Morgunblaðið - 04.06.2006, Síða 43

Morgunblaðið - 04.06.2006, Síða 43
gisti á Albergo del Senato, en það var árið 1992 þegar ég gisti þar með foreldrum mínum en faðir minn gisti á hótelinu þegar hann fór á Ólympíu- leikana í Róm árið 1960. Einnig gisti Soffía Emilía föðuramma mín á hót- elinu árið 1957. Þegar við gistum á hótelinu árið 1992 var það orðið ansi þreytulegt en stuttu síðar var það gert upp. Mér fannst mikil breyting hafa orðið á torginu, miklu meira líf þar á kvöldin. Fori imperiali Því miður var komið að síðasta degi heimsóknar okkar í Róm. Í dag var afmælisdagur Lindu dóttur okk- ar en hún varð 9 ára. Við gengum frá hótelinu niður að Fori Imperiali þar sem eru rústir hinnar fornu Róma- borgar. Ég reyni að ímynda mér líf þeirra. Í dag heyrir maður leiðsögu- menn tala á allra ólíkustu tungumál- um en þegar byggð var í Fori Imper- iali var töluð latína. Vittoriano-minnismerkið Eftir að hafa skoðað Fori Imper- iali gengum við að Vittoriano-minn- ismerkinu, sem er til minningar um Vittorio Emanuele II konung. Hér er einnig minnismerki um óþekkta hermanninn og standa tveir her- menn heiðursvörð við hann. Íbúar Rómar kalla Vittoriano minnismerk- ið ritvélina, bæði vegna þess hvernig byggingin er í laginu og einnig þar sem hún hefur engan sérstakan byggingarstíl. Inni í byggingunni er safn um sameiningu Ítalíu. Við höfðum ætlað okkur að snæða afmælishádegisverð með Lindu á uppáhaldsveitingahúsi okkar Enri- cos, Le Rampe, við Spænsku tröpp- urnar. Við vissum að hann var lok- aður á sunnudögum en hann reyndist þá líka lokaður á mánudög- um í hádeginu. Ekki er hægt að panta borð né borga með kreditkort- um, en staðurinn minnir á leiksvið. Það voru mikil vonbrigði að hann var lokaður. Innsetning Napolitano forseta Seinni partinn hinn 15. maí 2006 átti að fara fram innsetning hins nýja forseta Ítalíu. Á Ítalíu kýs þingið for- setann. Forsetinn verður að vera að minnsta kosti fimmtugur en Giorgio Napolitano verður 82 ára í júní. For- setinn er kosinn til 7 ára. Það var gaman að sjá með eigin augum þing- menn. Hjá Pantheon sáum við Emmu Bonino og heilsaði hún okkur og brosti til okkar. Fyrir framan þinghöllina, Montecitorio, var ítalska „Spaugstofan“ mætt en hún heitir „Striscia la notizia“ sem er á Canale 5 og fékk Linda að láta taka mynd af sér með tvífara Marini þingforseta og tvífara Bruno Vespa sem er sjón- varpsmaður hjá ríkissjónvarpinu. Við stóðum síðan fyrir framan Pal- azzo Chigi og sáum Oscar Luigi Scalfaro, sem var forseti frá 1992 til 1999, Romano Prodi forsætisráð- herra og Antonio Di Pietro sam- gönguráðherra. Að lokum kom Napolitano en við sáum hann ekki þar sem hann kom í skotheldum bíl. Núna var klukkan orðin 17:15 og við áttum að taka lestina til Flórens kl. 18:30 en áttum eftir að ná í far- angurinn á hótelið. Þegar við ætluð- um að fara að taka leigubíl reyndist miðbærinn lokaður fyrir umferð og átti það einnig við um leigubíla og strætisvagna. Okkur hafði verið sagt að það yrði ekkert vandamál að fá leigubíla en svo reyndist ekki vera. En sem betur fer náði Enrico að stöðva leigubíl og við náðum í lestina. Hvað tekur langan tíma að skoða Róm? Komið var að lokum á einni af ógleymanlegu ferðum okkar til Róm- ar. Oft kemur upp í huga mér svar Bertels Thorvaldsen þegar hann var spurður hvað það tæki langan tíma að skoða Róm. Thorvaldsen svaraði: „Ég veit það ekki, ég hef ekki verið hérna í Róm nema í 40 ár.“ Romano Prodi forsætisráðherra gengur í átt að þinghöllinni, Montecitorie. Höfundur er fréttaritari Morgunblaðsins á Ítalíu. TENGLAR .............................................. Ítölsku járnbrautirnar: www.trenitali- a.it Hótel Villa S. Pio: www.aventinohot- els.com Quirinale höllin: www.quirinale.it Antonio Di Pietro, samgönguráðherra Ítalíu, á leið til þinghallarinnar. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 43 R ey kj av ík ur tjö rn RÆKTAÐU VINA- OG FJÖLSKYLDUBÖNDIN Pantaðu fermingarskeyti í síma 1446 eða á netfanginu www.postur.is. Heimsferðir bjóða frábært tilboð til Rimini í júní. Njóttu lífsins í sumar á þessum vinsælasta sumarleyfisstað Ítalíu. Rimini er ekki aðeins frábær áfangastaður út af fyrir sig heldur eru ótrúlega spenn- andi valkostir í næsta nágrenni, vilji menn kynnast mörgum andlitum Ítalíu í einni ferð. Bókaðu flugsæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Stökktu til Rimini 14. eða 21. júní frá kr. 29.990 Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr.29.990 Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, í íbúð í viku. Stökktu tilboð 14. eða 21. júní. Flug, skattar, gisting og íslensk farar- stjórn. Aukavika kr. 10.000. Verð kr.39.990 Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/stúdíó- /íbúð í viku. Stökktu tilboð 14. eða 21. júní. Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. Aukavika kr. 10.000. Allra síðustu sætin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.