Morgunblaðið - 04.06.2006, Qupperneq 28
28 SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Klukkan eitt á sunnudags-morgni ætlar fagnaðar-látunum aldrei að linna.Hljómsveitinni Lordihefur tekist það sem
margir töldu ómögulegt: Að tryggja
Finnum sigur í Evróvisjón. Finnar
eru þekktir fyrir einkar slæmt gengi
þau 45 ár sem þeir hafa tekið þátt og
jafnan rekið lestina. Í þetta skipti
var Evrópa þó tilbúin fyrir Finna –
fyrir rokkarana og skrímslin í Lordi
– og veitti þeim ekki einungis fyrsta
sætið heldur einnig flest stig frá upp-
hafi keppninnar, nærri 300 talsins.
Þegar Lordi ber sigur úr býtum
hef ég einungis verið 15 klukku-
stundir í Finnlandi. Orðaforði minn
takmarkast við „Lordi“ og „kiitos“
sem þýðir takk. Lordi er ekki einu
sinni finnska þannig að kunnáttan er
jafnvel enn minni en ég vil telja mér
trú um. Lordi er í raun og veru enska
orðið lord (drottinn) sem bókstafn-
um „i“ hefur verið bætt aftan við til
að gera orðið „meira finnskt“. Þrátt
fyrir þetta skil ég á mánudeginum
forsíður þriggja dagblaða. Undir
flennistórum myndum af Lordi er
fyrirsögnin: Takk Lordi!
Næstu daga halda myndbirting-
arnar áfram. Myndir af Lordi prýða
forsíður dagblaða og tímarita og Ís-
lendingur sem aldrei hefur unnið
Evróvisjón getur rétt ímyndað sér
hversu glaður hann sjálfur væri.
Hann virðir fyrir sér Lordi um víðan
völl og kinkar skilningsríkur kolli.
Gaman að þessu.
Þegar vikan líður og myndirnar
eru enn á forsíðunum fer skilnings-
ríki Íslendingurinn þó að klóra sér í
kollinum. Eru menn að tapa sér yfir
sigrinum? Ljósmyndirnar eiga sér
þó eðlilega skýringu.
Ljótasti sigurvegari allra tíma
Lordi hefur alla tíð neitað að koma
fram án búninga. Skrímslabúning-
arnir eru svo samofnir ímynd hljóm-
sveitarinnar að hljómsveitin er aldr-
ei ljósmynduð án gervis og fer aldrei
í viðtöl nema í fullum skrúða, jafnvel
þótt engin myndavél sé á staðnum.
Nafn söngvarans hefur verið vitað
um nokkurt skeið en andlit hefur
ekki verið tengt nafni og leynd hefur
ríkt yfir því hverjir aðrir eru í hljóm-
sveitinni. Ósk Lordi hefur verið ein-
dregin – að rétt andlit hljómsveit-
arinnar yrðu ekki dregin fram í
sviðsljósið. Sú ósk rættist ekki.
Tveimur dögum eftir sigurinn í
Grikklandi birti þýska götublaðið
Bild-Zeitung ljósmynd af söngvar-
anum í Lordi – án gervis. Við ljós-
myndina stóð að hann væri Evró-
visjónskrímslið og að um gjörvallt
Þýskaland væri rætt um „ljótasta
sigurvegara allra tíma“. Sama dag
og myndbirtingin átti sér stað birti
Daily Mail í Bretlandi ljósmynd sem
talin var vera gömul mynd af hljóm-
sveitinni. Síðar kom raunar í ljós að
sú mynd var ekki af Lordi heldur af
finnsku sveitinni Children of Bodom.
Í Hufvudstadsbladet var í framhald-
inu haft eftir Lordi að grímurnar
væru einn af hornsteinum ímyndar
Lordi.
230.000 undirskriftir á netinu
Finnska pressan fylgdi öðrum
miðlum að málum. 24. maí, tveimur
dögum á eftir Bild-Zeitung í Þýska-
landi, setti slúðurblaðið 7 Päivää,
einnig nefnt Seiska, ljósmynd af and-
liti söngvarans á forsíðu blaðsins.
Finnar hneyksluðust. Viðbrögðin
voru mikil og hörð. Hafði Lordi ekki
lagt fram sérstaka bón til fjölmiðla
eftir sigurinn í Aþenu um að eyði-
leggja ekki dulúðina í kringum
hljómsveitina?
