Morgunblaðið - 04.06.2006, Side 52
52 SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
„HVERS vegna voru risastórar
sovézkar sprengiflugvélar stöðugt á
ferð í kringum Ísland, nánast í
hverri viku? Hvers vegna voru sov-
ézkir kafbátar allt í kringum landið?
Hvers vegna fundust
sovézk njósnadufl hér
og þar í fjörum á Ís-
landi?“
Þessum þremur
spurningum er varpað
fram í athyglisverðum
leiðara Morgunblaðs-
ins þriðjudaginn 22.
maí sl. Svarið liggur í
augum uppi að mati
leiðarahöfundar.
Spurningunum er í
raun ætlað að birta í
hnotskurn ógnina sem
Íslendingum stafaði á
sínum tíma af Sovétríkjunum. Öllum
á að vera ljóst að vegna þessarar
ógnar var nauðsynlegt að hafa hér
bandarískt varnarlið í hartnær hálfa
öld. Og vegna hennar var það rétt-
lætanlegt að hlera síma þeirra „sem
vildu að Ísland yrði skilið eftir varn-
arlaust í þeim hörðu átökum“ sem
áttu sér stað á tímum kalda stríðsins.
Það eru auðvitað staðreyndir að
sovéskar herflugvélar áttu árum
saman reglulega leið hjá, eða jafnvel
um íslenska lofthelgi. Sovéskir kaf-
bátar fóru um sundin milli Græn-
lands og Íslands og Skotlands til að
komast út á Atlantshaf. Og það er al-
kunna að þessir kafbátar drógu oft
langa kapla með hlustunarduflum til
að reyna að hlera ferðir
bandarískra kafbáta.
En stundum er hægt
að setja staðreyndir
fram með þeim hætti
að úr verður afskræm-
ing á sannleikanum. Og
það gerir leiðarahöf-
undur Morgunblaðsins
hér, hvort sem hann
gerir það af vanþekk-
ingu eða vitandi vits.
Þegar grannt er skoðað
er engin þessara um-
ræddu staðreynda vís-
bending um ógnun sem
sérstaklega er beint að Íslandi.
Herflugvélarnar sem um ræðir
voru vissulega þess konar vélar sem
kallaðar voru á Vesturlöndum
„Björninn“, þ.e. í grunninn sams
konar vélar og langdrægar sprengi-
flugvélar Sovétmanna. Langflestar
vélarnar, sem orustuþotur varn-
arliðsins í Keflavík flugu í veg fyrir,
voru hins vegar svokallaðar „Björn-
inn D“, könnunar- og kafbátaleit-
arvélar, á leið til eða frá Kúbu og
reyndar afar berskjölduð skotmörk.
Þetta voru með öðrum orðum ekki
sprengiflugvélar sem beint var að Ís-
landi.
Kafbátar þeir sem einkum áttu
leið hjá Íslandi voru svokallaðir
árásarkafbátar, þ.e. kafbátar sem
ætlað var svipað hlutverk og þýskum
kafbátum í síðari heimsstyrjöld.
Þetta voru skip hönnuð til átaka við
bandaríska kafbáta, flugmóð-
urskipaflota og flutningaskipalestir
á stríðstímum. Þessir kafbátar voru
sannarlega hluti af þeirri ógn sem
mannkyninu stafaði af átökum risa-
veldanna í kalda stríðinu en þessir
bátar báru engan þann vígbúnað
sem stefnt var sérstaklega að Ís-
landi. Síst af öllu eru kafbátar til
þess fallnir að flytja landgöngulið til
að gera innrás í landið (ef það er það
sem leiðarahöfundur Mbl. ætlar les-
endum sínum að trúa).
Njósnaduflin sem fundust „hér og
þar í fjörum á Íslandi“ (fundust ekki
jafnvel einhver við Kleifarvatn?)
voru jafnvel enn minni „ógn“ við ís-
lenskt þjóðaröryggi en þeir Ragnar
Arnalds og Kjartan Ólafsson eftir að
þau hafði rekið á fjörur hér við land.
Þessi dufl höfðu eingöngu það
hlutverk að hlera ferðir kafbáta og
það má jafnvel draga í efa gagnsemi
þeirra á því sviði, ef haft er í huga að
bandarískir kafbátaforingjar hældu
sér iðulega af því að hafa siglt bátum
sínum undir sovéskum kafbátum inn
á hafnir á Kolaskaga án þess að
þeirra yrði vart.
Það er dálítið kaldhæðnislegt að
þessar sovésku „sprengiflugvélar“,
kafbátar og „njósnadufl“ afhjúpa
fyrst og fremst veikleika sovésku
hernaðarvélarinnar í samanburði við
þá bandarísku á dögum kalda stríðs-
ins. Það hefði verið meiri ástæða til
að óttast ef stjórn-, eftirlits- og
njósnabúnaður Bandaríkjahers hefði
ekki nær öllum stundum vitað hvar
þessi stríðstól Sovétríkjanna voru
hverju sinni.
Mikilvægasta staðreynd þessa
máls er sú að Bandaríkjaher taldi Ís-
landi ekki stafa meiri ógn af Sov-
étríkjunum en svo að hann hafði
aldrei nokkurn tíma neinn viðbúnað
hér á landi til að verjast hugsanlegri
innrás þeirra.
Báðum aðilum var fullkomlega
ljóst að Sovétríkin höfðu aldrei hern-
aðarlegar forsendur til að hernema
Ísland og halda landinu.
