um sjálfan sig. Maður má ekki vera titrandi strá í vindi. En um leið og maður er viss um að vera meistari, þá hverfur eitthvað. – Hvernig er venjulegur vinnudagur? – Ohhh, segir Sigurður, hlær og ruggar sér í stólnum. Stundum mála ég eða stússast í mynd- list sjö eða átta klukkutíma á dag. Svo getur allt gerst. Ég hef lifað rosalegu bóhemlífi und- anfarið. Ég skildi fyrir fjórum árum og bjó á Indlandi í hálft ár. Það var gaman … eða öllu heldur forvitnilegt. Sá heimur er svo gamall tæknilega séð. Bara að ganga úti á götu er upp- lifun, allt fólkið og litadýrðin. – Þú varst giftur í tuttugu ár, börnin urðu sex og þegar peningavandræði bætast við jöfnuna hlýtur útkoman að vera mikið hark? – Hræðilegt hark. Við misstum húsið og allt. Það fór á uppboð. Þetta var skelfilegt! – Er listamaður dæmdur til einveru? – Ég held það sé þannig í langflestum til- fellum. Margir listamenn enda sérvitringar, verða skrýtnir, en kannski leyfist okkur meira en öðrum. Skyndilega stendur Sigurður upp og rótar til myndum, allt fer á flug, skúlptúr af höfði Ör- lygs í vatni, og hann sjálfur logandi á striga. Þannig teygja verk Sigurðar sig oft út fyrir rammann. Ef til vill áhrifaríkasta mynd Sig- urðar – ókláruð! – Ég klára hana aldrei. Þetta er ein stærsta mynd sem ég hef gert. Ætli sjö átta mánaða vinna hafi ekki farið í hana. Ég er að horfa á sjálfan mig sem fullorðinn maður, reitt barn fyrir framan æskuheimili mitt. Við tilflutninginn kemur í ljós neðri partur málverksins þar sem Örlygur dansar. – Þarna er fjölskyldan á gamla Morrisnum, sem pabbi átti, og þrúgandi stemmning í bíln- um út af einu framhjáhaldinu. Ofan á bílnum er nakin stúlka – líka hún! „Ain’t she sweet when she’s walking down the street,“ var viðkvæði föður míns. Jesús minn, farðu varlega í þetta! – Kallinn sem dansar, að segja má utan við allt, ber það með sér að vera skemmtilegur, þannig að tilfinningarnar eru blendnar? – Okkar samband var ansi stormasamt, væg- ast sagt, segir Sigurður og hlær. Það var eng- inn meðalvegur, annað hvort föðmuðumst við eða rifumst og töluðum ekki saman í lengri tíma. En við sættumst alltaf og ég sakna hans óskaplega mikið. Ætli pabbar séu ekki bara erf- iðar skepnur? Hann vildi stjórna öllu sem ég gerði; ég átti eiginlega að lúta honum. En ég var uppreisnargjarn. Nei, ég horfi bara á kost- ina hans núna. Hann var skemmtilegur og lífs- kúnstner. Sigurður verður stoltur á svip, hallar sér fram í stólnum og spyr: – Manstu eftir því þegar hann labbaði Lauga- veginn og kjaftaði við alla háum rómi. Mér er minnisstætt að fyrir tuttugu árum var ung dótt- ir mín með í för þegar við rákumst á Stefán frá Möðrudal, pabbi með þennan strigabassa og Stefán með sína geldingslegu rödd. Dóttir mín reif sig lausa og faldi sig bak við pylsuvagn, – beið þess að ósköpunum færi að slota! Sigurður hugsar sig um. – En nú er komið nóg af þessari naflaskoðun í verkum mínum. Nú set ég punktinn. – Hefur hún gefið þér mikið? – Já, heldur betur. En svo langar mann líka til að koma þessu frá sér. Þetta er svona … já, ég þori varla að segja það … eins og að vera uppi í rúmi með góðri konu