Morgunblaðið - 04.06.2006, Page 29

Morgunblaðið - 04.06.2006, Page 29
rússneskt valdarán. Það skýrði af hverju þau neituðu að taka af sér grímurnar. Í Finnlandi er enginn Eiffelturn Umræðan gegn Lordi smitaðist yfir til Grikklands þar sem Evró- visjónkeppnin var haldin. Hreyfing að nafni Hellenes hvatti finnsku rík- isstjórnina til að segja „nei við þenn- an illa hóp“, eins og því var lýst. Samtök grískra veitingahúsa- og bareigenda lögðu fram bón til bæði finnsku þjóðarinnar og þeirrar grísku um að leyfa Lordi ekki að vera með. Þarna væru djöfladýrk- endur á ferð. Herra Lordi sjálfur neitaði allri djöfladýrkun og sagði að hópur djöfladýrkenda myndi ekki semja lög á borð við Hard Rock Hallelujah og Devil is a Loser. Hann harðneit- aði því að hljómsveitin stundaði djöfladýrkun og sagði djöfullegt útlit hennar eingöngu til skemmtunar. Hann sagði hræðsluna í Finnlandi um að Lordi væri vond ímynd lands- ins hafa svipt hulunni af óöryggi finnsku þjóðarinnar. Flestir Finnar myndu frekar vilja vera þekktir fyrir heimkynni jólasveinsins en mikið máluð og stökkbreytt skrímsli … „Í Finnlandi er enginn Eiffelturn, lítið af frægum listamönnum, þar er ískalt og við þjáumst af lélegu sjálfs- trausti,“ fullyrti hann. Eftir að sig- urinn í Aþenu var í höfn sagði hann að þetta væri „sigur rokksins, Finn- lands, Lordi – og víðsýninnar“. Vertíð hjá förðunarmeisturum Til að fagna sigrinum í Evróvisjón hélt Lordi opna útitónleika í Hels- inki um síðustu helgi. Talið er að um 90.000 manns hafi verið á tónleikun- um sem er fjölmennasti viðburður sem haldinn hefur verið í höfuðborg- inni Helsinki. Söngvarinn Tomi Putaansuu er frá finnska hluta Lapplands, frá bænum Rovaniemi. Auk þess að vera nokkurs konar fæðingarstaður Lordi stærir Rovaniemi sig af því að þar sé upprunalegt heimili jóla- sveinsins. Þegar Lordi keppti í finnsku undankeppninni kom helm- ingur atkvæðanna frá norðurhluta landsins, frá Lapplandi. Bæjaryfir- völd í Rovaniemi hafa nú ákveðið að heiðra Lordi með því að nefna torg í miðbænum eftir hljómsveitinni. Herra Lordi mun síðan fá landskika að gjöf, eins og tíðkast með afreks- menn í íþróttum á þessum slóðum. Ekki er öll sagan sögð. Tilkynnt hef- ur verið að sérstök mynt verði slegin í Finnlandi Lordi til heiðurs. Hún á að vera tilbúin áður en Finnland heldur Evróvisjón að ári. Fyrir keppnina var talað um að ef finnska skrímslasveitin ynni myndi það marka þáttaskil. Þótt Evró- visjón hafi tekið stökkbreytingum frá því að íslenska þjóðin grét yfir Gleðibankanum, var fullyrt að atriði Lordi væri svo öðruvísi og svo yf- irgengilegt að engin leið væri aftur til keppninnar eins og hún áður var. Hún væri breytt – komin væri ný Evróvisjón. Í norska blaðinu Aftenposten var bent á, og kannski réttilega, að væri Lordi andlitið á hinni nýju Evró- visjón ættu förðunarmeistarar bjarta framtíð fyrir höndum. afhjúpuð sigridurv@mbl.is Sylvía Nótt sagði hr. Lordi ljótasta mann í heimi og margir álíta hann djöfla- dýrkanda. Hann þvertekur þó fyrir það en er forfallinn aðdáandi Kiss. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 29 51,98% Evrópusjóður 40,42% Heimssjóður 35,99% Norðurlandasjóður 44,38% Lyfjasjóður 21,42% Carnegie rekur fjölbreytta flóru verðbréfasjóða með mismunandi áherslur og fjárfestingarstefnur. Carnegie sjóðirnir hafa margsinnis hlotið viðurkenningar fyrir góðan árangur og eftirtektarverða frammistöðu. Fjölmargir viðskiptavinir VBS fjárfestingarbanka hafa notið góðrar ávöxtunar Carnegie sjóðanna um árabil. FJÁRFESTINGARBANKI Suðurlandsbraut 18 108 Reykjavík Sími: 570 1200 Fax: 570 1209 www.vbs.is vbs@vbs.is F í t o n / S Í A Austur-Evrópusjóður Fyrstu fjórir 2006: *Nafnávöxtun 1. jan – 30. apríl 2006 m.v. gengi 30. apríl 2006. * * Heims-, Norðurlanda-, Evrópu og Austur-Evrópusjóðir Carnegie eru verðbréfasjóðir (UCITS) samkvæmt lögum nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingasjóði og staðfestir af fjámálaeftirliti Lúxemborgar (Commision de Surveillance du Secteur Financier (www.cssf.lu)). Rekstrarfélag sjóðanna er Carnegie Fund Management Company S.A. en söluaðili þeirra hér á landi er VBS fjárfestingarbanki hf. Útboðslýsingu sjóðanna má nálgast hjá VBS fjárfestingarbanka eða á www.vbs.is. VBS fjárfestingarbanki vekur athygli á því að ávöxtun í fortíð er ekki ávísun á ávöxtun í framtíð. Stýrifræði Merkjafræði Raforkufræði Fjarskiptaverkfræði Rafeindatækni Tölvuverkfræði Rásafræði Hátækni www.verk.hi.is Umsóknarfrestur er til 6. júní RAFMAGNS- OG TÖLVU VERKFRÆÐI E N N E M M / S IA / N M 22 10 2

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.