Morgunblaðið - 04.06.2006, Side 46
46 SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ALLA daga ársins verða einhver
slys og óhöpp í umferðinni. Í Evr-
ópu farast árlega tugir þúsunda
ökumanna, farþegar og vegfar-
endur. Þessi mikli tollur, sem um-
ferðin á vegum tekur,
er óviðunandi. Stærsti
orsakavaldurinn er of
mikill hraði – líka á
Íslandi.
En hvað er til ráða?
Hér á Íslandi er um
þessar mundir mjög
hertur róðurinn í um-
ferðaröryggismálum.
Stöðugt er verið að
bæta vegina. Eftirlit
með hraðakstri, ölv-
unarakstri og bílbelt-
anotkun hefur verið
stóraukið. Næsta sér-
staka verkefnið er að
auka þjálfun ungra ökumanna í
ökugerði. Stefnt er að því að reglur
um ökugerði og skyldur ökumanna
til þjálfunar verði skilgreindar í
reglugerð sem gefin verður út á
þessu ári.
Ofsaakstur á götum borgarinnar
og á vegum úti hefur verið mjög til
umræðu. Öllum ætti að vera ljós
hættan sem stafar frá ökutækjum
sem ekið er með ofsahraða um göt-
urnar. Það vakti því athygli mína
þegar nýr bíll var kynntur fyrir
stuttu með heilsíðuauglýsingu. Í
auglýsingunni var sérstaklega tekið
fram hann kæmist á 210 km hraða
á klst. Og hann gæti náð 100 km
hraða á 5,2 sekúndum. Hvað geng-
ur mönnum til með
slíkri auglýsingu?
Hvaða þörf er á
slíku vélarafli á götum
borgar og bæja? Má
ekki flokka það undir
ábyrgðarleysi að aug-
lýsa sérstaklega vél-
arstærð og möguleika
á ólöglegum hraða
slíkra ökutækja og
setja jafnvel í hendur
óþjálfaðra 17 ára öku-
manna?
Flutningabílstjóri,
sem jafnframt er
menntaður bifvéla-
virki, vakti athygli mína á því fyrir
stuttu, sem ég raunar vissi, að
flestir flutningabílar eru þannig út-
búnir að vélbúnaður er innsiglaður
svo að hámarksökuhraði er 90 km/
klst. Hann vakti athygli á því að
koma mætti í veg fyrir ofsaakstur
með því að setja samskonar innsigli
á alla bíla. Hámark ökuhraða, sem
leyfður er á þjóðvegum, er 90 km/
klst. Getur verið að stjórnvöld
neyðist til þess að lögleiða að slíkur
búnaður verði settur í alla bíla svo
takmarka megi ökuhraða? Ég tel
rétt að hefja umræðu um það.
Ástæðan er augljós. Haldi ofsa-
akstur áfram mun hann valda
fjölda slysa á hverju ári í framtíð-
inni. Árlega munu að minnsta kosti
tveir tugir manna látast í umferð-
inni hér á Íslandi ef ekki tekst að
ná betri árangri og hemja öku-
menn. Árin 2004–2005 lést að með-
altali 21 einstaklingur í 18 umferð-
arslysum. Talið er að undanfarin
tvö ár hafi 9 manns farist í slysum
þar sem hraðakstur var meg-
inorsök. Í nokkrum tilvikum var
hraðakstur orsök nr. 2 og ekki of-
sagt að hraðakstur hafi komið við
sögu í 30% banaslysa í umferðinni
síðast liðin tvö ár.
Við verðum öll
að draga úr ökuhraða
Sturla Böðvarsson
skrifar um hraðakstur ’Stefnt er að því að regl-ur um ökugerði og skyld-
ur ökumanna til þjálfunar
verði skilgreindar í reglu-
gerð sem gefin verður út
á þessu ári. ‘
Sturla
Böðvarsson
Höfundur er samgönguráðherra.
„ÞETTA er víst danskt,“ sögðu
kerlingarnar og karlarnir með
lotningu í gamla daga um hvaðeina
sem útlenskt var,
hvort sem hlutirnir
voru danskir eða
ekki.
Mig hefur lengi
furðað sú árátta ís-
lenskra heilbrigð-
isembættismanna að
miða allt íslenska
heilbrigðiskerfið við
hið danska. Skipulag
lækninga og sjúkra-
húsa ber samkvæmt
þeirra kokkabókum
að bera saman við
danska tilhögun.
Lyfjanotkun landsmanna ber einn-
ig að skoða undir danska ljósinu.
Nú vill Landlæknir senda sjúk-
linga til Danmerkur í flugi að
sækja lyfin sín nokkrum sinnum á
ári af því að allt er svo ljómandi
gott og ódýrt í Danaveldi. Menn
skyldu því ætla að danska heil-
brigðiskerfið sé til mikillar fyr-
irmyndar. Svo er reyndar alls
ekki. Lýðheilsa Dana er fremur
döpur á Evrópumælikvarðanum og
margar rannsóknir hafa verið
gerðar þar í landi sem sýna fram á
slælegan árangur þeirra á flestum
meðferðarsviðum í
samanburði við þjóðir
þar sem metnaður og
framsýni er meiri á
þessu sviði.
