Morgunblaðið - 04.06.2006, Page 51
séu í tengslum við síonista og styðji
stefnu þeirra. Bahá’í trúin bannar
fylgjendum sínum afskipti af stjórn-
málum og pólitískum deilumálum.
Bahá’u’lláh, höfundur hennar, var
gerður útlægur frá Íran á síðari
hluta 19. aldar og var fangi í Palest-
ínu í nærfellt tvo áratugi. Höf-
uðstöðvar bahá’í trúarinnar eru því
af sögulegum ástæðum í Ísrael, nán-
ar tiltekið á Karmel-fjalli í Haifa.
Þáttur Hodjatíeh-samtakanna í
þessum ofsóknum vekur sérstaka
athygli. Íranskur klerkur, Mahmúd
Halabi, stofnaði þessi samtök árið
1953 til höfuðs bahá’í trúnni. Þau
áttu þátt í ofsóknum og eyðilegg-
ingu bahá’í helgistaða um miðbik
sjötta áratugarins. Vegna ágrein-
ings við íslömsku byltingarstjórnina
voru samtökin bönnuð 1984 en þau
hafa komist aftur til áhrifa með
harðlínumönnum í Íran, ekki síst
forseta íranska lýðveldisins, Mah-
múd Ahmadinejad. Samtökin telja
að ekki verði hægt að stofna raun-
verulegt islamskt lýðveldi fyrr en
12. ímaminn, Mahdi, snýr aftur, en
hann hvarf árið 879 e. Kr. End-
urkoma Mahdis hefur svipaða þýð-
ingu fyrir shíah múslima og end-
urkoma Krists fyrir marga kristna
menn. Ahmadinedjad lýsti því yfir í
ræðu sem hann hélt á samkundu ír-
anskra klerka í nóvember á síðasta
ári að meginmarkið írönsku bylting-
arinnar væri að ryðja endurkom-
unni braut og stefna landsins í efna-
hagsmálum, menningu og
stjórnmálum yrði að miðast við
hana.
Á þeim aldarfjórðungi sem liðinn
er frá stofnun íslamska lýðveldisins
Írans hafa mörg hundruð bahá’íar
verið líflátnir, fangelsaðir eða pynd-
aðir í því skyni að fá þá til að afneita
trú sinni. Tugir þúsunda hafa misst
atvinnu eða neyðst til að flýja
heimalandið. Ungum bahá’íum hef-
ur verið neitað um inngöngu í há-
skóla og framhaldsskóla og fólk sem
komið var á eftirlaunaaldur hefur
verið svipt eftirlaunum og ellilífeyri.
Í leyniskjali stjórnarinnar frá 1991
sem Ajatollah Khamenei undirritaði
er að finna áætlun um upprætingu
bahá’í samfélagsins í Íran með lang-
tímaaðgerðum sem miða að því að
gera aðstæður þeirra og lífskjör
óbærileg. Þá er lagt til að gerð verði
áætlun um að eyðileggja menning-
arlegar rætur bahá’í samfélagsins
utan Íran. Ástæða er til að ætla að
hér sé m.a. verið að vísa til höf-
uðstöðva trúarinnar í Ísrael. Mann-
réttindanefnd Sameinuðu þjóðanna
komst yfir þetta skjal og birti það
1993.
Unnið hefur verið samkvæmt
þessum áætlunum með því að svipta
bahá’ía stjórnarskrárbundnum rétt-
indum varðandi nám, atvinnu og
eignarétt og með eyðingu helgistaða
og menningarverðmæta. Allt bendir
nú til þess að hertra aðgerða sé að
vænta gegn bahá’í samfélaginu. Al-
þjóðlegt samfélag bahá’ía beinir
þeim eindregnu tilmælum til stjórn-
valda að þau mótmæli þessum
mannréttindabrotum og ofsóknum á
vettvangi Sameinuðu þjóðanna og
við sendifulltrúa írönsku stjórn-
arinnar í löndum sínum.