og fá aldrei fullnæg- ingu, segir hann hikandi og skellihlær. – Það er mikið af bóhemum í fjölskyldunni, á það við um krakkana þína líka? – Já, mér sýnist það. Dóttir mín er að útskrif- ast úr Listaháskólanum og átján ára sonur minn bassaleikari. Annars veit maður aldrei, – þetta getur orðið háborgaralegt. Margir hipp- arnir hafa endað í … – … jakkafötum með slaufu? – Heldur betur. Svo raðar hann upp og taflið hefst á ný. Þessi hræðilega einvera Morgunblaðið/Golli SIGURÐUR ÖRLYGSSON LISTMÁLARI „Fúsi spilaði Fluguna á píanóið og allir grétu af hrifningu.“ VIÐMANNINNMÆLT Pétur Blöndal ræðir við Sigurð Örlygsson pebl@mbl.is ’ Því miður sjáum við mörg dæmi þessað fasteignakaupendur og aðrir sem fara í greiðslumat gleyma að taka með í reikn- inginn raunverulegan framfærslukostnað fjölskyldunnar og óvænt útgjöld.‘Ásta S. Helgadóttir , forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. ’ Þegar menn hafa unnið við eitthvaðlengi, verða þeir þá ekki alltaf íhalds- samir? Að minnsta kosti í augum þeirra yngri!‘Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri hefur starfað hjá Vegagerðinni frá upphafi 7. áratugarins. ’ Hvorugt foreldranna á að hafa einka-rétt á börnunum en hins vegar hafa börn- in rétt til að umgangast þá báða.‘Danski fjölskylduráðherrann Lars Barfoed er hlynnt- ur tillögu um sameiginlegt forræði foreldra yfir börn- um eftir skilnað. ’ Við erum sammála um það sem þarf aðgera og við ætlum að vera dugleg, við ætlum að framkvæma og auka lífsgæðin í borginni á næstu árum.‘Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson , borgarstjóri í Reykja- vík, eftir að samkomulag náðist milli D- og B-lista um meirihlutasamstarf í borginni. ’ Ég held að þetta sé einn sá verstimeirihluti sem hefði verið hægt að mynda í þessari borg.‘Svandís Svavarsdóttir , oddviti Vinstri grænna í borginni, er ekki jafnánægð og Vilhjálmur. ’ Kínversku embættismennirnirvirðast hafa komið auga á þessa möguleika og vilja [...] kanna hvort hægt sé að nota leikinn til að styðja við kennslu í markaðs- og hagfræði til dæm- is.‘Hilmar V. Pétursson, forstjóri CCP sem gefur út tölvuleikinn Eve Online. Leikurinn, sem nú fer á Kínamarkað, er af sumum talinn sanna ákveðnar kenningar í hagfræðinni. ’ Þið eruð svo vitlausir að það er bara djók.‘Ólafur Jóhannesson , þjálfari FH, við íþróttafrétta- mann Sýnar að loknum leik gegn Fylki. ’ Það vakti alltaf fyrir mér að semja nú-tímatónlist sem hljómar ekki eins og nú- tímatónlist.‘Atli Heimir Sveinsson tónskáld um verk sitt, Sinfóníu nr. 2. ’ Rekstur ritstjórnarinnar hefur gengið mjög vel og verið í hagnaði, en mér er kennt um það, og fæ að fjúka fyrir það, að auglýsingasalan gengur ekki nógu vel, sem ég hef bara ekkert með að gera.‘Elínu Albertsdóttur , ritstjóra Vikunnar, var sagt upp störfum á miðvikudag. ’ Ég er orðinn 37 ára gamall svo ég erfarinn að kunna að meta það að teljast enn í hópi hinna ungu.‘Agnar Helgason hlaut hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs 2006, en þeim er ætlað að hvetja unga vísindamenn til dáða. Ummæli vikunnar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.