Hvers vegna?
Vigfús Geirdal fjallar um kalda
stríðið og varnir Íslands
’Það hefði verið meiriástæða til að óttast ef
stjórn-, eftirlits- og
njósnabúnaður Banda-
ríkjahers hefði ekki nær
öllum stundum vitað hvar
þessi stríðstól Sovétríkj-
anna voru hverju sinni.‘
Vigfús Geirdal
Höfundur er sagnfræðingur.
Íbúðir
Tilboð óskast
Í tilefni af fyrirhugaðri uppbyggingu í
nýja miðbænum á Selfossi er óskað
eftir tilboðum í 60 fm húseign á Kirkju-
vegi 7, Selfossi, sem selst til brottflutn-
ings. Húsið skiptist í tvö herbergi, eld-
hús, baðherbergi og rúmgóða stofu.
Nýtt parket er á gólfum, ný eldhúsinn-
rétting og nýjar hurðir. Húsið er tilvalið
sem sumarhús.
Margrét gsm 693 4490 og Þórey gsm 699 1988 taka vel á móti þér og fjölskyldu þinni í opnu húsi í dag.
Til sýnis í dag, sunnudaginn 4. júní, kl. 14-16
Samstarfsaðili um fjármögnun:
Selt til brottflutnings
Kirkjuvegur 7, Selfossi
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Sérlega fallegt einbýli á þessum
friðsæla stað í Garðabæ. Húsið er
226,6 fm með bílskúr sem er skráð-
ur 54,8 fm. Skipting eignarinnar: 4
svefnherbergi, hol, stofa, borðstofa,
eldhús með borðkróki, þvottahús,
baðherbergi, gestasnyrting, for-
stofa, herbergi með sturtu og bílskúr. Búið er að útbúa aukaíbúð sem er um
50 fm. Þetta eign sem vert er að skoða. V. 53,5 millj.
Holtsbúð - einb. Gbæ
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.
Tjarnargata - stórglæsileg
endurnýjuð íbúð með útsýni yfir Tjörnina
Stórglæsileg 92 fm 4ra herb. íbúð á 2. hæð auk 18 fm herbergis í kjallara. Íbúð-
in er algjörlega endurnýjuð á vandaðan og smekklegan hátt m.a. öll gólfefni,
innrétting í eldhúsi og tæki, baðherbergi, innihurðar, lýsing og raflagnir. Rúm-
góðar samliggjandi stofur og 2 herbergi. Frábær staðsetning.
Verð 35,0 millj.
Digranesvegur - Kópavogi
226 fm tvílyft einbýlishús með glæsi-
legu óhindruðu útsýni í Suðurhlíðum
Kópavogs. Stór stofa með miklum
gluggum, eldhús með góðum borð-
krók, sjónvarpshol, 4 herbergi og ný-
lega endurnýjað baðherbergi auk
gesta w.c. Stór og skjólmikil lóð með
sólpalli. Suðursvalir. Göngufæri við skóla og leikskóla.
Verð 43,9 millj.
Fornaströnd - Seltjarnarnesi
Vel staðsett 210 fm einbýlishús á einni
hæð auk 39 fm tvöfalds bílskúrs. Eign-
in skiptist m.a. í rúmgott hol, samliggj.
borð- og setustofu með útsýni til sjáv-
ar, stórt eldhús, sjónvarpsstofu, 4
herb. auk húsbóndaherb. og flísalagt
baðherb. auk gestasalernis. Úr sjón-
varpsstofu er gengið í hellulagðan sólskála og á verönd. Falleg ræktuð lóð.
Verð 69,0 millj.
Snorrabraut - eldri borgarar
3ja herb. með bílskúr.
Glæsileg 90 fm íbúð á 7. hæð í lyftu-
húsi auk 30 fm bílskúrs. Íbúðin skiptist
í forstofu, geymslu við forstofu, hol,
eldhús, bjarta stofu með útsýni til
vesturs, 2 herbergi og baðherbergi
með sturtuklefa. Parket á gólfum.
Suðvestursvalir út af stofu. Húsvörður.
Verð 30,5 millj.
Ásendi - glæsilegt einbýlishús
við opið svæði
Glæsilegt og mikið endurnýjað um 416
fm einbýlishús á tveimur hæðum með
27 fm innb. bílskúr. Eignin skiptist
m.a. í samliggjandi bjartar og stórar
stofur með fallegum arni og útsýni að
Elliðaárdalnum, rúmgott eldhús með
nýlegum ljósum innréttingum og nýj-
um vönduðum tækjum, um 60 fm fjöl-
skyldurými, 6 herbergi og glæsilega
endurnýjað baðherb. auk tveggja snyrtinga. 40 fm garðskáli með heitum potti.
Eignin er vel staðsett við opið svæði. Falleg ræktuð lóð.
Eign sem vert er að skoða.
Hringbraut - hæð og ris
ásamt bílskúr
Falleg 151 fm 6 herb. hæð og ris í þrí-
býli ásamt 20 fm bílskúr. Hæðin skipt-
ist m.a. í rúmgóðar samliggj. stofur
með útgengi á vestursvalir, eldhús, 4
herb. og flísal. baðherb. Nýtanl. gólf-
flötur í risi er um 80 fm og hefur verið
allt nýlega einangrað, miklir möguleik-
ar. Bílskúr upphitaður og raflýstur. Af-
girtur og fallegur suðurgarður.
Verðtilboð. Laus strax !
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn