Morgunblaðið - 04.06.2006, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 45
MENNING
!"
#$!%&''
!
"#$$ %
GRÍPIÐ
TÆKIFÆRIÐ
Sýningu
lýkur
28. júní
MÓTETTUKÓR Hallgrímskirkju
heldur árlega vortónleika sína á
morgun, annan í hvítasunnu. Á efn-
isskránni er tónlist sem er sprottin
upp úr tónmáli austur-evrópsku
rétttrúnaðarkirkjunar og verða
meðal annars flutt verk eftir tón-
skáld frá Rússlandi, Póllandi og
Serbíu.
Kórtónlist án undirleiks
Hörður Áskelsson kórstjóri segir
kórinn vera að færa sig inn á áður
óþekktar brautir í efnisvali sínu.
Hann segir það lengi hafa verið
löngun sína að kynnast tónlistar-
hefð austurkirkjunnar sem sé mjög
rík af kórtónlist. Það sem gerir kór-
tónlist rétttrúnaðarkirkjunnar svo
sérstaka er að innan kirkjunnar eru
engin hljóðfæri leyfð. Því er kór-
tónlistin öll án undirleiks. „Það er
einungis sungið og það hefur sprott-
ið uppúr því stíll sem byggist á frek-
ar einföldu hljómaferli en þar sem
fjölröddun kórsins er nýtt til hins
ýtrasta,“ segir Hörður. „Tónsviðið
er mjög breytt og það eru miklar
andstæður sem einkenna tónlistina,
bæði djúpir bassar og háir sópran-
ar.“ Hörður nefnir sem dæmi að í
verkum Rachmaninoffs, sem hafi
notið vaxandi vinsælda hjá unn-
endum kórtónlistar undanfarin ár,
eru útsetningarnar fyrir átta raddir
í stað fjögurra eins og algengast er.
„Í raun notar Rachmaninoff fjög-
urra radda karlakór og fjögurra
radda kvennakór sem bæði syngjast
á og syngja saman.“
Annað sem gerir kórtónlist rétt-
trúnaðarkirkjunnar einstaka er að
farið er nokkuð frjálslega með takt.
Hörður segir að þetta veiti mikið
svigrúm fyrir túlkun og auki á
helgiblæ tónlistarinnar. „Tónlistin
er seiðandi. Hún vekur upp sterkar
tilfinningar fyrir tilbeiðslu, upp-
hafningu og íhugun. Mér liggur við
að líkja hljómfallinu við hafið, hæg-
fara en kraftmikið.“
Meginuppistaða efnisskráarinnar
eru fimm mótettur úr Páskavöku
eftir Rachmaninoff. Þá verða flutt
tvö verk eftir pólska samtímatón-
skáldið Gorecki sem samin eru und-
ir áhrifum frá kórstíl austurkirkj-
unnar auk verka eftir Stevan
Hristic og Grikkjann St. Nektario
af Aegina. Einnig verða flutt valin
verk eftir hinn serbneska og róman-
tíska Mokranjac. „Einn kórfélaga
Mótettukórsins er Serbi, Nebosja
Kolic, sem hefur alist upp í þessum
heimi og hefur verið mér til ráð-
gjafar og aðstoðað mig við efnisval.
Hann hefur einnig hjálpað okkur
með allan framburð á rússneskunni,
kirkjuslavneskunni og meira að
segja grískunni.“ Nebosja hefur
einnig haft hönd í bagga með að
flytja inn sýningu á íkonum frá
Balkanskaga sem haldin er í Hall-
grímskirkju í tengslum við tón-
leikana og stendur til 24. júní. „Ég
hafði það á orði við Nebosja að
skemmtilegast væri nú að flytja
þessi tónverk í réttu umhverfi, um-
kringd íkonum. Hann greip þetta á
lofti og setti sig í samband við að-
standendur sýningar sem ferðast
hefur um Skandinavíu en kemur til
okkar beint frá London. Og nú er
Hallgrímskirkja og hliðarsalir
hennar fullir af íkonum.“
Sem fyrr segir verða tónleikarnir
á annan dag hvítasunnu, og hefjast
þeir klukkan 17. Miðasala er þegar
farin af stað í Hallgrímskirkju.
Tónlist | Vortónleikar Mótettukórs
Hallgrímskirkju annan í hvítasunnu
Seiðandi kórtónlist
frá Austur-Evrópu
Eftir Flóka Guðmundsson
floki@mbl.is
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hörður Áskelsson, stjórnandi Mótettukórsins í Hallgrímskirkju.
ELÍN Ósk Óskars-
dóttir, óperusöng-
kona og kórstjórn-
andi, var útnefnd
bæjarlistamaður
Hafnarfjarðar við
setningu lista- og
menningarhátíðar-
innar Bjartra daga
á afmælisdegi Hafn-
arfjarðar síðastlið-
inn fimmtudag. Við
sama tilefni voru
veittir tveir hvatn-
ingastyrkir, til Auð-
ar Vésteinsdóttur
myndlistarmanns
og Eyrúnar Óskar
Jónsdóttur, leikstjóra og leik-
skálds. Elín Ósk, sem fagnar um
þessar mundir 20 ára söng-
afmæli sínu, hefur sungið fjölda-
mörg óperuhlut-
verk innan sem
utan landsteinanna.
Hún hefur einnig
tekist á við ýmis
önnur verkefni, svo
sem óratoríur og
messur, sungið inn
á hljómdiska og
haldið fjölda ein-
leikstónleika. Þá
hefur hún starfað
sem kórstjóri í
mörg ár og er stofn-
andi og aðalstjórn-
andi Óperukórs
Hafnarfjarðar.
Bjartir dagar
standa til 10. júní og er í ár sér-
stök áhersla lögð á þátttöku
barna og unglinga og fjölmenn-
ingu.
Elín Ósk útnefnd bæjar-
listamaður Hafnarfjarðar
Elín Ósk Óskarsdóttir
Á MORGUN kl. 17 halda Gunnar
Kvaran sellóleikari og Selma Guð-
mundsdóttir píanóleikari tónleika í
Gunnarshúsi á Skriðuklaustri.
Á efnisskránni eru m.a. Svíta eft-
ir franska tónskáldið Couperin og
íslensk þjóðlög í útsetningu Hafliða
Hallgrímssonar.
Gunnar og Selma starfa bæði
sem kennarar við Listaháskóla Ís-
lands og Tónlistarskólann í Reykja-
vík.
Aðgangseyrir er 1.000 kr. en
Klausturreglufélagar fá frítt inn.
Gunnar Kvaran og Selma Guð-
mundsdóttir.
Tónleikar á
Skriðuklaustri