Nýverið hefur flogið
fyrir að hérlend
sjúkrahúsyfirvöld taki
í sama streng og út-
vegi sér hjúkr-
unarfræðinga frá
herraþjóðinni gömlu á
forstjóralaunum í stað
þess að borga hjúkr-
unarfræðingunum sín-
um viðunandi laun og
minnka flóttann úr stéttinni.
Hvers vegna að reka íslenskt
heilbrigðiskerfi yfirleitt? Hvers
vegna gerumst við ekki bara
dönsk og sækjum allt okkar til
Köben eins og í den? Þá var allt
svo miklu betra.
Sumir heilbrigðisembættismann-
anna eru samt ekki alveg svona
róttækir en þeirra fortíðarþrá felst
í því að horfa til hinnar dásamlegu
stofnunar, Lyfjaverslunar ríkisins.
Þá var allt svo miklu betra. Þeir
sem muna eftir þeirri stofnun eru
þó ekki endilega sammála.
Allt þetta gerist meðan fram-
sæknir athafnamenn okkar valda
usla meðal Dana sem helst halda
að Íslendingar séu að kaupa Dan-
mörku eins og hún leggur sig. Sá
brandari gengur meðal Íslendinga
í Danmörku að við séum að kaupa
Tívolí enda hefur ekki gengið of
vel að reka það fyrirbrigði. Ef
maður hins imprar á þessum
brandara við Dani trúa þeir hon-
um eins og nýju neti enda hafa
þeir séð árangur íslensku frjáls-
hyggjunnar í verki undanfarna
mánuði.
Hins vegar er engu líkara en að
íslensku landlæknarnir þrái að
verða danskir embættismenn í
þjónustu Margrétar Þórhildar.
„Det skulle da lyde fint: konge-
lig landphysiscus i Island, Sigurd
Gudmundsen.“
Danmerkurþrá landlækna
Davíð Ingason fjallar um
heilbrigðisyfirvöld og Dani ’Sumir heilbrigðisemb-ættismannanna eru samt
ekki alveg svona róttækir
en þeirra fortíðarþrá felst
í því að horfa til hinnar
dásamlegu stofnunar,
Lyfjaverslunar ríkisins.‘
Davíð Ingason
Höfundur er markaðsstjóri
og lyfjafræðingur.Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Fljótasel - endaraðh. Reykjavík
MEÐ AUKAÍBÚÐ OG BÍLSKÚR.
Nýkomið í einkasölu í þessu
vinsæla hverfi mjög gott enda-
raðhús með bílskúr, samt. 260
fm. Eignin er talsvert endurnýj-
uð, m.a. glæsilegt nýtt eldhús,
frábært skipulag og arinn í
stofu. Mjög góð aukaíbúð með
sérinngangi (í útleigu). Falleg-
ur garður með verönd. Verð
44,5 millj. 11593.
Magnea Sverrirsdóttir, löggiltur fasteignasali
VIÐARÁS - FALLEGT HÚS Á 2 HÆÐUM
Vandað og fallegt raðhús við Viðarás, Seláshverfi. Eignin skiptist í tvær
hæðir og innbyggðan bílskúr. Fjögur svefnherbergi, stofa, borðstofa, gott
hol og sjónvarpsherbergi. Fallegar innréttingar, eikarparket og mikil loft-
hæð í stofu. Planið er fallegt og upphitað. Góður sólpallur með skjól-
veggjum sunnan við húsið og annar norðanmegin. Húsið er verulega vel
staðsett. Stutt er í skóla og alla þjónustu. Verð 42 millj.
Sími 594 5000 - Fax 594 5001
Lynghálsi 4//110 Reykjavík//Lögg. fasteignasali Halla Unnur Helgadóttir
Til leigu mjög gott 165 fm skrifstofuhúsnæði
í góðu lyftuhúsi í 101 Reykjavík.
Hagstæð leiga.
Nánari upplýsingar gefur Bjarni
í síma 896 3875 og 594 5000
Magnea Sverrirsdóttir, löggiltur fasteignasali
GVENDARGEISLI - MEÐ STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU
Frábær nýleg fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð með sérinngangi í 18 íbúða fjöl-
eignarhúsi ásamt stæði í bílageymslu. Fataskápar, hurðir og eldhúsinnétting er
vönduð og spónlögð, maghony. Á gólfum er eikarparket nema á baðherbergi,
forstofu og þvottahúsi en þar eru flísar. Húsið er fallegt með viðarklæðningu
að hluta. Stórar suðursvalir og fallegt útsýni. Um er að ræða góða og vel
skipulagða íbúð í nýju þriggja hæða húsi sem er með einni íbúð á hverri hæð í
hverjum stigagangi. Verð 28,9 millj.
Hraunhamar hefur fengið í einka-
sölu vel skipulagt einbýli á einni
hæð, samtals um 193 fm, þar af er
bílskúr 50 fm. Eignin er vel staðsett
á barnvænum stað við Túngötu,
Álftanesi. Eignin skiptist í forstofu,
hol, stofu, borðstofu, sjónvarpshol,
eldhús, gang, 4 svefnherbergi, bað-
herbergi, þvottahús, gestasnyrt-
ingu (er á teikningu) og bílskúr.
Stutt í skóla og leikskóla og fallegar gönguleiðir. Frábær staðsetning. Verð 37,5
millj. Myndir af eigninni á mbl.is
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Túngata - einb. Álftanesbæ
Fréttir
í tölvupósti