Á netinu hófst undirskriftasöfnun
þar sem fólk var hvatt til skrá sig og
sniðganga blaðið. Undirtektirnar
voru gríðarlegar. Að sögn Helsingen
Sanomat höfðu 180.000 manns skrif-
að undir strax kvöldið eftir. Raunar
er ekki hægt að skoða lista með nöfn-
unum og því vel mögulegt að sama
nafn hafi verið skráð oftar en einu
sinni. Þó hefur verið gefið upp að
undirskriftirnar komu úr 100.000
mismunandi IP númerum en hver
tölva hefur slíkt númer. Samkvæmt
norska Aftenposten voru undir-
skriftirnar orðnar rúmlega 230.000 í
lok vikunnar.
Slúðurblaðið baðst afsökunar og
lofaði að birta ekki aðrar myndir af
hljómsveitinni án búninga en rit-
stjórinn réttlætti myndbirtinguna
með því að ljósmyndin hefði áður
birst í öðru finnsku blaði. Það var ár-
ið 1999 með grein þar sem söngv-
arinn sýndi Kiss-húðflúr sín. Fimm-
tánda mars síðastliðinn prentaði
finnska götublaðið Ilta-Sanomat auk
þess mynd af söngvaranum í venju-
legum fötum, þar sem andlit hans
sást að hluta til. Hljómsveitin sagði
myndbirtinguna þá vera móðgun og
tilraun til að eyðileggja skrímsla-
ímynd Lordi.
Ýmis dagblöð, götublöð og vef-
miðlar í Evrópu birtu ljósmyndir af
hljómsveitinni án búninga þegar þau
fjölluðu um afhjúpunina eftir sigur-
inn. Hið finnska Hämeen Sanomat
uppskar mikla reiði þegar það birti
með umfjöllun sinni ljósmyndir af
vefsíðum þar sem sjá mátti andlit
hljómsveitarmeðlima. Á vefsíðu
blaðsins rigndi inn kvörtunum,
þannig að loka þurfti síðunni tíma-
bundið.
Meðan á þessu stóð gengu á net-
inu ljósmyndir af hljómsveitinni. Á
íslenskum tenglasíðum mátti finna
fyrirsagnir á borð við „Lordi grímu-
lausir“ og „Lordi-gellan í bandinu án
grímu“. Hinn skrímslalegi hljóm-
borðsleikari Awa reyndist í raun
vera ljóshærð, ung stúlka.
Latex á eldhúsborðinu
En af hverju þessi ofuráhersla á
að ekki megi sjást í raunveruleg and-
lit hljómsveitarinnar?
Potturinn og pannan á bak við
Lordi er söngvarinn Tomi Put-
aansuu eða herra Lordi eins og hann
er kallaður. Í byrjun níunda áratug-
arins var hann í lítilli hljómsveit sem
hann síðan yfirgaf þegar hugmyndir
hans fengu ekki hljómgrunn: Metn-
aðarfullir búningar og rokk í anda
Kiss. Putansuu hóf í framhaldinu að
semja tónlist undir nafninu Lordi og
var eini meðlimurinn í fjögur ár,
þangað til árið 1996. Á blaðamanna-
fundi fyrir Evróvisjón sagði hann að
ef hann tæki af sér grímuna myndi
það eyðileggja sjónhverfinguna.
„Þetta eru persónurnar og við
skiljum þær eftir uppi á sviði. Það
eykur á ævintýrið, þetta er Lordi,“
sagði hann og benti á að enginn vildi
að jólasveinninn birtist fólki án
gervis. Sjálfur býr hann til alla bún-
ingana og notar eldhúsborðið heima
hjá sér til að sauma og vinna með la-
tex.
Að fara í búningana tekur tímann
sinn. Það tekur hljómsveitina raunar
þrjár klukkustundir að gera sig
klára. Þar af er herra Lordi heila tvo
tíma einungis í því að „setja andlitið
upp“. Neglurnar taka síðan vafa-
laust tímann sinn enda 15 cm langar
og svartmálaðar.
„Mér finnst að fólk eigi alltaf að
hafa eitthvað að horfa á. Ég þoli ekki
að borga fyrir að hlusta á rokkhljóm-
sveit og sjá hana síðan á sviðinu í
stuttermabolum og gallabuxum,“
sagði hann á blaðamannafundi.