’ Á þeim aldarfjórðungisem liðinn er frá stofnun
íslamska lýðveldisins Ír-
ans hafa mörg hundruð
bahá’íar verið líflátnir,
fangelsaðir eða pyndaðir
í því skyni að fá þá til að
afneita trú sinni.‘
Höfundur er bahá’í.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 51
UMRÆÐAN
Kristinn Pétursson: „Endur-
vinna gagnagrunn ICES og
Hafró“
Þorsteinn Gestsson fjallar um
vímuefni.
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Melabraut - Seltjarnarnesi
Vorum að fá í sölu fallega og mikið standsetta 111 fm efri hæð og ris við Melabraut. Sérinn-
gangur. Um er að ræða fjórbýlishús. Íbúðin skiptist þannig að á hæðinni er stór stofa, eldhús,
tvö herbergi, baðherbergi og hol. Í risi er eitt herbergi og þvottahús. V. 27,7 m. 5867
Veghús - með bílskúr
Mjög falleg 2ja herbergja íbúð á jarðhæð
ásamt bílskúr. Íbúðin skiptist þannig: stofa,
herbergi, eldhús, baðherbergi og forstofa.
Sérgeymsla er innan íbúðar. Bílskúrinn er
góður með hita og rafmagni. V. 17,5 m. 5869
Rauðalækur - rúmgóð
Vorum að fá í sölu mjög fallega og mikið
standsetta 81,4 fm 3ja herb. íbúð í kjallara í
fjórbýlishúsi við Rauðalæk. Sérinngangur.
Íbúðin skiptist m.a. í stóra stofu, eldhús, bað-
herbergi og tvö rúmgóð herbergi. Miklir
skápar. Húsið var málað að utan fyrir um ári
síðan. Falleg gróin lóð. V. 18,5 m. 5872
Eskihlíð - nýuppgerð
Neðstaleiti - rúmgóð
Vorum að fá í sölu mjög fallega 135 fm íbúð á 3. hæð (efstu hæð) í litlu fjölbýlishúsi við
Neðstaleiti. Einungis ein íbúð er á hæðinni. Íbúðin skiptist m.a. í rúmgóða stofu og fjögur her-
bergi. Eitt herbergjanna er forstofuherbergi með sérinngangi af stigapalli (einnig innangengt
í það úr íbúð). Falleg hvítsprautuð innrétting í eldhúsi. Pláss fyrir tvöfaldan ísskáp. Góður
borðkrókur. Þvottahús í íbúð. Stórar svalir til suðurs út af stofu. Fallegt útsýni. V. 35,0 m. 5847
Herjólfsgata Hf. - 60 ára og eldri
Ný og glæsileg 73 fm íbúð á 3. hæð fyrir 60 ára og
eldri í fjögurra hæða lyftuhúsi. Íbúðin er ný, full-
frágengin og tilbúin til afhendingar. Íbúðin skiptist
í hol, eldhús, þvottaherbergi, aukageymslu í íbúð,
stofu, svefnherbergi og baðherbergi. Á jarðhæð
er geymsla og bílastæði í bílageymslu (innan-
gengt). Eikarparket á gólfum og flísar á baðherb.
og þvottaherb. Innréttingar eru með eikarspóni og
eru tæki frá AEG. Sérstök einangrun er í gólfi til
aukinnar hljóðvistar. Mynddyrasími o.fl. Glæsilegt
útsýni. V. 22,1 m. 5664
Ránargata - glæsileg
Vorum að fá í einkasölu glæsilega 6 herbergja 128 fm íbúð ásamt tveimur herbergjum í kjall-
ara. Íbúðin er á tveimur hæðum. Sérinngangur. Á neðri hæðinni er forstofa, gangur, eldhús,
baðherbergi og stór stofa. Á efri hæðinni eru fjögur stór herbergi. Íbúðin er mjög glæsileg og
hefur verið standsett á vandaðan hátt. Gegnheilt eikarparket og flísar á gólfum. Lóðin er ný-
standsett, með nýrri grasflöt og hellulögn. V. 39,5 m. 5784
Tjarnarból - efri sérh. + aukaíbúð
Falleg 125 fm efri sérhæð auk stúdíóíbúðar í kjallara og nýjum 51,5 fm bílskúr á Seltjarnar-
nesi. Samtals er stærð eignarinnar 232 fm. Eignin skiptist m.a. í forstofu, gang, eldhús, stofu,
borðstofu, baðherbergi og fjögur herbergi. Í kjallara er góð stúdíóíbúð. Tvíbýlishús. Sérlega
fallegur garður. V. 46,9 m. 5870
Ljósvallagata - íbúð og útleigu herb.
Góð 3ja herbergja íbúð ásamt aukaherbergjum í
risi í fallegu steinhúsi. Íbúðin skiptist í tvær
samliggjandi stofur, svefnherbergi, eldhús og
baðherbergi. Gengið frá holi utan íbúðar upp á
hol í risi. Þar fylgja þrjú lítil herbergi, sem eru
undir súð og með þakglugga og aðgangur að
sameiginlegri snyrtingu. Sérgeymsla og sam-
eiginleg geymsla eru í risi. Hol hússins (stiga-
gangurinn) er einstaklega stórt, bjart og vand-
að. Þar er stór stigapallur, veglegt handrið úr
hnotu og arinn. Sameiginlegar svalir eru út af
sameign. Herbergi í risi hafa verið í útleigu og
gefið góðar tekjur. V. 22,9 m. 5830
Dalsel - með stæði í bílageymslu
Björt og falleg fjögurra herbergja íbúð á
þriðju hæð. Frábært útsýni er úr íbúðinni.
Íbúðin skiptist í hol, stóra stofu, eldhús, bað-
herbergi og tvö svefnherbergi. Á jarðhæð
fylgir sérgeymsla auk sam. þurrkherb., hjóla-
geymslu o.fl. Gott stæði í nýlega uppgeðri
bílageymslu fylgir. V. 17,9 m. 5866
Bogahlíð
Góð 3-4ra herbergja 80 fm íbúð á 2. hæð á eft-
irsóttum stað í Hlíðunum. Íbúðin skiptist m.a. í
stofu og þrjú herbergi (eitt herbergjanna er
inn af stofu). V. 17,4 m. 5763
Laugateigur - neðri sérhæð
Falleg 110 fm neðri sérhæð við Laugateig í Reykjavík, ásamt 32 fm bílskúr. Eignin skiptist í for-
stofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi og tvö herbergi. Í kjallara er sérgeymsla og
sameiginlegt þvottahús. Sérinngangur. Rúmgóður og góður bílskúr. Húsið virðist líta vel út að
utan. Snyrtileg sameign. V. 29,9 m. 5862
Bollagata - mikið uppgerð
Mjög falleg, mikið uppgerð fjögurra herbergja íbúð á neðri hæð á þessum frábæra stað við
Bollagötu í Reykjavík. Eignin skiptist í rúmgott hol, baðherbergi, tvö góð herbergi, tvær bjartar
og fallegar stofur og eldhús. Tvennar svalir eru á íbúðinni, aðrar til austurs og hinar til suðurs.
V. 28,0 m. 5856
OPIÐ HÚS - Bólstaðarhlíð 37
Vorum að fá í sölu fallega 86 fm 3ja herb. íbúð í kjallara í mjög fallegu fjórbýlishúsi í Bólstað-
arhlíð. Húsið er staðsett nálægt Ísaksskóla. Íbúðin skiptist m.a. í stofu, tvö herbergi, eldhús,
baðherbergi og hol. Svefnherbergin eru bæði sérstaklega rúmgóð. Snyrtileg aðkoma að hús-
inu. Íbúðin verður til sýnis í dag sunnudag frá kl 14-17. V. 18,5 m. 5807
Mosarimi
Vorum að fá í sölu fallega 2ja herb. um 60 fm íbúð á 3. hæð í litlu fjölbýlishúsi. Sérinngangur
er í íbúðina. Rúmgóðar svalir útaf stofu. Verið er að mála blokkina og greiðir seljandi kostnað
vegna þess. V. 14,5 m. 5829
Mjög góð og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á 4. hæð ásamt aukaherbergi í risi í nývið-
gerðu fjölbýlishúsi við Eskihlíðina. Íbúðin skiptist þannig: stofa, tvö herbergi, eldhús, baðher-
bergi og hol. Auka herbergi í risi og við hlið þess er sérgeymsla. Sameiginlegt þvottahús er í
risi. V. 19,1 m. 5857