Hafnað af plötufyrirtækjum
Ófrýnilegir búningar Lordi ásamt
leyndinni sem hvílir yfir hljómsveit-
inni varð til þess að hljómplötufyr-
irtæki höfnuðu henni lengi vel. Sum-
ir sögðu að ef hljómsveitin ætlaði að
koma fram með grímur ætti hún að
spila svokallað black-metal en ekki
jafnmelódískt þungarokk og hún
gerir. Lordi gekk illa að vekja á sér
athygli en fékk loks samning og
fyrsta albúmið Get Heavy kom út ár-
ið 2002. Tveimur árum síðar var síð-
an gefin út platan Monsterican
Dream og í ár platan The Arocka-
lypse. Í dag stefnir allt upp á við og
samningar hafa verið undirritaðir
um útgáfu í 18 löndum.
Finnar hafa fagnað árangrinum í
Evróvisjón en voru sumir hverjir
með nokkrar áhyggjur af því hvaða
áhrif flutningurinn hefði á ímynd
landsins. Sér einhver samsömun við
umræðuna í kringum Sylvíu Nótt?!
Þegar ljóst var að Lordi yrði fram-
lag Finnlands í ár steig hópur trúar-
leiðtoga fram og gagnrýndi valið.
Fullyrt var að Lordi gæti ýtt undir
djöfladýrkun. Gagnrýnendur báðu
forsetann Törju Halonen um að nota
vald sitt til að neita hljómsveitinni
um að fara og tilnefna heldur hefð-
bundinn finnskan þjóðlagasöngvara
sem framlag Finna í ár.
Samkvæmt International Herald
Tribune gengu sögusagnir um að
skrímslin í Lordi væru útsendarar
KGB, send af Vladimir Pútin til að
skekja stoðir finnska samfélagsins
og undirbúa þannig jarðveginn fyrir
Evróvisjónskrímslin
Skrímslarokkhljómsveitin
Lordi tryggði Finnum á
dögunum sögulegan sigur í
Evróvisjón. Lordi var stofn-
uð árið 1992 og kemur
aldrei fram öðruvísi en í
ófrýnilegum búningum.
Mikil leynd hefur hvílt yfir
því hvernig tónlistarfólkið
lítur raunverulega út og ósk
Lordi verið einföld: Ekki af-
hjúpa okkur. Stuttu eftir
sigurinn í Evróvisjón birtu
fjölmiðlar þó umdeildar
ljósmyndir og viðbrögðin
létu ekki á sér standa.
Sigríður Víðis Jónsdóttir
var í Finnlandi.
Reuters
Finnsku rokkararnir í Lordi unnu Evróvisjón með yfirburðum en vildu að enginn vissi hvað væri undir skrímslabúningunum.
Herra Lordi
Söngvarinn í Lordi gengur
undir nafninu herra Lordi en
heitir í raun og veru Tomi
Petteri Putaansuu. Hann er
fæddur árið 1974, hefur haft
áhuga á þungarokki síðan
hann var lítill drengur og er
mikill aðdáandi Kiss. Sagan
segir að hann hafi ungur að ár-
um farið að mála sig í framan
og byrjað 10 ára gamall að búa
til hryllingsmyndir með mynd-
bandstökuvél foreldra sinna.
Putaansuu útskrifaðist síðar úr
kvikmyndaskóla. Hann stofn-
aði Lordi árið 1992.
Awa
Hljómborðsleikarinn Awa heit-
ir í raun Leena Peisa og er
fædd árið 1979. Peisa fór í sinn
fyrsta píanótíma þegar hún var
fimm ára og leggur í dag stund
á klassíska tónlist.
Amen
Jussi Sydänmaa er gítarleik-
arinn í Lordi og er fæddur árið
1973. Sviðsnafn hans er Amen.
Ox
Rétta nafn bassaleikarans Ox
er Samer el Nahhal. Hann er
fæddur árið 1976 og gekk til
liðs við hljómsveitina í fyrra.
Kita
Trommuleikarinn Sampsa Ast-
ala er fæddur árið 1974. Þrátt
fyrir þrálátan orðróm þess efn-
is að Lordi séu djöfladýrkend-
ur er Astala, sem ber sviðs-
nafnið Kita, afar trúrækinn.
Einn af þeim sem voru á lista
yfir þá sem hann þakkaði á
fyrstu plötu hljómsveitarinnar,
var raunar Guð almáttugur.
Hvað er undir
latexinu?
’Gagnrýnendurbáðu forsetann,
Törju Halonen, um
að nota vald sitt til
að neita hljóm-
sveitinni um að fara
og tilnefna heldur
hefðbundinn
finnskan þjóðlaga-
söngvara sem fram-
lag Finna í ár.‘